Morgunblaðið - 04.01.1947, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. jan. 1947
Kúsbyggingar I Eng-
vegna
Frá iisisýningu Sigfúsar Halldúrssonar
London í gærkveldi.
KOLASKORTUR er nú svo
mikill í Bretlandi, að til stór-
vandræða horfir á ýmsum svið
um. I dag var lögð niður vinna
í stærstu múrsteinsverksmiðj-
um heimsins, sem eru í Stew-
artby í Bedfortshire, en þat og
í öðrum verksmiðjum London
Brick Company eru framleidd-
ir múrsteinar til bygginga að
einum þriðja á við allar aðrar
múrsteinsverksmiðjur í Bret-
landi. Verði öllum verksmiðj-/
um fjelagsins lokað þýðir það,
að 1500 húsum minna verður
bygt í Englandi vikulega. Við
þetta bætist að ef slokknar unfl
ir bræðsluofnum verksmiðj -
anna getur tekið upp undir ár
að kveikja upp í þeim á ný.
Múrsteinabirgðir eru ekki til
nema til nokkra daga. Verka-
menn í þessum verksmiðjum
eru flestir fátækir og fram-
fleyta sjer og sínum á launum,
sem þeir fá frá degi til dags.
Það þarf um 10,000 smálesíir
af kolum til að kveikja upp í
stærstu ofnum verksmiðjanna.
Talsmaður eldiviðarráðuneytis-
ins hefir látið svo um mælt, að
gerðar verði ráðstafanir þegar
í stað til þess að koma verk-
smiðjunum í gang hið fyrsta.
LMS-járnbrautirnar hafa til-
kynnt að þær verði að leggja
niður nokkrar járnbrautaferðir
sökum kolaskorts.
Sementsverksmiðju í Austur
Anglia var í dag lokað í fyrsta
skifti í 33 ár vegna kolaskorts.
Óttast er að hætta verði í bili
byggingu rafmagnsstöðvar, fyr-
ir Ipswich, sem á að kosta 4
miljónir sterlingspunda að
byggja. Tugir kolavagna, sem
sendir voru í skyndi forðuðu
því að stærstu kexverksmiðju
Suður-Englands yrði lokað í
dag. — Reuter.
Sigfús Halldórsson opnaði í gær listsýningu í Listamannaskál-
anum. A sýningunni eru málverk og leiktjaldamálverk, sem
Sigfús hefir gert. Sigfús er löngu kunnur bæjarbúum, þótt
ungur sje að árum, fyrir leiktjöld sín í ýmsum leikritum í
Iðnó, fyrir söng sinn í útvarpi og á skemmtunum og fyrir
smálög, sem hann hefir samið. — Myndin hjer að ofan er af
málvcrki frá Vestmannacyjum eftir Sigfús.
markaður í Berfín
Berlin í gærkvöldi.
SVARTI markaðurinn hef-
ur minkað mjög mikið hjer í
borginni undanfarið og það
svo ,að þeir, sem hafa haft
framfæri sitt af þeirri iðju, að
sel ja og kaupa vörur á svört-
um markaði eru farnir að
kvarta yfir því að það borgi
sig ekki lengur að fást við
slíkt.
Ástæðurnar eru aðallega
tvær. í fyrsta iagi minkandi
kaupgeta fólks, vegna þverr-
andi peningaveltu og í öðru
lagi vegna þess, að ekki fást
lengur vörur á svartan mark-
að vegna þess hve eftirlit með
vegum er til borgarinnar
liggja hefur verið hert mikið
upp á síðkastið. — Reuter.
f ímnritið „Time“
heiðmi Byrnes
Washington í gærkveldi.
BANÐARÍSKA tímaritið ,,Time“ hefir kjörið Byrnes
utanríkisráðherra „Mann ársins 1946“. í ritstjórnar
grein, sem blaðið birtir í þessu sambandi, segir það
Byrnes hafa orðið fy^ir valinu, sökum þess, að hann
hafi verið ,,hin ákveðna og þolinmóða rödd Bandaríkj
anna á alþjóðaráðstefnum“.
KUNNI AÐ FÁST VIÐ
RÚSSA
„Time“ fer jafnan mikið
eftir brjefum lesenda sinna,
þegar það ákveður, hvaða
einstakling beri að velja sem
„mann ársins“. Telur tímarit-
ið að utanríkisráðherrann
hafi fundið leið til samstarfs
við Rússa á alþjóðaráðstefn-
um, með því að skýra fyrir
þeim stefnu Bandaríkjanna og
víkja svo ekki frá henni. —-
Rússar, segir tímaritið, kunna
að virða þetta.
