Morgunblaðið - 07.05.1946, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sjálfstæðisflokkurinn einn hæfur
til forystunnar
Aí því sprettur öíund
Framsóknar
Finnur Jónsson dómsmáia-
ráðherra gat þess í útvarpsum-
ræðunum á dögunum, að það
hefði oft kostað mikla lægni af
hálfu Ólafs Thors forsætisráð-
herrá að samræma sjónarmið
flokkanna innan ríkisstiórnar-
innar.
Útvarpshlustendur urðu þess
sjálfir áskynja, við að hlýða á
umræðurnar, að þarna múndi
■sist vera of mælt.
Allar báru umræðurnar þess
glögt vitni, hvernig Sjáifstæð-
isflokkurinn ber af hinum
flokkunum.
Hann einn ræddi málin af
sjónarhóli þjóðarinnar í heild,
og gerði grein fyrir, livað á-
unnist hefði henni til gagns í
stjórnmálunum síðustu árin. —
Hinir flokkarnir forðuðust aft-
ur á móti að líta lengra en
flokkshagsmunir þeirra náðu.
Framsókn óróleg á eyðimörk-
inni.
Framsóknarflokkurinn ljet
sjer nægja gamla sönginn um
að allt hefði orðíð ómögulegt
á landi hjer, þegar hann ljet
af stjórn. Skiftir það engu máli
í augum forráðamanna. Fram-
sóknar þó að tímabilið, eftir að
í’ramsókn hröklaðist frá völd-
um, sje einmitt sá tími, er ís-
lenska þjóðin hefir átt við best
kjör að búa og hefir sýnt mest-
an stórhug um að búa þannig
í haginn fyrir framtíðina, að
þar verði ekki um stundarfyrir
brigði að ræða.
F orustumönnum Framsókn-
arflokksins finst engu að síður,
að þeir sjeu staddir á eyðimörk,
vegna þess að þeir sjá hvergi
móta fyrir hinu þráða valda-
landi sínu.
Flokkshagsmunir einir látnir
ráða.
En þó að Framsókn væri
þannig ein um afturhaldið og
úrtölumar, er því ekki að neita
að mjög skorti á um víðsýni í
ræðum beggja — Alþýðuflokks
og Kommúnista.
Hvorugur þeirra gat hafið
sig svo hátt að Títa á málin frá
sjónarhól heildarmnar, heldur
ræddu þeir um það eitt, hvað
hverjum flokk væri að þakka,
hversu miklar þakkir þeir sjálf
ir ætti skilið. og hversu sví-
virðilegir hinir flokkarnir
væru.
Af öllu þessu mátti glögglega
marka, að áhugi þessara manna
beinist ekki að því, hvort tak-
ast megi að vinna í sameiningu,
þjóðinni allri til heilla, heldur
að því einu, hvort hægt sje að
hafa gagn til framdráttar fyr-
ir flokk sinn, af þeim ráðstöf-
unum, sem verið, er að fram-
kvæma.
Unna ekki samstarfsmönnum
sannmaelis.
Það er að vísu eðlilegt, að
jnenn vitni til sinna eigin verka
og reyni að sýna fram á, að
vegna þeirra eigi þeir traust.
Fjarri lagi er þó það. þegar
margir menn vinna saman og
málin geta ekki náð fram að
ganga nema með atbeina
þeirra allra, og verkinu hvergi
nærri er lokið, þá skuli einn og
'oinn taka sig út úr og hrópa
upp: „Sjáið, allt er þetta mjer
að þakka. Hinir, sem með mjer
vinna gera ekkert gagn heldur
einungis spilla fyrir“.
Slíkt athæfi sýnir sannar-
lega eKki áhuga fyrir farsæl-
ufn framgangi málanna.
' Þannig er þó hegðun bæði
Alþýðufíokks og Kommúnista
og í þessum anda eru blöð
þeirra skrifuð.
Samið um nýsköpunina 1944.
Kommúnistar hafa til dæmis
lengi reynt að telja þjóðinni
trú um, að það væri þeim að
þakka að nýsköpunin var tek-
in upp á stefnuskrá núverandi
stjórnar, og skírskotað því til
sönnunar í ræðu, sem Einar
Olgeirsson hjelt haustið 1944.
Sannleikurinn tr sá, r-ð áður
en þess ræða var haldin, höfðu
allir síjórnmálaflokkar lands-
ins, þar á meðal jafnvel Fram-
sóknarflokkurinn, setið við
samniugaborðið marga mánuði
til þess að reyna að mynda
stjórn, einmitt rneð því aðal-
markmiði að hrinda af stað
nýsköpuninni, eftir nákvæm-
lega scmu aðferðum og samið
var um milli stjórnarflokkanna.
Einar Olgeirsson átti sæti í
þessari samninganefnd sumar-
ið 1944, og ræða hans var ein-
ungis túlkun á því, sem þar
Hafði komið fram.
Að sjálfsögðu átti Einar sinn
hlut að þessu En hitt er fjar-
stætt að eigna honum einka-
uþphaf þessara mála.
