Morgunblaðið - 09.04.1947, Qupperneq 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
AÐ HORFA A HRAUN RENNA
Hvass suðaustan. — Rigning
með köflum.
Miðvikudagur 9. apríl 1947
Vikur og öskufallið í FljótshlíS
Hluti af túninu á Eyvindarmúla í Fljótshlíð. Sje: t greinilega á myndinni hvernig alt er hulið vkri
og ösku kringum bæinn og upp eftir hlíð fjallsins. Myndin var tekin í fyrradag. — Grein um
ferðalagið í Fljótshlíð á blaðsíðu 7.
Allir Bandaríkjahermenn
farnir frá Islandi
KLUKKAN 21,17 í gærkveldi vorú síðustu Bandaríkjaher-
mennirnir, sem dvalist hafa hjer á landi lagðir af stað til föður-
lands síns. — Klukkan 15 í gær kom ameríska herflutningaskip-
ið Edmund B. Alexander til Keflavíkur. Voru hermennirnir
fluttir út í skipið með m.b. Fanney, og klukkan 20 var skipið
ferðbúið og lagði af stað áleiðis til Bandaríkjanna — Með
nokkrum hermannanna fóru íslenskar konur þeirra, en alls fór
hjeðan með skipinu 361 maður. Eftir voru 20 hermenn, en þeir
lögðu af stað til Bandaríkjanna með flugvjel kl. 21,17.
<S> ---------------------------
Áma frá Múla
minst á Alþingi
ALÞINGI kom saman í gær
eftir páskaleyfið. Jón Pálma-
son, forseti sameinaðs Alþingis
minntist andláts Árna Jónsson-
ar frá Múla, fyrrverandi al-
þingismanns.
Árni sat tvívegis á Alþingi.
í fyrra skiptið 1924—27 (2. þm.
N.-Mýlinga) og í síðara skiptið
1937—42 (landskjörinn þm.).
Alþingismenn vottuðu minn-
ingu hins látna virðingu sína
með því að rísa úr sætum.
Togarafjelag stofnað
í Styfckishólmi
Stykkishólmi, þriðjudag.
Frá frjettaritara vorum.
FUNDUR var haldinn til
stofnunar togarafjelags í Stykk
ishólmi miðvikudaginn 2. april
s.l. Samþykt voru lög fyrir íje-
lagið, og var því valið nafnið
„Búðarnes h.f.“. Bráðabirgða-
stjórn var kosin, og hlutu kosn-
ingu: Sigurður Ágústsson, Krist
ján Bjartmars, Sigurður Stein-
þórsson, Jóhann Rafnsson og
Haraldur Ágústsson. í vara-
stjórn voru kosnir: Kristmann
Jóhannesson og Ólafur Einars-
son. Stjórninni var falið að
ganga frá kaupum á togaranum
Viðey, sem fjelaginu hefur boð
ist til kaups.
Eldur í m.b. Freyfaxa
Maður meðvitundar-
laus vegna reykjar-
svælu.
SLÖKKVILIÐIÐ var nokkr-
um sinnum kvatt á vettvang
um hátíðarnar, en aldrei var þó
um neinn verulegan bruna að
ræða.
Klukkan langt gengin fjögur
aðfaranótt annars páskadags
var slökkviliðið kvatt að vjei-
bátnum Freyfaxa frá Neskaup-
stað, en hann lá við Ægisgarð.
Hafði eldur komið upp í eld-
húsi bátsins og læst sig þaðan
niður í káetuna. Slökkviliðinu
tókst fljótlega að slökkva eld-
inn, en skemdir urðu talsverð-
ar. í káetunni svaf maður, sera
orðinn var meðvitundariaus
vegna reykjarsvælu. Var hann
fluttur í Landsspítalann, og
varð hann brátt lífgaður.
Um eittleytið í gærdag kom
upp eldur í bragga við Háloga-
land. Var verið að innrjetta
hann til íbúðar. Slökkviliðinu
tókst brátt að vinna bug á eld-
inum, en mest alt var þá brunn
ið innan úr bragganum.