RJETTUR SMÁÞJÓÐANNA
Á friðarfundmum í París,
krafðist Byrnes þess jafnan,
að stórveldin hlustuðu á
kröfur smáþjóðanna. „Time“
telur að það hafi sýnt sig, að
hann hafi haft rjett fyrir sjer
í þessum efnum.
I
Sogamýri
Byggingðrkosfnaður
hækkar
MONTREAL: — Byggingar-
kostnaður í Kanada hefir hækk
að um 75%. Svo mikill skortur
er á nöglum, að þeir eru iðu- j ast þess, að fjárhagshlið samn
lega seldir á svörtum markaði, I ingaumleitananna fari fram
fyrir margfalt verð. 'London.
Danir viija semja á
danskri grund
London í gærkveldi.
DANSKA stjórnin hefir far-
ið fram á það, að frámhald við-
ræðnanna milli Dana og Breta
um viðskiptasamning verði lát-
ið fara fram í Kaupmannahöfn,
en ekki London, eins og breska
stjórnin hefir óskað eftir. Við-
ræður eiga að byrja á ný í
miðjum janúar.
Breska stjórnin hefir mála-
leitan Dana nú til athugunar,
en samkvæmt góðum heimild-
um, er gert ráð fyrir, að Bret-
ar muni að minnsta kosti krefj-
A GAMLARSDAG voru
tveir silfurrefir skotnir inni í
Sogamýri. Annan þeirra
skaut Einar Erlendsson, bíl-
stjóri hjá Reykjavíkurbæ. —
Plann var á ferð þarna er
hann sá refina. Er hann hafði
fengið leyfi lögreglunnar til
þess að bana refunum, sótti
hann byssu sína. Er hann ók
niður Múlaveg sá hann ref-
ina, en þá vildi svo óheppi-
lega til, að hann komst ekki
í skotfæri við þá. Hann ók
þá niður Holtaveg-og sá þá
hvar annar refurinn kom
gangandi eftir túni, sem er
við veginn. Honum tókst þá
að hæfa refinn.
Um þetta leyti var lögregl-
an kominn þangað inn eftir
og tókst henni. að skjóta hinn
refinn upp við Hálogaland.
Ekkeri þýsk! fyrir-
iæki meira en
10 þús. verkamenn
BRESKU hernámsyfirvöldin
í Þýskalandi hafa lýst yfir því,
að þau styðji í öllu ákvörðun
bandarískra hernámsyfirvalda,
að banna þýskum fyrirtækjum
að hafa meira en 10,000 manns
Er þetta gert til að fyrir-
byggja, að þýsk fyrirtæki geti
bundist samtökum, um að
koma upp stórfyrirtækjum, eða
stofna „hringa“. — Reuter.
SIS og fleíii saiiki
stofna nýtt olíuf jelag
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFJELAGA, olíu-
samlögm í Keflavík, Vestmannaeyjurn og Norðfirði, ásamt
fleiri aðilum hafa stofnað nýtt olíufjelag hjer á landi, sem
nefnist Olíufjelagið h.f. Hefir fjelagið 975,000 króna hluta-
fje og hefir keypt hlutabrjef þau í Hinu íslenska stein-
olíuhlutafjelagi, sem áður var í eign danskra manna. í
frjettatilkynningu frá fjelagsstjórninni segir á þessa leiS
um stofnun hins nýja olíuhlutafjelags:
„Hinn 14. júní s. 1. var Olíu-
fjelagið h.f. stofnað. Aðalstofn-
endur þess eru Samband ísl.
samvinnufjelaga, sambands-
kaupfjelög, olíusamlögin í
Keflavík og Vestmannaeyjum
og SUN, Norðfirði.
Hlutafje fjelagsins er 975,000
krónur. Af þessari upphæð er
eign S.Í.S., sambandsfjelaga og
olíusamlaga 700,000 krónur.
Stjórn fjelagsins skipa:
Ástþór Matthíasson fram-
kvæmdarstjóri í Vestmannaeyj-
um, Jakob Frímannsson, kaup-
fjelagsstjóri, Akureyri, Karvel
Ogmundsson, formaður olíu-
samlagsins í Keflavík, Skúli
Thorarensen, útgerðarmaður,
Reykjavík og Vilhjálmur Þór,
forstjóri, sem er formaður fjel-
agsstjórnar.