Tryggingarnar stefnumál ungra
Sjáll’stæðismanna.
Svipað er með tryggingarnar.
Það nefir lengi verið á stefnu
skrá ungra Sjálfstæðismanna,
að koma á sem fullkomnustu
kerfi almannatrygginga. Þegar
Alþýðuflokkurinn hreyfði því í
sambandi við stjórnarsamning-
ana 1944, að stjórnin skyldi
beita sjer fyrir setniiígu slíkra
trygginga, átti sú krafa flokks-
ins því þegar af þessari ástæðu
miklum skilningi að mæta hjá
Sjálfstæðismönnum, og þeir
hafa siðan lagt sig alla fram
um að greiða fyrir sotningu
þeirra” löggjafar um almanna-
tryggingar, sem nú er á komin.
Þannig mætti lengi telja. —
Þgð er erfitt að gera sjer grein
fyrir hvaðan hver og ein hug-
mynd er komin. Hitt er alveg
víst, að ekkert af þessu hefði
verið framkvæmt, ef núver-
andi stjórnarfstarf hefði ekki
komist á.
Lægni forsætisráðherra hefir
bjargað stjórnarsamstarfinu.
Það voru Sjálfstæðismenn,
sem með ótrúlegri þraulseigju
beittu sjer fyrir að koma því
samstarfi á. Hitt liggur í aug-
um uppi, að án atbeina Alþýðu-
flokks og Kommúnista hefði
það ekki getað orðið.
Framsókn dró sig affur á
Imóti í skel, afturhalds og ein-
angrunar, og vildi ekki koma
nærri stjórn landsins, nema
hún fengi þar ein öllu ráðið.
En það var ekki aðeins fyrir
forustu Sjálfstæðismanna, að
stjórnin komst á, heldur er
alveg víst, að það er verk Sjálf
stæðismanna og þá fyrst og
fremst Ólafs Thors forsætisráð
herra, að samstarfið hefir hald-
ist fram á þenna dag.
Til þess hefir áreiðanlega
þurft á mikilli lægni að halda,
eins og Finnur Jónsson sagði.
En það er einmitt vegna þess-
ara forustuhæfileika forsætis-
ráðherra, sem Tímaliðið leggur
á hann slíka óvild og raun ber
vitni um. V
Olympíunefnd
skipuð
ÍÞRÓTTASA MBANDIÐ hef-
ir skipað Olympíunefnd til
þess að undirbúa þátttöku ís-
lendinga í næstu Olympíu-
leíkjum 1948.
í nefndinni eru þessir menn:
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
formaður, EHingur Pálsson,
varaform., Ólafur Sveinsson,
ritari, Kristján L. Gestsson,
gjaldkeri, Jens Guðbjörnsson,
Jón J. Kajdal og Steinþór Sig-
urðsson.
- Paleslfna
Framh. af bls. 1.
ig yrðu fulltrúar sendir til
Cairo og Riad í Aauði-Arabía.
100 þúsund manna her.
Husseini sagði, að Arabar í
Pglestínu hefðu ýyllst örvænt-
ingu, er beim varð kunnugt efni
tillagna Palestínunefndarinnar,
og væru beir ákveðnir að grípa
til gagnráðstafana, hvað sem
það kostaði.-Hann var spurð
ur að því, hve sterkur her
Araba myndi verða, ef æðsta
ráðið gerði a'vöru úr því að
vígbúa æskulýðinn. Hann svar-
aði: „Það kæmi mjer ekki á
óyart, að í æskulýðshersyeit-
unum myndu verða um 100 þús.
manns.
■ ■
Framhald af 1. síðc
Spánarmálin rædd á
föstudag.
Öryggisráðið mup ræða Spán
armálin á fundi sínum á föstu-
daginn. Nefnd sú, sem ráðið
skipaði til þess að athuga, hvort
athafnir Francostjórnarinnar
gæti talist hættulegar heims-
friðnum, kom saman á lokað-
an fund-í dag. Nefndinni hafa
borist upplýsingai frá hernað-
arsjerfræðingum og fulltrúum
bresku stjórnarinnar á Spáni.
í upplýsingum þessum mun
það vera tekið fram, að ósann-
að sje, að atómrannsóknir hafi
farið fram á Spáni.
Þriðjudagur 7. maí 1946
Tuliniusarmóílð:
Fyrstu leikirnir gefa
góðar vonir
Á SUNNUDAGINN var fóru fram fyrstu tveir knattspyrnu-
kappleikirnir, sem háðir eru í meistaraflokki á þessu vori. Og
þó þeir færu fram svona snemma, gefa þeir mjög sæmilegar
vonir um gott knattspyrnusumar. Menn voru í áberandi betri
æfingu núna, en þeir hafa verið á þessum fyrstu leikjum
sumarsins undanfarin ár, og er það vel, því nú ríður á að
standa sig.
KR vann Val 1:0.
