Morgunblaðið - 12.07.1947, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 11. júlí 1947,"]
Grænlandsleiðangur styrktur
með sölu amerískra sígaretta
í Danmörku
HINN mikli leiðangur þeirra
Eigils Knuth greifa og Ebbe
Munck, sem nú ér á leið til
Grænlands, er að nokkru leyti
styrktur fjárhagslega með sölu
á amerískum sígarettum, sem
keyptar voru fyrir samskotafje
dansk-Ameríkana í Bandaríkj
unum og seldar eru fyrir 5 kr.
pakkinn í Danmörku. Er búist
við að af þessari sígarettusölu
íáist um 500,000 krónur. —
iNokkrir leiðangursmenn eru
nú staddir hjer í Reykjavík og
á Akureyri.
Ætla til nyrsta lands í heimi.
■ Annar foringi leiðangursins,
Eigil Knuth greifi hefur verið
ihjer í Reykjavík undanfarna
daga. í gærmorgun hitti jeg
hann og bað hann að segja frá
fyrirætlunum og undirbúningi
þessa leiðangurs.
Knuth greifi sagði, að ætl-
•unin væri að kanna Pearyland,
uem er nyrst á Grænlandi og
það land, sem liggur næst
Norðurpólnum. I sumar verður
aðeins um undirbúningsstarf-
semi að ræða, en fyrirhugað
er að leggja upp á ný næsta
sumar og hafa þá tveggja ára
dvöl á þessu nyrsta landi hnatt
arins.
Að þessu sinni hafa leiðang-
ursmenn yfir að ráða tveimur
skipum, gamla Grænlandsfar-
inu ,,Godthaab“ og skonnort-
unni ,,Gamma“, ásamt einni
Catalinaflugvjel. Alls taka
50 manns þátt í leiðangrinum
í sumar og þar af eru 14 vís-
indamenn, jarðfræðingar, dýra
fræðingar, landafræðingar, út-
varpsfræðingar og fornfræðing
ar. Auk þess er með í förinni
reyndur kvikmyndatökumaður.
Rannsóknir byrjuSu fyrir stríð.
Þeir Eigil Knuth og Ebbe
Munck hófu rannsóknir sínar
og undirbúning að Peary-lands
förinni með leiðangri 1938—’39.
Vegna stríðsins urðu þeir að
hætta rannsóknum sínum og
komu þeir við hjer í Reykja-
vík á heimleið frá Grænlandi
stuttu eftir að styrjöldin braust
út 1939.
Peary-land er lítt rannsakað
ennþá og telja vísindamenn að
mikið verkefni bíði þeirra, ef
þeim gengur vel að koma sjer
fyrir norður þar, og geta á
þessu sumri komið sjer upp
stöðvum, eins og ætlun þeirra
er.
jÞað, sem gera á í sumar.
Um fyrirætlanir leiðangurs-
manna á þessu sumri, sagði
Knuth þetta:
„Fyrir nokkrum dögum
komu sumir leiðangursmann-
anna hingað til lands með Cata
linaflugvjelinni, sem danski
flotinn hefir lagt leiðangrinum
til með sjö manna áhöfn. Að-
alflugmaður er Overbye kap-
téirtn, sem oft hefur komið til
íslands áður og er einnig kunn-
ugur á Grænlandi. í gær var
búist við leiðangursskipunum
„Gotdhaab" og „Gamma“ til
Leiðangursmenn sem
ætla til nyrsta lands
í heimi staddir í
Reykjavík
* rv; -
ÞETTA eru tvær af þeim sex Catalínaflugvjelum, sem Danir
keypíu í Bandaríkjunum. Tvær þeirra verða við Grænland í
sumar, önnur í Pearylands-Ieiðangrinum en hin við vestur-
ströndina. Sú þriðja verður til vara. Þessi naynd var tekin er
vjelarnar komu til flughafnar danska flotans frá Ameríku fyrir
skömmu.
Akureyrar. Flugvjelin mun
fljúga á undan skipunum til
austurstrandar Grænlands til
að leita að íslausri leið fyrir
þau. Munu skipin annað hvort
sigla meðfram Austurströnd
Grænlands, ef þar er íslaust,
eða fara norður fyrir ísspöng-
ina, ef það er hægt. — Reynt
verður að komast til Lock
Fyne og þar höfð aðalbækistöð,
en síðan flogið norður til Peary
lands og leiðangursmenn settir
þar á land, ef gerlegt reynist.
Búist er við að snúið verði
heim aftur í september.
50 þúsund lítrar af bensíni
og tilbúin hús.
