Morgunblaðið - 12.07.1947, Blaðsíða 11
Laugardagur 11. júlí 1947.
MORGUNBLAÐIÐ
11
— Minningarerð
Framh. af hls. 8
Stórt er skarðið orðið og
vandfyllt hjá söfnuðum sjera
B. M., þótt sársaukinn sje eðli-
lega mestur hjá ástvinum
hans.
Leiðbeiningarorð við æsku-
•menn, huggunarorð á sorgar-
heimilum og vitnisburður hans
‘am Krist í kirkjunum rifjast
nú vafalaust upp í hugum safn
aðanna hans. Mundi fátt gleðja
sjera B. M. meira en ef hann
nætti sjá mikinn árangur af
jóeim minningum.
Hann unni fólkinu og hjerað
inu og rækti vel tímafrek trún-
aðarstörf, sem honum voru fal-
in, og leitaði ekki brott, þótt
landslagið væri ærið ólíkt
a '.ustöðvum hans í Dalasýslu.
mheill var hann oft síðustu
á 'i- Ágerðist sú vanheilsa
se'.m.i part liðins vetrar. All-
lc íg sjúkrahúsvist og síðast
uppskurður gat ekki bjargað
lí:U hans. 3. júlí andaðist hann
og í dag verður líkami hans
ja-Öaður.
Sr. Brynjólfur fæddist 20.
feor. 1881 að Nýjubúðum í
Eyrarsveit. Foreldrar hans
voí i Magnús Böðvarsson bóndi
þar og kona hans Kristbjörg
Erlcndsdóttir bónda á Litlu-
Hvaisá í Hrútafirði. Hann ólst
upp á Ljárskógum í Dalasýslu,
Jófríður Guðmundsdóttir, syst-
ir Jóns bónda þar, tók hann
ungan alveg að sjer, kostaði
hann síðan til náms og reynd-
ist honum í öllu sem góð móð-
ir. Stúdentspróf tók hann 1905
og guðfræðipróf árið 1908. I.
einkunn fylgdi jafnan, því að
nái sgáfur voru góðar. Kenn-
ari var hann í Rvík 2 vetur,
en vígðist að Stað í Grindavík
26. júní 1910. Hann kvongaðist
1907 Þórunni Þórðardóttur frá
Brekkubæ á Akranesi. Lifir
hún mann sinn.
Frú Þórunn og eina barnið
þeirra, Jófríður Ingibjörg, gift
Kiistjáni Kristjánssyni kaup-
manni í Borgarnesi, hafa mikið
misst, og senda þeim því æði-
margir hlýjar hugsanir um
þessar mundir.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Handiökunum hald-
i áfram í Grikk-
landi
Aþena í gær.
GRÍSKA lögreglan heldur á-
ram að leita að mönnum, sem
,akaðir eru um þátttöku í upp-
;eisn þeirri, sem stjórnarvöldin
segja að hafi verið í undirbún-
ngi. Hafa 2,500 manns þegar
verið handteknir.
Blaðamenn í Washington hafa
spurt Truman forseta, um álit
hans á handtökunum, en hann
neitaði að skýra frá afstöðu
sinni í bráð. Bretar segja, að
gríska stjórnin hafi ekki til-
kynt þeim neitt fyrirfram um
handtökurnar. — Reuter.
Gengur á dollarálániö.
WASHINGTON: — Bretar hafa
nú nýlega tekið enn 150 milljónir
dollara af innstæðu sinni samkv.
lánssamningnum við Bandaríkin.
Hafa þeir nú samtals tekið út 700
milljónir dollara, og er það meira
en búist var við á þessu stigi.
<2^aabóh
192. dagur ársins.
Árdegisflóð kl. 11.30.
Árdegisflóð á morgun kl.
0,20.
Næturlæknir er á Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1616.
Næturakstur annast Bifröst,
sími 1508.
Landbúnaðarsýningin er op-
in milli kl. 2 og 11.
Sýning Nínu Sæmundsson er
opin 10 f. h. til 10 e. h.
MESSUR Á MORGUN:
.Bómkirkjan. Kl. 11. — Sjera
Bjarni Jónsson.
Hallgrímsprestakall. Messað
á morgun kl. 11 f. h. í Austur-
bæjarskólanum. — Sjera Sig-
urjón Árnason.
