Morgunblaðið - 13.06.1946, Síða 15
Fimtudagur 13. júní 1946
MORGUNBLAÐID
15
I. O. G. T.
ST. DRÖFN Nr. 55
Fundur í kvöld kl. 8,30. Inn-
taka, frjettir frá Umdæmis-
stúkuþingi. Kosning fulltrúa
til Stórstúkuþings. Önnur
mál. Æ.t.
Fjelagslíí
FRJÁLSÍÞRÓTTA-
MENN K.R.
Fundur í kvöld í
Tjarnarcafé, uppi, kl. 9.
■ Kvikmyndasýning o. fl.
Fjölþnennið,, jafnt elídri
sem yngri
Frjálsíþróttanefnd K.R.
STÚLKUR
allir flokkar, æfing kl. 7,30.
PILTAR, æfing kl. 8,15, Há-
skólatúninu.
Nefndin.
LANDSMÓT
kvenskáta verður haldið í
nágrenni Akureyrar dagana
23,—30. júní. Væntanlegir
þátttakendur mæti á Vega-
mótastíg í kvöld kl. 6—8 eða
annað kvöld kl. 6,30—8,30.
LF.
LITLA FERÐAFJELAGIÐ
efnir til ferðar á Heklu dag-
ana 15.—17. júní n.k. — Ekið
verður í bílum að Næfurholti
og þar fengnir hestar og fylgd
armaður. — Fjelagar, dragið
ekki að tilkynna þátttöku
fram á síðustu stund. Þeir
utanfjelagsmenn, sem vildu
vera með í förinni, eru beðn-
ir að tilkynna þátttöku sína í
Hannyrðaverzlun Þuríðar
Sigurjónsdóttur, Bankastræti
6, ekki síðar en á föstudag.
Stjórnin.
Kaup-Sala
Danskur
KAUPSÝSLUMAÐUR
óskár eftir verslunarsambönd
um ísland — Danmörk. Til-
boð merkt: sendist blaðinu
fyrir 17. júní.
KVENREIÐHJOL
í óskilum á Blómvallagötu 7.
HNAPPA HARMONIKA
5 föld, í góðu lagi, til sölu, ó-
dýrt, af sjerstökum ástæðum.
LTppl. Grettisg. 30, eftir kl. 7.
KVENREIÐH J OL
til sölu. Verð 380 kr., Lauga-
nesvegi 77. Sími 5734.
ÞIÐ KAUPIÐ
bestu og vönduðustu gúmmí-
skóna á Bergþórugötu 11. —
NOTUÐ HfTSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. — Só’tt
heim. — StaSgreiðsla. — Sími
6691. — Fornverslunin Grettis-
götu 4*.
Ný 450 ha. gufuvjel
í skip. Dönsk framleiðsla, 14
Atmosf. þrýstingur, er til sölu
nú þegar.
Dampskibsselskabet
Hetland A. S.
Ameliegade 35.
Köbenhavn K.
a
9
íoóh
161. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5,30.
Síðdegisflæði kl. 17,48.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 1530.
Næturvörður er í Ingólfs-
Apóteki, sími 1330.
Næturakstur annast B. S. R.,
sími 1720.
Forseti setti í dag, 12. júní
1946, bráðabirgðalög um lán-
tökuheimild fyrir ríkisstjórnina
til að reisa lýsishersluverk-
smiðju.
Söfnin. f Safnahúsinu eru
eftirtöld söfn opin almenningi
sem hjer segir: Náttúrugripa-
safn: sunnudaga 1 Yz—3 e. h.
og á þriðjudögum og fimtudög-
um kl. 2—3. Þjóðminjasafnið
opið sömu daga kl. 1—3. Skjala
safnið er opið alla virka daga
kl. 2—7 og Landsbókasafnið
alla virka daga kl. 10—10.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipaútgerð ríkisins hefir
Skarphjeðinn Gíslason frá
Hornafirði nýlega gert óvirk
4 tundurdufl á Skeiðarársandi.
