Morgunblaðið - 04.01.1947, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 4. jan. 1947
\\
II
Þar sem nú eru fallin úr gildi þau gjaldeyris-
og innflutningsleyfi, sem gefin hafa verið út
með samþykki Nýbyggingarráðs frá byrjun
til ársloka 1946, ber leyfishöfum, sem óska að
endurnýja leyfi sín, að senda þau ásamt beiðni
um endurnýjun til skrifstofu ráðsins fyrir 25.
janúar n.k. Beiðnum skulu fylgja skriflegar
sannanir fyrir því að kaup hafi verið ákveðin
og afgreiðsla eigi að fara fram innan ákveð-
ins tíma.
Reykjavík, 3. janúar 1947
Nýbyggingarráð.
Brjeí:
12—15 ha. 220 volt slípihringja mótor
óskast. — Uppl. Vjelsmiðjan Jötunn,
sími 5761.
Ráðskonu og matsvein
I vantar á landróðrabát frá Reykjavík. Uppl. |
| í síma 7122
1. vjelstjóra
vantar strax á b.v. Tryggva gamla.
í síma 4654 og 2612.
Uppl. I
Alliance h.f.
Dodge eða Chrysler bifreið
I model 1947, óskast til kaups strax. — Hátt I
I • X
% verð í boði. — Tilboð leggist inn á afgr. blaðs- |
| ins, merkt: „Reykjavík DC20031“.
&
Duglegur og ábyggilegur
innheimtumaður
óskast strax.
Landssmiðjan
h*xí>«x$^h$xSh$h$x$x^$><$h$h$xS>^hM^híx$h$k$xS><ÍxSx$x®>^x$^h$híh^h$x$^xS!X^x$x$xí>
Skrifstofustúlka
með verslunarskólaprófi eða öðru hliðstæðu
prófi óskast nú þegar eða sem fyrst.
ÍJrynjóIj^óóon ^JJu
Vuxtobrjef 1
uaran
Ht'. ritstjóri!
ÞRÁTT fyrir hin miklu
áhlaup, sem gerð hafa verið
undanfarið, á þegna lansds-
ins, til þess að fá þá til að
kaupa vaxtabrjef Stofnlána-
deildarinnar, má heita að
kaupin sjeu nú að fjara út.
Þó er aðeins seldur 8. partur
af þeirri upphæð, sem selja
þarf nauðsynlega strax. Vit-
anlega er þó þörf fyrir mikið
meira fjármagn til nýsköpun-
arinnar, ef tryggja á að hún
rái tilgangi sínum, en það er
án efa ósk allra landsmanna.
Þjóðin veit að hún á iíf sitt
og barna sinna undir því, að
rtýsköpunin mistakist ekki.
Það er heldur enginn vafi á,
að þegnarnir vilja rjetta ný-
sköpuninni hjálparhönd og
allir eru á þeirri skoðun að
þeir geti það.
Hvað veldur þá
þessari tregðu að
kaupa ríkistrygð
vaxtabrjef með góð-
um vaxtakjörum?
Þetta mál er sjerstaklega
viðkværht og erfitt viðfangs.
Þó tala allir um það sín á
milli, því hefur verið hreyft
í blöðum, og sagðar eru há-
værar raddir innan Alþingis
um að nauðsýn beri til að
ráða fram úr þessu vanda-
máli og það sem fyrst.
Það, sem talað er um, er
b!átt áfram það, að jafnvel
hundruð miljóna í peninga-
seðlum, verðbrjefum og als-
konar verðmætum hafi verið
skattsvikin á undánförnum
árum.
Mikið af þessu fje er talið
vera handbært. T.d. er álitið
að af ca. 180 miljóna króna
seðlaveltu, munu ekki vera
meira en ca. 80 miljón krónur
í umferð. 100 miljón krónur
ættu þá þegnarnir að hafa
lokaðar niður í hirslum sín-
um. Þar liggja þær vaxta-
lausar engum til gagns. Jafn-
vel eigendunum eru þær orðn
ar til ógagns. Þeir eru orðnir
flæktir í skattsvikunum svo að
þeir geta ekki einu sinni not-
fært sjer sína eigin peninga,
af hættu við að skattsvikin
komist upp.
Asbjðmscna sevtntýrln. —
Sígildar bókmentaperlur
Ógleymaniegar aögur
barnanna.
liiiiiiiiitifavaiaiiiniaimtfmit.
Skyldi þetta ekki vera
höfuðástæðan fyrir því hve
illa gengur að selja vaxta-
brjef Stofnlánadeilarinnar?
Þegar svo er komið, sem
nú hefur verið drepið á, skatt
þegnarnir orðnir í vandræð-
um vegna sinna eigin skatt-
svika og yfirvöldin geta ekki
framfylgt skattalögunum,
hlýtur eitthvað athugavert að
vera á seyði.
