Morgunblaðið - 18.04.1946, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 18. apríl 1946
Aflakóngur 50 ára
ÞEIR, sem hafa verið á síld-
veiðum, kannast við Eggert
Kristjánsson, er lengi var með
ms „Björninn" frá Akureyri,
en hann verður fimmtugur n.k.
laugardag, 20. apríl.
Eggert hefir verið skipstjóri
í 25 ár, á síldveiðum, línuveið-
um og flutningum, og hefir
verið einhver allra fengsælasti
skipstjóri mótorskipaflotans.
Það segir sig sjálft, að sá
maður, er verið hefir skipstjóri
í svo langa tíð, hefir margt
reynt og mörgu kynst. — En
Eggert hefir sigrast á öllum
erfiðleikum, og svo mun lengi
verða, því hann er ungur enn,
með ódrepandi þol, áhuga og
starfsþrá.
Eggert er fjelagi í Skipstjóra
og stýrimannafjelagi Norður-
lands og hefir verið í stjórn
þess og formaður um skeið. —
Hann er fjelagsmaður ágætur,
það sem hann tekur að sjer, ger
ir hann af lífi og sál og fylgir
því fast fram. En þegar hann
er í landi, býr hann í hinu fall-
ega húsi sínu í brekkunni á Ak-
ureyri, ásamt ágmtiskonu sinni
Katrínu Eiríksdóttur frá Hafn-
arfirði.
Eggert er núna skipstjóri á
ms „Ottó“, sem hann er eigandi
að ásamt Jörundi j, Hrísey. Á
afmælisdaginn sinn verður
hann í ferðum milli Reykjavík-
ur og Borgarness.
Þeir mörgu sjómenn og aðr-
ir, sem Eggerti hafa kynst,
senda honum í tilefni 50 ára
afmælisins hugheilar hamingju
óskir og þakka hin ógleyman-
legu liðnu ár.
Agnar Hreinsson.
Hjónaband. Uýlega voru gef-
in saman í Kaupmannahöfn
ungfrú Eriðrikka B. Friðriks-
dóttir og Henrilr A. Buringrud,
Oslo.
Brjef: Lesftir Pass-
íusálma
Herra ritstjóri!
Jeg var að lesa grein í blaði
yðar eftir Kristínu Sigfúsdótt-
ur, þar sem minnst er á fyrir-
lestra dr. Matthíasar Jónasson-
ar, og lestur Passíusálmanna.
Jeg er viss um að hlustað er á
þessa fyrirlestra á fjölda heim-
ila, og vissulega eru þeir fræð-
andi og skemtilega fluttir.
En sjerstaklega vil jeg minn-
ast á lestur Passíusálmanna og
er það víst vegna þess að þeir
eru gamlir æskuvinir mínir,
síðan jeg söng þá á hverju
kvöldi alla föstuna út með
pabba og mömmu. Þeir voru
þá með gamla letrinu. Mjer
finnst þögul lotning grípa huga
minn, þegar jeg heyri þá lesna
eða sungna. Og án þess að fara
að gera mig dómara yfir dag-
skrá útvarpsins, langar mig til
að spyrja: Því má ekki ljúka
dagskránni með Passíusálma-
lestri? Jeg segi fyrir mig, jeg
skrúfa altaf fyrir útvarpið á
eftri, því þá finnst mjer ómögu
legt að hiusta á gleðisöngva.
Það þarf að innræta börnun-
um ást og lotningu fyrir Passíu
sálmunum frá fyrstu tíð, Eng-
inn hefir túlkað á einfaldari og
betri hátt píslarsögu frelsarans,
en Hallgrímur Pjetursson. Unga
kynslóðin á eins að geta sofnað
út frá lestri þessarra ljóða, eins
og danslögum og jass. Jeg vil
aðeins spyrja, án þess að ætla
að særa neina unga móður.
Gjörið þið ekki of lítið að því
að móta trú Og lotningu með
börnum yðar. Slíkt endist í
flestum tilfellum æfina út, þeg-
ar alvara lífsins tekur við og
maðurinn fer að hugsa, þrosk-
ast og vinna úr fyrstu fræ-
kornunum, sem hefir verið sáð í
barnssálina. Hvergi fáum við
meiri styrk, ef raunir steðja að,
en einmitt frá honum sjálfum,
Jesú Kristi gegnum okkar ein-
földu bænir og barnatrú. Geðin
á sinn fulla tilverurjett fyrir
því og hún verður þá fyrst
sönn, ef alvara og trú lifir bak-
við.
Reykjavík, 7. apríl.
Sigurborg Magnúsdóttir.
Meira umferðaöryggi
STOKKHÓLMI: Verið er nú
í Svíþjóð að fræða menn mjög
mikið um umferðamál og reynt
að auka öryggi á vegum, þar
sem komið hefir í ljós, að fjórði
hver maður í landinu verður
fyrir umferðaslysi einhvern-
tíma á æfinni.
Mlnningarorð um Guðm. Ágústsson
megi lífsins sól jafnan leiða þig
á hinum æðri sviðum tilver-
unnar, sem þú hefir nú fluttst
til.
Friður sje með þjer.
