Morgunblaðið - 12.07.1947, Side 12
Veðurútlitið. — (Faxaflói):
SA-goIa eða kaldi. — Víðast
úrkoroulaust.
0t§M
IÞROTTAHATIÐ Finnlands.
— Sjá grein Maj-Lis Holmberg
á bls. 7.
153. tbl. — Laugardagur 12. júlí 1947.
Norrænir úivarps-
frjeilamenn
á íslandi
HINGAÐ til lands eru komn-
ir á vegum Ríkisútvarpsins
nokkrir tíðindamenn frá Norð-
urlöndunum, nema Danmörku.
Frá Finnlandi Lektor Vilhelm
Eilliacur frá finska útvarpinu,
frá norska útvarpinu Karl C.
Lyche, ritstjóri, frá sænska út-
varpinu Olov Forsén aðalritstj.
og aðstoðarmenn hans Brandhill
og Ivarsson. Menn þessir hafa
með sjer svonefndan upptöku-
vagn, þar sem komið er fyrir
upptökutækjum, og ætla þeir að
ferðast um landið þenr.an mán-
uð til þess að kynna sjer hætti
lands og þjóðar og safna frjetta-
efni og frásögnum, er þeir við
heimkomu munu nota til kynn-
ingar í útvarpi landanna. Ríkis-
útvarpið leggur þeim til leið-
sögumann, Jón Magnúss. frjetta-y,
stjóra, og greiðir för þeirra að
öðru leyti eftir föngum. Um
þessar mundir kynna þeir sjer
landbúnaðarsýninguna, en fara
á morgun í för um Suðurland.
Að þeirri för lokinni munu þeir
kynna sjer ýmsar stofnanir í
Reykjavík, verða viðstaddir
Snorrahátíðina í Reykholti og
fara að því búnu í fÖr um Norð-
urland.
Gert er ráð fyrir, að þann 23.
þ. m. komi frá danska útvarp-
inu í sömu erindum Aksel Dahl-
erup deildarstjóri ásamt J. Calle
sen símaeftirlitsmanni og öðrum
aðstoðarmanni ónefndum.
Sferkir rönfgengeisiar
Norðmenn unnu
Dani í frjálsíþrcita
keppni
NÝLEGA fór fram frjáls-
íþróttakeppni milli Danmerk-
ur og Noregs, og vann Nor-
egur með 117 stigum gegri 89.
Bestu árangrar, sem náðust
á mótinu voru þessir:
100 m: — 1. P. Bloch, Nor-
egi 10,9, 2. S. Fallesen, Dan-
mörku, 11,0. Norðmaðurinn
Tranberg var 4. á 11,2.
400 m: — 1. N. Holst-Sören-
sen, D, 48,9, 2. B. Vade, N. 49,3.
1500 m: — 1. K. Vefling, N.
3,55,2. 2. A. Poulsen, D. 3,56,8.
Spjótkast: — 1. J. Hansen,
D. 62,83 m. 2. E. Röberg, N.,
59,87 m.
4X100 m: — 1. Noregur 42,7
og 2. Danmörk á sama tíma.
Þrístökk: — 1. E. Haugland,
N. 14,55 m. 2. Preben Larsen,
D. 14,28.
400 m. grind: — 1. O. Op-
sahl, N., 55,5 og 2. A. Ras-
xnussen, D. 55,8.
Sleggja: — 1. P. Cderquist,
D. 50,07 og 2. A. Borring, D.
46.93 m.
Hástökk: —• 1. B. Leirud,
N., 1.93 m. og 2. Erik Stai, N,
1.93 m.
5000 m: — 1. M. Stokken,
N, 14,51 og 2. Kaj Hansen, D.,
15.11.
Myndin er af röntgengeislarafal, sem er á hæð við fjögurra
hæða hús. Hann getur framleitt 11% milljón volt og gegnum-
lýst allt að 10 cm. þykkar stólplötur. Stærð rafalsins getur
maður gert sjer ljósa, ef athugaður er maðurinn sem stendur
til vinstri á forgrunni myndarinnar. Rafallinn er smíðaður í
Bandaríkjunum.
