Morgunblaðið - 12.07.1947, Blaðsíða 1
i
i
34. árgangur 153. tbl. — Laugardagur 12. júlí 1947. Íiaíoldarprentsmiðja h.f.
Sextán ríki senda fulltrúa til París
Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. i
DANSKA BLAÐID „Eerlina-
ske Tidende“ segir, sð enn hafi
ekki náust neitt samkomulag í i
viðræðum Dana og Færeyinga.!
Samningamenn Færeyinga, scm J
höfðn ætlað sjer að leggja af j
stað heim á rnorgun (laugard.), |
hafa nú ákvcðið að fresta brott-!
förinni. —
Aðiljunum ber enn mjög mik-
ið í milli, og er ríkjandi ósam-
komulag um mörg atriði. Segir
blaðið, að það, hve seint viðræð-
urnar gangi, sje ekki hvað síst
því að kenna, hve mikið ósam-
komulag sje ríkjandi meðal Fær
eyinganna innbyrðis um ýms
veruleg atriði.
MiSjósi Kínverjar
aðframkomnir al
hungri
Chungking í gærkvöldi.
SÍÐUSTU athuganir hafa leitt
það í ljós, að um milljón menn
í Kína munu vera aðframkomn-
ir af hungri. Verst er ástandið
í hjeruðunum fyrir norðan
Hongkong, í Mið-Kína og út til
norðausturstrandarinnar. — 1
Hunan-hjeraði í Mið-Kína einu
saman er talið, að um 100 þús-
und menn sjeu að verða hung-
urmorða. — Reuter.
Kínverjar mótmæla
rússneskri íhlutun
Chungking í gærkvöldi.
TALSMAÐUR kínverska ut-
anríkisráðuneytisins skýrði
blaðamönnum svo frá í dag, að
kínverska stjórnin hefði sent
rússnesku ráðstjórninni mót-
mæli vegna íhlutunar Rússa í
oroustum þeim, sem geisuðu
milli stjórnarherjanna og her-
sveita kommúnista í norðvestur-
landamærahjeruðum Kína nú
fyrir skömmu. Veittu Rússar
kommúnistum þar hernaðarlega
aðstoð frá bækistöðvum í Ytri-
Mongólíu. Meðal annars tóku
margar flugvjelar úr rússneska
lofthernum þátt í orustunum. í
mótmælaskjali sínu krefst kín-
verska stjórnin þess, að mönn-
um þeim, sem ábyrgð beri á
þessari íhlutun, verði refsað og
jafnframt verði bætt það tjón,
sem orðið hafi við þessar að-
gerðir, —- Reuter.
kM c! Krim í Egypfalandi
Abd el Krim, fyrrverandi leiðtogi Riff-flokksins svonefnda, er
nú aftur kominn til Egyptalands, en hann hefir síðustu 20 árin
verið fangi á eynni Reunion. Sjest hann til hægri á myndinni
í viðræðum við Nokrashi Pasha, utanríkisráðherra Egyptalands.
Horfur á lausn
franska verkfallsins
Opinberir siarfsmenn leggja fram
miðlunarlillögu
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
STANSLAUSAR viðræður og samningaumleitanir hafa
farið fram í París í dag í því skyni að koma í veg fyrir verk-
fall 1200 þúsund opinberra starfsmanna, sem hóta að leggja
niður vinnu á þriðjudaginn, ef ekki hefur verið gengið að
kauphækkunarkröfum þeirra fyrir þann tima.
Ríkisstjórnin hefur þegar lagt*
fram eitt tilboð, en því var ein-
dregið hafnað af starfsmönnun-
um. Ilinsvegar lögðu þeir í
kvöld gagntilboð fyrir stjórnina,
og eru menn ekki vonlausir um,
að takast megi að samræma það
fyrsta tilboði stjórnarinnar,
þannig að sættir fáist í deilunni.
Enda er lögð á það megin-
áhersla að leysa deiluna, því að
opinberar stjórnarframkvæmd-
ir færu vitanlega á ringulreið, ef
allur þessi fjöldi opinberra
starfsmanna legöi niöur vinnu,
enda þótt ekki væri nema urn
skamman tíma.
VERULEG
ÚTGJALDAAUKNING.
Ef sættir takast í deilunni
samkvæmt hinum nýju miðl-
unartillögum mun kauphækkun
starfsmanna hafa í för með
sjer útgjaldaaukningu fyrir rík-
issjóð, sem á síðustu sex mán-
uðum þessa árs mun nema 21
þús. milljón frönskum, en 4 þús.
milljónum á fyrri helmingi
næsta árs.
Flugvjel forsetans
til Grikklands.