Nesprestakall. Messað í Mýr-
arhúsaskóla kl. 11 árd. Athygli
skal vakin á breyttum messu-
tíma. — Sjera Jón Thoraren-
sen. —
Laugarnesprestakall. Mess-
að kl. 2 e. h. Sjera Garðar Svav
arsson.
Elliheimilið. Kl. 10 árd. —
Sjera Ragnar Benediktsson.
í kaþólsku kirkjunni í Rvík.
Hámessa kl. 10. í Hafnarfirðii
kl. 9.
Útskálaprestakall.' Messað í
Keflavík kl. 2 og í Innri Njarð-
vík kl. 5. Sjera Björn Magnús-
son.
Kálfatjörn. Messað kl. 2 e.h.
— Sjera Garðar Þorsteinsson.
Þingvallakirkja. Messað kl.
14. — Sjera Hálfdán Helgason.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sjera
Garðari Þorsteinssyni ungfrú
Guðbjörg Magnúsdóttir og
Ágúst Flygering. Heimili ungu
hjónanna verður Hringbraut
Hafnarfirði.
Hjónaband. Gefin voru sam-
an í hjónaband s. 1. fimtudag
af sjera Jóni Thorarensen,
Kristbjörg Arnbjarnardóttir,
Ránargötu 33, og Guðmundúr
Guðmundsson. Heimili þeirra
er á Camp Knox 0 44.
Iljónaband. í dag (laugard.)
verða gefin saman í hjónaband
af sjera Bjarna Jónsyni, ung-
frú Ásta Margrjet Jensdóttir,
Bræðraborgarstíg 23, og Erlend
ur Ólafur Jónsson, Amtmanris-
stíg 6. Heimili ungu hjónanna
verður að Amtmannstíg 6.
Þjórsármótið er á sunnudag.
Ferð verður frá BSR kl. 10 árd.
sama dag.
Frá Slysavarnafjelaginu. —
Aðgefnu tilefni tilkynnist hjer
með, að starfsemi sú, sem rek-
in er nú í Örfirisey er á engan
hátt viðkomandi Slysavarnafje
lagi íslands.
Jónsmessufagnað heldur Fje-
lag Suðurnesjamanna í Nýja
Samkomuhúsinu í Ytri Njarð-
vík, sunnud. 13. júlí. Hefst
skemtunin kl. 3 e. h. Sigríður
Ármann sýnir listdans. Lárus
Ingólfsson syngur gamanvísur.
Jón Thorarensen og Friðrik
Magnússon halda ræður og á
eftir verður dansað fram á
nótt. Bílferð verður frá Bifreiða
stöð Steindórs kl. 1 e. h.
Höfnin. — Komu: Óli Garð-
ar, togari kom í slipp. — Fóru:
Bahan fór til útlanda. Olíu-
skipið British Enterprise fór
til Ameríku. Reykjanes fór til
Englands. Lyngaa fór til út-
landa.
Misritast hefir nafn í aug-
lýsingu í blaðinu í gær, stóð
Sigurbjörn Ármann, átti að
vera Sigbjörn Ármann.
Skipafrjcttir. — (Eimskip):
Brúarfoss er í Kaupm.höfn.
Lagarfoss kom til Rvíkur 10/7.
frá Vestm.eyjum. Selfoss er á
Blönduósi. Fjallfoss kom til
Rvíkur 17/6. frá Hull. Reykja-
foss kom til Gautaborgar frá
Antwerpen 5/7. Salmon Knot
kom til Rvíkur 9/6. frá New
York. True Knot fór til New
York 8/7. til Rvíkur. Becket
Hitch kom til Rvíkur 22/6. frá
New ork. Anne kom til Siglu-
fjarðar 11/7. frá Gautaborg.
Lublin kom til Rvíkur 2/7. frá
Hull. Dísa kom til Gautaborgar
10/7. frá Gravárne. Resistance
er í Leith. Lyngaa fer frá Rvík
11/7. til Antwerpen. Baltraffic
kom til Stettin 5/7. frá Livér-
pool. Skogholt kom til Gauta-
borgar 5/7. frá Lysekil.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30—9.00 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Samsöngur
(plötur).
20.00 Frjettir.
20.30 Tónleikar: Jascha Hei-
fetz leikur á fiðlu (plötur).
20.45 Upplestur: „Kaupsýsla er
kaupsýsla", gamansaga eftir
Paul Lenders (Anna Guð-
mundsdóttir leikkona).
