Morgunblaðið - 19.12.1946, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 19. des 1948
Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgSann.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10.00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
I lausasðlu 50 aura eiiitakið, 60 aura með Lesbók.
Furðuíregnin
SÍÐASTLIÐINN mánudag birtir Ríkisútvarpið þá
fregn frá frjettaritara Reutersfrjettastofunnar í New-
York, að meðal manna, „sem nærri standa ísiensku
sendinefndinni á þingi Sameinuðu þjóðanna“, sje látinn
í ljós ótti um „að áhrif Ráðstjórnarríkjanna á ísiandi
haldi áfram að vaxa, aðallega vegna þess, að svo virðist
sem Bretar og Bandaríkjamenn láti sig engu varða fjár-
hag íslands“. Er þvínæst sagt að íslenskir fjármálasjer-
íræðingar bendi á, að á stríðsárunum hafi meginið af
fiskframléiðslu íslands verið seld Bandaríkjamönnum,
en framleiðslan gengið til Breta. Hinsvegar hafi hvorki
Bretar nje Bandaríkjamenn tiljað kaupa fiskinn af ís-
lendingum s.l. ár, en þá hafi Ráðstjórnarríkin gert gott
boð í fiskinn. Sama endurtaki sig aftur nú. Því næst seg-
ir í fregn þessari, að aðstaða íslendinga á fjármálasvið-
inu sje flóknari fyrir þá sök, að öflugur kommúnista-
flokkur sje í landinu, er haldi uppi miklum áróðri fyr-
ir því, að hagkvæmara sje fyrir ísland að beina viðskift-
um sínum til Sovjetríkjanna, í stað þess að tengja þau
við lýðræðislöndin í vestri.
Þetta var aðalefni í Reutersfrjettaskeytinu, sem út-
varpið birti.
★
Hver heilvita íslendingur hlaut strax við fyrstu
kynni þessa dularfulla frjettaskeytis, að vera þess full-
viss, að fregn þessi var ekki komin frá neinum ábyrgum
íslendingi. Svo fjarstæðukend var fregnin, og svo fjarri
raunveruleikanum í verslunar- og utanríkispólitík ís-
lands. Því að Islendingar hafa margsinnis lýst því yfir,
að þeir vilji hafa vinsamleg viðskiftasambönd við sem
flestar þjóðir. Þetta h^fir verið keppikefli íslendinga.
Rjett er það að vísu, að kommúnistar hafa ekki farið
dult með þá skoðun sína, að íslandi bæri að beina aðal-
viðskiftum sínum til Sovjetríkjanna, og þjóða í Mið-
Evrópu, en hætta að mestu viðskiftum við Breta og
Bandaríkin. En þessi boðskapur hefir áreiðanlega ekki
byr hjá íslensku þjóðinni, enda fjarstæða að halda slíku
fram í alvöru, eins og legu og staðháttum er háttað.
íslendingar vilja ekki vera háðir neinni einni þjóð
með viðskifti sín. Þjóðin vill hafa vinsamleg viðskifti
við allar þær þjóðir, sem vilja kaupa framleiðsluvörur
hennar og geta selt þær vörur, sem þjóðin þarfnast.
Þetta er í fáum orðum verslunarpólitík Islands.
★
#
Furðufregn Reuters virðist hafa verið kærkomin Þjóð-
viljamönnum, því að þeir hafa síðan fregnin birtist aus-
ið svívirðingum yfir fulltrúa okkar á þingi S.þ. og stimpl-
að þá landráðamenn!
Annars er einkennilegt hve Þjóðviljanum er ant um
að koma landráðastimpil á andstæðinga sína. Birtist
varla svo nokkur pólitísk grein í Þjóðviljanum, að ekki
sjeu þar fleiri eða færri stimplaðir landráðamenn. Hver
er tilgangurinn? Er með þessu verið að rugla dómgreind
þjóðarinnar á því, hvað landráð raunverulega sjeu?
Hugsanlegt er, að það gæti síðar meir komið sjer vel fyr-
ir einhverja, að þjóðin gerði sjer ekki grein fyrir hvað
felst í glæpnum landráð.
★
En furðulegast af öllu er, sem fram kemur í skrifurh
Þjóðvilj&ns og óbeinlínis einnig í Tímanum, að það
standi að einhverju leyti í sambandi við Reutersfregn-
ina, að Bretar hafa fyrir skömmu sóst eftir kaupum á
afurðum okkar fyrir gott verð. Þessi málaleitan Breta
var komin áður en Reutersfregnin, og er í eðlilegu sam-
hengi við verslunarástandið í heiminum. Við erum svo
hepnir íslendingar, að framleiða mikið af dýrmætri vöru,
síldarolíu og þorskalýsi, en það er einmitt þessi vara,
sem skapar samkepni um okkar framleiðslu.