Rjett fyrir fjögur á föstudag-
inn langa var slökkviliðið kvatt
til þess að slökkva eld, sem
komið hafði upp í bragga á
Reykjavíkurflugvelli. Bragginn
brann að mestu, en ekkert fjc -
mætt var þar geymt.
Klukkan hálfníu á föstudags-
kvöldið var slökkviliðið kvatt
að Veghúsastíg 3, en þar hafði
eldur komið upp í einu her-
bergi. Búið var að slökkva eld-
inn, er slökkviliðið kom. Kvikn
að hafði í út frá rafmagns-
lampa. Skemdir urðt. litlar.
21,329 smálestir.
Skipið, sem flutti hermenn-
ina, er 21,329 brúttósmálestir
að stærð. Skipið var eitt að
bestu farþegaskipum Bandaríkj
anna, smíðað í Belfast
1905. Á stríðsárunum var skipið
notað til flutninga milli Evrópu
og Bándaríkjanna, en var síðan
breytt til flutninga á konum og
börnum Bandaríkjahermanna.
Hefir skipið reynst mjög • vel
til þeirra nota, og getur það
flutt 700 fullorðna og 200 börn.
Flutti fyrstu hermennina
hingað.
Skipstjórinn á Edmund B.
Alexander heitir E. T. Cline.
Hann var áður skipstjóri á
„American Legion", en það
skip kom með fyrstu Bandaríkja
hermennina hingað til lands
1941. Og svo einkennilega vill
til, að þessi sami maður stjórn-
ar skipinu, sepi flytur brott síð-
ustu Bandaríkjahermennina
hjeðan.
Sá Gullfoss í Kiel.
Með skipinu var einnig capt.
Wilhelm Johnsen, sem fæddur
er í Þórshöfn í Færeyjum. Hann
kom hingað til lands í septem-
ber 1941 og dvaldist hjer í rúm-
an mánuð. Skömmu eftir styrj-
aldarlok fór hann til Kiel, og
eitt af því fyrsta, sem hann sá
þar, var bláhvítur reykháfur,
og þar í borg reyndist „Gull-
foss“ gamli geymdur. Johnsen
harmaði það að geta ekki haft
hjer lengri viðdvöl, en bað að
heilsa öllum kunningum sínum
hjer, einkum, starfsmönnum við
Reykjavíkurhöfn og þá ekki
síst Sigurði Pjeturssyni, starfs-
manni hjá Eimskip.
20 með flugvjel.
Er herflutningaskipið var
farið voru eftir 20 hermenn, en
þeir fóru með C-54 flugvjel
frá Keflavíkurflugvelli, og var
hún komin á loft kl. 21,17.
Samkvæmt samkomulagi.
í flugvallarsamningnum var
svó tilskilið, að allir Banda-
ríkjahermenn skyldu farnir
hjeðan af landi 5. apríl. En
vegna þess, að herflutninga-
skipinu seinkaði gat það ekki
orðið. Af hálfu íslensku ríkis-
stjórnarinnar var þessi ástæða
tekin til greina, en það skil-
yrði sett, að hermennirnir færu
ekki út fyrir stöðvarnar á Kefla
víkurflugvelli.
Matvælaásfandið
veldur auknum
erfiðleikum í
Þýskalandi
Berlín í gærkveldi.
SAMKVÆMT upplýsingum
þýskrar frjettastofu, hefir dr.
Hans Schlange-Schoeningen,
yfirmaður matvælaeftirlits-
nefndarinnar á bresk-banda-
ríska hernámssvæðinu, tjáð
blaðamönnum, að matvæla-
ástandið í Þýskalandi sje nú
orðið svo slæmt, að svo kunni
að fara, að Þjóðverjar missi
stjórn á skapsmunum sínum og
grípi til einhverra örþrifaráða.
Schlange-Schoeningen bætti
því við, að megnið af matvæl-
um Þjóðverja yrði að flytjast
erlendis frá, og að hvorki hann
nje starfsbræður sínir gætu að
því gert, þótt kornsendingar
kæmu ekki, því þeir hefðu eng-
in áhrif á ákvarðanir banda-
inanna um matvælainnflutning.