G. G.
Næstkomandi laugardag verð
ur jarðsunginn í Fossvogs-
kirkjugarði, Guðmundur Ragn-
ar Ágústsson, Meðalhclti 21,
sem andaðist í Landspítalanum
aðfaranótt 11. þ. m.
Guðmundur var fæddur hjer
í bænum 2. desember 1936.
Hann varð því ekki gamall að
árum, en þeir sem Guðirnir
elska deyja ungir, sögðu vitrir
menn, og geymir göfug minn-
ing göfugt líf.
Jeg, sem skrifa þessar línur,
átti þess kost að þekkja þenna
dreng um skeið og mjer stend-
ur fyrir sjónum hin prúða og
orðvara framkoma hans. Ljót
orð heyrðust aldrei af vörum
hans, en það er því miður altof
fágætt um börn og unglinga
þessara tíma. Sár er því harm-
urinn, sem nú er kveðinn að
foreldrum hans, þeim hjónun-
um Sigrúnu Stefánsdóttur og
Ágústi Gissurssyni. Áður áttu
þau bak að sjá elskaðri dóttur
og er nú aðeins eitt barn þeirra
hjóna á lífi, tveggja ára telpa.
En það er nú svo, að gagn-
vart hinni dýpstu sorg og sjer
í lagi beri hana óvænt að garði,
eins og hjer varð, stöndum vjer
mennirnir málvana. Orð fá ekki
túlkað tilfinningar vorar, því
þau eru fremur tæki hugans
en hjartans. Oft finst oss dauð-
inn kaldur viðskiftis, en eitt
getur hann aldrei frá oss tekið.
Minningin um það. sem var gott
og göfugt og fagurt, verður jafn
an ljós á vegum vorum og minn
ing þessa drengs verður vissu-
lega ávalt blítt og skært ljós
í hjörtum foreldra hans og allra
er hann þekktu, skyldra sem •
óskyldra. I
Muggur minn! Megi foreldr-
um þínum og ástvinum veitast
styrkur til að bera þessa þungu
raun, sem burtför þín óhjá-
kvæmilega verður þeim, og
- Alþj. veltv.
Framh. af bls. 6.
hafa neina skoðun, þeir fá
„makleg málagjöld“.
Það er stórfurðulegt, að ís-
lenskir menn, sem hafa feng-
ið uppeldi sitt meðal frelsis-
unnandi þjóðar, skuli geta af-
neitað öllum hugsjónum sín-
um um frelsi og jafnrjetti, með
því að aðhyllast trúna á, og
vinna fyrir hinn austræna sið.
Eigi líður á löngu, þangað
til hávaðinn af þeim mönnum,
sem undanfarin ár hafa fylgt
kommúnistum að málum, bæði
hjer á landi og annarsstaðar
meðal lýðfrjálsra þjóða, sjá það
og skilja til fulls, að vegurinn
til kommúnismans er vegurinn
til andlegrar og líkamlegrar
ánauðar.
— Öryggisráðið
Framh. af 1. síðu.
Næstur á eftir fulltrúa Hol-
lendinga, tók Stettinius, fulltrúi
Bandaríkjanna til máls. Kvað
hann Bandaríkjamenn bera
samúð í brjósti til hvers þess
aðila, sem í samræmi við sátt-
.mála sameinuðu þjóðanna, gæti
komið lýðræðislegu stjórnar-
fari á með Spánverjum, án þess
að til borgarastyrjaldar þyrfti
að koma.
Eftir þetta var fundi frestað
til klukkan 3 á morgun.
Áttræður: Friðrik á
Helgasföðum
FRIÐRIK BÓNDI Jónsson á
Helgastöðum í Reykjadal í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu á áttræðis-
afmæli n. k. laugardag 19.
apríl.
Friðrik er landskunnur mað-
ur sem póstur um langt ára-
bil. Hann hefir ve.rið mesti
dugnaðarmaður. — Vinir hans
senda honum hlýjar kveðjur
í tilefni áttræðisafmælisins.
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
^JJarlal?órinn j^reótir
HLJÓMLEIKAR
í Bæjarbíó, kl. 5 í dag.
I. Karlakórinn Þrestir, söngstjóri Jón
ísleifsson.
II. Blandaður kór, söngstjóri Sigurjón
Arnlaugsson.
III. Píanósólo: dr. Urbantschisch.
IV. Karlakórinn Þrestir.
I Aðgöngumiðar fást í Bæjarbíó, eftir kl. 3 í dag.
Hljómleikarnir verða ekki endurteknir.
Stjórnin.
< >
Ibúð á Akranesi
3ja herbergja, með öllum þægindum, til sölu.
Til greina kemur að skifta á íbúðinni og litlu húsi í
Reykjavík.
M álflutningsskrifstofa
j| Kristjáns Guðlaugss., hrl. og Jóns N. Sigurðss., hdl. ^
Hafnarhúsinu, Reykjavík, sími 3400.
Fer hann nú á æfingar í lögreglumannaskólan- um og lærir þar að athuga lík, fingraför og annað,
7VPE5 OF FiMSERPRlNT$
/'RCI-E5, WllCRLS, ACQPENTAL5
LOOP:
[Copr. 1945, King Features Syndicate, Inc., Wprld rights rcservcd.
sem lögreglumenn þurfa að kunna.