Morgunblaðið - 09.04.1947, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. apríl 1947
Ai horfa á hraun renna
- Ferð í Fljótshlíð
Framh. af bls. 9
Þegar við komum að hraun-
endanum í þetta sinn, var
sýling eða geil í hann miðjann.
Hafði þar verið einhver mis-
hæð, sem veitti viðnám, en
straumurinn, hraunlagið, hafði
bólstrast nokkuð upp við geil-
arendann, svo að hraunið var
nokkru hærra við botn geiíar-
innar en annarsstaðar.
Við gengum inn í þessa geil,
því að hún var það við ennþá,
að engin hætta var á, að við
yrðum fyrir skriðunum; sem
runnu niður hraunjaðarinn
beggja vegna. Mjer var litið á
sporin okkar í sandinum, en
gamla hraunið, sem við geng-
um á, var allmikið sandorpið,
og hugsaði til þess, að þetta
væri í síðasta sinn sem manns-
fótur snerti þenna sand, þetta
gamla jarðaryfirborð. því að
innan stundar yrði landið þarna
10 metrum hærra en það var í
þessu augnableki
Lítil ljós
Meðan við vorum inni í þess
ari hraungeil, varð mjer star-
sýnt á lítið áberandi kyrlátt
náttúrufyrirbrigði, sem sást
altaf hjer og þar í hraunskrið-
unum. Út úr hinni gráu hraun-
skorpu komu lítil ljós, engu
líkari en kertaljós. Þau loguðu
skært stutta stund á hverjum
stað, rjett eins og þar væri eld-
fimur eldsmatur,, er eyddist
skjótt. En ekkert var þar sjáan
legt sem brunnið gæti, svo
manni virtist, sjálf hraunskorp
an brenna sem vax. Náttúru-
fræðingarnir munu geta skýrt
frá því, hvað það er, sem þarna
fer fram. En aftur varð mjer að
hugsa til horfinna alda^ þegar
hraunflóðin og eldsumbrotin
voru sett í samband við Víti
sjálft, og með sálum framlið-
inna. Vera má að þessi litiu kyr
látu „kertaljós“, sem brunnu í
hraunjaðrinum, hafi verið tal-
in vottur um fyrirbænir frómra
manna, fyrir þeim, sem höfðu
öðlast bústað í neðanjarðar eld
inum mikla.
Hinn innri eldur
Eins og gefur að skilja staf-
aði miklum hita af hrauninu.
Þó ekki meiri en svo, að vel
mátti ganga að hraunskriðun-
um. Yrjaði sífelt úr þeim hraun
ryki, sem settist í andlit
manna. Lagði af hrauninu sterk
an eim, líkan þeim, sem legg-
ur úr smiðju, þegar síökt er
vatni á glóandi járn eða heita
ösku.
Við settumst niður svo ná-
lægt hrauninu, að við höfðum
ylinn áf því. Kvöldgustur var
kominn á, svo að okkur þótti
gott að hafa hlýjuna þó að ekki
bakaði hún nema öðru megin.
Meðan við snæddum þarna dá-
lítið nesti, sem ívar hafði tekið
með í bakpokann sinn, gátum
við ekki haft augun af hraun-
inu? og öllum þeim öru mynd-
breytingum, sem það tók á
meðan.
Stundum var sem glóðin í
hrauninu ofanverðu þrýstist
fram undir skorpunni, svo að
hún varð gegn-glóandi á köfl-
um, eða bráðnaði að nokkru
leyti að innan verðu frá. Komu
þá í skorpuna alskonar glóðar-
rákir eða myndir, sem mintu á
ljósaauglýsingar, er rákirnar
líktust stöfum. Var þess þá ekki
langt að bíða, að þrýstingur-
inn eða glóðin að innan hrinti
þar fram skriðu úr hrauninu.
Nýtt vatn?
Ekki gátum við gert okkur
grein fyrir því, þessa stund
sem við vorum þarna við hraun
ið, hve hratt því miðaði áfram.
