Morgunblaðið - 15.02.1946, Síða 7

Morgunblaðið - 15.02.1946, Síða 7
Föstudagjur 15. febr. 1946 ÍOR6UNBLI0I® 1 Morgaret O’Brien íær 325 þús. kr. í árslttun MARGARET O’Brien, 8 ára gömul, byrjaði að leika í kvikmyndum, þegar hún var fjögra ára. Síðan hefir hún fullgert fjórar myndir og þær vinsælustu, eins og ,,Journey for Margaret“, og „Meet Me in St. Louis“, hafa haft það í för með sjer, að hún er alment álitin ein- hver þektasti kveiíleikari Bandaríkjanna. O’Brien litla fær 50.000 dollara (325 000 krónur) á ári frá kvikmyndaf jelagi því sem hún er ráðin hjá, og um það bil jafn mikið fyrir ýms aukastörf við útvarpsleiki, hljómplötugerð o. fl. í leik- herbergi hennar er meðal annars myndlíkan af. St. Bridget, sem Gaelic Society hefir gefið henni, tvö heið- ursmerki fyrir að selja stríðs skuldabrjef, demantshring- ur frá Jimmy Durante, og mjmd af Marshall hershöfð- ingja með eiginhandarund- irskrift hans. O’Brien er heiðursprinsessa tveggja kynflokka í Indlandi, og fær fleiri brjef frá kvikmynda- aðdáendum en allir leikarar M-G-M kvikmyndafjelags- ins, að Van Johnson og June Allysön undanskild- um. Öll þessi viðurkenning- armerki sýna það ljóslega, að hún er frægasti barnaleik arinn síðan á tímum Shirley Temple, og enn er ekki út- sjeð um, hvort hún fer jafn vel ekki fram úr henni. Miklar leikgáfur. ÞAÐ eru tvö mikilsverð atriði, sem gera það að verk um, að Margaret O-Brien er öðru vísi en flestir aðrir barnaleikarar. Hún er ekk- ert sjerlega falleg og hún hefir hvorki dans nje söng- hæfileika. En hún hefir samt einn ómetanlegan eigin- leika, leikarahæfileika, en þar er hún langt á undan jafnöldrum sínum, sem stunda leikstarfsemi. Marga ret er ágætur skopleikari, hefir sjerstaklega góðan framburð og er einstakur snillingur að beita hinum barnalega yndisþokka sín- um. Jafnvel fullorðnir kven- leikarar verða að vera gædd ir þeim hæfileikum, að geta látið tárin streyma, þegar með þarf. í fyrstu kvikmynd sinni, „Journey for Marga- ret“, kjökraði hún og org- aði í fullar fjórar og hálfa mínútu. Persónuleiki henn- ar hefir komið mörgum full- orðnum leikurum í vand- ræði. Lionel Barrymore hef ir sagt um hana: „Hún er eini kvenmaðurinn, að Ethel systur minni ótaldri, sem hefir komið mjer til að vökna um augun“. Það, sem vekur jafn vel meiri furðu en leikaðferðir hennar, er hæfileiki hennar að læra hlutverk sitt. Varla kemur fyrir oftar en fjórum eða fimm sinnum meðan verið er að gera myndir hennar, að hún gleymi lín- um sínum, þó það komi ekki ósjaldan fyrir, að fullorðnir gleymi þeim jafn oft á ein- Hún er aðeins átta ára gömul og þó einn af vinsælustu kvikmynda- leikurum Bandaríkjanna um degi. Síðastliðið vor fór hún með 33 sjálfstæðar lín- ur í útvarpið, án þess að mis takast í eitt einasta skifti og þurfti þó aldrei að styðjast við handritið. Fullorðið fólk, sem tók 'þátt í þessari út- varpssendingu, furðaði stór- lega á þessu fyrirbrigði. — Margaret, sem lærir línur sínar með því að hlusta á móður sína fara með þær, skammaðist sín ákaflega fyr ir að geta ekki lesið handrit- ið. Er hún heyrði, að það væri hreint ekki svo erfitt að læra að lesa, þrábað hún að fá að taka aukakennslu í lestri. Það, sem flest börn læra á tveim árum, lærði hún á 67 dögum. Hún getur í dag lesið næstum hvaða bók sem er. Þetta er Margaret O’Brien. kvikmyndum?“ „Ó, já, þakka yður fyrir“, svaraði Margaret og sneri sjer síðan að móður sinni. „Hann hef- ir ekki farið víða þessi, ex það?