Morgunblaðið - 22.07.1947, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
ÞHðjúdagur'22. jiilí 1947
NORSKA LANDSLIÐIÐ KEMUR í DAG
Fyrsti londsleiknr
FYRSTI knattspyrnuleikur,
norska landliðsins á Islandi fer,
fram eftir nokkra daga. Ef til |
vill væri fróðlegt að staldra hjer
nokkuð við. Hver er styrkleik
ur norsku knattspyrnunnar í
dag — samanborið við árin fyr
ir stríðið — og t.d. samanborið
við hin Norðurlöndin?
Því er fljótsvarað, að norska
knattspyrnan á enn langt í land
til þess að verða eins góð og
hún var fyrir stríð. Jeg mun
aðeins í því sambandi stikla á
stóru. Árið 1932 vann norska
landsliðið keppnina um Gullbik
arinn, sem stóð yfir í fjögur ár.
Hinir þátttakendurnir voru
Danmörk, Svíþjóð og Finnland.
1936 vann Noregur bronse-af-
reksmerkið í knattspyrnu á
Olympiuleikunum, eftir að hafa
unnið Tyrkland, Þýskaland og
Pólland. í úrslitakeppninni um
gull-afreksmerkið tapaði Noreg
ur aftur á móti fyrir ítalíu, 1:2
eftir framlengdan leik. 1938 tók
Noregur þátt í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu, sem
fór fram í Marseille, eftir að
hafa unnið Irland og fengið
rjett til þáttt. Norðmenn mættu
ítölum í fyrsta leiknum, sem
tókst enn að vinna eftir fram
lengdan leik, aftur með 1:2. En
þýski dómarinn dæmdi sigur-
mark Norðmanna, sem sett var
á síðustu mínútu leiksins ógilt.
Knattspyrnan í Noregi stóð
sem sagt í miklum blóma fyrir
stríð, en því miður er ekki hægt
að segja það sama um hana nú.
íþróttaverkfallið á stríðsárun-
um hafði mjög deyðandi áhrif.
Og þegar friður komst á voru
landliðsmennirnir frá því fyrir
stríð of gamlir, en um nýja var
ekki að ræða.
í fyrstu leikjunum töpuðum
við fyrir Danmörku með 2:4
og 1:5 og fyrir Svíum með 0:10
Norsk knattspyrna hefir aldrei
verið á lægra stigi en árið 1945.
Næsta ár var nokkuð betra. Við
náðum að sigra Dani með 2:1 og
Finna með 12:0, en svo fór það
aftur versnandi. Tap fyrir Lux
emburg 2:3, fyrir Svíum 0:3 og
fyrir' Dönum 0:2 og 1:7.
í ár höfum við hinsvegar stað
ið okkur betur. Keppni við Pól-
land unnu Norðmenn með 3:1
Á hátíðaleikjum Finna í Hel-
singfors unnum við Finna með
2:1 í ljelegum leik en töpuðum
fyrir Svíum með 1:5, eftir að
hafa skilað jöfnu í fyrri hálf-
leik, 1:1. Annars verð jeg að
íl (1
Eítir Per Hauge-Moe
íslenska landsliðið, sem
keppirvið Norðmenn
Knut Brynildsen, einn iandsliðsmaðurinn norski, sem kemur
hingað, sjest hjer skora mark í landsleik, sem Norðmenn Ijeku
við Pólverja. Hann hefir leiltið 14 landsleiki og 10 sinnum
verið miðframherji.
ÞÁ HEFIR íslenska landsliðið, sem mæta á Norðmönnum
n.k. fimtudag, endanlega verið skipað og litur þannig út:
Hermann Hermannsson
markmaður
Karl Guðmumlsson , Sigurðtir Ólafsson
h. bakvörður v. bakvörður
Sæmunrlur Gíslason Birgir Guðjónsson Gunnl. Lárusson
h. framvörður miðframvörður v. framvörður
Haukur Öskarsson Sveinn Helgason
h. innherji v. innherji
Ríkard Jónsson AHiert Guðmumlsson Ellert Sölvason
'' ftýhitherji miðframherji v. útherji.
';l ‘VaííMfenn: Anton Sigurðsson, Hafsteinn Guðmundson, Krist-
jáú Óíáfsson, Hörður Öskarsson og Ari Gísláson.
. ' ■ Fyrfrliði á leikvelli er Albert Guðmundsson.
segja það, að jeg hefi aldrei
sjeð leik .þar sem Norðmenn
höfðu eins mörg tækifæri og í
leiknum við Svía. Og það verð-
ur að teljast undravert, að
þeir skyldu aðeins skora þetta
eina mark í fyrri hálfleik. Ef
annað hefði komið þá, er ekki
víst að sigurinn hefði orðið Svía
megin.
Með þessu vil jeg þó ekki halda
fram að Norðmenn standi Sví-
um nú jafnfætis í knattspyrnu,
Það vantar mikið á það. Danir
eru líka betri en við, en ánægju
leg er þó sú framför, sem átt
hefir sjer stað hjá okkur. Úr-
slitin geta farið að breytast. Ef
til vill ekki á þessu ári, eða því
næsta, en við höfum tímann
framundan.
Hvernig er svo liðið, sem á
að keppa í landsleik við ísland
í Reykjavík.
Liðið er skilyrðislaust það
sterkasta, sem Norðmenn geta
nú boðið fram, og svo geta á-
horfendur sjálfir dæmt um það.
