Morgunblaðið - 24.11.1946, Qupperneq 7
Sunnudagur 24. nóv. 1946
MORGUNBLAPIÐ
REYKJAVÍKURBRJEF
LaugarcSagur
23. nóvember.
A þingi Sameinuðu
þjéðanna.
MERKISATBURÐUR verður
það talinn í sögu Islendmga, er
fulltrúar þjóðarinnar tóku í
fyrsta sinn sæti á þingi Sam-
einuðu þjóðanna þ. 19. þ. m.
Á þeirri stundu settist íslenska
þjóðin, þó fámenn sje, á bekk
með heimsþjóðunum, sem jafn
rjett há öðrum í þeim samtök-
um, er mikilsverðust eru nú
starfandi í heiminum. Má ef-
laust fullyrða, að framtíð mann
kynsins velti mjög á því hvern-
ig takast megi um það friðar-
starf, sem þar er unnið.
í ræðu þeirri, er Thor Thors
sendiherra flutti við þetta tæki
færi, komst hann m. a. að orði
á þá leið, að Islendingar hefðu
jafnan talið sig meðal hinna
Sameinuðu þjóða, enda þótt við
hefðum ekki viljað vinna það
til, að segja hernaðarþjóðum
etríð á hendur, til þess að verða
þátttakendur í þessu bandalagi
þegar er það koma til orða, er
ráðstefnan var í San-Fransisko.
Hringíanda-hátlur.
AFSTAÐA kommúnista til
þessa máls, sem ýmsra annara
utanríkismála vorra, er og verð
ur eftirminnileg. Þeir vildu óð-
ir og uppvægir að við vopn-
lausir segðum Þjóðverjum og
Japönum stríð á hendur, um
það leyti, sem þjóðir þessar voru
sigraðar, og með því gera okk-
ur hlægilega í augum heims-
ins, í sömu andránni sem við
komum fram sem sjálfstæð þjóð
meðal heimsþjóða. Svo ólmir
voru þeir þá í það, að við yrð-
um þátttakendur í bandalaginu.
Nú, þegar leiðin var opin, og
senda átti fulltrúa á þingið í
New York gátu kommúnistar
ekki fengið sig til þess að til-
nefna neinn mann úr sínum hóp
til fararinnar, vegna þess, eft-
ir því, sem þeir sjálfir sögðu,
að þeir fengju ekki að ráða
því einir, hvaða afstöðu Islend-
ingar eða fulltrúar þeirra
tækju á þinginu í hinum ýmsu
málum, sem þar kæmu til at-
kvæða.
i
Með þessu móti sanna og und
irstrika kommúnistar að það er
eindreginn vilji þeirra, að sú
tvískifting, og sá klofningur,
sem nú gerir mjög vart við sig
í samskiftum þjóðanna, nái til
þess að kljúfa íslensku þjóðina
í tvær fylkingar, þegar um ut-
anríkismál okkar er að ræða.
Það er fjarstæða, að frjáls-
bornir Islendingar, er unna
sjálfstæði þjóðar og einstak-
linga, geti nokkurn tíma sæt.t
sig við þiónkun kommúnista í
utanríkismálum, gagnvart er-
lendu einræðisríki. Það eru
kommúnistar, sem bera alla
ábyrgðina á afleiðingum þess,
ef íslendingar geta ekki á
fyrstu missirum hins endur-
reista lýðveldis, staðið samhuga
í utanríkismálum sínum.
í Rúmeniu.
í SÍÐASTLIÐINNI viku fóru
fram kosningar í Rúmeníu. Að
öllum jafnaði hefðu menn hjer
á landi látið sig fremur litlu
skifta, hvernig úrslit þeirra
]yrðu. íslehdingar hafa ekki gef
ið því mikinn gaum, hvernig
átökin væru milli stjórnmála-
flokkanna suður við Svartahaf.