Bygl fyrir 113 miljónir
kr. í Reykjavík árið
sem leið
634 nýjar íbúðit og 377 ný hús
ÁRIÐ sem leið voru bygð hjer í bænum 377 ný hús. Þar
af voru 201 íbúðarhús með samtals 634 íbúðum og eru þar
með taldar 172 íbúðir, sem vitanlegt er að gerðar hafa verið
í kjöllurum og þakhæðum án samþykkis byggingarnefndar,
Kostnaður við húsbyggingar hjer í bænum er áætlaður 113
miljónir króna.
Frá þessu er skýrt í yfirliti
Sigurðar Pjeturssonar bygging-
arfulltrúa bæjarins um bygg-
ingar í Reykjavík árið 1946.
ÍBÚÐIRNAR.
Af þeim 634 íbúðum, sem
bygðar voru eru 599 í steinhús-
um og 35 í timburhúsum. íbúð-
irnar eru alt frá einu herbergi
og eldhúsi upp í 10 herbergi og
eldhús. Flestar eru íbúðirnar 2
herbergi og eldhús, eða samtals
187, þar næst 4 herbergi og eld-
hús, eða 170. Aðeins ein íbúð er
10 herbergi ásamt eldhúsi, tvær
9 herbergi, þrjár átta herbergi,
16 eru 7 herbergi.
Auk þessa eru einstök íbúðar-
herbergi án eldhúss 105 talsins.
HÚSBYGGINGAR.
Alls voru bygð 377 hús, þar
af 201 íbúðarhús, 7 verslunar-
og ,skrifstofuhús, 2 sj.'krahús,
i. 4,
1 kvikmyndahús, 1 skóli, 1 í-
þróttahús, 1 kapella, 10 verk-
smiðjur, 19 geymslur og því um
líkt og 134 bílskúrar.
Aukningar á eldri húsum sam
tals 30 eru ekki lagðar við tölu
húsa. Breytingar á eldri húsum,
sem ekki auka rúmmál þeirra,
girðingar o. fl. er ekki talið með
en til slíks hefur verið varið
miklu f je á árinu.
Fimm sækja
um starf
flupálastjóra
UMSÓKNARFRESTUR um
starf flugvallastjóra var útrunn
ið þann 1. júlí s.l. Umsækjend-
ur voru fimm og eru þeir þess-
ir: Agnar Kofoed Hansen for-
maður Fiugráðs, Sigurður Jóns-
son skrifstofustjóri flugmála-
stjóra, Sigfús Guðmundsson
framkvæmdastjóri, Gunnar Sig-
urðsson flugvallarstjóri í Rvík
og Arnór Hjálmarsson er var
flugvallarst jóri á Keflavíkur-
flugvelli.
Sá er fær veitingu fyrir starfi
þessu mun hafa á hendi yfirum-
sjón með öllum flugvöllum lands
ins, samkv. hinum nýju lögum
frá síðasta þingi.
Flugmálaráðherra veitir starf
þetta.
Laugarnesvsginum
pmla lokað
NÆSTU DAGA verður gamla
Laugarnesveginum, frá Suður-
landsbraut inn fyrir Kirkjuból,
lokað fyrir fult og alt, en í
stað hans kemur vegur, sem
liggur frá Suðurlandsbrautinni
fyrir austan Tungu.
Verða þá tveir aðalvegir að
Laugarneshverfinu, vegurinn
meðfram sjónum frá Höfða-
hverfinu og hinn nýji vegur frá
Suðurlandsbrautinni.
IV flokks mótið
Á FIMTUDAGINN var voru
háðir tveir leikir í 4. fl. mótinu
og lauk þeim þannig, að Valur
sigraði Víking með 6:1 og Fram
sigraði K.R. með 1:0.
Mótið heldur áfram í dag kl.
1.15 og keppa þá Fram og Vík-
ingur og þar á eftir Valur og
K.R. og er það úrslitaleikur.
Prestaskifti milli
íslands og Winnipeg
SAMKOMULAG hefur orðið
um, að prestaskipti verði í eitt
ár milli Fyrstu lúthersku kirkj-
unnar í Winnipeg og Útskála-
prestakalls.