“ spurði hún. Það feist frekar meðaumkun með full orðnum en mont í þessum barnalegu spurningum henn ar. Þegar hún fyrst mætti Gloria Swanson, sagði Glo- ria: „Einu sinni var jeg nú sjálf töluvert þekkt leik- kona“. „Er það?“, svaraði Margaret. „Hvað kom fyr- ir?“ Margaret notar eiginleika sína út í æsar. Síðasta mynd hennar, „Our Vines Have Tender Grapes“, hefst á því, að hú n lætur í ljós hrygð sína yfir að hafa orðið óvilj- andi litlum íkorna að þana. Kvikmyndastjórinn lýsti þessu nákvæmlega' fyrir henni, lagði áherslu á gildi bessa þáttar og spurði loks, hvort það væri nokkuð meira, sem hún vildi vita. ,,Já“, svaraði Margaret. — „Viltu að tárin renni hing- að“, hún snerti augnahár sín, „eða viltu tár, sem renna alla leið niður?“ Hún hefir nóg að gera. MARGARET og móðir hennar — faðir hennar dó áður en hún fæddist — búa í íbúðarhúsi í Beverley Hills. Margaret fer til vinnu hjá kvikmyndafjelaginu kl. níu á hverjum morgni, og er þar allan daginn, annað hvort að leika, fara yfir hlut verk eða stunda nám við skóla þann, sem kvikmynda fjelagið hefir handa hinum ungu leikurum sínum. Að klukkustundar hvíldartíma ótöldum, eyðir Margaret megninu af þeim fjórum tímum, sem hún er við leik- störf, í að hugsa um eitthvað sorglegt, til þess að komast í rjett skap fyrir alvarleg- ustu þætti kvikmyndarinn- ar. Hún gerir þetta óbeðin og virðist hafa hina mestu ánægju af. Helmingur launa hennar, sem, samkvæmt lögum rík- isins, er lagður inn á spari- sjóðsbók hennar, fer í Vic- tory Bonds. Megnið af því, sem eftir er, fer til uppihalds hennar sjálfrar og móður hennar. Margaret fær sjálf ekkert nema það, sem hún vinnur stöku sinnum í spili, sem hún spilar upp á fimm cent spilið, auk þess sem hún fær einn dollara og tutt ugu cent fyrir að taka til í klæðaskápum móður sinnar, og það sem hún vinnur á skeiðvellinum, en um hesta- veðmál er Louis B. Mayer aðal ráðunautur hennar. Móðir Margaret litlu, Gla- dys O'Brien, vann fyrir sjer í mörg ár sem dansmær. — Hún mætti manni sínum, er hún sýndi dans hjá hring- leikahúsi nokkru, og giftist honum 1934. Eftir að dóttir hennar fæddist, ferðaðist Gladys í tvö ár ásamt syst- ur sinni um Bandaríkin, Kanda og Kúba til danssýn- inga. Meðan systir hennar sýndi dans, eyddi Gladys miklu af tíma sínum í kvik- myndahúsum, og með henni var oft dóttir hennar litla, sem til þessa hafði lifað mest an hluta hinnar stuttu æfi sinnar á ferðalögum. Ákvað að verða Ieikari. MARGARET tók snemma þá ákvörðun að verða kvik- myndaleikkona. — Áður en hún var orðin fullra þriggja ára, hafði hún lært sex eða sjö hlutverk, meðal annars hlutverk Scarlett O’Hara og Lady Hamilton, sem hún ljek, hvenær sem hún fekk tækifæri til þess. Árið 1941, er hún var fjögra ára gömul, þótti henni tími til kominn að fara til Hollywood. Móð- ir hennar ljet þetta eftir henni. Eftir það einkenndist fer- ill hennar af baráttu og sigr um yfir erfiðri samkeppni og slæmum aðstæðum. — Á vilja komast að hjá kvik- mvndaframleiðanda, yfir skrifstofukostnað er eftir- farandi klausa: „Fyrir að horfa á börn gædd ýmsum hæfileikum, 500 dollara; fyr ir að hafa tal af þessum börn um, 50.000 dollara“. — Á þessu sjest ljósast, hvaða álit flestir kvikmvndaframleið- endur hafa á barnaleikur- um. Og við þetta bætist. bað, að skrásetningarskrifstofa kvikmyndafjelagsins skráir árlega 2400 börn, sem næst- um öll geta sungið, dansað, skaufað og riðið á hestbaki, mikið