ÚR DAGLEGA
LÍFINU
Koma sigri lirós-
andi. -
KARLAKÓR REYKJAVÍK-
UR er kominn heim eftir hina
mestu frægðarför til Bandaríkj
anna. —Það má nú segja að
þeir fjelagar komi heim sigri
hrósandi. Það vildi svo til að
þeir komu heim flugleiðis og
bæjarbúar fengu því ekki tæki
færi til að taka á móti þeim,
eins og þeir hefðu viljað. Það
er sem jeg sjáí karlakórinn,
ef þeir hefðu komið með skipi.
Þá hefðu þeir orðið að taka
lagið fyrir allan mannfjöldann,
sem héfði komið til að taka á
móti þeim á hafnarbakkanum.
Það hefði nú heldur enn ekki
verið fagnaðarlæti.
Við Reykvíkingar megum
vera sjerstaklega hrifnir af för
karlakórsins vestur um haf, en
vitanlega höfum við ekki neitt
einkaleyfi til þess, því þeir
fjelagar hafa komð fram sem
íslendingar fyrst og fremst og
gert garðinn frægan sem slík-
ir. —
Veri þeir velkomnir heim.
Hafi þeir þökk fyrir góða
frammistöðu.
Það, sem við
gætum.
ÞANNICí á okkar landkynn-
ing einmitt áð vera, eins og
Karlakórinn hefir nú nýlega
sýnt. Tugir þúsunda manna í
Ameríku þekkja nú meira til
íslands en áður eftir að þeir
sungu í 60 borgum. '•— Það eru
margir, sem halda því fram,
að það skifti ekki miklu má-li
hvað útlendingar einhversstað-
ar úti í heimi haldi um okkur.
— En það er hrapalegur mis-
skilningur. Það skiftir einmitt
miklu máli. Það skiftir máli
fyrir ' utanríkisverslun okkar
og þar með afkomu. — Það
skiftir miklu máli fyrir sam-
neyti okkar við aðrar þjóðir.
Þess vegna verðum við að
gera það, sem við getum til að
vekja á okkur eftirtekt, sýna
hvað við getum til góðs. í-
þróttamenn okkar eru á góð-
um vegi með að ná jafnöldrum
sínum á Norðurlöndum og víð-
ar. Við höfum eignast fyrsta
Evrópumeistarann í íþróttum.
— Við getum alið upp fleiri
og eigum að gera það.
- o
Lögreglan leikur
sjer.
ÞAÐ ER EKKI nokkur vafi
á að lögreglan okkar vill vel.
— Vill gera meira heldur en
hún getur og gerir. — Það sjer
maður á tillögum lögreglustjóra
í umferðamálunum og það sjer
maður líka fyrst og fremst á
„vikunum“, sem haldnar eru
við og við í þessu bæjarfjelagi.
Þvi miður vill það og fara svo
þegar frá líður, að blessaðir
lögreglupiltarnir okkar verða
eins og sódavatnsflaska, sem
hefir staðið opin íengi, að það
fer úr þeim mesta brúsið.
Og nú eru þeir byrjaðir á
nýjum leik, hve lengi sem hann
kann að standa.
Leikreglur eru þessar:
Tveir lögregluþjónar fara
um bæinn á bifhjóli. — Að
vopni hafa þeir vasaljós eitt
skært og mikið og sennilega
handjárn í bakvasanum, þó
þau sjáist ekki. -
Þeir eru einkum á ferli á
næturlagi, en geta líka verið
á daginn.
•
„Þef-veiðar“.
ÞESSUM nýja leik hefir
ekki verið gefið nafn, svo vit-
að sje, en það mætti t. d. kalla
hann þef-veiðar. — Nafnið
Þefaraveiðar dugar hinsvegar
ekki, vegna þess, að lögreglú-
þjónarnir sjá sjálfir um að
þefa.
Nú, en áfram með leikinn.
— Þegar hinir knáu riddarar
sjá bifreið fara eftir götunni,
aka þeir fram fyrir hana og
gefa henni merki um að nema
staðar. — Annar lögregluþjónn
inn lýsir með vasaljósi á bíl-
stjórann, gengur upp að hurð-
inni og 'andar djúpt að sjer. ■—
Ef ökumaður hefir brotið lög-
in — ja, hamingjan hjálpi
honum þá, en sje hann bara
andfúll af eðlilegum ástæðum,
þá brosir lögregluþjónninn og
segist .„bara hafa verið að at-
huga ljósin“. —
Varla bætir þessi n^i lög-
regluleikur úr húsnæðisvand-
ræðum hins opinbera, því það
er fullyrt, að ekki sje pláss fyr-
ir 10 daga menn fyr en ein-
hverntíma á árinu 1948!
o
Lögreglan of fá-
menn.