2-1.15 Ljett lög.
21.20 Leikrit: „Háleitur til-
gangur11 eftir Frederick Ferr
is (Valur Gíslason o. fl.).
21.40 Tónleikar: Gömul danslög
22.00 Frjettir.
Fjelagslíf
ÍSl — IBR.
Undanrásir í 100 m. hlaupi á
Reyk j avíkurmeistaramótinu f ara
fram í dag kl. 3 e. h.
Knattspymumót I. flokks heldur
áfram í dag kl. 4.30. Keppa þá
K.R. og Víkingur. — Mótanefndin.
4. flokks mótið: 1 dag kl. 1.15
keppa Fram og Víkingur pg strax
á eftir K. R. og Valur.
Tilkynning
Betanía. — Fórnarsamkoma ann-
að kvöld kl. 8.30. Tryggve Bjerker-
heim ritstjóri frá Noregi talar og
Ólafur Ólafsson kristniboði. — All
ir velkomnir.
SKRIFSTOFA SJÓMANNA-
D4GSRÁÐSINS,
Landsmiðjuhúsinu
tekur á móti gjöfum og áheitum til
Dvalarheimilis Sjómanna. Minnist
látinna vina með minningarspjöld-
um aldraðra sjómanna. Fást á skrif-
stofunni alla virka daga milli kl.
11—12 og milli kl. 13,30—15,30. —
Simi 1680.
Vinna
Útsvars- og skattakærur skrifar
Pjetur Jakabsson, Kárastíg 12. —
mTlum OG RYÐHREINSUM
húsþök. — Uppl. í síma 1327. —
Tek að mjer að
MÁLA OG BIKA ÞÖK.
Hringið í síma 6731.
Kaup-Sala
NOTAÐ KVENHJÓL
til sölu á Laufásvegi 39.
♦♦♦^^^►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦S
Húsnæði
SÓLRÍK STOFA
til leigu vestan við bæinn. Uppl. í
síma 7632.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI — HVER ÞÁ?
»♦♦♦•
Alúðar þakkir öllum þeim er margháttað sæmdu
mig á fimmtugsafmæli mínu.
Kristlnn Hákonarson.
Hjartans þakkir til aUra þeirra, sem með gjöfum,
blómum og heillaskeytum gjörðu mjer sjötugsafmæl-
ið ógleymanlegt.
Guðrún J. Brynjólfsson.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<5
►♦♦♦♦<*
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Hugheilar þakkir til allra sem minntust mín á sex« f
tugsafmælinu, með heimsóknum, heillaskeytum, gjöf
um og blómum og gerðu mjer daginn ógleymanlegan.
Guðrún Ásgeirsdóttir.
©♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Það tilkynnist hjer með ættingjum og vinum að
móðir mín og tengdamóðir
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Sellátrum í Reyðarfirði,
andaðist að heimili okkar Lindargötu 12, 10. þ.m.
Fyrir hönd annara ættingja
Fanny og Magnús Þorsteinsson.
Hjer með tilkynnist að
HELGA JÓNSDÓTTIR frá Sölfhól,
andaðist að heimili sínu þann 10. þ.m.
Jón Steingrímsson.
MARGRJET JÓNSDÓTTIR
frá Isafirði andaðist á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði
10. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda
Margrjet Guðmundsdóttir.
Jarðarför ekkjunnar
HALLDÓRU TÓMASDÓTTUR
fer fram mánud. 14. júlí og hefst með húskveðju að
heimili mínu Sólbakka, Sandgerði kl. 1. Jarðað verður
í Keflavík kl. 2,30.
Fyrir hönd vina og vandamanna
Gunnlaugur Jósefsson.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
áttu við fráfall og jarðarför
ÖNNU SIGURÐARDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda
Agnar Sigurðsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför konunnar minnar og móður okkar.
Matthías Finhbogason og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu
við andlát og jarðarför móður okkar,
GUÐRUNAR PÁLSDÓTTUR frá Isafirði.
Helga Sigtryggsdóttir, Pálína Sigtryggsdóttir,
Sigrún Sigtryggsdóttir, Haukur Sigtryggsson.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall
og jarðarför
HÖGNA HÖGNASONAR frá Vík.
Aðstandendur.
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför
BJARNA JÓHANNESSONAR, Sýruparti.
Aðstandendur.