Morgunblaðið - 24.11.1946, Page 5
Sunnudagur 24. nóv. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
B
Kaupmenn ■ Kaupfjelög
Útvegum bestu tegundir skófatnaðar frá
Tjekkoslovakíu. Sýnishorn fyrirliggjandi
Einkaumboð á íslandi fyrir
POLICKY NATIONAL CORPORATION
(Ríkisverksmiðjur) í Chrudim, Tjekkoslovakíu.
J/óLanneóóon li.j.
Rauðarárstíg 1. Sími 7181.
!•
Hárgreiðslu- og snyrtistofan
Gremmel 0
Sími 6938
Við undirritaðar opnum Hárgreiðslu- og snyrti
stofuna Grenimel 9, 28. þ.m. Höfum nýjustu
permanentvjelar og olíur. Einnig litun og lýs-
ing á hári, handsnyrting og andlitssnyrting.
Stefanía Ólafsson,
Guðfinna Ingvarsdóttir.
■
SkjurgeirJónsson
Akureyri,
átiræður
É
Fyrirliggjandi:
Pakkhúsvagnar
Sekkjatrillur
Trillur fyrir gúlfdúka-rúllur
Lyftivagnar fyrir pakkhús
Vjelknúnir vöruflutningavagnar
„Lister“ 1 tonns
Gúmmíhjól á hjólbörur og vagna
13”. 14”, 16’”
Stálhjól og öxlar fyrir heyvagna
Gaddavírsstrekk j ar ar
Sláttuvjelar, sterkbyggðar
Hemlar og dráttarstengur
Skilvindur, 135 lítra
Diskaherfi fyrir hesta (8 diska)
Plógar fyrir hesta
Fjaðraherfi 17 tinda
Viftur til heyþurkunar og loftræst-
ingar 25”, 30”, 35”, 45”,
Bensínvjelar 2Vz hestafl
Olíuvjelar 4 hestöfl
Dieselvjelar 6—8 hestöfl
Gúmmíslöngur %” %”, 1 2”
B. S. A. stálborar „High Speed“
B. S. A. járnsagarblöð „High Speed“
Raftuðusæki (Transformer 250 amp.)
Járnklippur
Boltaklippur
Plastic þilplötur
Plastic lím (fyrir plastic, trje, málma,
gúmmí o. fl.)
Þensluker fyrir miðstöðvarkerfi
Háaloftsstigar úr stáli.
Lindargötu 9 — Aðalstræti 6 B. — sími 7450
ÁTTATÍU ára er á morgun,
mánudag, Sigurgeir Jónsson,
Spítalastíg 15, Akureyri. Sig-
urgeir er fæddur að Stóru-
völlum í BárCardal, 25. nóv.
1866. Foreldrar hans voru
Jón bóndi og söðlasmiður
Benedikt.sson og kona hans
Aðalbjörg Pálsdóttir.
Sigurgeir hneigðist snemma
að músík og fjekk tilsögn í
hljóðfæraleik hjá frú Önnu
Petersen í Reykjavík 1891—
92. Hann gerðist bóndi að
Stóruvöllum og bjó þar í 10
ár, en síðan fluttist hann til
Akureyrar og tók brátt mik-.
inn þátt í sönglífi bæjarins,/
kenndi hljóðfæraslátt og
stjórnaði söngfjelögum. Hann
varð organleikari við Akur- j
eyrarkirkju 1911 og gengdi
því starfi til 1910. Um tíma
hafði hann á hendi söng-
kennslu við Gagnfræðaskól-
ann og Barnaskólann. Nem-
endur Sigurgeirs í hljóðfæra
leik um 40 ár eru að vonum
orðnir margir. Ennfremur
hefur hann haft á hendi
stillingu hljóðfæra víðsvegar
á Norðurlandi. Jafnframt
margvíslegum störfum, sem
Sigurgeir voru falin, hefur
hann gefið sjer tíma til að
stunda búskap, sjerstaklega á
sumrum.
Sigurgeir ber hinn háa ald
ur sinn ágætlega. Hann hefur
ætíð verið mjög vinsæll mað
ur og ljúfmenni í allri um-
gengni. Kona hans er Frið-
rika Tómasdóttir og eiga þau
mörg uppkomin og efnileg
börn. — H. Vald.
