Morgunblaðið - 18.02.1947, Síða 11
Þriðjudagur 17. febr. 1947
'■♦ORGUNBLAÐIÐ
11
Frjálsar íþróttir IV:
/» *
Aciæftir
sfökku!
ÁGÆTUR árangur náðist
yfirleitt í stökkunum s.l. sum
ar, og hcfir t.d. aljlrei verið
eins jafngóður í langstökki og
þrístökki.
HÁSTÖKK.
í hástökki bar Skúli Guð-
mundsson, KR, höfuð og herð
ar yfir keppinauta sína sem
fyrr. Hann stökk 1,90 m.
Oliver Steinn F.H. var næst-
ur, stökk 1,80 m. Þá koma þeir
Örn Clausen, ÍR og Jón Ólafs
sön, UÍA, með 1,75 m. og 5. og:
6. eru Jón Hjartar, KR og
Kolbeinn Kristinsson, Umf.
Selfoss, með 1,70 m.
LANGSTÖKK.
Nú í fyrsta sinn í sögunni
áttum við tvo menn yfir 7 m.
í langstökki. Það voru þeir
Oliver Steinn, sem stökk 7,06
m. og Finnbjörn Þorvaldsson
ÍR„ sem stökk 7,04 m. Björn
Vilmundarson, KR, kemur
næstur með 6,80 m., sem er
glæsilegt nýtt drengjamet. Þá
er Örn Clausen ÍR með 6,77 m.
Torfi Bryngeirsson KR, með
6,71 m., Halldór Lárusson,
UMSK, með 6,52 m. og Magn
ús Baldvinsson ÍR, með 6,49
m. Eru hjer sjö menn með
um 6,50 og þar yfir.
ÞRÍSTÖKK,
í þrístökki sem fer að verða
,,þjóðaríþrólt“ Þingeyinga,
bætti Stefán Sörensson, HSÞ,
. íslandsmetið tvisvar. Stökk
Finnínn Parkinen
heinumeidari
í skauiahlaupi
Á HEIMSMEISTARAMÓTINU
í skautahlaupi, sem fram fór
í Osló í síðustu viku, bar Finn-
inn Lauri Parkinen sigur úr být
um. Næstur honum var Norð-
maðurinn Farstad, þriðji Svíinn
Seyffartth og fjórði Norðmað-
urinn Liaklev.
í 500 m hlaupi var Farstad
fyrstur, en þrír næstu menn
voru einnig Norðmenn. Farstad
vann einnig 1500 m hlaupið
með Syffarth í öðru sæti. 5000
m vann Parkinen, en Farstad
var annar. í 10000 m hlaupinu
varð Liaklev hlutskarpastur, en
Parkinen varð annar.
Hinn nýi heimsmeistari á
skautum Finninn Parkinen hef
ir áður getið sjer góðan orðstí
sem skautamaður. Hann vann
t. d. 22. jan. heimsmeistara-
keppni háskólaborgara, sem
fram fró í Davos í Sviss. Var
hann þar fyrstur á öllum fjór-
um veglanegdunum.
hann fyrst 14,09 m. og síðnn
14.11 m. Annar var þar Óii
P. Kristjánsson, HSÞ, sem
stökk 13,78 m., sem er ágætt
nýtt drengjamet. Torfi Bryn
geirsson kemur næstur með
13,52 m., þá Þorkell Jóhannes
son, FH, með 13.42 m. og Jón
Hjartar með 13,24 m. — Hef-
ir aldrei náðst eins góður ár-
angur hjer og nú. ý
STAN G ARSTÖKK
í stangarstökki var ekki eins
góður árangur og síðustu ár,
og er nú jafnvel farið að dofna
yfir þeirri íþrótt í Vestmanna
eyjum að því er virðist. Torfi
Bryngeirsson KR, náði þar
bestum árangri, stökk 3,60 m.
Annar var Biarni Linnet, Ár-
manrii, stökk 3,50 m. 3.40 m.
stukku þeir-Þorkell Jóhannes
hon. Kolbeinn Kristinsson
og Guðjón Magnússon, ÍBV.,
cn 3,20 ísleifur Jónsson, ÍBV
og Hallgrímur Þórðarson ÍBV
— Þorbjörn.
