Morgunblaðið - 19.12.1946, Blaðsíða 2
a
MORGUNBLAFIÐ
Fimtudagur 19. des 1946 1
ÞÁTTTAKA ÍSLANDS Á ÞINGIS.Þ.
Reisubók
Frh. af bls. 1
málunum. Eitt af þeim, sem
við leiddum hjá okkur var
um stjórn nýlendumála. Var
það mikið deilumál á þing-
inu. ,
MÖRG TUNGUMÁL
Það seinkar og afgreiðslu
mála að allar ræður eru þar
fluttar bæði á ensku og
frönsku. Ef Rússi talar eða
spönskumælandi maður eða
Kínverji, þá eru ræður þeirra
þýddar bæði á ensku og
frönsku. Nokkuð flýtti það
fyrir, að í sumum nefndar-
herbergjunum var útbúnaður
til þess að hægt var að þýða
ræðurnar jafnóðum, svo að
hlusta mátti á þær hvort
heldur sem var á ensku,
frönsku, spönsku, rússnesku
eða kínversku. Var þar sama
tilhögunuin, eins og höfð var
við rjettarhöldin í Núrnberg.
ÓGREINILEG FUNDAR-
SKÖP
Eitt er það enn, sem gerir
málameðferð á þinginu þunga
í vöfum, að fundarsköp eru
ekki nægilega glögg, en þjóð-
ir þær, er þarna ræðast við,
eru vanar nokkuð mismun-
andi fundarsköpum. — Þær
fundarreglur sem tíðkast hjá
sumum þessara þjóða, komu
okkur vægast sagt nokkuð
kynlega fyrir sjónir. Að það
tókst að Ijúka störfum þings-
ins á þeim tíma, sem ætlast
var til, var að miklu leyti for-
seta þingsins að þakka,
Spaak, utanríkisráðherra
Belgíu. Hann er röggsamur
maður, með afbrigðum. Hann
rak málin áfram sem mest
hann mátti.
HELSTÚ.MÁL ÞINGSINS
Helstu mál þau, sem af-
greidd voru á þessu þingi, tel
jeg vera þessi, sagði borgar-
stjóri:
Alyktun um afvopnunina,
er að vísu hafði lítið annað í
sjer fólgið en það, að byrja á
samningum milli einstakra
ríkja og Öryggisráðsins. ■—
Veltur þá að sjálfsögðu mest
á samstarfsvilja stórveldanna.
Er þess vissulega að vænta, að
góður árangur náist í þessu
mikilsverða máli.
í sambarrdi við þetta mál
var svo rædd skýrslugjöf
þjóðanna, hve mikla heri þær
hafi í öðrum löndum. Var
þetta upphafiega fiutt®sem
sjálfstætt mál, en að lokum
afgreitt í sambandi við hina
almennu afvopnunar-tillögu.
Þá var deilan um -rjettar-
stöðu Indverja í Suður-Afr-
íku. Var það eitt mesta hita-
mál þingsins, ert afgreiðsla
þess gekk Suður-Afríkumönn-
um í óhag. Og Spánarmálið.
Gerðar voru ályktanir um
alþjóðahjálp til flóttamanna.
Verða íslendingar að taka af-
Stöðu til þess, hvort þeir
ýilja eiga þátt í henni eða
eigi.
Þá voru miklar umræður
um UNRRA, hvort halda ætti
þeirri starfsemi áfram eða
ekki. Var ggmþykt að gera
svQ.eigis en-samtæma fram-
iög einstakra þjóða, er veitt
verða í þessu skyni.
AÐSETURSSTAÐURINN
Ákvörðun var tekin um það
á þinginu, að aðsetursstaður
stofnunarinnar skuli fram-
vegis vera í New York. Varð
nokkurt karp um þetta. Til-
högunin, sú sem nú er, er
mjög erfið, þar eð fulltrúarn-
ir þuiftu að fara langa leið
frá gististöðunum til.fundar-
staðar á hverjum degi. — Á-
kveðið var að taka land það
innan borgarinnar er Rocke-
feller bauð, til þess að reisa
þar stórhýsi fyrir bandalag
Sameinuðu þjóðanna.
