Morgunblaðið - 13.06.1946, Qupperneq 16
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
Suð-austan’íialdi og sumstaðar
dálítil rigning.
íslendingar unnu 2 sund en
Danir 1 í milliríkjakeppninni í
gær. — (Sjá bls. 1).
Fimtudagur 13. júní 1946
Fimleikamenn K.R. fá
góðar viðtökur í Bergen
I GÆRKVOLDI mætti jeg fjórum vasklegum piltum. Þeir
voru í flugmannabúningi. Það er engin nýlunda. En þeir töl-
uðu íslensku, því þetta vai áhöfnin frá Catalinaflugbát Flug-
fjelags íslands, sem kom frá Bergen kl. 10 mínútur yfir ellefu.
Frá byggingasýningunni.
Þeir fóru í fyrramorgun með
fimleikamenn K. R. sem kunn-
ugt er. Þeir lögðu af stað kl.
8 lá að morgni og komu til Berg
en kl. 16.10. Þeir höfðu aldrei
þangað komið fyrr. því þetta or
í fyrsta sinn. sem íslenska flug-
vjel flýgur til Noregs.
Dimt var í lofti. rigning og
• andbyr.
Er til Bergen kom, fengu
þessir fyrstu íslensku ferða-
menn, er þangað hafa komið
loftleiðis, hinar bestu viðtökur.
Fjöldi fólks var saman kominn
tii þess að taka á móti hinum
íslensku gestum. Þar var íþrótta
fulitrúi frá íþróttasambandi
Bergen' og frá norska flugfje-
laginu. Annaðist það fjelag mót
tökur Catalinabátsins.
Um kvöldið voru hinir ís-
lensku flugmenn gestir íþrótta-
sambandsins við sýningarnar á
íþróttavellinum. — Þar sýndi
sænskur kvenflokkur og fim-
leikaflokkur K. R.-inganna. —
Var K. R.-ingum tekið rneð svo
dynjandi lófaklappi. að flug-
mennirnir, sem jeg átti tal við
í gærkvöldi, höfðu ekki verið
viðstaddir annað eins af því
tagi. Fimleikastjórinn, Vignir
Aandrjesson fekk blómsveig að
leikslokum.
Endurtaka átti sýningarnar í
gærkvöldi. En í dag sýna K. R,-
ingarnir 1 Voss.
Catalinupiltar lögðu upp frá
Bergen kl. 4 e. h. í gær og komu
hingað eftir rúml. 7 tíma flug.
Fengu þeir gott veður á heim-
leiðinni. Með þeim komu þessir
farþegar: Hans Daníelsson og
frú Júlía Vagtskjold, með barn
sitt.
Ahöfn Catalinaflugbátsins í
þessari ferð voru. Magnús Guð
mundsson, flugstjórí, Smári
Karlsson flugmaður, Jóhann
Gíslason loftskeytamaður og
vjelstjóri Sigurður Ingólfsson.
Jeg gat ekki að því gert, að
þegar jeg sá þessa ungu menn
nýkcmna úr langflugi, fjekk jeg
öruggari trú en áður á íslénsk-
um flugsamgöngum.
Öll blöðin í Bergen rituðu í
gær um fimleikasýningu K. R.
inganna, sem fór fram á þriðju-
dagskvöldið ásamt fimleikasýn
ingu sænsks kvenflokks. Bár-
ust Morgunblaðinu blöðin í gær
kvöldi.
Blaðadómarnir eru allir á
einn veg, mjög vingjarnlegir
í garð íslendinga og yfirleitt
góðir fyrir fimleikaflokkinn.
Mesta hrifnipgu vakti hand-
staða sex manna á kistu. T. d.
segir „Morgenavisen“: „Leik-
fimin var kröftug og maður
gæti haldið að íbúar sögueyj-
arinnar væru jafn stöðugir,
hvort sem þeir stæðu á höndum
eða fótum“. Sum blöðin gera
mest úr kraftstökkunum, og
dýnuæfingunum, en öðrum
þóttu æfingarnar á samansett-
um áhöldum vera sterkasta hlið
flokksins. Annars segja þau, að
íslendingar sjeu nokkuð á eft-
ir hinum Norðurlöndunum
hvað leikni snertir, þar sem
j þeir sjeu ennþá með Lingkerfið,
sem sje orðið úrelt í Noregi.
| Þá var fundið að því, að sýn-
ingin hefði verið helst til lang-
dregin, en viðtökur áhorfenda
voru mjög góðar. Fimleika-
mennirnir sjálfir vöktu athvgli
á sjer fyrir hve stæðilegir þeir
væru og stjórn Vignis Andrjes-
sonar er einróma lofuð.
f Þá er þess getið, að íslend-
ingarnir hafi komið til Bergen
aðeins tveimur tímum áður en
j sýningin var haldin eftir 8 klst.