Síra Valdimar J. Eylands
kemur til íslands þegar á þessu
sumri og dvelur hjer eitt ár með
fjölskyldu sína, en síra Eiríkur
Brynjólfsson fer vestur og þjón-
ar í Winnipeg.
Lögberg segir, að gert sje ráð
fyrir að þessi verkaskipting
prestanna hefjist núna í júlí, ef
síra Valdimar Eylands fær skips
ferð til íslands.
Verksmiðjurnar að
taka fil starfa
Siglufirði í gærkvöldi.
EITT SKIP kom í dag meðí
síld veidda fyrir tveimur dög-
um, alls 600 mál, en í dag hafai
litlar frjettir borist af hafinu,
Veður ekki verið gott.
Ríkisverksmiðjurnar SRP og
SR30 og bæjarverksmiðjan
Rauðka verða settar af stað í
kvöld. Einnig verður reynt að
setja nýju verksmiðjuna af stað
aftur í kvöld, en verksmiðjan
átti að fara af stað í fyrrinótt,
en bilaði strax án þess að geta
brætt nokkuð.
Sú síld, sem nú veiðist er full
af átu og óvenjufeit, eða upp í
21% fitumagn.
SÍLD TIL HJALTEYRAR.
Frjettaritari vor á Hjalteyri
símar, að komið hafi verið með
fyrstu síldina þangað á mið-
vikudag, en þá landaði Sædís
570 málum og Sindri 193 mál-
um. Á fimtudag landaði Súlan
697 málum, Aldan 414 og Sverr-
ir 169.
Tundurdufl gerð
óvirk
TÖLUVERT hefir borið á
því, að tundurdufl rækju hjer
á land að undanförnu, og hafa
Skipaútgerð ríkisins nýlega
borist skýrslur um dufl gerð ó-
virk á eftirgreindum stöðum:
1. Skýrsla frá Evald Kristen-
sen, Neskaupstað.
1 dufl að Stuðlum í Norð-
firði og annað í Djúpavogi.
2. Skýrsla frá Skarphjeðni
Gíslasyni, Hornafirði:
3 dufl i Álftafirði.
2 í Lónsvík.
1 á Hornsfjöru
3 á Borgarfjöru,
3. Skýrsla frá Jóni Gunn-
laugssyni, Siglufirði:
3 dufl norðarlega á Skaga
vestan Skagafjarðar.
4. Skýrsla frá Helga Eiríks-
syni, Fossi, Vestur-Skaftafells-
sýslu:
3 dufl á Meðallandi.
Öll framangreind dufl voru
bresk að undanskildu einu
á Skaga við Bkagafjörð.
Jón Þórarinsson
lýkur námi við
Yale háskóla
JÓN ÞÓRARINSSON, ungur
íslendingur, sem hefur stundað
nám í Bandaríkjunum í tónlist
lauk nýlega „Masters“-prófi við
Yale háskóla í tónlistarfræðum.
Var hann einn átta nemenda frá
Evrópu, sem útskrifuðust frá
skólanum á þessu ári.
HersJcip í heimsókn.
LONDON: — Bresku tundurspill-
arnir Cleopatra og Solebay eru nú
í heimsókn í Málmey, Svíþjóð.
Unglingar
Engel Lund syngur
á Akureyri
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri, föstudag.
ENGEL LUND hjelt aðra
þjóðlagaskemtun sína í NýjaBíó
í gærkvöldi, með aðstoð Wil-
helm Lanzky Otto.
Efnisskráin var að mestu önn
ur en frá fyrri hljómleikum
hennar. Aðsókn var mjög sæmi-
leg og söngkonunni vel fagnað
og varð hún að endurtaka nokk-
ur lög og syngja aukalög. Henni
bárust blómvendir frá áheyr-
endum.
Vafalaust munu þeir er hlust
uðu á hina sjerkennilegu og hjer
áður óþektu þjóðvísnahljóm-
leika hinnar víðförlu söngkonu,
minnast lengi komu hennar hing
að til Akureyrar. -+- H. Vald,