1$ Islendingarr
koma frá Ameríku
SNEMMA í gærmorgun kom
til Keflavíkurflugvallarins Sky
masterflugvjel American Over-
seaes Airlines. Með flugvjel-
inni hingað voru 16 farþegar.
Voru nær allir þeirra náms-
menn er stundað hafa nám
vestra á undanförnum árum.
Meðal farþeg'anna voru Einar
Markússon píanóleikari, Þór-
hallur Halldórsson og frú Ólaf
ur Alexandersson, Ólafur Mark
ússon, Sigurbjörn Þorbjarnar-
son og frú.
G. Helgason & Melsted sáu
um afgreiðslu flugvjelarinnar
hjer. Eftir því sem blaðið veit
best mun enginn póstur hafa
verið með að vestan.
Nýjor burnnbækiir:
| Smiðjudrengurinn
Eftir Carl Sundby, í þýðingu Gunnars Sig-
urjónssonar með myndum eftir Stefán
Jónsson, teiknara.
Þessi saga er um sömu persónur og hin vin-
sæla saga „Ungar hetjur“. Einar ratar í mikl-
ar raunir, en Pjetur kippir öllu í lag og jóm-
frúrnar leika sitt hlutverk. Sagan er viðburð-
arrík og hrífandi frá upphafi til enda. Allir,
sem lesið hafa „Ungar hetjur“, þurfa að lesa
„Smiðjudrenginn“. — Verð í bandi 18,00.
I Jesús frá Nazaret
Biblíumyndir til litunar.
Þessi fallega bók er algjört nýmæli meðal ís-
lenskra barnabóka. í henni eru fallegar mynd
ir og, hverri mynd fylgir saga þess atburðar,
sem hún sýnir og auk þess leiðbeiningar um
litaval, svo laghent börn geta sjálf litað mynd
irnar. — Þessi,bók verður áreiðanlega kær-
komin eldri sem yngri börnum. Verð kr. 3,50.
Fyrir jólin eru einnig væntanlegar:
I Jessika
Telpusaga, með myndum, eftir Hesba
Stvetton, í þýðingu Ólafs Ólafssonar.
Þessi fallega saga er einhver útbreiddasta og
vinsælasta barnasaga, sem út hefur komið.
Kún hefur verið þýdd á flest mál og gefin út í
milljónum eintaka. Hjer á Iandi kannast
margir af eldri kynslóðinni við hana, því út-
dráttur úr henni birtist í hinum vinsælu smá
sögum Pjeturs Pjeturssonar á sínum tínia.
Munu því margir fagna því að fá hana alla í
þessari fallegu útgáfu. Þetta verður góð jóla-
bók handa ungu telpunum.
\Flemming í
heimavistarsköla
Drengjasaga, með myndum, eftir Gunnar
Jörgensen, í þýðingu Lárusar Halldórs-
sonar.
Margir hjer á landi kannast við Flemming-
sögurnar. Þær eru einhverjar vinsælustu
drepgjasögur, sem ritaðar hafa verið á Norð-
urlöndum. Flemming er ósvikinn drengur,
með kostum og ókostum, en þó þannig, að það
er ómögulegt annað en að þykja vænt um
hann. Flemmingsögurnar eru hollur lestur
fyrir tápmikla drengi og einar af þeim arengja
- sögum, er jafnt ungir sem gamlir lesa sjer til
óblandinnar ánægju. Bókagerðin Lilja hefur
fengið leyfi til útgáfu þeirra hjer á landi og
birtist nú ein þeirra, og einhver sú skemmti-
legasta.
Þessar bækur þurfa öll börn að eignast.
I^óhacjeJin cjCilja
iniiiiuiiniiiiiiiiiiniiiiinnmiauiaiiiiaininiiiiiianaiiiifiniuiiniiniiiiiniiimiitiiiimiaiiiniiiiiimiimiitmiim
Bcst ú auglfsa í !Uorgup.b!a5inu
uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMitiiiiiiiiimiiiiiuiiiiiMiiiiiiiimiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiimumiiiiiniiiiiiiiiiHimuimDimmmniuiu