En eins og mönnum er ljóst,
hefir sú breyting orðið á heim-
inum eftir síðustu styrjöld, að
fjarlægðirnar eru orðnar minni
en þær áður voru. Ekki að-
eins þannig að skilja, að nú sje
orðið fljótfarnara milli fjar-
lægra landa. Heldur hafa og við
fangsefnin og viðhorfin orðið
svipaðri eða mikið til þau sömu
með fjarskyldum og framandi
þjóðum.
Um allan heim hafa og upp-
hafsmenn hins austræna lýð-
ræðis hjálparmenn sína og und
irdánugu dáta, sem meta meira
velferð og óskir einvaidanna í
austri, en velferð þjóða sinna
og framtíð. Meðal allra þjóða,
er meira og minna af þess
konar fólki, er metur það mest
í heimi, að geta sýnt her-
veldinu í austri hina fullkomn-
ustu þjónkun.
Kosningar og morð.
ÞAÐ ER sameiginlegt áhuga
mál allra kommúnista, hvar
sem þeir eru í heiminum, að
koma því kosningafyrirkomu-
lagi á, sem víðast, er einvalds-
stjórn Rússlands hefir komið á
hjá sjer, að hið almenna frjáls-
ræði manna til að greiða fram-
bjóðendum atkvæði eftir sann-
færingu sinni, sje afnumið.
Svo mikils mega kommúnistar
sín í Rúmeníu með tilstyrk hins
rússneska herliðs, sem þar er
í landinu, að menn gátu átt
von á að kúgunaraðferðum yrði
beitt þar við kosningarnar
Rússum í vil.
Málgagn kommúnista hjer á
landi hefir þveroeitað að svo
hafi verið, eins og málgögn
kommúnista um gervallan
heim, því öll kommúnistablöð
heims æpa alla daga árs á sömu
nótum. En það fylgdi með fregn
inni um hinar „frjálsu kosning-
ar“ í Rúmeníu, að nokkrir and-
stæðingar kommúnistanna hafi
þar verið drepnir í óeirðum, er
risu í sambandi við kosning-
arnar.
Um sama leyti, sem fregnir
bárust um kosningamorð þessi,
birti ,,Þjóðviljinn“ nákvæmar
úrslitatölur frá kosningunum,
¥
áður en frjettastofur vestrænu
þjóðanna höfðu fengið nokkuð
um það, að vita hvernig at-
kvæði hefðu fallið.
Hvaðan koma frjeífir
Þjéðviiians!
ÞAÐ hefir lengi vakið eftir-
tekt þeirra, sem Þjóðviljann
lesa, að mjög sjaldan kemur
fyrir að þar sje tilgreint hvaðan
blaðið fær fregnir þær, er það
flytur. Þetta gæti þó skift nokk
uð miklu máli fyrir þá, sem
leita vilja frjettafróðleiks í dálk
um blaðsins. En haldið er, sem
mestri leynd yfir frjettalind-
um blaðs þessa, er kommúnist-
ar gefa hjer út.
Fyrir rúmlega sex árum
hjeldu Rússar ofbeldiskosning-
ar í Eystrasaltslöndunum. Þá
var austræna aðferðin tekin þar
upp. Enginn mátti vera í kjöri,
nema hann fengi skuldbundið
sig til þess að fylgja komm-
únistum að málum og vera auð
mjúkur þjenari hins volduga
nágranna í austri. Forustumönn
um andstæðingaflokkanna vörp
uðu kommúnistar í fangelsi áð-
ur en kosningar færu fram, til
þess að trygt væri að þeir yrðu
áhrifalausir. En rússneskir her
menn voru hafðir inni í kjör-
deildunum meðan á kosningum
stóð, til þess að vaka yfir því,
að þeir, sem á annað borð komu
á kjörstað greiddu atkvæði eins
og Rússar vildu. Þeir urðu að
skila gildum atkvæðaseðlum.