Allt voru þetta bresk segul-
mögnuð dufl.
Hjónaefni. S. 1. laugardag op-
inberuðu trúlofun sína, ungfrú
Bjarndís Inga Albertsdóttir og
Guðbrandur Rögnvaldsson, —
Haðarstíg 5.
Hjónaefni. I gær opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Lóa Þor-
steinsdóttir og Bjarni A. Jóns-
son, bæði til heimilis að Lang-
eyrarveg 12, Hafnarfirði.
Hjónaefni. S.l. laugardag op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Guðbjörg Guðmannsdóttir frá
Jórvík í Alftaveri og Magnús
Olafsson, múraranemi, Lindar-
götu 63A.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína, Soffía Sig-
urðardóttir frá Norðfirði og
Sigurður Valdimarsson frá
Sóleyjarbakka.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína, ungfrú
Ester Gísladóttir, Urðarstíg 14
og Valtýr Guðmundsson, Selja-
veg 17.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Margrjet Ingjaldsdóttir (Jóns-
sonar trjesmiðs) og Hjálmar
Tomsen frá Suðurey, Færeyj-
um.
■ Hjónaefni. S. 1. laugard. op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Svava Hjálmtýsdóttir frá
Hvammstanga og Sigurður H.
Sigui'ðsson, sjómaður, Lauga-
veg 70B.
Tilkynning
FÍLADELFÍA
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. — Allir velkomnir.
Vinna
HREIN GERNIN GAR
Vanir menn til hreingerninga
Sími 5271.
HREIN GERNIN G AR
Vanir menn til hreingerninga
Fljót og góð vinna
Sími 5179. — Alli og Maggi.
MÁLNING
Sjergrein: Hreingerning.
„Sá eini rjetti“. ‘=fj£&
Sími 2729.
HREIN GERNIN G AR
Jón og Bói,
sámi 1327.
Aðalfundur Læknafjelags ís-
lands hefst kl. 16 í Háskóla Is-
lands.
Söfnunin til fólksins á Isa-
firði: A. O. 50 kr., Starfsfólk
Netagerðar Björns Benedikts-
sonar 1000, G. G. 300, Stein-
dór Hálfdánarson 100, Halldór
Jónsson 100, Sig Halldórsson
50, S. G. 50, gömul kona 20,
ónefnt 70, J. S. áheit 50, L. 100
K. G. 50, ónefnd 20, ónefnt 20,
E. Ó. E. H. 100, M. Á. G. 50,
50, Siggi 20, Klæðaverslun
Andrjesar Andrjessonar 1.665,
N. N. 150, H. E. 50, Margrjet
og börn 200, Kalli á Hóli 100,
H. J. 150, N. N. 50, Albert 100,
Guðbjartur Jónsson 100, A.x.B.
500, starfsfólk vjelsmiðjunnar
Hjeðins 1.830, Til munaðar-
lausu barnanna sem mistu for-
eldrana í brunanum frá Magdu
Jónsson, 100 kr. — Samtals kr.
9.145,00.
Skipafrjettir. Brúarfoss er í
Reykjavík, kom 5. júní frá
Hull. Fjallfoss er í Leith. Lag-
arfoss kom til Reykjavíkur 10.
júní frá Gautaborg. Selfoss er
á Skagaströnd í dag. Reykja-
foss er í Leith. Buntline Hitch
fór frá Reykjavík 1. júní til
New York. Salmon Knot fór frá
New York 10. júní til Reykja-
víkur. Empire Gallop fór 7.
júní til Clyde. Anne er að hlaða
í Fredrikstad í Noregi, fer
sennilega þaðan í dag til Kaup-
mannahafnar. Lech er á Vest-
fjarðahöfnum, hleður frystan
fisk. Lublin er í Hull. Horsa
kemur til Siglufjarðar kl.
18.00 í dag.
ÚTVARPIÐ í DAG:
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Söngdansar (plötur).