En áður en við lögðum af stað
aftur, áleiðis til Næfurholts,
hafði Pálmi sett merki í melás
skamt frá jaðrinum, til þess að
hann gæti að morgni næsta
dags, gert sjer grein fyrir hve
hrauninu hefði miðað áfram yf-
ir nóttina.
Meðan við sátum þarna hafði
gosmökkinn lagt meira í vestur
átt en áður. Bar hann nú yfir
þetta nýja hraun. Ýrðist úr
honum hagl.
„Sennilegt er“, sagði Pálmi,
að þetta vatn, sem fellur hjer
á okkur, hafi nú í fyrsta sinn
fallið á jörðina. Því að menn
gera sjer í hugarlund, að vatnið
sem kemur upp við eldsum-
brot, sje úr iðrum jarðar, og
því svonefnt nýtt vatn. — En
þessi gáta er ekki ráðin enn,
frekar en ýmsar aðrar í sam-
bandi við eldgosin.
V. St.
— Gróðurinn í
Húlakoti
Framh. af bls. 10
Sandgarðarnir komu að all-
góðu haldi. Þeir, sem næst voru
gróðrarstöðinni hjeldu alveg,
svo að líkur eru til að skemmd-
ir hafi orðið hverfandi á móts
við það, sem annars hefði orðið.
Vikurinn barst nú svo ört í læk
inn að honum lá við að stífl-
ast og fóru menn þá á stað til
þess að reyna að halda honum
opnum og veita vatninu fram og
tókst það. En samt mun það
hafa staðið nokkuð glöggt, því
að um það bil, er sandkófið
lægði var neðsti hluti garðsins
blásinn ofan í lækinn. Enginn
vafi er á að þessir garðar, þótt
lágir væru og lausir fyrir, hafa
firrt Múlakot við miklum vik-
urburði og áfoki.
Samkvæmt samtali við Árna
í Múlakoti er nú jörð víða kom
in upp og hefir hann von um
að nægilegir hagar muni koma
með vorinu handa sauðfje.
Skafla af túnum og slægjulönd-
um þarf að moka burt með ýt-
um, en það verður tiltölulega
auðvelt verk nú eftir rokið.
H. Bj.
IFuÍíur kassil
I að kvöldi I
I hjá þeim, sem auglýsa í I
Morgunblaðinu. i
Brjef
— Fyrir nokkrum árum
var flutt einskonar íslands-
saga í skáldskap í útvarpið
eða m. ö. o., það var revnt,
með því að koma fram með
skáldskap, eftir hin og þessi
íslensk skáld, að segja eins-
konar íslandssögu. Sem
dæmi þessa má nefna að
flutt var kvæðið „Lýsti sól,
stjörnu stól“, eftir Matthías,
um komu Ingólfs Arnarsonar
til landsins. Eitthvað var
flutt í óbundnu máli líka.
Var þetta samfeld dagskrá og
tók alllangan tíma.
— Þegar hjer er komið
rnáli mínu vil jeg styðja nið-
ur fingri. Útvarpið var hjer
lað taka upp hugmynd, sem
íyrst hafði framkomið í verki
mínu Jóni íslending, hug-
myndina um að sÓgja íslands
söguna með skáldskap. Út-
varpið hafnaði flutningi verk
míns árið 1941.
— í áframhaldi af þessu
má taka það fram, að í bók-
inni ,,Neistar“, eftir Björn
Sigfússon (nú háskólabóka-
vörð) kom einnig að miklu
leyti sama hugmynd og hjá
mjer, sú, að segja íslandssög-
una, EKKI á hinu venjulega
sagnfræðilega hátt, HELD-
UR, með skáldskap, svona að
meira eða minna leyti, enda
er æði mikið af vísum og
kvæðum í bók hans, sem geta
sýnt ýmislegt úr íslandssög-
unni. Óbundið mál er líka. —
Eins og hjá útvarpinu er efn-
ið sjálft ekki samið af bókar-
höfundi, heldur valið hingað
og þangað að, en auðvitað
ekki sömu kaflarnir og hjá
útvarpinu. Formálar höfund-
arins eru fyrir hverjum kafla.