Rætt var um fjármál stofn-
unarinnar. Eftir þeim ákvörð-
unum sem teknar voru, er
líklegt að árlegt framlag ís-
lendinga verði 10—12 þúsund
dollarar á ári. Er ísland þar
í lægsta flokki, ásamt nokkr-
um hinna smæstu ríkja.
Gerðar voru á þinginu
ályktanir um ýms löggjafar-
málefni. svo sem jafnrjetti
kvenna, saminn lagabálkur
um alþjóðarjett og um rjett-
indi og skyldur ríkja innbyrð-
is og rjettindi einstaklinga,
sem ríki mega ekki svifta þá
o. f 1., sem of langt yrði upp
að telja.
AFSTAÐA ÍSLENDINGA
Æf'inlega er til þess kom
að íslendingar tækju afstöðu
til einhvers máls, þá var það
rætt í íslensku nefndinni, og
var nefndin æfinlega sam-
mála um það, hvernig fara
skyldi með atkvæði íslands,
enda var samstarfið innan
nefndarinnar eins gott og
frekast varð á kosið. Er ástæða
til að taka það sjerstaklega
fi-am, að öll forysta er Thor
Thors, sendiherra, veitti
nefndinni, var hin ágætasta.
Voru áreiðanlega allir íslend-
ingar er viðstaddir voru, er
við gengum inn í bandalagið
stoltir yfir framkomu hans
við það tækifæri. Skylt er og
að geta þess hjer að sendi-
herrann greiddi fyrir okkur
og störfum okkar, sem best
mátti verða.
MIKILSVERT HVERNIG Á
MÁLUM ER HALDIÐ
í hvert sinn, sem til þess
kom að við íslendingar skyld-
um greiða atkvæði í nefnd-
um eða á alsherjarfundum,
lögðum við hina mestu áherslu
á,-að kynna okkur alla mála-
vexti, svo að við hefðum það
eitt fyrir augum, en Ijetum
það okkur engu skifta, með
hverjum við greiddum at-
kvæði í það og það skiftið.
Mjög mikils er um það vert,
að þess sje gætt, að fara sem
best mcð atkvæði íslendinga
á þingi þessu. Því þar hafa
íslendingar jafnrjetti við aðr-
ar þjóðir. Kom það fyrir, oft-
ar en einu sinni, á þessu fyrsta
þingi, að atkvæði okkar ís-
lendinga rjeði úrslitum í
nefndum og eins á alsherjar-
þingfundum, svo sem í deilu
Indverja og Suður-Afríku-
manna.
Með þátttöku í þingum
Sameinuðu þjóðanna, hafa
íslendingar öðlast alveg sjer-
stakt tækifæri, til þess að
fylgjast með og kyhnast al-
þjóðamálum og beita atkvæði
sínu til áhrifa á gang og úr-
slit mála. En afstaða íslend-
inga vérður í hverju tilfelli
að vera bygð á þekkingu og
ábyrgðartilfinningu. Ef at-
vik standa svo til, þá geta ís-
lendingar borið fram tillögur
á þinginu, eða tekið þátt í
umræðum, ef þeir telja, að
þeir hafa eitthvað nýtilegt
fram að bera, sem aðrir hafa
ekk'i. En þrátt fyrir þetta
rpega Islendingar ekki halda,
að þeir sjeu með þessu orðn-
ir neitt stórveldi. Það hefur
meiri þýðingu fyrir íslend-
inga að vera þátttakendur í
þessu bandalagi, en það hefur
fyrir nokkra aðra, að við sje-
um þar. í þeim fjelagsskap er
og verður ísland ekki annað
en hið smæðsta af smáríkjun-
um. En hafi íslendingar, sem
þar koma eitthvað verulegt
til málanna að leggja, þá geta
þeir látið til sín taka, þó að
að sjálfsögðu eigi sje þess að
vænta að eins mikið tillit sje
tekið til þeirra, sem eru full-
trúar þeirra smæstu, eins og
hinna, sem tala íyrir munn
stórvelda.
ATKVÆÐAMENN
Síðan barst talið að því,
hvaða fulltrúar á þinginu hafi
verið, mestu atkvæðamenn.
Það var ekki nema eðlilegt,
sagði borgarstjóri, að mestu
atkvæðamenn þár væru með-
al fulltrúa stórveldanna.
