Morgunblaðið - 21.03.1946, Page 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
A. eða NA gola eða kaldi.
Rigning öðru hverju.
RÚSSAR atyrða Bandaríkja-
menn. — Sjá bls. 2.
Bakarar í sjálfboðavinnu
Mynd þessi er af bakarameisturum og lærlingum, sem
rinna nú við byggingu hins nýja brauðgerðahúss hlutafje-
iagsins Rúgbrauðsgerðin, við Borgartún. Allir vinna þeir
sem sjálfboðar við bygginguna. Mynd þessi er tekin er þeir
voru að vinna við að flokka timbur.
(Ljósm. Mbl. Friðrik Clausen.)
Yfir 400 nýir fjelagar
í Vörð frá s.l.hausti
Frá aðalfundi
Yarðarfjeiagsins í gærkvöldi
AÐALFUNDUR Varðarfjelagsins var haldinn í Lista-
mannaskálanum í gærkvöldi.
Formaður fjelagsins, Bjarni Benediktsson, setti fundinn.
Hann gaf og yfirlit um störf fjelagsins á liðnu starfsári. —
Oat þess m. a. að gengið hefði í fjelagið frá því á s.l. hausti
rúmlega 400 nýir fjelagar. ________
Því næst gerði Jóhann Haf-
stein grein fyrir fjárhag fje-
lagsins. Skýrði m. a. frá því,
að Varðarfjelagið hefði lagt
40 þús kr. í byggingu nýja
Sjálfstæðishússins.
Þá var gengið tll stjórnar-
kosningar.
Bjarni Benediktsson baðst
eindregið undan endurkosn-
ingu; einnig Guðm. Benedikts
son, en hann var varaformað-
ur fjelagsins.
Formaður fjelagsins var
kjörinn Ragnar Lárusson fá-
tækrafulltrúi. Meðstjórnend-
ur þessir: Magnús Þorsteins-
sori, Jóhann G. Möller, Guð-
bjartur Ólafsson, Lárus Bl.
Guðmundson og Helgi Eyjólfs
son.
í varastjórn voru kjörnir:
Þórður Ólafsson, Gunnar E.
Benediktsson og Árni Jónsson
kaupm.
Endurskoðendur voru kjörn
ir: Sigurbjörn Þorkelsson og
Björn Snæbjörnsson.
Kjörnir voru og 28 menn í
fulltrúaráð Sjálfstæðisflokks-
ins.
Eyjólfur Jóhannsson þakk-
aði fráfarandi stjórn ágætt
starf í þágu fjelagsins og Sjálf
stæðisflokksins og bauð hina
nýkjörnu stjórn velkomna til
starfa.
Að loknum störfum aðal-
fundar gaf Sigurður Kristjáns
son alþm. yfirlit um störf Al-
þingis. Rakti hann ýms mál,
sem þingið hefir haft til með-
ferðar.
Hófust því næst frjálsar um
ræðup og tóku margir til máls
Stóð fundurinn fram undir
miðnætti.
Stúdenlafjel. Rvk.
ræðir sljérnar-
skrármálið
STÚDENTAFJEL. REYKJA-
VÍKUR heldur í kvöld umræðu
fund um stjórnarskrármálið,
og er Gunnar Thoroddsen,
prófessor, framsögumaður. —
Vitað er til þess að ýmsir
fleiri muni taka til máls um
þetta mikilvæga málefni, og
mun verða rætt um ýmsar
hliðar þess og frá ýrpsum sjón-
armiðum. Gert er ráð fyrir ó-
venju mikilli aðsókn að fund-
inum vegna þess að stú-
denta, eldri sem yngri, fýsa að
heyra hvað er að gerast og
hvaða tillögur liggja fyrir varð
andi hina nýju stjórnarskrá
hins íslenska lýðveldis.
RAKST Á TUNDURDUFL.
LONDON: Ameríska Liberty
skipið Lord Delaware rakst ný
lega á tundurdufl nærri eynni
Femern í Eystrasalti og sökk
við sprenginguna. Öllum mönn
um varð bjargað af skipinu.
Styrk úthlutað til 115
skálda og listamanna
ÚTHLUTUNARNEFND styrks
rithöfunda og listamanna fyrir
árið 1946, hefir lokið störfum.
Alþingi veitti ; þessu skyni 164
þúsund krónur, eða 5 þús. kr.
lægra, en á síðasta ári.