Svo er líka. Sannleikurinn
er sá að skattþegarnir hafa
. gert uppreisn gegn skattalög-
!gjöf landsins og uppreisnin
hefur hepnast, að svo miklu
leyti sem hægt er.
j Skattalöggjöfin, sem þjóðin
hefur búið við, um nokkurra
' ára skeið, hefur strítt gegn
ljettlætismeðvitund manna
og þá er ekki að sökum að
spyrja. Það hefur áður skeð
hjer á landi, að þegnarnir
hafa risið gegn lögum, sem
þeim hafa fundist órjettlát.
Svo var t.d. um áfengisbann-
lögin og gerðardómslögin og
mörgum öðrum lögum hefur
orðið að breyta í samræmi
við' viija þjóðarinnar og ein-
stakra stjetta þjóðfjelagsins,
svo að þau yrðu framkvæm-
anleg.
Skattalögin eru því ekki
ejnu lögin, sem verða að vera
í samræmi við vi.lja þ.ióðar-
innar, ef vel á að takast fram-
kvæmd þeirra.
En þjóðin hefur ekki verið
spurð um hennar álit á
skattalögunum.
Löggjafarnir hafa farið sín-
ar götur og samið skattalög,
sem þegnarnir hafa svo geng-
ið sínar götur eftir, með
rj.ettu og röngu. Hver og einn
eftir efnum og ástæðum,
eins og niðurjöfnun útsvara
skal framkvæmd!
Rjettlætistilfinning manna
hefur verið sæi’ð. Of langt
hefur verði seilst ofan í
uddur manna. Leynihólf hafa
verið' búin til í buddunum og
fját-munum leynt og svikinn
af þeim skattur. Yfirvöldin
hafa ekki fengið rönd við
reist og nú er komið í full-
komið óefni fyrir báðum að-
ilum, skattþegnunum og lög-
gæslumönnunum.
Öllum er orðið Ijóst, að eitt-
hvað verður að aðhat'ast í
L4i
þessum málum.
V o n a n d i e r I í k a
ö 11 u m 1 j ó s t, a ð k o m-
1 a s t v e r ð u r h j á v a n d-
r æ ð u m v i ð a f-
greiðslu þ e i r r a.
j E n g i n n h e f n d a r-
jhugur má koma til
.greina til skatt-
þegnanna. Lausnin
v e r ð u i' a ð v e r a b y g ð
á fullum skilningi
á viðhorfi skatt-
þegnanna og hags-
m u n u m þjóðarinnar.
Skoðun mín er, að varanleg
lausn þeirra vandræða, sem
jeg hef gert að umtalsefni,
verði aðeins náð með því, að
breyta skattalöggjöfinni, til
samræmis við rjettlætistil-
finningu skattþegnanna og að
skattgreiðslum sje það í hóf
stilt, að einstaklingsframtakið
notist sem best.
Vaxtabrjef Stofnlánadeildar
sjávarútvegsins þurfa að selj-
ast strax.
Til þess að það takist, verða
skattþegnarnir að fá trygg-
ingu fyrir því, að ekki verði
ráðist á þá fyrir skattsvik og
gengið í skrokk á þeim, sam-
kvæmt gildandi skattalögum.
Með öðrum orðum, það verð-
ur að gefa upp sakir, ef
landsmenn eiga að kaupa
Stof nl ána deildarbr j ef in.
Geta ekki stjórnmálaflokk-
arnir á Alþingi komið sjer
saman um að gefa út sam-
eiginlega yfirlýsingu til lands-
manna, svo að þeir hiki ekki
lengur við að kaupa Stofn-
lánadeildarbrjefin? Jeg held
að svo hljóti að vera, ef vilj-
an vantar ekki.
Ennfremur ætti að taka
skattalögin strax til endur-
skoðunar og lagfæringar. Það
ófremdarástand verður að
kveðast niður, að skattþegn-
arnir svíkji skatt. Til þess
verða skattalögin að vera
heilbrigð. Það eru ábyggilega
fáir íslendingar, sem líta svo
á nú, að gildandi skattalög-
gjöf sje heilbrigð.
Löggjafarnir verða að taka
tillit til vilja þjóðarinnar, við
löggjöf sína. Það er lýðræði,
sem allir íslendingar óska
eftir.
25. nóvember 1946.
Kristján Karlsson.
Reykvíkingar - Suðurnesjamenn
Áætlunarferðir á leiðinni Reykjavík — Sand-
gerði verða framvegis:
Frá Reykjavik kl. 10 árd. og kl. 1 s.d.
Frá Sandgerði kl. 1 og kl. 5 s.d. — Sunnudaga
kl. 1 og kl. 6,30 s.d.
Frá Keflavík ki. 2 og kl. 6 s.d. — Sunnudaga
kl. 2 og kl. 7,30 s.d.
Farþegum skal sjerstaklega bent á hina hent-
ugu ferð frá Reykjavík kl. 10 árd.
Bifreiðastöð STEINDÓRS.