* Varamenn í stjórn fjelagsins
eru þeir: Egill Thorarensen,
framkvæmdarstjóri, Selfossi,
Elías Þorsteinsson, framkvæmd
stjóri, Keflavík og Halldór
Jónsson, framkvæmdarstjóri,
Reykjavík.
Tilgangur hins nýja olíu-
fjelags er að koma olíuverslun
landsmanna algjörlega á ís-
lenskar hendur og um leið kapp
kosta að gera hana ódýrari en
verið hefir og með því tryggja
landsmönnum sem sanngjarnast
verð á bensíni, steinolíu, hrá-
olíu og smurningsolíum.
Olíufjelagið h.f. hefir keypt
hlutabrjef þau í Hinu ísl. stein-
olíuhlutafjelagi, sem voru dönsk
eign og er því þetta elsta olíu-
fjelag hjer í landi, H.Í.S., frá
1. jan. 1947 orðið al-íslenskt
Tjelag. Fjelagið heldur starfsemi
sinni, að formi til óbreyttri, og
innir af hendi hluta þess starfs,
sem Olíufjelaginu er ætlað.
Olíufjelagið h.f. hefir fengið
einkaumboð á íslandi fyrir hið
mikla bandaríska olíufjelag
Standard Oil Company, en
framleiðsluvörur þess firma
eru auðkenndar með nafninu
ESSO, Þá hefir Olíufjelagið enn
fremur fengið einkaumboð fyr-
ir bandaríska flugbensínfjelag-
ið INTAVA og fyrir British
Mexicon Oil Company, sem sel-
ur aðallega brennsluolíur til
skipa (Bunker Fuel Oil). Eru
þessi þrjú fjelög, hvert á sínu
sviði, einhver hin allra stærstu í
heimi. Má því ségja að vel sje
sjeð fyrir því, að hið nýja olíu-
fjelag geti haft góðar vörur á
boðstólum.
Enda þótt Olíufjelagið hafi
náð mjög hagstæðum samning-
um við framangreinda olíufram
leiðendur, er það á engan hátt
háð hinum ei’lendu fjelögum,
hvorki beint eða óbeint.
Þegar Olíufjelagið hefir kom-
ið í framkvæmd byggingum
olíugeyma, útvegað olíuflutn-
ingaskip o. fl., sem í undirbún-
ingi ér, er gert ráð fyrir að olíu-
verð geti lækkað all-verulega,
frá þvj sem verið hefir.
Hvort þessi tilraun með al-
íslenska olíuverslun tekst vel,
er mikið komið undir samstarfs
hug og samvinnuvilja lands-
manna sjálfra. Hyggja stofn-
endur og stjórnendur Olíu-
fjelagsins gott til samvinnu við
olíunotendur um að hrinda
þessu þjóðþrifamáli í fram-
kvæmd, á sem farsælastan hátt.
Árni Friðriksson fær
hetðursmerki
ÁRNA FRIÐRIKSSÝNI fiski-
fræðing var nú um áramótin
afhent heiðursmerki í viður-
kenningarskyni fyrir starf hans
á sviði hafrannsókna.
Það er professors Jóhannes
Schmidts Legat for Havforskn
ing, sem sýndi Árna Friðriks-
syni þenna heiður.
Próf. Johannes Schmidt vai;
einn af forvígismönnum alþjóðá
hafrannsóknanna. Fræg er ferðí
hans hingað til lands árið 1903,
en þá hóf hann samstarf við
Bjarna Sæmundsson. En próf.
Schmidt kom hingað oft síð-
ar, bæði með ,,Thor“ og ,,Dönu‘c
Eitt af glæsilegustu störfuns
próf. Schmidts voru rannsókn-
ir hans á lifnaðarháttum áls-
ins, en á mörgum öðrum svið-
um liggur eftir hann mikið og
gott starf.
Próf. Johannes Schmidts Leg
at var stofnað í tilefni af því
að liðin eru 70 ár frá fæðingu
hans. En hann dó árið 1932, þá
54 ára að aldri.
Heiðursmerki það er Árni
.Friðriksson hlaut er úr silfri,
Oðru megin er mynd af próf.
Schmidt, en hinu megin sýnd
leið sú er hinn danski leiðang-
ur sigldi í ferð umhverfis hnött
inn árið 1928—1930.
LONDON: Dr. Josef Beran,
sem nasistar neyddu til að
starfa sem götusópara í þrjú
ár, hefir nú yerið gerður að
erkibiskup í Prag.