Morgunblaðið - 04.01.1947, Qupperneq 12
VEÐUK ÚTLITIÐ: Faxaflói:
Suð-austan og austan stinn-
ingskaldi með allhvössum
krapahryðjum.
Laugardagur 4. janúar 1947
„ÞEGAR VIÐ HITTU3I
BANDARÍSKA IIERINX", heit
ir grein á bls. 7.
hjálparinnar
VETRARHJÁLPIN úthlut-
aði nú fyrir jólin meiri gjöf-1
um til fleiri manna en nokkru
sinni áður. Als var úthlutað
nokkuð á annað hundruð þús.
krónum til meira en 520 ein-
staklinga og fjölskyldna.
Var úthlutað til meira en
hundrað fleiri aðila nú en í
fyrra. Nokkru nam söfnunin
minna'hjer í bænum s.l. ár,;
og má áreiðanlega kenna hin-;
um erfiðu veðurskilyrðum,
sem voru er söfnunin fór
fram mikið um það. Safnað-
ist nú um 70 þu-. Eingöngu
var úthlutað mjólkur- og matí
argjöfum fyrir jólin, en fatn- j
aðargjöfum verður úthlutað
í janúar.
skiptast á skeMíi-
ferðaióiki
Til hægri á myndinni sjest hinn frægi listmálari Piccasso. Var
mynd þessi tekin í París fyrir skömmu. Með listmálaranum
eru Barria, spánskur stjórnmálamaður í útlegð og einn af
hörðustu andstæðingum Franco’s. Á miðri myndinni er Reyer,
sem var fulltrúi Mexiko á ráðstefnu UNESCO í París í haust.
K.höfn í gærkveldi.
Einkaskeyti tii Mbl.
200 DANIR, undir forystu
©estrup skólaeftirlitsmanns,
munu hafa í hyggju að ferðast
til íslands n. k. sumar. I ráði
er að 200 Islendingar fari í
staðinn til Danmerkur, en þessu
mun verða komið þannig fyrir,
að íslendingarnir fái Dönunum
peninga til afnota á Islandi og
Danirnir sjái svo hinu íslenska
ferðafólki fyrir eyðslufje í Dan-
mörku.
Ferðalagið mun als taka þrjár
vikur.
Norska söngkonan
Eílen Gulbrandsen
láiin
NORSKA söngkonan Ellen
Gulbrandsen er látin. Sem ung
söng hún fyrir Edwíyrd Grieg
og voru þau góðir vinir síðan.
Kunnust var hún fyrir söng
sinn í Wagnerhlutverkum. Hún
söng í Bayreuth frá 1896 til
1914 og söng þar í síðasta sinn
í júlí það ár, skömmu áður en
fyrri heimsstyrjöldin braust út.
Hún var einasta söngkonan í
Bayreuth þá, sem söng í hlut-
verki Brynhildar. Ellen Gul-
brandson söng við allar helstu
óperur í Evrópu. Hún var góð-
vinur dönsku konungshjónanna
og heimsótti þau árlega. — G.A.
Aukaskammtur
af smjöri
VIÐSKIPTAMÁLARÁÐU-
NEYTIÐ hefir ákveðið að stofn
auki nr. 1 af hinum nýju
skömmtunarseðli, skuli vera
innkaupaheimild fyrir 1 kg. af
smjöri.
Stofnauki þessi hefir þegar
öðlast gildi.
Skemdir á skipum og iuísi
í ofsavelri á Akureyri
í FYRRINÓTT á miðnætti skall á eitt hið mesta sunn-
anveður, sem komið hefir á Akureyri. — Nokkrar skemdir
urðu á bátum og éitt hús skemdist.
Siglutrje á póstbátnum
Drangur brotnaði og fjell nið
ur á þilfar. Þá urðu skemdir
á vjelbát frá Dalvík og lv.
Bjarki varð einnig fyrir litl-
‘um skemdum. Tvö skip, sem
lágu. við bryggju slitu land-
festar, en sjálfboðaliðum og|
skipverjum tókst að komaj
festunum á skipin og forða
þeim frá skemdum.
Sjógangurinn var svo mik-
ill að öldubr.jóturinn, sem er
út af hafnarbryggjunni eyði-
lagðist með öllu. Öldubrjótur
þessi var 20 metra langur
trjerani.
Inni í bæ tók þak af litlu
húsi. íbúana sakaði ekki og
þeir ljetu fyrirberast i hús-
inu yfir nóttina. — Þá hafa
nokkrir símastaurar brotnað.
Ekki er vitað um frekari
skemdir og engin slys munu
hafa orðið á mönnum.
Veðurofsinn stóð yfir í tvo
tíma, eða frá miðnætti til kl.
2 um nóttina.
Miklar símabilanir
í GÆRKVELDI var nær því
talsímalaust út um land. Við
Austurland var símasambands-
laust. Við ísafjörð var sam-
band afar slæmt. Aðeins ein
lína var nothæf fyrir alt Norð-
urland. Sambandið við Akur-
eyri var mjög slæmt og stund-
Um var ekki hægt að ná sam-
bandi þangað.
«>•
VIÐGERÐ á háspennulínunni
að Reykjum fór fram í gær og
var lokið um kl. eitt e. h.
Hitaveitan komst því í lag.
Ekki mun í gær hafa hitnað í
þeim húsum í bænum sem á
hæðum. standa.