, flug.
ÚivarpsufnræSur
i
i í KVÖLD fara fram útvarps-
umræður milli stjórnmála-
fjelaga ungra manna hjer í
Pieykjavík. Hefjast umræð-
^urnar kl. 8,30 og á þeim að
vera lokið kl. 10,30. Hvert fje-
lag hefir 50 mínútur til um-
jráða, og skiptist sá tími í
þrjá'r umferðir, 25 mínútur,
15 mín. og 10 mín.
Fjelögin hafa tíma í þess-
ari röð: Fyrst er Fjelag ungra
Jafnaðarmanna, þá Æskulýðs
fylkingin — fjelag ungra Só-
síalista, svo Fjelag ungra
Framsóknarmanna og loks
Heimdallur — fjelag ungra
Siálfstæðismanna. Fyrir Al-
I þýðuflokksmenn tala: Gvlfi
iÞ. Gíslason, Jón P. Emils og
Helgi Sæmundsson. Fyrir Só-
ríalista: Guðmundur' Vigfús-
json, Jónas Haralz og Rann-
veig Kristjánsdóttir. Fvrir
Framsóknarmenn: Þórarinn
Þórarinsson og Jóhannes Elí-
asson. Og fyrir Sjálfstæðis-
menn: Jóhann Hafstein, Björg
vin Sigurðsson og Gunnar
Helgason.
Á EFRI myndinn sást nokkur líkön, sem sýnd eru á Bygg-
ingasýningunni í Sjómannaskólanum, en á neðri myndinni
stofan í íbúð þeirri, sem þar er sýnd.
(Ljósm. Mbl. Fró Clausen.)
Sumardvalarheimili
verður að Jaðri
AÐ JAÐRI í landnámi templara hefir nú verið sett á stofn
sumardvalarheimili fyrir templara og annað reglufólk. Tók það
til starfa fyrst í þessum mánuði og starfar til septemberloka, en
þá verður Jaðar tekinn undir skóla á vegum Reykjavíkurbæjar.
Terauchi marskáik-
ur
London í gærkveldi.
í DAG andaðist japanski
marskálkurinn Terauchti af
hjartaslagi í bæ einum nærri
Singapore. Hann var 71 árs
gamall og hafði lengi verið
heilsuveill. Var þessvegna
ekki dreginn fyrir stríðs-
gíæpadóm. Það er alment tal
dð að það hafi verið Terauchi,
sem skiþlagðj liuiftursókn
Japana til Suðaustur-Asíu og
Kvrrahafs árið 1941—1942.
— Reuter.
Blaðamönnum var í gær
ekið að Jaðri og sýndar þær
framkvæmdir, sem templar-
ar hafa gengist þar fyrir, en
þar hefir m. a. verið reist stór
hýsi 26.5x7,34 m. að flatar-
rnáli. Verður gr'eiðasala í
húsakynnum þessum í sum-
ar, og ennfremur verður tek-
ið á móti dvalargestum til
lengri eða skemmri tíma. —
Verður alls hægt að taka á
móti 30 dvalargestum í einu
og hafa þegar nokkrir pant-
að dvöl þar efra. í framtíð-
inni er svo ætlunin, að reka
þarna gisti og veitngahús í
miklu stærri stíl, þar sem
þegar hefir ekki verið reist
nema einn þeirra byggnga,
sem þarna eiga að rísa Þá
liafa og verið gerðar miklar
jarðabætur að Jaðri og trjá-
piöntur gróðursettar, Hefir
allt þetta verið að miklu leyti
u.nnið í sjálfboðavinnu. Er
landslag þarna mjög skemti-
legt og gististaðurinn hihn
vistlegasti.
í framkvæmdanefnd Jað-
ars ega sæti: Sigurður Guð-
roundsson, ljósmyndari, for-
maður, Kristján Guðmunds-
són, framkvæmdastj., Hjört-
ur Hansson, gjaldkeri og með
stjórnenclur Kristján V:'fir
hjálmsson, Kristján Sigur-
björnsson, Jón Magnússon og
og Andrjes Vendel.