Af bresku fulltrúunum
kvað mest að Noel Baker, nú-
verandi flugmálaráðherra og
Hartley Shawcross, að ó-
gleymdum Bevin, utanríkis-
ráðherra, en hann kom ekki
nema tvisvar á þingið, meðan
við vorum þar.
Byrnes kom. einu sinni og
þá var jeg þar ekki svo að jeg
sá hann ekki. En atkvæða-
mestir Bandaríkjamanna voru
þarna Connally, Austin, Vand
erberg og frú Roosevelt, sem
er mikilhæf kona.
Af Rússunum kvað mest að
Vishinsky, Manuilsky og svo
Molotov. Þessir sem jeg hefi
nefnt eru allir frá stórveldun-
um. Eftir þeim öllum verður
tekið, hvar sem þeir koma
fram.
Af öðrum fulltrúum, sem
telja verður að skari fram úr
í framgöngu eru Smuts mar-
skálkur, er að ýmsu leyti hef-
ur mesta sögufrægð allra er
þingið sátu. Þá er að nefna
frú Pandit, er þarna var með-
al fulltrúa Indverja. Hún er
systir Nehru, forsætisráð-
herra, er sjálf ráðherra, af-
burða snjöll ræðukona ogj
málafylgjumaður hinn mesti,
sem jeg hefi kynst. Eltu þau
grátt silfur á fundum Smuts
marskálkur og hún.
Meðal fulltrúa frá Argen-
tínu var dr. Acre, læknir og
sendiherra, glæsilegur maður,
og frá Panama var mikilhæf-
ur maður að nafni dr. Alfaro.
Hann er merkur lögfræðingur.
Vitanlega fer það nokkuð eft-
ir því með hvaða mönnum
maður starfar í nefndum,
hverjum menn kynnast þarna.
En öllum kemur að sjálfsögðu
saman um, að forseti þings-
ins, Spaak, sje mikil hæfur
dughaðarmaður.
Að endingu barst talið að
því munnfleipri í einu blað-
anna hjer í bæ, er varpaði
fram þeirri spurningu fyrir
skömmu, til hvers sendimenn-
irnir hefðu farið vestur um
haf.
Sagði borgarstjóri, að vit-
anlega hafi erindi þeirra ver-
ið að sitja þing Sameinuðu
þjóðanna, og hafi það verið
ærið starf. Allur söguburður
um það, sem haft er eftir er-
lendri frjettastofnun, að við
Iiöfðum farið vestur til þess
að semja um viðskiftamái
landsins, er gersamlega úr
lousu lofti gripinn.
Skátar heimsækja
Austurbæinga í
kvöld
Vegna óveðurs varð ekki af
því í gærkveldi, að skátar
kæmu í fjáröflunarskyni fyrir
Vetrarhjálpina til íbúa í Mið-
bæ og Vesturbæ, úthverfi hans
og 1 Kleppsholt.
Ákveðið hefur verið' að
skátar fari um þessi hverfi á
föstudagskvöld.
k
Fara um Austurbæ í kvöld.
Milli kl. 7 og 11 í kvöld far
skátar um Austurbæ, í fjár-
öflunarskyni fyrir Vetrarhjálp
ina.
í fyrravetur söfnuðust þar
milli 20 og 30 þúsund krónur.
Vetrarhjálpin treystir Austur
bæingum til þess að taka vel
á móti skátunum.
Skátar, sem ætla að hjálpa
Vetrarhjálpinni í kvöld eru
beðnir að mæta í Miklagarði
við Laufásveg kl. 7 í kvöld og
Völsungar í Mjólkurstöðmni á
sama tíma.
Vetrarhjálpin í
Hafnarfirði fekin til
starfa
VETRARHJÁLPIN í Hafn^
arfirði er nú tekin til starfa,
og er þetta áttunda starfsárið,
sem hún er nú að hefja. Hún
er rekin af söfnuðunum í
Hafnarfirði, eins eg áður.
í fyrra úthlutaði nefndin
þar kr. 30,100 til 131 heimilis
og einstaklinga.
í nefndinni eiga sæti: sr.