SS-sveifirnar voru
„ríki í ríkinu"
Frankfurt í gærkveldi.
í RÆÐU, sem James Mc-
Haney, ákærandi Bandaríkja-
manna í Nurnberg, flutti í dag,
er rjettarhöld hófust í máli
Oswald Pohl SS-hershöfðingja,
sagði hann meðal annars, að
nú væri í fyrsta sinn verið að
taka fyrir mál manna, sem, sem
leiðtogar SS-stofnunarinnar,
hefðu tilheyrt hreyfingu, sem
alþjóðadómstólar hefðu dæmt
glæpsamlegar. Hann sagði, að
SS-hreyfingin hefði í raun og
veru verið ríki í ríkinu.
Pohl var skipaður yfirmaður
fjárhagsdeildar SS-sveitanna
20. apríl 1939. — Reuter.
— Blaðsíða 9.
Margir á skíðum um
páskana
MIKILL fjöldi Reykvíki
inga naut páskasólarinnar á
fjöllum. Þjettskipað í .öllum
skíðaskálum yfir hátíðina, og!
auk þess fóru mjög margii’
á skíði dag og dag, þótt ekkl
dveldust þeir næturlangt í
skíðaskálanum. Annars munu
Heklueldar hafa dregið nokk
uð úr skíðaferðum, en til
Heklu fór daglega mikill
fjöldi manna hjeðan úr bæn-<
um. Skíðafærið mátti heita
allgott. Tveir menn munu
hafa fótbrotnað, annar við
Skíðaskálann, en hinn við
Kolviðarhól. Voru þeir fluttir
til bæjarins í sjúkrabifreið-
um. Um önnur veruleg meiðslf
er blaðinu ekki kunnugt. —*
Á föstudaginn langa flutti
sjera Sveinn Víkingur messu
að Kolviðarhóli, en sjera Ja-
kob Jónsson í Skíðaskálanum,
á páskadagsmorgun. Var
margt fólk viðstatt þessar,
guðsþjónustur.
I
Afmælisfagnaður
Hvafar á laugardag
SJÁLFSTÆÐISKVENNA-.
FJELAGIÐ Hvöt heldur af-
mælisfagnað sinn í Sjálfstæðj
ishúsinu laugardaginn 12,
apríl og hefst hófið með sam-
eiginlegu borðhaldi kl. 7,30,
Verða þar fluttar ræður, sung
ið og dansað. Að þessu sinnii
geta konurnar boðið mönnum;
sínum með sjer, en það ei'
annars ekki venja á skemt-
unum Hvatar, að karlmenn
fái þar inngöngu. Ýmg
skemtiatriði verða á hófinu.
Það þarf ekki að efa a$
þetta verður skemtilegt hóf,
því Hvatarkonur munu und-
irbúa það vel, eins og annað,
sem þær taka sjer fyrir hend
ur. Er þess og vænst að Hvati
arkonur fjöimenni á hófið til
þess að gera afmælishátíðina,
sem allra glæsilegasta.
Alþingi tók aflur fil
starfa í gær
ÞRJÚ stjórnarfrumvörp voru
tekin til umræðu í gær, á fyrsta
þingfundinum eftir páskaleyf-
ið.
í Nd. var frv. um inngöngu
íslands í Bernarsambandið til
1. umr.
Eysteinn Jónsson mennta-
málaráðherra fylgdi því úr
hlaði með nokkrum orðum.
Fleiri tóku ekki til máls og var
frv. vísað samhljóða til 2. umr.
og menntamálanefndar.
í Ed. voru frumvörpin urrí
breytingar á lögum um flug-
velli (stofnun flugráðsins) og
um innkaupastofnun ríkisins til
1. umr., og fóru umræðulaust til
2. umr. og nefrrtia.
Búnaðarmálasjóðurinn var nú
loks afgr. til Nd. með 8:4 at-
kvæðum.
Fær nú Nd. þetta mikla deilu
mál til meðferðar, en hún hefir
áður vísað frá frumvarpi svip-
aðs efnis.