EINA BÓN á jeg til þeirra,
sem þetta lesa, og það er að
misskilja mig ekki og halda að
jeg sje að amast við þessari
bifhjólanæturreið lögreglunn-
ar. —
En hitt verð jeg að segja, að
lögreglan hlýtur að vera alt-
of fámenn, éf það er satt, sem
fullyrt er, áð stærri verslanir
hjer í bænum verði að hafa
sjerstaka næturverði í þjón-
ustu sinni til þess að forðast
innbrot. — Og þetta eiga að
vera verslunarhús, sem eru að
eins 50—60 metra frá sjálfri
lögreglustöðinni.
Það veitti víst sannarlega
ekki af að fjölga í lögreglulið-
inu til þess að þeir geti fundið
upp fleiri leiki, en þeir iðka
nú. —
•
Hver er þjófur?
FYRIR NOKKRU gátu dag-
blöðin þess, að lögreglan hefði
handsamað innbrotsþjófa. —
Lesendur fengu að vita nöfn
lögregluþjónanna, sem hand-
sömuðu delinkventin cg var
það hugulsamt við lesendur og
laganna verði. — En blöðin
steinþögðu um nöfn þjófanna.
Skömmu síðar var tilkynt,
að búið vagri að handsama 4
innbrotsþjófa, sem hefðu’ brot-
ist inn á 15 stöðum hjer í
bænum undanfarið. Nú var
hvorki getið nafna lögreglu-
þjónanna, sem handsömuðu
þjófanna, nje glæpamannanna.
Hveí er þjófur hjer í þess-
um bæ. — Er það einhver
maður, sem þjer lesari góður,
þekkið og sýnið fult traust. —
Eða er trygging fyrir því, að
þessir hættulegu borgarar sjeu
undir manna höndum og geri
ekki innbrot hjá þjer eða mjer
næstu nótt?
[ MEÐAL ANNARA ORÐA .... |
- -----—------+
Það sem Norðmenn verða að iáfa sjer nægja.
Fyrir nokkru birtist í blað-
inu „Information" yfirlit yfir
skömtunina 1 NoregL og það
sem almenningur þar vprður
að gera sjer að góðu í því efni.
En Norðmenn eru sagðir vera
ánægðastir allra Norðurlanda-
þjóða með hlutskifti sitt um
þessar mundir.
í sambandi við ástandið í
Danmörku, er skömtunin í
Noregi talin vera knöpp. En
norska þjóðin hefir enn fyrir
augum hve skorturinn á ófrið-
arárunum var mikill, og hve
þjóðin varð þá að leggja hart
að sjer. í samanburði við það
sem þá var, þykir Norðmönn-
um að sögn að þeir lifi nú í vel-
lystingum praktuglega.
Það kann líka að Liafa sín
áhríf, að almenningur er sann-
færður um, að efnahagur þjóð-
arinnar fari baínandi og þjóð-
in getur vænst þess að bjart-
ir tímar sjeu framundan.
í mörgum löndum, þar sem
skömtun er á ýmsum lífsnauð-
synjum og öðrum Vörutegund-
um, getur fólk sem kunnugt
er, keypt eitt og annað á
svörtum markaði. En mjög lít-
ið er um slíka verslun í Nor-
egi.
Verðlagseftirlit er þar starf-
andi. En mest er hugsað um að
ákveða verðið á nauðsynjavör-
um, minna hirt um, þó vörur
þær sjeu seldar háu verði,
sem eru miður nauðsynlegar
eða hafa lítið að segja fyrir
daglegt líf manna. Verðlaginu
er haldið niðri á sumum vöru-
tegundum með ríkisstyrk, svo
sem brauði, smjörlíki og'sykri.
Skamturinn.
Þessar vörur er ekki hægt
að fá nema út á merki: Kjöt,
smjörlíki, skófatnað, sokka,
mjólk, brauð, sykur, kaffi og
fatnað.
En hægt er að fá kartöflur,
hafragrjón og grænmeti án
þess að hafa merki, og eins
hefir tóbak, te og kakao'verið
gefið frjálst.
Fólk fær nægju sína af
brauði. Sykurskamturinn er
200 grömm á viku. Af smjör-
líki eitt pund á 12 dögum en
pund af smjöri hafa menn
fengið þrjá síðustu mánuðina.
Eitt til tvö kjötmerki hafa
undanfarið verið gefin frjáls á
viku hverri. En fyrir merki
hvert fá menn 450 grömm af
kindakjöti, eða 300 grömm af
nautakjöti, eða 150 grömm af
fleski. Auk þess er hægt að fá
ögn af kjötmeti til að hafa of-
an á brauð.
Sjúklingar og börn innan
við 12 ára fá % úr mjólkur-
lítra á dag, unglingar frá 12—
18 ára fá Vz lítra en fullorðið
fólk fær að jafnaði V\ lítar á
dag, nema laugardaga og
sunnudaga, þá er engin mjólk
handa þeim fullorðnu.
í búðunum er mikið af súkku
laði, en ekki hefir verið hægt
að kaupa þar meira af því
sælgæti en sem svarar fyrir
(Framh. á bls. 12).