— Hjer er því ekki neinum
blöðum um það að fletta, að
jeg hefi orðið á undan bæði
útvarpinu og B. S. um það, að
segja íslandssöguna með
skáldskap. Jeg varð fyrstur,
hinir komu á eftir.
— í grein eftir mig í Mbl.
í júní 1945, nefni jeg mörg
dæmi þess að jeg hafi orðið
fyrstur til með ýmislegt í bók
mentunum. Því hefir enginn
getað mótmælt. Nú hafa
komið hjer dæmi í viðbót. —■
Og nú mætti spyrja: Er það
ekki verðlaunavert að vera
fyrstur eða m. ö. o. braut-
ryðjandi um ýmislegt á svið-
um skáldskaparins. Maður
gæti haldið að svo væri.
Árni Ólafsson.
Ungverjar eru ekki
á „svarSa lisfanunT
óLYMPfU-nefnd Ungverja
lands hefir verið tilkynt, að
Ungverjum verði leyfð þátt-
taka í ólympíuleikunum í
London 1948. Þeir verða ekki
taldir til hinna „brotlegu“ í
líkingu við Japan og Þýska-
land.
Japanska blaðið Asahi tal-
ar um það í ritstjórnargrein,
hve menn þar sjeu vonsvikn-
ir yfir því, að þeim skuli ekki
hafa verið boðin þátttaka í
ólympíuleikunum, og eru
japanskir íþróttamenn að
vona að þeirri ákvörðun verði
‘ breytt.
Framh. af bls. 7
Jeg tek undir þau orð með
Ólafi Túbals, eftir að hafa sjeð
eyðimörkina í Fljótshlíðinni,
jafnvel nú eftir, að blásið var
af nokkrum harðbölum, og farið
er að sjá í blessað grasið, eins
og þeir segja bændurnir.
„Alí er í heiminum hverfult"
Þegar heim kom í Múlakot
átti jeg stutt tal við Guðbjörgu
Þorleifsdóttur, gömlu húsfreyj-
una í Múlakoti og sem flestum
ferðalöngum, sem lagt hafa leið
sína í Múlakot og sjeð garðinn
hennar fagra, hefir vafalaust
dottið fyrst í hug er þeir heyrðu
um öskufallið.
Guðbjörg lá í rúminu. Hún
hafði ekki þolað öskurykið, sem
fyllti öll vit þeirra, sem komu
út í það, enda hafa sumir feng-
ið sár í nef og munn af rykinu,
en hún var furðu hress.
„Alt er í heiminum hverfult“,
varð Guðbjörgu að orði er við
fórum að tala um vikurfallið og
öskuna. „En jeg er heppin, því,
garðurinn er óskemdur ennþá.
Það var heppilegt að þetta kom
þó á þessum tíma, því hætta er
á, að brumið hefði ekki þolað
öskuna, ef þetta hefði komið síð-
ar að vori Og svo er jeg hrædd-
ust um, að það komi fok síðar
í vor. En vonandi blessast þetta
alt. Það er ekki annað að gera
en að vona hið bezta.
Og svo röbbuðum við fram og
aftur.
„Mjer er sagt, að þeir kalli
bændurna hjerna morðingja,
vegna þess að það hefir verið
orðað, að þeir neyddust til að
skera niður. Jeg held að þau
ummæli stafi fyrst og fremst af
skilningsleysi Fjeð er fyrir þeim
alveg eins og menn, fjelagar
þeirra og vinir. Og jeg veit, að
þeir eiga bágt með að sjá það
kveljast, ef til þess kemur“.