InnanfjelagsskíSa-
móf um helgina
MIKILL fjöldi fór á skíði um
síðustu helgi og fekk dásamlegt
veður á fjöllum uppi.
Tvö íþróttafjelögin KR og ÍR
höfðu innanfjelagsmót í svigi.
Var keppt í öllum flokkum
karla hjá KR, en aðeins í C-
flokki bjá ÍR. — Mót KR-ing-
anna fór fram í Skáafelli. í A-
og B-flokki karla varð Jón M.
Jónsson fyrstur, en Lárus Guð-
mundsson annar. í C-flokki
karla var Hermarm Guðjónsson
fyrstur, en Vilhjálmur Pálma-
son annar. I drengjaflokki var
Oskar Guðmundsson fyrstur, en
Steindór Guðmundsson annar.
I IR-mótinu, sem fram fór við
Kolviðarhól, var fyrstur í C-
flokki Ragnar Thorvaldsen, en
annar Olafur Magnússon.
Anien keppir með
KR í sumar
ANTON SIGURÐSSON
markvörður, sem tvö undan-
farin ár hefir keppt með Vík-
ing, hefir nú ákveðið að byrja
aftur að leika með sínu gamla
fjelagi KR, eftir því sem blað
ið hefir frjett. Er hann þegar
farinn að æfa hjá KR.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson
hæstar j ettarlögmenn
Oddfellowhúsið. — Sími 1171
Allskonar lögfræðistörf
Skúii .Guðmundsson
Oliver Steinn í langstökki
Stefán Sörensson
Ræða Císla Jónssonar
Framh. af bls. 2
I vjelarámi.
Skipið er útbúið með 1300
hestafla eimknúinni aðalvjel,
er knýr það rúmar 13 mílur á
klst. Er hún af hinni venjulegu
þríþenslu tegund, gerð fyrir
að nota yfirhitaðan eim, en þó
endurbætt á margvíslegan hátt
frá því sem áður hefur þekkst
í togurum. M.a. er loftdæla
vjelarinnar ekki sambyggð
með henni, eins og venja er til,
heldur er hún sjerstæð og raf-
knúin. Á þann hátt er ávalt
hægt að halda uppi fullu sog-
aíli, bæði fyrir aðalvjel og tog-
vindu, hvort sem aðalvjelin er
í hægum eða fullum gangi eða
alveg stöðvuð. Er þetta mjög
mikill eldsneytissparnaður og
Ijettir mikið gang bæði aðal-
vjelar og togvindu, og fer miklu
betur með þær vjelar báðar, í
meðferð. Er hjer að ræða um al
gjörlega nýjung í togurum.
Eimketill skipsins er smíðað-
ur fyrir 225 Ibs. þrýsting. —
Hitaflötur hans er 2800 ferfeta.
Hann er kyntur með olíu í stað
kola, og sparast því alt það
erfiði og óþrifnaður, sem áður
fylgdi kyndingu, kolamokstri,
eldhreinsun og öskuburði. Mun
margur gleðjast yfir þeim um-
bótum.
Aðalvjel og ketill er smíðað
hjá Mrss Amos & Smith. Ltd.,
Hull. Settu þeir einnig niður
allar vjelar í skipið. Ketillinn
er útbúinn með yfirhitunar-
kerfi, frá Superheater Co., og
lcftþrýstivjelum frá Howdens-
verksmiðjum, sem dæla upphit
uðu lofti inn í eldkolin. Olíu-
kyndingarvjelarnar eru smíð-
aðar hjá Walsend Shipway &
Engineering Co., sem smíðuðu
allar vjelarnar í hersMpið Hood.
Eru þær allar rafknT'mar. Loft-
dælan og eimvatr. jdælurnar
eru rafknúðar sjerdæiur, smíð-
aðar af Weirs-verksmíðjunum,
en kælidælur, þilfarsdælur,
austurdælur og aðrar sjerdæl-
ur, af Ejroysdale-verksmiðjun-
um, og eru þær einnig allar
rafknúðar. Er dælukerfið þann
ig útbúið, að þótt bæði kæli-
dæla, aðalvjelar og loftdæla
bili, má nota aðalvjel með 80%
afli, sem er afarmikið öryggi
fyrir skipið og algert nýmæli.