í nótt var ráðgert að loka
fyrir nokkur hverfi bæjarins
eða öll, eftir því sem þurfa
þótti til þess að tryggja að
heitavatnsgeymarnir á Öskju-
hlíð væru fullir þegar opnað
væri fyrir renslið til bæjarins
í dag.
Skipað í íþróffa-
nefnd
Mentamálaráðherra hefur
skipað eftirtalda þrjá menn í
íþróttanefnd til næstu þriggja
ára:
Hermann Guðmundsson,
alþm., formann; Kristján L.
Gestsson, verslunarstjóra og
Daniel Ágústínusson, erind-
reka.
Varamenn eru: Jens Guð-
björnsson, bókbindari; Bene-
dikt G. Vaage, kaupmaður og
Rannveig Þorsteinsdóttir.
Guðmundur gerði
jafntefii við Tartakowe?
og Yanofsky
Hastings í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
í FIMTU UMFERÐ í alþjóðaskákmótinu í Hastings,
sem fór fram í dag varð jafntefli milli þeirra Guðmundar
S.; Guðmundssonar og dr. S. Tartakower frá Póllandi. En
Tartakower er einn albesti skákmaður mótsins og líkleg-
astur til að sigra á því, eins og á síðasta Hastingsmóti.
Verið að semja um
kaup og kjör ii
á landi
í NOKKRUM bæjum úti á
iandi og hjer í Reykjavík, er
nú verið að semja um kaup
og kjör verkafólks, sem
samningsbundið var til ára-
móta. Á einu stað hefur kom-
ið til vcrkfalls. Það er á
Bíldudal.
Skrifstofa Alþýðusambands
íslands hefur skýrt Morgup-
blaðinu frá gangi þessara
mála.
Á ísafirði er búið að semja
um kauptryggingu sjómanna
á -smábátum. Samkv. hinum
nýju samningum hækkar
kaup sjómanna um 8% og
ísafjarðarbær ábyrgist nokk-
urn hluta tryggingarinnar.
í Stykkishólmi standa nú
yfir samningar um kaup og
kjör sjómanna. Samningar
standa yfir milli Verkalýðs-
fjelags Borgarness og Skalla-
gríms h.f., um kjör sjómanna
á skipum fjelagsins.
í Grindavík hafa atvinnu-
rekendur sagt upp samning-
um við verkalýðsfjelagið þar.
Ekki var Alþýðusambandinu
kunnugt um að samningaum-
leitanir væru hafnar.
Starfsstúlknafjelagið Sókn,
hjer í Reykjavík, er að semja
um kjör og kaup meðlima
sinna. Verkalýðsfjelagið Aft-
urelding á Sandi er að
semja. Og í Vestmannaeyj-
um hafa vjelstjórafjelagið og
sjómannafjelagið Jötunn
sagt upp samningum. Undir-
búningur að nýjum samning-
um er hafinn.
Ef veður leyfir yerður
gerf við loffnetið
VEGNA veðurs gat viðgerð
ekki farið fram á loftneti Út-
varpsstöðvarinnar í gær.
í dag fer viðgerðin fram ef
veður skyldi verða eitthvað
betra. Gert er ráð fyrir að við-
gerðin muni taka eina fimm
klukkutíma.
I gær var útvarpað gegnum
loftnet, sem sendir yfir mjög
takmarkað svæði.
Leikar standa þannig nú,
að Tartakower er efstur með
4 vinninga, *en Guðmundur
hefur 3.
Önnur úrslit eru ekkl
kunn úr fimtu umferð þegar
þetta skeyti er sent, því að
ekki er vitað nm úrslit bið-
skáka úr þessari umferð.
í fjórðu umferð varð
einnig jafntefli milli þeirra
Guðmundar og Kanada-
mannsins Yanofsky.
ÚRSLIT í FYRRI
UMFERÐUM
Úrslit, sem ekki hafa verið
b.irt áður í Morgunblaðinu
eru þessi: Biðskák milli Gol-
ombecks og Raismans úr
annarri umferð varð jafn-
tefli.
Þriðja iimferð: Alexander
vann Guðm. S. Guðmundss.
Tartakower vann Wood. Yan-
ofsky vann Aitken. Prins
vann Golombeck. Ábrahams
vann Raizman.
Fjórða umferð: Guðm. S.
Guðmundsson Yanofsky jafn
tefli. Raizman vann Prins.
Wood vann Abrahams, Tarta-
kower vann Sitken, Alexand-
er Golombeck jafntefli.
Ðiplomalisk vega-
brjef þurfa ekki
áritun
Utanríkismálaráðunevtið
hefur tilkynt, að samkæmt
samkomulagi milli íslands og
Frakklands, falli niður vega-
brjefsáritun á „diplomatisk‘c
vegabrjef. Það er að segja
vegabrjef, sem gefin eru út
af utanríkisráðuneytum
hvors ríkis. — Samningur
þessi gildir frá 1. jan. 1947.
„Kærleiksheimili"
eftir Gesf Pálsson
„Kærleiksheimilið“, efti r
Gest Pálsson, hefur verið gef-
ið út af Steindórsprenti. Er
það prentað sem handrit.í 275
eintökum, en þar af eru 100
tölusett. Nokkrar teikningar
eru í bókinni eftir Ásgeir
Bjarnþórsson, en prentmynd-
irnar eru gerðar í Leiftri. —
Fjelagsbókbandið hefur anni
ast bandið.
Bókin er prentuð á góðan
bókapappír.