Auk vista hafa leiðangurs-
skipin meðferðis 50,000 lítra af
bensíni og tilbúin hús, sem
reynt verður að reisa norður
á Pearylandi til notkunar á
næstu tveimur árum, er leið-
angurinn hefir vetursetu í
Pearylandi.
Knuth tók það fram, að óvíst
væri að l'eiðangursmenn gætu
framkvæmt allar sínar fyrir-
ætlanir á þessu sumri. •— Það
færi allt eftir veðri og hvernig
ísinn lægi. Mikilsvirði er og
hvað skipin komast norðarlega
í sumar. Engin skip hafa farið
norðar en til norsku eyjanna,
sem eru 79. breiddargráðu, en
þangað er ferðinni heitið nú,
ef mögulegt er.
Leiðangurinn kostar 1.5 miljón
krónur.
Áætlað er að þessi leiðangur
muni kosta um 1,5 milj. kr.
og er það einhver allra stærsti
leiðangur, sem Danir hafa gert
út til Grænlands. — Danska
stjórnin styrkir leiðangurinn
með fjárframlögum og hefir
veitt 500,000 krónur til hans.
— Einnig leggur hún til skipin
og áhöfn þeirra.
^ITálf miljón krónur fást með
sígarettusölunni, sem fyr grein
ir. Tvö önnur fyrirtæki í Dan-
mörku hafa fengið leyfi til að
afla sjer fjár á þenna hátt,
Rauði krossinn og „Red Barn-
et“. Amerískar sígarettur eru
ófáanlegar í Danmörku, nema
á þenna hátt, en eru svo eftir-
sóttar, að menn kaupa þær fyr
ir 5 krónur pakkann og ganga
þær vel út.
„Dansk Ekspeditions Fond“
leggur einnig fje til leiðangurs
ins, en sú stofnun styrkir einn-
ig aðra danska vísindaleiðangra
t. d. til Mongólíu, hafrann-
sóknir og þess háttar.
Eigil Knuth er vel kunnugur
hjer á landi. Hann flaug í gær
til Akureyrar til þess að taka
á móti leiðangursskipunum, en
með þeim er hinn foringi leið-
angursins, Ebbe Munck. Þeir
búast við að koma hingað til
lands á heimleiðinni í sept-
ember. j
Egyptar undirbúa
málssókn sína
Cairo í gærkvöldi.
IÐNAÐAR- og viðskiptamála
ráðherra Egyptalands er farinn
til New York til þess að undir-
búa málflutning Egypta í ör-
yggisráðinu í sambandi við kæru
þeirra á hendur Bretum fyrir
þrásetu þeirra í Egyptalandi. —
Síðar mun egyptski forsætisráð-
herrann, Nokrashi Pasha, einn-
ig fara til New York, en hann
verður aðaltalsmaður Egypta í
öryggisráðinu, er málið verður
tekið fyrir þar. — Reuter.
Fræmkvæmdastjórastaðá
Framkvæmdastjórastaðan við Hraðfrystihús Grund
arfjarðar h.f. er laus til umsóknar. Þeir sem hefðu
hug á að sækja um þenna starfa, snúi sjer til Lúðvíks
Kristjánssonar_, Fiskifjelagi Islands, er veitir allar
nauðsynlegar upplýsingar.
FERÐIR
verða frá
Bifröst
á sunnudag á Þjórsármótið kl. 10 f. h. og á Ferju-
kotsmótið kl. 8 f. h. — Farseðlar»seldir á laugardag á
BIFRÖST.
Stúlku
vantar á HÓTEL BORG. Upplýsing-
ar á skrifstofunni.
IMæturvörður:
Röskur maður getur fengið atvinnu
við næturvörslu. Ljett störf.
Upplýsingar á skrifstofunni.
^JIótei IHorcý
%
Timbu
Útvegum allskonar timbur frá Svíþjóð með stuttum
afgreiðslufresti.
gj, IAÓ /,/
Garðastræti 8. — Sími 5592.
IVIatreiðslukona
Dugleg og fær matreiðslukona óskast á veitingahús <$<
í 2—3 mánuði. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Matreiðslu
kona“, fyrir 20. þ.m.
|5 til 6 herbergja íbii
óskast nú þegar eða síðar í haust, til kaups eða leigu
Verður að vera nálægt miðbænum. Tilboð merkt:
„5 til 6 herbergi“ sendist Morgunblaðinu fyrir n.k. |j
miðvikudagskvöld.
Mótorbátur
|| 22ja tonna með nýrri dieselvjel og í mjög góðu
standi til sölu. Einnig er til sölu á sama stað 3 ljett-
bátar (jullur) sjerlega hentugir sem vatnabátar.
Listhafendur sendi nöfn sín á afgreiðslu blaðsins
fyrir mánudagskvöld merkt: „Mótorbátur".