Ný tegund vökvastýrisvjela,
smíðuð hjá Donkin & Co. er
tengd beint við stýrið, en virkt
frá stýrishúsi. Öllum stýris-
taumum er því sleppt, og er það
bæði til öryggis og þæginda. —
Ganga vökvadælurnar fyrir raf
orku. Er þetta einnig nýmæli-
Akkersvinda, tvöföld, smíðuð
af Clark Chopman, og alveg
sjerstaklega gerð fyrir Jslenska
togara, er rafknúin. Getur hún
lyft báðum akkerum í einu á
15 faðma dýpi. Togvinda skips-
ins er eimdrifin. Er það eina
aukavjelin, sem drifin er þann-
ig. Hún er 300 hestöfl að s’tærð,
gerð fyrir 1200 faðma á hvert
keíli. Er hún smíðuð af C. D.
Holmes & Co., Hull, og marg-
víslega endurbætt frá fyrri
tegur»dum.
Þá eru í skipinu 2 dieselvjel-
ar, hvor 120 hesta, með áten^d-
um 80 kw rafal, sem framleiða-
raforku fyrir allar aukavjelar
og til Ijósa. Eru vjelar þessar
smíðaðar hjá Ruston Hornsby
& Co. En auk þess er ein 5. kw
samstæða frá sömu verksmiðju,
sem nota má til ljósa í höfn-
um. Skipið er útbúið með tal-
stöð, loftskeytastöð og miðun-
arstöð frá M. P. Pedersen, Kbh.,
tveimur dýptarmælum' Fatho-
meter & Huges, sem bæði sjálf-
rita og senda neista, eftir vild,
einnig með rafmagnshraðamæli,
rafmagnsvjelsíma, * sjerstakri
gerð áttavita, Radartækjum og
öðrum nýtísku áhöldum.
Þegar hinn valmkunni skip-
stjóri, Jóhann Pjetursson, var
að lýsa fyrir blaðamönnum hinu
glæsilega skipi sínu „Gylfa“,
fyrir nokkrum dögum, fjellu
honum af munni þessi orð:
„Ingólfur Arnarson er lista-
smíð. Þar er saman*komið allt,
sem íslenskir^og breskir útgerð-
armenn og sjómenn geta óskað
sjer“.
Betur verður þess uskipi eklci
lýst. Hið glæsilega skip er ár-
angur af samstiltum vilja þeirra
manna allra, sem metið hafa
verk ykkar sjómannanna undan
farin mörg og erfið ár, til þess
að mæta óskum ykkar og von-
um unv betra og öruggara far.
Velkominn býð jeg Ingólf
Arnarson að landi. Enn mun
hjer með honum hefjast nýtt
landnám, nýir möguleikar, ný-
ir og betri tímar fyrir land og
lýð,
Þjer allir, sem mál mitt meg-
ið heyra, gefið honum blessun
ykkar.
Felið hann Guði og g<$ jm
vindum í bænum ykkar fyrr
' og síðar.
I f
II
ni'. 57 við Langholtsveg fæst til kaups og er
laus til íbúðar nú þegar. Húsið er einbýlishús,
vel útlítandi og að öllu leyti í góðu ásigkomu-
lagi. Notið tækifærið. Ekki mun seinna betra.
Nánari upplýsingar gefur PJETUR JAKOBS-
SON, löggiltur fasteig'nasali, Kárastíg 12, sími
4492. Viðtalstími kl. 1—4.
IREYKJAVÍK — BORGARNES — REYKIIOLT I
Áætlunarbílferðir frá Rvík: mánud., fimtud. I.
Frá Borgarnesi: þriðjud., föstud. I
Afgreiðsla í Hótel Borgarnes og b.s. Heklu.
Kristinn Friðriksson, sími 6515, Týsgötu 5. |