Morgunblaðið - 24.11.1946, Qupperneq 11
Sunnudagur 24. nóv. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
11
I 0. G T
FRAMTÍÐIN
Fundur annað kvöld í Templ
arahöllinni kl. 8,30.
Aukalagabreytingar. Ei'indi:
Pjetur G. Guðmundsson.
Nýir fjelagar velkomnir!
VIKINGUR
Fundur annað kvöld.
Endurupptaka. Inntaka. Að
fundi loknum spilakvöld. —
Verðlaun veitt. — Æ.T. —
Barnastúkan ÆSKAN, nr. 1
Stúlkur! Fundur í dag kl. 2 í
G.T.-húsinu. Gæslumaður Jón
Hjartar kveður stúkuna. —
Kristófer spilar á eftir.
Gæslumenn.
UMDÆMISSTÚKAN, nr. 1.
Haustþingið verður sett í
Templarahöllinni í dag, kl. 1
e. h. — Umdæmistemplar. —
UPPLYSINGA- og
HJÁLPARSTÖÐ
Þingstúku Reykjavíkur er op-
in á mánudögum, miðvikudög
um og föstudögum, frá kl. 2—
3,30 e. h. í Templarahöllinni
við Fríkirkjuveg,
Aðstoð og hjálp verður
veitt, eftir því sem föng eru
á, öllum þeim, sem í erfiðleik
um eiga vegna áfengisneyslu
sín eða sinna. — Með öll mál
er farið sem einkamál.
Tilkynning
K.F.U.K. — A.D.
ORÐSENDING til fjelags-
kvenna. Basar fjelagsins fell-
ur niður. Hann verður 6. des.
Treystum öllum fjelagskon-
um að bregðast vel við. —
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
KVÖLDSKÓLI K.F.U.M.
Kennsla byrjar aftur n.k.
mánudag.
BETANÍA
Sunnudagaskóli verður í dag
kl. 2.
Jóhann Hannesson, kristni-
boði talar.
.011 börn velkomin. — Al-
menna samkoman í kvöld
fellur niður vegna æskulýðs-
vikunnar, er hefst kl. 8,30 í
kvöld í Dómkirkjunni. Enn-
fremur fellur niður fundur
Kristniboðsfjelags karla ann-
að kvöld.
HJÁLPRÆÐLSHERINN
Sunnudag kl. 11: helgunar-
samkoma. Kl. 2: sunnudaga-
skóli. Kl. 8,30 hjálpræðissam-
koma. Adj. Holmöy stjórnar.
Sersj. Bruland og Burkeland.
Allir foringiar og hermenn
taka þátt. Allir velkomnir!
SAMKOMA
í kvöld á Bræðraborgarstíg
34, kl. 8,30, en ekki kl. 5. —
Sigurður Þórðarson, frá Egg,
talar. Frjálsir vitnisburðir. —
Allir velkomnir!
ZION
Sunnudagaskóli kl. 2. — Al-
menn samkoma kl. 8.
Hafnarfirði: Sunnudagaskóli
kl. 10. Almenn samkoma kl.
4. — Verið velkomin!
FÍLADELFIA
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. Allir velkomnir!
327. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 6,30.
Síðdegisflæði kl. 18,48.
Helgidagslæknir er Gísli
Pálsson, Laugaveg 15, sími
2474.
Næturlæknir er í lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki, sími 1330.
Næturakstur annast Hreyf-
ill, sími 6633.
Ljósatími ökutækja er frá
kl. 15,35 til kl. 8,50.
□ Edda 594611267—1.
I.O.O.F. 1=1281124114=0.
I.O.O.F. 3 = 12811258 =
-•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Fjelagslíí
FERÐAFJELAG
ÍSLANDS
heldur skemmti
fund n.k. þriðju-
dagskvöld þ. 26. þ. m., í
Sjálfstæðishúsinu, við Aust-
urvöll. Húsið opnað kl. 8,30.