WASHINGTON: Hin nýja flug-
vjel Trumans forseta, mun fara í
fyrsta opinbera flug sitt næst-
komandi sunudag. Flýgur hún-til
Grikklands með Dwig'ht P. Gris-
wold, yfirmann nefndar þeirrar,
sem skipuð hefur verið í sambandi
við aðstoð Bandaríkjamanna við
Grikki.
Ráðstefnan um
viðreisnartillögur
IMarshalls hefst í dag
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÖLL Austur-Evrópuríkin hafa nú hafnað boði Breta og
Frakka um þátttöku í Parisarráðstefnunni um viðreisnartill.
Marshalls. Finska stjórnin tilkynti að loknum sjerstökum
fundi sínum í dag, að hún myndi hafna boðinu. Það verða því
16 ríki, sem taka þátt í ráðstefnunni, sem hefst í dag ,en 8
ríki hafa hafnað þátttökuboði.
Pjstur Benediktsson
fulítrúi íslands á
Parísarráðstefnunni.
PJETUR Benediktsson sendi-
herra íslands í París verður full
trúi íslands á Parísarráðstefnu
Evrópulandanna um Marshall
tillögurnar, sem hefst í París
í dag.
Vilja ekki lála
sprengja upp verk
smiðjurnar
Berlín í gær.
ÍBÚARNIR í Essen hafa far-
ið fram á það að fá senda full-
trúa á fund Eholto Douglas, yfir
manns bresku hersveitanna í
Þýskalandi, sökum þess að þeir
óttast, að heryfirvöldin kunni
að láta sprengja Krupp-verk-
smiðjurnar í loft upp.
Bandamenn hafa komið sjer
saman um eyðileggingu verk-
smiðjanna, og Þjóðverjar eru
því ekki andvígir, en óttast hins
vegar, að verði þær ekki rifnar,
heldur sprengdar í loft upp,
muni geysimikið verðmæti af
mursteinum og stáli ónýtast.
Eyðileggingu hergagnaverk-
smiðja í Þýskalandi á að vera
lokið fyrir júní næsta ár.
— Reuter.
Egyplar afhenda
kæru sína
New York í gærkvöldi.
HASSAN PASHA, sendiherra
Egypta í Washington, hefur af-
hent Sameinuðu þjóðunum kæru
þjóðar sinnar á hendur Bretum,
þar sem kvartað er yfir þrásetu
breskra herja í Egyptalandi. í
kærunni er þess krafist, að ör-
yggisráðið hlutist til um það, að
breskar hersveitir, sem hafist
við í Nílardalnum bæði í Egypta
landi og Sudan, hverfi þegar
burt. — Reuter.
Kúgaðir af Rússum.
Astley Hawkins, frjettaritari
Reuters í Prag, segir að stjórn-
málaerindrekar vesturveld-
anna þar í borg hafi látið í ljós
mikil vonbrigði vegna þeirrar
ráðstöfunar tjekknesku stjórn-
arinnar að breyta þeirri ákvörð
un sinni að taka þátt í París-
arráðstefnunni. Eru fregnritar-
ar yfirleitt þeirrar skoðunar,
að stjórninni muni veitast erf-
itt að rökstyðja þessa stefnu-
breytingu sína. En eðlilega líti
allur heimurinn svo á, að þetta
hafi gerst samkvæmt fyrir-
skipunum frá Moskva.
Moskvaútvarpið fljótt til.
Það var ekki fyrr en í gær-
kvöldi (fimtudag), að tjekk-
neska stjórnin tilkynti ákvörð
un sína, en stjórnmálafregnrit-
urum í Prag var vel kunnugt
um, að tjekkneska utanríkis-
ráðuneytið vissi, hvað koma
skyldi snemma í gærdag. Og
það sem benti einna greinileg-
ast á það, var að Moskvaút-
varpið talaði um það sem sjálf-
sagðan hlut um miðjan dag í
gær. Og eftirtektarvert er það,
að töluvert áður en finnska
stjórnin tilkynnti ákvörðun
sína, hafði Moskvaútvarpið svo
gott sem fullyrt, að Finnar-
myndu ekki taka þátt í ráð-
stefnunni.
Bevin vongóður.
Fulltrúar þeirra sextán
þjóða, sem þátt taka í ráðstefn
unni, eru nú flestir komnir til
París, þar á meðal Ernest Be-
vin, utanríkisráðherra, sem
verður í fyrirsvari fyrir bresku
fulltrúaná. Áður en hann lagði
af stað frá London, ræddi hann
við blaðamenn. Var hann þá
spurður um, hverjar vonir
hann gerði sjer um ráðstefn-
una. „Jeg er vongóður. Annars
myndi jeg ekki fara“, svaraði
Bevin.
Bcvin í forsæti?
Fregnritarar telja líklegt, að
Bidault, utanríkisráðherra
Frakka, muni leggja það til, að
Bevin verði kjörinn forseti
ráðstefnuntiar.