Vegamálastjéri sæk-
ir
vegaverkfræðinga
VEGAMÁLASTJÓRI Geir
('• Zoega fer í dag utan flug-
leiðis, og er ferðinni heitið
til Kaupmannahafnar. Þar
ætlar vegamálastjóri að sitja
fund vegaverkfræúinga frá,
Norðurlondum og er gert ráð
fyrir, að fund þenna sitji 400
verkfræðingar. Slíkir fundir
voru haldnir fyrir stríð, er
þetta fyrsti fundurinn sem
haldinn er að styrjöldinni
lokinni.
Vegamálastjóri verður eini
fulltrúinn af íslands hálfu á
þessum fundi.
Bann sett á aftur.
LONDON. Bann við því að
kynda miðstöðvar í húsum í
Bretlandi, sem afnumið var
þann 16. apríl s.l., hefir verið
sett á aftur.
þeirra, er fórust
á ísafirði
ísafirði, miðvikudag. Frá
frjettaritara vorum.
ÚTFÖR þeirra, sem fórust í
brynanum á ísafirði þann 3. þ.
m. fór fram í dag, miðvikudag,
og hófst klukkan 13,30. Hús-
kveðjur hjónanna, Guðrúnar
Árnadóttur og Sigurvins Vet-
urliðasonar flutti Óli Ketilsson,
prestur að Hvítanesi, frá heim-
ili bróður Sigurvins heit., Ragn
ars, Smiðjugötu 4. — Húskveðja
fóstursystkinanna, Hermanns
Bjarnasonar og Sigríðar Bjarna
dóttur fór fram frá heimili for-
eldra Hermanns heitins, Krist-
ínar Jóhannsdóttur og Bjarna
Hanssonar skipstjóra, Alþýðu-
húsinu og húskveðja Bjarneyj-
ar Sveinsdóttur fór fram frá
heimili foreldra hennar, Sveins
Jónssonar og Eyjólfu Guð-
mundsdóttur, og voru báðar
þessar húskveðjur fluttar af
sóknarprestinum, Sigurði Krist
jánssyni.
í kirkjunni flutti biskupinn
yfir íslandi, herra Sigr'geir
Sigurðsson ræðu. Flutti iiann
að beiðni dómsmálaráðherra,
Finns Jónssonar, sem staddur
er hjer, kveðju ríkisstjórnar Is-
lands og vottaði samúð hennar
öllum þeim, sem um sárt eiga
að binda vegna þessa sorglega
atburðar. Þá talaði og í kirkj-
unni, sóknarpresturinn, sr. Sig-
urður Kristjánsson.
Sunnukórinn annaðist sönginn,
og Jón Hjörtur Finnbjarnrrson
söng einsöng, Kvöldbæn eftir
Björgvin Guðmundsson. Guð-
mundur E. Geirdal skáld ílutti
( kvæði, sem hann hafði orí um
slys þetta.
i Sigurður Kristjánsson ýarð-
setti. Kisturnar voru þrjár. —•
! Hvíldu hjónin saman og fóstur-
systkynin, en Bjarney litla var
ein sjer í kistu. — Kisturnar
voru fagurlega blómum skrýdd
ar.
Þetta mun vera fjölmennasta
jarðarför, sem fram hefir farið
frá ísafjarðarkirkju og var
fjöldi fólks, sem ekki komst í
kirkjuna, og var hátölurum
komið fyrir úti.
Þessi dagur bar tvímæla. mst
ljósan vott um þá almennu ..am
úð, sem Isfirðingar hafa ;ýnt
öllum þeim, sem mistu á :vini
cír>^ nrr nimir Fpnar V)l?V+n \
hálfa stöng um allan bæinn.
Öllum verslunum og skrifstof-
um var lokað frá hádegi til kl.
16,30. Vinna á öllum vlnnu-
stöðvum fjell einnig niðv —
Öll athöfn þessi fór fram með
virðuleik og allir hjálpuðust íil
þess að gera hana hátíð’ega.
MBJ.
Fengu heiðursm jrki
LONDON. Hið konunglega
listafjelag breska, hefir sæmt
Sir Alexander Flemming og
Sir Horace Florey Alherts-
gullmedalíunni fyrir uppgötv-
un þeirra og framleiðslu á lyf-
inu Penicillin. i