Að þessu sinni urðu styrks
aðnjótandi 115 rithöfundar og
listamenn. Skiftist sú tala þann
ig, að rithöfundar æru 42, tón-
listarmenn 19. myndlistarmenn
26 og leiklistarmenn 28.
Hæsti styrkur, sem uthlutað
er, eru 4000 krónur, og sá
lægsti 500 krónur.
Hæsti styrkur til rithöfunda
er 4000 krónur Hann hlutu sex
rithöfundar. Hæsti styrkur til
tónlistarmanna er 2400 krón-
ur og hlaut hann einn maður.
Hæsti styrkur til myndlistar-
manna er 3000 krónur. Hann
hlutu fimm menn og hæsti
styrkur til leiklistarmanna er
1000 krónur. Hann hlutu 18
konur og karlar.
Fer hjer á eftir skýrsla um
skifting styrksins, en í gær-
kvöldi barst blaðinu skýrslan.
Skáld og rithöl'undar:
STYRKUR til skálda og rit-
höfunda skiftist sem hjer segir:
Kr. 4000.00 hlutu þessir
menn: Davíð Stefánsson, Guð-
mundur G. Hagalín, Halldór K.
Laxness, Kristmann Guðmunds
son, Tómas Guðmundss'&n og
Þórbergur Þórðarson.
Kr. 3000.00 hlutu: Jakob
Thorarensen, Jóhannes úr Kötl
um og Magnús Ásgeirsson.
Kr. 2400.00 hlutu: Guðmund-
ur Böðvarsson, Guðmundur
Daníelsson, Theódór Friðriks-
son og Unnur Bjarklind.
Kr. 2000.00 hlutu: Elinborg
Lárusdóttir, Olafur Jóh. Sig-
urðsson og Þorsteinn Jónsson.
Kr. 1800.00 hlutu: Friðrik Á.
Brekkan, Halldór Stefánsson,
Sigurður Jónsson frá Arnar-
vatni og Steinar Steinar.
Kr. 1400.00 hlutu: Axel Thor
steinssorn, Gaðfinna Jónsdótt-
ir, Guðmundur Ingi Kristjáns-
son, Kristín Sigfúsdóttir, Sig-
urður Helgason og Þórunn
Magnúsdóttir.
Kr. 1000.00 hlutu: Filippía
Kristjánsdóttir, Gísli Ólafsson,
Gunnar Benediktsson, Gunnar
M. Magnús, Halldór Helgason,
Jón Björnsson, Jón Þorsteins-
son, Arnarvatni, Ragnheiður
Jónsdóttir, Snorri Hjartarson,
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson og
Þorsteinn Steíánsson.
Kr. 500.00 hlutu: Friðgeir
H. B'erg, Guðmundur Frimann,
Kjartan Gíslason frá Mosfelli,
Óskar Guðjór.sson og Steindór
Sigurðsson.
Tónlistarmcnn:
Styrkur til tónlistarmanna
skiftist sem hjer segir:
Kr. 2400.00 hlaut: Jón Leifs.
Kr. 1600.00 hlutu: Árni Krist
jánsson, Björgvin Guðmunds-
son, Björn Ólafsson, Karl Run-
ólfsson, Páll ísólfsson, Pjetur
Jónsson, Rögnvaldur Sigur-
Úthlutað
.160 þús.
jónsson, Sigurður Þórðarson og
Sigvaldi Kaldalóns.
Kr. 1000.00 hlutu: Árni
Björnsson, Elsa Sigfúss Hall-
grímur Helgason, Helgi Pálsson
og Þórarinn Jónsson.
Kr. 700.00 hlaut: Eggert Ste-
fánsson. Kr. 500 00, hlutu Ás-
kell Snorrasor., Axel Arnfjörð
og Ingi T. Lárússon.
Styrkur til myndlistarmanna
skiftist sem hjer segir: Kr.
3000.00 hlutu: Ásgrímur Jóns-
son, Ásmundur Sveinsson, Jó-
hannes Kjarval, Jón Stefánsson
og Ríkarður Jónsson.
Kr. 1500.00 hlutu: P'innur
Jónsson, Gunnlaugur Blöndal,
Jón Þorleifsson, Kristín Jóns-
dóttir, Sigurjón Ólafsson og
Sveinn Þórarinsson.