Guðmundur Einarsson frá
Miðdal sýnir og útskýrir
kvikmyndir í eðlilegum lit-
um af nágrenni Reykjavík-
ur og hringferð um landið.
Dansað til kl. 1. Aðgöngu-
miðar seldir á þriðjudaginn í
bókaverslunum Sigfúsar Ey-
mundssonar og ísafoldar.
Aðalfundur afgreiðslumanna-
deiidar V.R. verður haldinn
að Fjelagsheimilinu n.k. mið-
vikudag, kl. 9 síðd. Allt af-
greiðslufólk innan V.R. hefur
aðgang að fundinum.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR
Verslunarmannafjel. Reykja-
víkur verður haldinn að
Tjarnarcafé mánud. 2. des,
kl. 8,30 síðd.
DAGSKRÁ:
1) Aðalfundarstörf samkv.
lögum fjelagsins.
2) Lagabreytingar, skv. til-
lögum laganefndar.
(Breytingatillögurnar
liggja frammi í skrifstofu
fjelagsins).
3) Önnur mál.
Stjórnin.
SÁLARRANNSÓKNA-
FJELAG ÍSLANDS
heldur fund í Iðnó mánudag
25. þ. m., kl. 8,30 e. h. Forseti
fjelagsins flytur erindi.
FYRSTA KVÖLDVAKA
Húslestrarfjelags Reykjavík-
ur verður í húsi Guðspeki-
f.jelagsins í kvöld, kl. 9. —
Lesin ný handrit. Prentað
mál afhent. Gestir velkomnir.
Húslestarfjelag Reykjavíkur.
HAUKAR!
Hafnarfirði.
Skemmtifundur
verður í Sjálf-
stæðishúsinu, sunnudag 24.
þ. m., kl. 10. — Nefndin. -
HAUKAR!
Áður auglýstum aðalfundi
verður frestað til 2. des. n.k.
fer fram í Sjálfstæðishús-
inu, kl. 8,30. — Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Stjórnin.
Sunnudagaskóli guðfræði-
deildar Háskólans er í Há-
skólakapellunni kl. 10 á sunnu
dögum.
Sextug er í dag frú Guðríð-
ur Guðmundsdóttir, Túngötu 2.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af sr. Árna
Sigurðssyni Árný Kristín
Magnúsdóttir og Ólafur Haf-
steinn Sigurjónsson, starfsm.
hjá Chemia. — Heimili ungu
hjónanna verður á Barónsstíg
78.
Hjónaefni. S.l. föstudag op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Björg Ágústsdóttir frá Vest-
mannaeyjum og Sigurgeir
Kristjánsson frá Felli, Bisk-
upstungum.
Ilin árlega hlutavelta kvenna
deildar Slysavarnafjelags ís-
lands verður fyrst í desember.
Reynsla undanfarinna ára hef-
ir borið fagran vott um vin-
semd almennings til þess mál-
efnis, sem kvennadeildin vinn-
ur fyrir. Svo mun það einnig
verða að þessu sinni. Það Ijett-
ir söfnunarkonunum mjög mik
ið störfin ef gefendurnir hafa
munina tilbúna þegar konurn-
ar koma til þeirra, með hugann
fullan af þakklæti.
. Leikfjelag Reykjavíkur sýn-
ir í kvöld kl. 8 í fimta sinn
sænska leikinn Jónsmessu-
draumur á fátækraheimilinu.
María Markan Östlund fer
til Bandaríkjanna þann 1. des-
ember. Hefir hún ákveðið
vegna fjölda áskorana að end-
urtaka kveðjuhljómleika sína
og verða þeir næstkomandi
þriðjudag í Gamla Bíó klukk-
an 7,15. Á efnisskrá eru þrjár
óperuaríur, íslensk lög og lög
eftir Hugo Wolf.
Reykvíkingaf jelagið heldur
aðalfund sinn á morgun, mánu
dag, kl. 8,30, í húsi Sjálfstæð-
isflokksins við Thorvaldsens-
stræti. Dagskrá: Aðalfundar-
störf samkv. lögum fjelagsins.