19.35 Lesin dagskrá næstu
viku.
20.00 Frjettir.
20.30 Stjórnmálaumræður
ungra manna.
Frá Vorboðanum
EINS og kunnugt er, hafði
Vorboðinn sumarheimili fyrir
börn í nokkur sumur að Braut-
arholti á Skeiðum, Flúðum í
Hrunamannahreppi og í Þing-
borg í Flóa.
Barnaheimilisnefndin hagaði
helst börn af heimilum, sem
áttu við mesta erfiðleika að búa
bæði hvað húsakost og efnahag
forráðamanna barnanna snerti.
Það var því takmarkið að bæta
úr þeirri brýnu nauðsyn barn-
anna, sem búa í heilsuspillandi
íbúðum, að þau fengju að njóta
hollari aðbúnaðar í heilnæmu
lofti eða með öðrum orðum
sumars og sólar. Á stríðsárun-
um breyttist þetta fyrirkomu-
lag einkum vegna þess, að ekki
þótti hættulaust að hafa börn
í bænum og tók þá Rauði
Krossinn að sjer að koma öllum
börnum á sumarheimili að sumr
inu og var sú starfsemi kostuð
af ríki og bæ, en auk þess tekin
meðlög. Þó aðstaðan hafi breyst
er altaf jafnmikil þörf á að
börnunum í sumardvöl.
Með hliðsjón af því, ætlar
Vorboðinn að hefja starfsemi
sína að nýju og starfrækja í
sumar barnaheimili að Ásum í
Gnúpverjahreppi.
Allar upplýsingar viðvíkjandi
heimilinu verða gefnar næstu
daga kl. 13.30 til 15.30 á skrif-
stofu V.K.F. Framsókn í Alþýðu
húsinu við Hverfisgötu.
LITLIR
stálskápar
með hillum, mjög hentugir í sumarbústaði,
fyrirliggjandi.
~Sícýur<fur jf^oróteinóóon Lf.
Umboðs- og heildverzlun,
Grettisgötu 3. Sími 5774.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Lokað ídag
vegna jarðar-
farar frá kl. 12-4
BIYKJAVÍK
Litla dóttir okkar,
SIGRÚN
andaðist á heimili okkar, Smiðjustíg 7, 11. þ. mán.
Þóra Helgadóttir, Baldur Ásgeirsson.
Elskulega móðir mín og tengdamóðir,
FRÚ EMILY CARLA NIELSEN,
andaðist 12. júní.
Fyrir hönd fjarverandi œttingja.
Kdthe Kjartansson, Ingjaldur Kjartansson.
RANNVEIG ÓLAFSDÓTTIR,
Dalbrún, Borgarnesi, sem Ijest 8. þ. m. verður jarð-
sett að Borg, laugradaginn 15. júní.
Athöfnin hefst frá heimil hinnar látnu kl. 13.
Astandendur.
Maðurinn minn,
HÓLMGRÍMUH JÓSEFSSON,
prestur að Raufarhöfn,
andaðist á Landspítalanum 10. júní.
Fyrir hönd barna og annara ættingja.
Svanhvít Pjetursdóttir, Freyjugötu 34.
Hjartanlega þakka jég öllum þeim mörgu, sem
hluttekningu við fráfall og jarðarför föður okkar,
SIGURÐAR HELGA JÓNSSONAR
Kvíavöllum,
sem andaðist 25. fjrra mánaðar.
Sigríður Helgadóttir, Eyrún Helgadótir,
Jónína Helgadóttir, Björg Helgadóttir.
Mjartanlega þakka jeg öllum þeim mörgu, sem
auðsýndu minni öldruðu, einstœðu móður,
MARGRJETI Þ. VILHJÁLMSSON,
góðvild og að síðustu heiðruðu útför hennar.
Hinrik B. Þorláksson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við minn-
ingarathöfn um
ÁRNA SIGURÐSSON, skípstjóra (frá Ási).
. Aðsiandendur.