En öllum, sem heima sátu var
hótað með fangelsun eða Síber-
íuflutningi. Ekki var um að
ræða að velja á milli frambjóð-
enda, því ekki var nema einn
í hverju kjördæmi, kommúnisti
er Rússar höfðu viðurkennt sem
gildan.
Þessi skrípakosning vakti
hneyksli um allan heim, vegna
þess, ekki síst, að hinir aust-
rænu hjeldu því hiklaust fram,
iað hjer hefði verið fylgt hinum
fylstu lýðræðisreglum (!)
Eitt óhapp kom þó fyrir hina
ofstar.i isfullu yfirdrotnara
Eystrasaltslandanna í sambandi
við ofbeldiskosningar þessar. —
Frjettastofa hinna austrænu, er
hafði útibú í London, birti úr-
slitatölur kosninga þessara sól-
arhring áður en kosningaathöfn
inni var lokið.
Það hafði sem sje verið á-
kveðið fyrirfram, hverjar nið-
urstölutölur skyldi birta, án
tillits til þess, hver úrslitin
raunverulega yrðu. Þær voru
birtar 24 klukkustundum of
snemma. Manni verður á að
spyrja: Eru frjettalindir Þjóð-
viljans, sem lesendurnir mega
ekki vita hverjar sjeu, eitthvað
í ætt við frjettastofuna, sem
birti hinar uppdiktuðu kosn-
ingatölur úr Eystrasaltslöndum
sumarið 1940?
Þeir faSa digur-
barkaiega.
ÞEIR, SEM í Tímann skrifa
þessa daga, tala nokkuð digur-
barkalega. Það er ekkert nýtt í
heim herbúðum. Þegar Her-
mann Jónasson og flokksmenn
hans espuðu menn til „skæru-
hernaðar“ og skyndiverkfalla
sumarið 1942, til þess að fá öra
hækkun á dýrtíðinni, var hann
líka nokkuð rogginn. — Síðan
hefir Tíminn haldið því fram,
að Framsóknarflokkurinn vildi
fyrir hvern mun að dýrtíðin
yrði lækkuð. En ekkert gert til
þess að svo gæti orðið. Frekar
en þegar blásið var í verkfalla-
og verðhækkunarlúðurinn um
sumarið.
Nú á dýrtíðin, að því er Tím-
inn segir, að stafa af því, af
kaupmenn leggi óhæfilega mik-
ið á vörur sínar. Verslanir þær,
sem Framsóknarmenn hafa haft
með höndum, ættu að geta sýnt,
að þær gætu selt vörur lægra
verði. En einhvernveginn hefir
þetta farist fyrir hjá þeim.
Allt, sem selt er í landinu er,
sem kunnugt er, háð verðlags-
eftirliti. Hafa Framsóknarmenn
sína menn í því eftirliti. Og er
ekki vitað, að þeir hafi fremur
öðrum bent á leiðir, til þess að
vörur yrðu seldar hjer mec
lækkandi verði. Geip Tímans og
annara um það, að einstakir
menn hafi eftir eigin geðþótta
sprengt hjer upp vöruverð, og
með því aukið dýrtíðina, og erf-
iðleika atvinnuveganna, er því
komið í sömu gröf, eins og
munnfleipur þeirra á dögunum
um það, að gjaldeyrisinnstæður
þjóðarinnar hafi farið í „gler-
kýr“ og annað skran. Með sund
urliðuðum innflutningsskýrsl-
um er birtar voru hjer í blað-
inu, voru kveðnar niður allar
fullyrðingarnar um skran inn-
flutninginn, er átti að hafa
keyrt úr hófi.
Framsóknar-ðftur-
haídið.
ÞAÐ ER engin furða, þó nú-
verandi forustumönnum Fram-
sóknarflokksins sje órótt inn-
anbrjósts. Þeir hrópa nú hátt
um það, að þjóðin þurfi sterka
stjórn, er geti hrint áfram mörg
um umbótamálum. En þjóðin
þekkir frá fyrri tíð umbóta-
áhuga Tímamanna og hvern
árangur starf þess flokks hefir
borið.