Að loknum aðalfundarstörfum,
fara fram skemtiatriði og dans.
Fjelögum er heimilt að taka
með sjer einn gest, meðan hús-
rúm leyfir. Borð verða ekki
tekin frá.
1. kvöldvaka Húslestrafje-
lags Reykjavíkur verður í húsi
Guðspekifjelagsins í kvöld
kl. 9.
Jóhann Svarfdælingur held-
ur 5. og síðasta frásöguþátt
sinn í Tjarnarbíó í dag kl. 1,30.
Hjá Jóhanni hefir til þessa
jafnan verið húsfyllir.
Sigriður Jónsdóttir frá Isa-
ísafirði, Kjartansgötu 9 hjer í
bæ, fjekk 9 mattadora í
l’Hombre í gærkvöldi.
»#♦♦»♦»»»♦«>♦»»♦♦»<»«>♦♦♦»«
Vinna
Hreingerningar Húsamálning
Óskar & Óli,
sími 4129.
Tökum að okkur
HREINGÉRNINGAR.
rfmi 5113. Kristján Guðmunds
HREIN GERNIN G AR
Magnús Guðmundsson
sími 6290.
»♦»»»»♦»»»♦♦ ♦»■♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦♦«
Kaup-Sala
MINNIN G ARSP J ÖLD
barnaspítalasjóð* Hringsins
verða fyrsta um sinn af-
greidd í Litlu blómabúðinni.
MmiraíGARSPJÖLD
lysavarnafjel agsins eru falleg
naf t jjeitið á Slygsvs,rn8if j s! & a-
ÍB, það er best.
Þakka innilega heillaóskir, heimsóknir, blóm
og annan.sóma mjer sýndan í tilefni af 30 ára
starfsafmæli Hljóðfærahúss Reykjavíkur, 21.
nóvember.
Reykjavík, 22. nóvember,
Anna Friðriksson.
Hugheilar þakkir, sendi jeg ykkur, vinir mínir
allir, sem glöddu mig á sextugsafmælinu með
heimsóknum, gjöfum og skeytum og á ýmsan
hátt gjörðuð mjer daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Kristbjörn Kristjánsson.
Eskiholti.
Jeg þakka öllum skildum og óskildum inni-
lega alla góðvild á áttatíu ára afmæli mínu,
heimsóknir, kvæði, skeyti, blóm og aðrar góð-
ar gjafir og bið af hjarta guð að launa þeim.
Þórunn G . Guðmundsdóttir
Framnesveg 8 A.
Hjartanlega þakka jeg öllum þeim, sem heiðr-
uðu mig og glöddu, með gjöfum á sjötugsaf-
mæli mínu 9. nóv. s.l. og gerðu mier daginn
ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Guðmundsdóttir
Torfustöðum.
Þakka innilega mjer sýndan vinarhug á 70
ára afmæli mínu 18. þ.m.
Sigríður Á. Snæbjörnsson.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<$X$X$X$XSX$X^«X$X^<$X$XÍXSX$KÍXÍX$X§K$>«X$X$X£<£<$^XSX
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR,
andaðist að heimili sínu, Hólmi, Vestur-
Skaftafellssýslu, 22. nóvember.
Eyjólfína Eyjólfsdóttir,
Árni Sigurðsson.
Það tilkynnist hjer með ættingjum og vinum
að dóttir mín
ELÍN MARTEINSDÓTTIR
andaðist á sjúkrahúsi í Kolding Danmark, 12.
nóv.
María Sveinsdóttir.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum
að maðurinn minn og faðir okkar
EINAR SIGURBJÖRN GUÐMUNÐSSON,
Suðurgötu 19, Keflavík, andaðist að heimili
sínu 22. þ.m.
Elísabet Sveinsdóttir.
Sverrir Einarsson, Leiíur Einarsson
Sveinn Einarsson.