Morgunblaðið - 18.04.1946, Blaðsíða 1
12 síður og Lesbók
83. árgangur.
90. tbl. — Fimtudagur 18. apríl 1946
Ísaíoidaxprentsmið j a h.f.
(humjkingmenn
fordæma ofbekfi
kommúnisfa
Tilðaga Póflverja
stjórnmálaslit við
um
Spán
Chungking í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter
STJÓRNIN í Chungking á-
kærir kínverska kommúnista
fyrir ágengni og samningsrof,
og ljet einn af ráðherrum
Chungkingstjórnarinnar svo
um mælt í dag, að framferði
þeirra við höfuðborg Mansjú-
ríu, þar sem þeir sækja nú af .
hörku að sveitum stjórnarinn- i
ar, sje dæmalaust, þar sem'
stjórnin í Chungking hafi sam-
kvæmt kínversk-rússneska sátt
málanum, ekki einungis haft
fullan rjett til þess að taka við
af Rússum í Mansjúríu, heldur
beinlínis borið skylda til þess.
Orjettlætanleg árás.
„Þessi árás kommúnistanna
er gersamlega. órjettlætanleg“,
sagði ráðherrann ennfremur, og
bætti því við að verið væri
nú að semja um viðskifti milli
Kínverja og Rússa, og bætti
því við, að engir sh'kir samning-
ar gætu tekist, nema því aðeins
að stjórnin í Chungking hefði
öll ráð í hendi sjer í norðaust-
úrhluta landsins Að lokum
sagði ráðherra þessi, sem er
aðstoðar uianrríkisráðherra,
Kínverjar væru ekki
búnir að fá hafnarborgina Dai-
ren ennþá, en byggjust við að
Rússar afhentu sjer hana mjög
bráðlega.
lýþ ísienska smsmyntin
MORGUNBLAÐÍÐ birtir hjer teikningar af nýju smámynt-
inni, er slá á í Englandi og væntanleg er til landsins í sumar og
í haust. En eins og kunnugt er, er mikill hörgull á smámynt í
landinu og auk þess er sú mynt, sem við nú höíum með kórónu
og merki Danakonungs.
Slegnir verða eins og tveggja krónu peningar og ennfremur
einseyringar, fimmeyringar, tíeyringar og tuttugu og fimmeyr-
ingar. Teikningarnar hefir Stefán Jónsson teiknari gert, en
fjármálaráðuneyíið valdi teikningarnar og naut við það ráð-
legginga frá Tryggva Magnússyní máíara.
Sendiráð Isiands í London stendur í samningum um sláttu
myntarinnar.
Þannig verða aurarnir í smá-
myntinni nýju. Umgjörðin á
þeim verður eins á öllum, að-
eins breytt um gildi.
Þannig verða einnrar krónu
peningarnir og tveggja krónu
eins, nema livað talan tveir
kemur fyrir einn.
Óvíst um gang bardaga.
Ómögulegt er nú um það að
segja með neinni vissu, hvern-
ig ástandið er í borginni Chang
chun, sem verið er að berjast
um, þar sem alt samband er
rofið við hana, eins og stend-
ur. Síðustu fregnirnar, sem
bárust til Chungking, voru þær
að kommúnistar hefðu náð flug
velli borgarinnar á sitt vald, og
getað ruðst inn í borgina. Var
talið að 30.000 kommúnistar
berðust gegn 4000—50000
stjórnarhermönnum.
Bakhliðin á aurunum. Fána-1 Bakhlið eins og tveggja
skjöldurinn í laufsveig. I krónu peninganna nýju.
Japanar frá
embættum
London í gærkvöldi.
Á FUNDI, sem nýlega var
haldinn á hernámssvæði banda
manna í Japan, kom fram all-
snörp, gagnrýni á Mac Arthur
af hendi sovjetfulltrúans. Taldi
hann, að Bandaríkjamenn Ijetu
Japana, sem seldr væru. um
stríðsæsingar, enn gegna þýð-
ingarmiklum embættum. With
ning hershöfðingi, fulltrúi Mac
Arthurs svaraði, að 185.000
japanskir embættismenn hefðu
þegar verið settir frá. Rússinn
og Bretinn í nefndinni hjeldu
þá áfram að syprja hershöfð-
ingjann um ýmislegt, en hann
kvaðst hvorki vera hjer fyrir
rjetti eða leiddur sem vitni og
neitaði að svara frekar.
Kerferð gegn rott-
um og músum
BÆJARRÁÐ Reykjavíkur
hefir ákveðið að gera *tilraun
til þess að útrýmt verði með
öllu rottum og músum hjer í
bænum og nágrenninu, með
allsherjar-herferð, segir í
frjett frá bæjarverkfræðing.
Til undirbúnings' herferð-
inni er nú unnið að því, að
safna upplýsingum um rottu
gang og múga á þessu svæði.
Ganga menn þessa daga um
bæinn og nágrennið til að
afla upplýsinganna og er þess
að vænta, að greiðlega verði
svarað spurningum, sem þeir
bera upp.
Hungur í Austur-
ríki
VERKAMENN í Austur-
ííki hafa kvartað mjög við
stjórnina yfir því, hversu frá
munalega slæmt matvælaá
standið í landinu sje. Hafa
þeir skorað á forsætisráð-
lierrann að reyna með ein-
hverjum ráðum að bæta úr
þessu, en llkur eru taldar
mjög litlar til þess, að stjórn-
in geti nokkuð, nema með
l.jálp bandamanna. Ekki er
vitað, _ hvernig bandamenn
hafa hugsað sjer að bæta úr
þessu böli, þar sem atvinnu-
leysi er einnig mikið í land-
iuu. — Reuter.