Kr. 1200.00 hlutu: Eggert
Guðmundsson, Guðmundur Ein
arsson, Gunnlaugur Scheving,
Jóhann Briem, Jón Engilberts,
Kristinn Pjetursson, Magnús
Á. Árnason, Snorri Arinbjarn-
ar og Þorvaldur Skúlason.
Kr. 500.00 hlutu: Agnethe
Þórarinsson, Guðmundur Krist
jánsson, Gunnfríður Jónsdóttir,
Höskuldur Björnsson, Nína
Tryggvadóttir og Örlygur Sig-
urðsson.
Leiklistarmenn:
Leiklistarm.'nn hlutu styrk,
sem hjer gremir:
Kr. 1000.00 hlutu: Alda Möll
er, Alfreð Andrjesson, Anna
Guðmundsdóttir, Arndís Björns
dóttir, Brynjó'fur Jóhannesson,
Gestur Pálsson, Gunnþórunn
Halldórsdóttir, Haraldur Björns
son, Indriði Waage, Jón Aðils,
Jón Norðfjörð Lárus Pálsson,
Soífía Guðlaugsdóttir, Þóra
Borg Einarsson, Þorsteinn Ö.
var rúml.
krónum
Stephensen, Ævar Kvarán,
Valdemar Helgason og Valur
Gíslason.
Kr. 800.00 hlutu: Edda Kvar-
an, Inga Laxness, Lárus Ing-
ólfsson, Regína Þórðardóttir,
Sigrún Magnúsdóttir og Svava
Jónsdóttir.
Kr. 600.00 hlutu: Tómas
Hallgrímsson og Emilía Borg.
Kr. 500.00 hlaut: Eyþór Ste-
fánsson.
Úthlutunarnefnd:
í úthlutunarnefnd voru þeir
Þorsteinn Þorsteinsson, sýslu-
maður, formaður, Þorkell Jó-
hannesson, prófessor, ritari,
Stefán Jóh. Stefánsson, alþm.,
og Kristinn Andrjesson, ritstj.
Undir úthluíun þessa hafa 3
nefndarmenn ritað án athuga-
semda, en fjórði nefndarmað-
urinn, Kristinn Andrjesson, hef
ir skrifað undir með fyrirvara
vegna úthlutunar til skálda, rit
höfunda og myndlistarmanna.
ísfirðingar sæhja
Wíþjóðarbáta
Frá frjettaritara vorum á
Isafirð, miðvikudag.
BRÁÐLEGA fara hjeðan á-
leiðis til Svíþjóðar skipstjór-
arnir Ólafur Júlíusson og Guð-
mundur Guðmundsson. Þar
munu þeir veita viðtöku tveim
nýjum vjelbátum. Ólafur tek-
ur við bát þeim er smíðaður
er fyrir Samvinnufjelag Is-
firðinga og Guðmundur tekur;
við bát fyrir h.f. Njörður. —«
Fjelög þessi eiga að fá fyrsta
og þriðja bát, sem smíðaðir eru
í Svíþjóð. i
Næst sýnir Leikfjelagið Verm-
lendinga. — Frumsýning í
næsla mánunði.
NÆSTA viðfangsefni Leikfjelags Reykjavíkur á þessu leikári,
verður sænskt leikrit, er nefnist: ,,Vermlendingar“,' eftir F. A.
Dahlgren, en þetta leikrit hefir Vilhelm Moberg umskrifað
og verður það leikið samkvæmt útsetningu hans. Leikrit þetta
hafa Svíar kvikmyndað og var
fyrir nokkrum.árum síðan.
Vermlendingar er alþýðuleik
rit í fimm þáttum og eru í því
bæði söngvar og dansar. Lögin
er ueftir Andreas Randel.
Þorsteinn Ö. Stephensen hef-
ir íslenskað leikinn. Leikstjóri
verður Haraldur Björnsson. —
Dansa hefir hinn danski ball-
etmeistari Kaj Smith annast.
Æfingar hafa farið fram af
myndin sýnd hjer í Reykjavík
miklu kappi um langan tíma.
Er talið að frumsýning Verm-
lendinga muni verða 1 byrjun,
aprílmánaðar.
Ekki er blaðinu kunnugt uní
hverjir leika helstu hlutverk,
en ekki mun líða á löngu, þaí
til stjórn Leikfjelagsins skýrig
blöðunum frá því.