Það spillti leikjunum, að
vindur var allhvass og illt að
hemja knöttinn Valur hafði
miklu meiri sókn í fyrri hálf-
leik, og fengu framherjarnir oft
góð tækifæri til þess að skora,
en misnotuðu þau öll og sum
herfilega. Sóknin upp að mark-
inu var oft lagleg og hröð, en
smiðshöggin komu aldrei. KR-
ingarnir voru lítið skotharðari,
en þó vhtust upphlaup þeirra
hættulegri, og eftir leik, sem
Valur hafði átt meira í, fjekk
KR vítispyrnu á síðustu mín-
útunni, en skotið kom beint í
Hermann. Var rú framlengt
tvisvar sinnum, og í fyrri hluta
c'íðari íramlengingar fengu KR-
ingar aftur vítispyrnu, og var
nú Birgir látinn taka hana.
Hann /ar ekki að fálma neitt
við knöttinn með fótunum og á
markinu, sem hann skoraði þar,
vann KR leikinn.
Víkingur vann Fram 1:0.
Leikurinn á eftir milli Vík-
ings og Fram var yfirleitt ekki
eins fjörugur og hinn, en þó
brá oft fyrir samleik í honum,
sjerstaklega hjá Víking. Fram-
ararnir virtust daufari en venju
legt er, og liðið illa samstætt.
Finnst mjer langt vera síðan
jeg hef sjeð jafnlítinn heildar-
svip á Fram og í þessum leik
og eftir því var leikið. Víking-
ur Ijek undan vindi 1 fyrra
hálfleik og hafði sókn mest-
allan nálfleikinn. en um hann
miðjan skoraði Einar Pálsson
markið, sem leikurinn vannst
á. Fram sótti ákaft á síðari hálf
leik*, en náði ekki að kvitta.
Sköruðu framúr.
Það fer ekki hjá því nú,
þegar Íandsliðsleikir standa
fyrir dyrum, að maður taki enn
betur eftir því hverjir skara
fram úr á vellinum í hverjum
leik. í þessum tveim leikjum
sem lýst er hjer að framan, get
jeg nefnt fimm menn, en það
eru þessir: Ellert Sölvason
(Val), Birgir Guðjónsson (KR)
Óli B. Jónsson (KR) og Hauk-
ur Óskarsson (Víking). Auð-
vitað eiga þessii menn samt
allir eftir að batna mikið. áður
en til stórræðanna dregur.
J Gn.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson
hæstar j ettarlögmenn
Oddfellowhúsið. — Sími 1171.
Allskonar lögfræðistörf.
Hallveigarslððir
efna lil hljómleika
NÆSTKOMANDI fímtu-
dagskvöld, kl. 11,30, efna
Hallveigarstaðir til hljóm-
leika í Gamla Bíó. Verða það
s\ymg-tónleikar og skemta
þar Mr. Harry Dawson, Miss
Nancy Osborne og þrír íslend
ingar, þeir: Sveinn Ólafsson,
Jóhannes Eggertsson og
Trausti Óskarsson. Mr. Daw-
son er bæjarbúum að góðu
kunnur fyrir hljómleika þá,
sem hann hefir haldið hjer
að undanförnu. Að þessu sinni
mun hann m. a. leika ný lög
eftir sjálfan sig, sem hann
hefir samið 'síðan hann kom
til Islands. Miss Osborne, sem
er þekt söngkona, hefir ekki
komið opinberlega fram hjer
áður, en hefir unnið við
Keflavíkurstöðina, og kann-
ast sjálfsagt margir við hana.
Á hljómleikum þessum gerir
hún hvorttveggja að syngja
og leika á pfanó. Þá þremenn
ingana Svein, Jóhannes og
Trausta mun óþarfi að kvnna.
Þeir eru meðal okkar bestu
jazz-hljóðfæraleikara.
í þessu sambandi má geta
þess, að Hallveigarstaðir hafa
ýmislegt annað á prjónunum,
til þess að afla fjár, svo sám
tískusýningu, sýningu á sögu
legum kvenbúningum o. m.
íl. Þá hefir verið ákveðið að
tíleinka Hallveigu, konu Ing-
ólfs Arnarssonar framvegis
einn dag á ári — 23. júní. —
Verða þá seld merki, haldnar
fkemtanir o. s. frv., til ágóða
fyrir Hallveigarstaði. Einnig
verður haldið áfram að hafa
hið vinsæla Hallveigarstaða-
kaffi á boðstólnum — en það
fá altaf færri en vilja. Fjár-
söfnunin hefir yfirleitt geng-
ið vel undanfarið, enda dugn
aður þeirra kvenna, er' að
söfnuninni standa, ótrúlega
•mikill. Sjóðurinn nemur nu
alls rúmlega 400 þús. kr.
Funk fyrlr rjelti í
Humberg
Núrnberg í gærkvöldi.
DR. WALTER FUNK, fyrr-
verandi fjármálaráSherra Hitl-
ers, gaf í dag skýrslu í máli
sínu fyrir rjettinum í Núrn-
berg. Hann kvaðst engan þátt
hafa átt í endurvígbúnaði Þjóð-
verja fyrir styrjöldina.