Iliklar umræður
• •
í Oryggisrátíinu
New York í gærkv.
Á FUNDI Örvggisráðsins í
kvöld, flutti pólski fultlrúinn
langa ákæruræðu gegn Franco
stjórninni á Spáni, og bar henni
allar mögulegar vammir á
brýn. I lok ræðu sinnar flutti
hann tillögu um það, að allar
sameinuðu þjóðirnar slitu þeg-
ar í stað stjórnmálasambandi
við Francostjórnina, sem ræðu
maður taldi hættulega frið og
öryggi í heiminum. Fuiltrúar
Frakka og Mexikó studdu
pólska fulltrúann í umræðum
þessum og vildi hinn franski,
að sameinuðu þjóðirnar beittu
sjer fyrir því allar í senn að
Franco ,væri steypt af stóli.
Ákærur Pólverja.
Fulltrúi Pólverja talaði heila
klukkustund, og ásakaði Franco
stjórnina meðal annars fyrir
það, að hún hefði „lagt Þjóð-
verjum til flugvjelar, kafbáta-
hafnir og sprengiefni í styrjöld
inni“, og einnig sagði hann, að
„Spánverjar hefðu stutt Japana
með ráðum og dáð í árásinni á
Pearl Harbour. Bonnet, fulltrúi
’ |
Frakka tok í sama strengmn og"
sagði, að hann liti svo á, sem
það væri best fyrir Spánverjá,
að sameinuðu þjóðirnar ljetu
til skarar skríða gegn i'ranco-
stjórninni, og fulltrúi Mexico
studdi franska fulltrúann.
Ákærum andmælt.
Sá fyrsti af fulltrúunum, sem
andmælti ákærum Pólverja,
var fulltrúi Hollendinga. Kvaðst
hann ekki eftir þeim vitnis-
burðum, sem fram væru komn-
ir, og sem margir hverjir virt-
ust harla lítið rökstuddir, geta
sjeð, að málin væru þannig,
að Francostjórnin væri hætta
fyrir frið og öryggi í heimin-
um. Að halda þessu fram. sagði
hann sjer virðast hreinar ýkj-
ur, og kvaðst vera þeirrar skoð
unar, að ekki væri nægar ástæð
ur fyrir öryggisráðið að gera
neitt í málinu.
Enn'fremur sagði fulltrúi IJol
lendinga: „Vissulega SSttÍ þetta I
ráð að fara varlega í það, að
verða þess valdandi að koma
af stað annari borgarastyrjöld
á Spání“. „Svo lengi sem engir
vitnisburðir eru fyrir hendi
um það, að Francostjórnin ógni
alþjóðaöryggi og friði, þá er
spurningin um framtíðarveru
hennar mál, sem spánska þjóð-
in verður ein að skera úr.“
Framh. á bls. 8.
Tniman flytur ræðu
á morgun
Washington *\ gærkvöldi.
TRUMAN forseti mun flytja
útvarpsræðu á föstudag. Ræða
hans mun fjalla um nauðsyn
þess, að Bandaríkjamenn spari
við sig mat.
Sfjómarmyndun
gengur stirðiega
í Grlkklandi
Aþena í gærkvöldi.
SAMKVÆMT frjettum frá
Grikklandi í dag er útlit fyr-
ir því, að mynduð verði rík-
isstjórn þar í landi, sem verði
eingöngu skipuð mönnum úr
hægri flokkunum og flokki
konungssdnna.
Alment er álitið í Aþenu,
að horfur sjeu nú slæmar um
sa.mkomulag flokkanna. Til-
raun, sem gerð var til stjórn
armyndunar í gær, hefir far-
ið út um þúfur. '
Svo er að sjá, sem megin-
ástæðan fyrir ósamkomulagi
flokkanna sje deilur þeirra
’ egna konungsdæmisins og
Georgs Grikkjakonungs.
— Reuter.
Hoover biðst
hjálpar fíanda
Grikkjum
HERBERT Hoover, fyrrum
Bandaríkjaforseti, sem nú er
staddur í Aþenu, ræddi við
marga gríska ráðherra í dag
og lofaði hann þeim að biðja
Bandaríkjastjórn þess að að-
stoða Grikki eftir öllum
mættd, þar sem ástandið í
matvælamálunum er þar
mjög bágborið. Sagði Hoover
um það, að ef ekki bæristi
fliótt hjálp, myndi % eða %
af Grikkjum hafa minna en
700 hdtaeiningar í fæði sínu
á dadþ — í kvöld ræðir Hoov-
er við Damaskinos ríkis-
stjóra. — Reuter.
Fengu ekki að
taka myniir
DANSKA blaðið „Informat-
ion“ birtir þá fregn, að þegar
Rússar voru að fara frá Borg-
undarhólmi, hafi . allmargir
danskir blaðaljósmyndarar ver
ið þar komnir og ætluðu að
taka myndir af þessum merká.
viðburði. Brá þá svo við að
hermenn ruddust að Ijósmynd-
urunum brugðnum byssustingj-
um, og tóku af þeim mynda-
vjelarnar, tóku síðan filmurnar
úr þeim, og afhentu eigendun-
um þær tómar. Meðal þessara
myndasmiða var einnig einn
frá danska kommúnistablaðinu,
og þótti útreið þessa Rússavin-
ar allháðuleg.