Garðar ÞorsteinSSon, sr:
Kristinn Stefánsson, Ólafur
H. Jónsson ,kaupmaður,
Guðjón Magnússon, skósmíða-
meistari og Guðjón Gunnars-
son, framærslufulltrúi.
Allir þessir menn veita
gjöfum til vetrarhjálparinn-
ar í Hafnarfirði móttöku og
einnig taka þeir á móti um-
sóknum um styrki.
Hafnfirðingar, styðjið og
styrkið vetrarhjálpina * ykkar.
REISUBÓK JÓNS ÓLAFS-
SONAR INDIAFARA er kom
in út hjá Bókfellsútgáfunni í
tveimur stórum bindum með
myndum,. athugasemdum ogj
skýringum. Fylgt er handriti
höfundar sjálfs, en Guðbrand
ur Jónsson prófessor hefir,
samið skýringarnar og athuga
semdirnar.
Er þetta hið mesta verk.'
Hafa áður komið út glefsur
úr reisubók Jóns Ólafsscnar í
blöðum og tímaritum og jafn
an þótt hin besta skemtun að
þeim. I ferðasögum Jóns
Indíafara felgst hinar merk-
ustu upplýsingar um nýlend-
ur Dana, siglingar og svaðilfar
ir á 17. öld, lifnaðarháttum
og hugsanagangi manna á
þeim tíma. Þessi reisubók hef
ir verið gefin út á ,ensku
þýsku og dönsku, ýmist í heilu
lagi eða köflum og ávalt þótt
hið skemtilegasta rit.
íslendingar hafa löngum
haft gaman af ferðasögum og
ekki síst af ferðum landa
landa sinna út um heim. Guð
brandur Jónsson segir rjetti-
lega í formála fyrra bindis, að
ekki hafi reisubókin mikla
þýðingu fyrir íslendinga, aðra
en að vera skemtilestur, en
fyrir Dani sje hún hreinasta
gullnáma.
Bókfellsútgáfan hefir vand
að til útgáfunnar og er það
vel að þessi bók eftir hinn víð
förla íslending skuli nú vera
komin í fallegri og aðgengi-
legri útgáfu.
Flóð valda fjoni
LONDON: Borgin Rahuri í
Bombay fylki hefir gereyði-
lagst af völdum flóða. Meir en
6000 manns hafa orðið hús-
næðislausir.
Evrópusöfnunin. Safnað si
skrifstofu Rauða Kross íslands:
12,—17. des. 1946: M.A.L. 100
kr., Frá þrem systkinum I
Rauðanesi 70, Safnað af Magn-
dísi Aradóttur, Drangsnesi
3065, Evrópusöfnun Patreks-
firði 5930, Herborg Þórarins-
dóttir, Lindarg. 51 100, Ó.J„
50, H.H. 50, Safnað af R. K.
Akraness, sr. Jón Guðjónssonj
og Friðrik Hjartar 3415, Þ.Þ,
100, Konur í Hrunamanna-
hreppi 150, Frá Kvennaskóla-
nemendum og nokkrum kenn-
urum 1500, Ungmennafjelag
Jökuldæla (ágóði af skemtun)
750, N.N. 50. — Samtals kr.
15.330,00. — Kærar þakkir. —♦
Rauði Kross íslands.
Peningagjafir til Vetrar-
hjálparinnar: Stefán Jóseps-
son 150 kr., Starfsfólk hjá
Sverrir Bernhöft h.f. 195,
Sverrir Bernhöft h.f. 500,
Starfsfólk hjá Veiðarfæra-
versl. Geysir h.f. 260, T. Á„
1000, Starfsfólk í Gutenberg
135, Sigurbjörg Jónsd. 100, H.
Toft 200, A. Joensen 50, Ó-
nefndur 500, Guðm. Stefáns-
son 30, H.f. „Hreinn“ 250, H.f.
,,Nói“ 250, H.f. „Síríus“ 250,
H.f. H. Ólafsson & Bernhöft
500, Heildversl. Edda h.f. 500,
Starfsmenn hjá Litir & Lökki
h.f. 175, Starfsfólk hjá Olíu-
verslun íslands h.f. 145. —<
Kærar þakkir. F. h. Vetr'ar-
hjálparinnar. Stefán A. Páls-
son.