Þannig mælti hin aldraða hús
freyja í Múlakoti. Þótt hún bæri
sig vel var ekki hægt að leyna
því, að það tók hana sárt að
sjá hvernig komið var
Eins og kominn væri heimsendi
Fólkið í Múlakoti sagði mjer
hvernig því hefði orðið við er
kolsvartur ösku- og vikurbylur-
inn skall yfir sveitina. Það var
um 7 leytið um morguninn
skömmu eftir að Hekla byrjaði
að gjósa. Kvenfólkið sagðist
hafa haldið, að það væri bara
kominn heimsendir. Vindur var
á norðan, en austan andvara
lagði yfir Þveráraura og sló á
móti bylnum. Á' undan bylnum
kom eins og þytur í lofti.
Þessi ósköp stóðu í tvær
klukkustundir, og var þá dimmt
í íofti í sveitinni, en um há-
degi birti fyrst til.
„Nú er Hlíðin Gunnars illa
farin".
Út hlíðina var okkur sam-
ferða í bílnum frú Lilja Túbals
að Litla Kollabæ.
Ilún sagði okkur frá því,
hvernig þeir í Úthlíðinni hefðu
alls ekki trúað því hve ljótt var
um að litast, þrátt fyrir ítarleg-
ar frjettir sem þó bárust. Það
er ekki von að fólk suður í
Reykjavík geri sjer það í hug-
arlund hvernig hjer er um-
horfs úr því að við sveitungarn
ir gátum það ekki.
„Já, mjög er Hlíðin Gunnars
nú . illa farinn“, varð mjer að
orði er við litum heim til Hlíðar
enda.
,Já, sagði frú Lilja. Ætli Gunn
ar hefði snúið aftur, ef þá hefði
verið nýafstaðið Heklugos, er
liann tók sína frægu ákvörðun“.
Innhlíðingar í Fljótshlíð hafa
orðið fyrir þungum búsifjuin,
svo og bændur á nokkrum bæj
um efst á Rangárvöllum. Þetta
ólán hefði eins getað skollið á
öðrum sveitum, ef vindur hefði
staðið öðruvísi þann morgunn
er Ilekla spúði sinni eyðilegg-
ingu, þess verða landsmenn nú
að minnast og leggjast alíir á
eitt, að hjálpa til að græða og
hlúa að hinni frjósömu og fall-
egu sveit á ný. Aðstoða bændur
við að bjarga búpeningi sínum
og hjálpa á alla lund, sem hægt
er.
FiiHm mínúina krossgáfan
SKÝRINGAR:
Lárjett: 1. Litar — 6 heppni —
8 Refur — 10 á litinn — 12
sköllóttur — 14 tveir hljóðstaf
ir — 15 fangamark — 16 vesal
ingur — 18 guð.
Lóðrjett: 2 sund — 3 hvíli —
4 lykta — 5 vísa á bug — 7
hátíð — 9 ekki til í ensku —
11 kvenmannsnafn — 13 sofa
—- 16 tveir samhljóðar — 17
kvæði. _______
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: 1 volga — 6 PRE — 8
Lóa — 10 ráf — 12 jólatrje —
14 Ó, Ó. —■ 15 at — 16 ÁAR —•
18 aursvað.
Lóðrjett: 2 Opal — 3 L. R. — 4
gert — 5 hljóða — 7 ófjetið —
9 Ó. Ó. Ó. — 11 ára — 13 Alas
— 16 ÁR. 17 R. V.
— Fljófshlíðin gelur
bjargad
Framh. af bls. 11
engin jörð sem fyrir því hefir
orðið, á að fara í eyði. f stað
þess er eitt af því, sem gera
ber Hlíðar-bændum til hags-
bóta að lengja akveginn inn
Hlíðina, þegar á sumri kom-
anda, inn að Barkarstöðum
eða jafnvel lengra. Það er að
stefna til sigurs og framtíð-
arfarsældar fyrir þessa fögru
og góðu bygð og sæmir
betur en uppgjöf og vonleysi.
Á. G. E.