I hartnær þrjá áratugi hefir-
Framsóknarflokkurinn talið sig
sjálfkjörirín til þess að hrinda
áfram framfaramálum land-
búnaðarins. Árangurinn hefir í
stuttu máli orðið fyrst og fremst
sá, að fólkinu fækkar sífelt, er
vill vera við búskap. I sumum
sveitum er ástandið svo ískyggi
legt í þeim efnum, að þar er
sárafátt eftir af ungu fólki, sem
getur tekið við jörðunum, þegar
þeir bændur hætta búskap, er
nú búa sem einyrkjar. En víða
er varla um nokkurn annan bú-
skap að ræða en einyrkjabú-
skap.
Eftir aldarfjórðungs um-
hyggju Framsóknarflokksins
fyrir bændum og búaliði, efndu
andstæðingar Framsóknar-
flokksins til nýsköpunar at-
vinnuveganna, með þeim
árangri á tveim árum, að bænd-
ur geta nú sjeð, að hægt er með
aukinni vjelatækni að rjetta
búskapinn úr kútnum. — En
þessari nýbreytni tóku núver-
andi forkólíar Framsóknar-
flokksins með svo ofstækisfullri
andúð, að þeir þutu eins og
fjaðrafok út um allar sveitir,
áður en stjórnin hafði verið
mynduð, til þess að rægja þá
stjórn, er hafði ákveðið að koma
þessari nýbreytni á.
í tvö ár hafa bændur lands-
ins sjeð hylla undir möguleika
til þess að ládeyðunni, sem ver-
ið hefir yfir landbúnaðinum
yrði breytt í öra framsókn. All-
an þann tíma hefir „Framsókn-"
ar“-flokkurinn svo kallaði ham
ast látlaust við að rægja þá
menn, sem með aukinni tækni
hafa fært búnaðinum nýjar
vonir, nýtt líf.
Á síröndinni.
ÞAÐ ER VON að stjórnmála-
flokkur með fortíð Framsókn-
arflokksins sje hræddur um sig
og framtíð sína. Oftar en einu
sinni hefir flokkur sá reynt að
skifta um ham, með því að ýta
frá sjer formönnum sínum. —
Við það hefir flokkurinn orðið
í raun og sannleika höfuðlaus
her, rekald á hinni pólitísku
fjöru þjóðarinnar.
Með stóryrðum og persónu-
legum skömmum reyna Fram-
sóknarmenn nú að ná eyrum
þjóðarinnar. En það tekst lítt.
Því öllum landsmönnum er það
minnisstætt, hvernig forustu-
menn þessa flokks breyta um
skoðun á mönnum og málefn-
um, eftir því hvernig vindur
blæs í vit þeirra í það og það
skiftið. Menn, sem ein stundina
eru hafnir til skýja í Tíman-
um, sem óviðjafnanlegir foringj
ar, geta skömmu síðar í dálk-
um sama blaðs, verið stimplaðir
sem hin mestu hrakmenni. —
Mönnum og flokkum, sem þann
ig hegða sjer, er ekki trúað til
eins nje neins.
Þó núverandi formaður Fram
sóknarflokksins sje sæmilega
góður aflraunamaður, og kunni
vel við sig í áflogum, þá verður
hann aldrei talinn hermannlega
vaxinn á hinum pólitíska vett-
vang.
Lífbátur
Mjög vandaður lífbátur, eirseymdur úr ágætis
smíðafuru, gul-lakkaður — með öllum útbún
aði — til sölu nú þegar. Upplýsingar gefur
<cJCan clóóa m land íói. útuecjómandci
Hafnarhvoli — Sími 6651 & 5948.
HjóBbörur
með gúmmíhjóli fyrirliggjandi. Tvær stærðir.
Einnig varahjól.
T *
| ^adrlnljörn Jjjónóóon Jdeiícluerzíu n
| Laugaveg 39 — Sími 6003.