betur en Margaret. Ein leiðin fyrir börn, sem vilja komast a ðhjá kvik- mvndafjelögum, er að fá Paul Hesse til að taka af sjer mynd. Á biðstofu Hesse var sægur af fallegum og efnilegum börnum, og móð- ur Margaret f jell allur ketill í eld og vildi fara með hana heim aftur. En Margaret þverneitaði því, og beið í klukkutíma. — Loks kom Hesse til vinnustofu sinnar, hoffði augna'blik á Margaret og sagði, um leið og hann benti á hana: „Þessa vil jeg láta sitja fyrir“. Fyrsta hlutverkið. MYNDIR Hesse birtust á forsíðum margra vikublaða. Hún fekk einnig smáhlut- verk í kvikmyndinni „Babes on Broadway“, en hinn eig- inlegi ferill hennar á sviði kvikmyndanna hófst, er henni var gefið hlutverk foreldralausu stúlkunnar í „Journev for Margaret“. — Þar sem flest börnin í Holly wood eru sælleg, vel vax- in og hamingjusöm að sjá, gátu fá þeirra komið til greina til þessa hlutverks. Margaret, með hið föla og tilfinninganæma andlit sitt og fljettúrnar, mundi hafa verið sjálfsögð í hlutverkið, jafnvel þó hún hefði ekki verið gædd þeim leikhæfi- leikum, sem raun er á. Er próf höfðu farið fram og að- eins fjórar voru eftir af um- sækjendunum, fór Margaret með nokkrar línur, með þeim árangri, að Harry Rapf kvikmyndaframleiðandi, hrópaði: „Látið hana hætta, hún er að drepa mig“, og ljet hana fá hlutverkið. — Frá þeirri stundu hafa vinsældir hennar stöðugt aukist. Hún er ófeiniin. SÁ árangur, sem Marga- ret hefir náð með leiklist sinni, mundi gera það að verkum, að jafnvel illa gef- ið barn, mundi komast að raun um þýðingu sína. Marg aret, sem er langt frá því að vera heimsk, genr sjer þetta algerlega-ljóst. Þegar Clark Gable sneri aftur eftir tveggja ára herþjónustu, mætti hann Margaret litlu og sagði brosandi: „Jæja, telpa mín, leikur þú líka í - Alþj. veltv. Framh. af bls. 6. og gengi gjaldeyris er eitt og hið sama, þegar til lengdar læt ur, og má gjarnan bæta yið eignaaukaskattinum (eengangs skatten). Það er gífurleg ábyrgð, sem -hvílir á foringjum verkalýðs- og vinnuveitendafjelaga innan ástands þess, er nú ríkir, þeg- ar ríkisvaldið ræður hagkerf- inu, en’ ákvörðun vinnulauna er ein háð frjálsu samkomu- Iagi. Þetta ástand er órjett- mætt og mjög hættulegt. í höndum foringja samtakrnna hvíla ekki einungis ákvarðanir um hæð launataxta, heldi?r í raun rjettri ákvarðanir um gengi gjaldeyris vors og sam- kepnismöguleika landsins,' og þar með um það, hvort hægt verður að forðast geigvænlegar kreppur. Ef verkamenn sjálfir beittu viturlegri hófsemi í launa- samningum og vinnuveitendur sömu hófsemi í útreikningum ágóða síns, myndi slíkt bera tí- faldan ávöxt fyrií danskt at- vinnulíf og þvi verða báðum aðilum til hagsbóta á ókomn- um tímum. Vandamál, sem leysa verður í samhengi. Verkalaun, gengismál og eignaskattur eru eitt og sama vandamálið, og verða því ekki leyst hvert í sínu lagi. Það gengur sjálfsmorði næst, er hópur landsmanna ætlar að þvinga fram hærri laun, m. a. af ótta við að krónan muni verða feld, og annar hópur krefst ef til vill lægra gengis, ff því að hann sjer fram á hækkandi kauplag. Það er skylda ríkisstjórnarinnar, iðn- samtaka, verlcalýðs- og vinnu- veitendafjelaga að haga að- stæðum þannig, að þessi við- fangsefni verði leyst í sam- hengi. Hjónaefni. Síðastl. laugardag opinbaruðu trúlofun sína Kam illa Valdimarsdóttir og Eyjólf- ur Vilhelmsson. Bæði til heim- ilis á Hverfisgötu 91.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.