Auðvitað eru Norðmenn ekki
vanir að leika á malarvelli, en
það ætti ekki að hafa svo mikil
áhrif á baráttuhug leikmann-
anna.
1 r.orska liðinu eru einungis
ungir menn, sem komið hafa
inn eítir stríðið, að tveimur una
anskildum. Mjer er ekki enn
kunnugt um, hvernig liðið verð
ur endanlega skipað, en mun
fara nærri um það, og mun
kynna hjer nokkuð einstaka leik
menn.
Markmaðurinn Torgeir Tor-
gersen er 22 ára. og leikur nú
fjórða landsleik sinn. Ilann
[keppti í fyrsta sinn við Pólland
I í fyrra mánuði ög er einn af
[efnilegustu knattsþyrnumönn-
um Noregs. Hann síóð sig m.a.
með mikilli prýði í leiknum við
Svía í Helsingfors.
Hægri bakvörðurinn, Erik
Holniberg leikur sem miðfram
vörður hjá f jelagi sínu, og á vel
heima í landsliðinu. Ilann er 25
ára. Jevanord verður vinstri
bakvörður. Hann er 28 ára, og
hefir ekki verið í góðri æfingu,
en annars góður leikmaður. Við
skulum vona að hann sýni það
í Reykjavík.
Hægri framvörðurinn Egil
Lærum er 25 ára og jafnframt
því að vera góður knattspyrnu-
maður er hann einn besti skíða
stökkmaður Noregs (Vann
„Damenes Pokal“ í Holmenkoll
en í ár). Hann hefir öll skilyrði
til þess að vera góður fram-
vörður — hefir góða boltameð-
ferð og takið eftir innköstun-
um! Miðframvörðurinn Thor-
björn Svendsen er líka einn
þeirra, sem við væntum mikils
af. Hann er 22 ára og ljek í
fyrsta sinn með á móti Póllandi
í þeim þremur landsleikjum,
sem hann hefir tekið þátt í hef
ir hann leikið ágætlega. Harry
Boye-Karlsen, vinstri framvörð-
ur, dvaldi um tíma á íslandi a
stríðsárunum. Hann Ijek með
ensku f jelagi á stríðsárunum og
ef- nú álitinn mesti knattspyrnu
maður Noregs, en hefir samt
ekki til þessa leikið góðan lands
leik(!) Hann er 24 ára.
Hægri útherji, Tryggve Arne-
sen, Ijek 12 landsleiki fyrir stríð
og er með sitt 31 ár elsti maður
liðsins. Tæknilega sjeð er hann
í sjerflókki í Noregi, og var fyr
ir stríðið talinn einn besti ama-
tör-innherji í Evrópu. Hægri
innherji cr Björn Spydevold,
Framli. á bls. 15.
Landsleikurinn
á fimtudag
UNDANFARNA þrjá daga
hafa gist ísland margir tignir
og góðir gestir frá Noregi, og
enn í dag bætist í þann hóp.
Landslið Norðmanna í knatt-
spyrnu er væntanlegt hingað
með ,,PIeklu“ í kvöld, en það
mun eins og kunnugt er keppa
hjer við íslenska landsliðið n.
k. fimtudag.
Við bjóðum norsku knatt-
spyrnumennina alveg sjerstak-
lega velkomna og fögnum yfir
aukinni íþróttasamvinnu þess-
ara tveggja frændþjóða, sam-
vinnu, sem mun binda íþrótta-
æsku landanna enn tryggari
vináttuböndum.
Strax eftir komu knatt-
spyrnumannanna fer fram
móttaka að Hótel Garði, þar
sem margir helstu íþróttaleið-
togar landsins munu bjóða þá
velkomna. Meðal gestanna eru,
eins og áður hefur verið skýrt
frá hjer í blaðinu, Reidar Dahl,
forseti „Norges Fotballfor-
bund“, Asbjörn Halvorsen, að-
alritari þess og stjórnarmeð-
limirnir Charles Stahl og
Lauritz Stand.
Upplýsingar um norska liðið
er að finna í grein Per Hauge-
Moe á öðrum stað á íþrótta-
síðunni.
Á morgun verður knatt-
spyrnumönnunum sýndur bær
inn og farið með þá að Reykj-
um. Á fimmtudag er svo lands
leikurinn. Á föstudag fara
Norðmennirnir austur í Þjórs-
árdal í boði ríkisstjórnarinnar.
Laugardeginum er óráðstafað,
en á sunnudag verður farið til
Þingvalla í boði bæjarstjórnar
Reykjavíkur. Á mánudag
keppa Norðmenn við íslands-
meistarana Fram. Þriðjudegin-
um er óráðstafað, en á mið-
vikudag er þriðji og síðasti
leikur gestanna við úrvalslið
úr Reykjavíkurfjeiögunum. —•
Á eftir verður þeim haldið
samsæti í Sjálfstæðishúsinu.
Móttökunefnd liðsins er
skipuð þessum mönnum: Guð-
jón Einarsson, formaður, Jón
Leós, Andreas Bergmann,
Kristján L. Gestsson, Herluf
Clausen og Frimann Helgason,
en ennfremur hefur Gunnar
Akselsson reynst nefndinni
mjög hjálplegur.
Aðgöngumiðar að öllum
leikjunum verða seldir á I-
þróttaVellinum í dag og á morg
un frá kl. 2—6 e. h.
, —- Þorbjörn,
AUGLYSING
ER GULLS ÍGILDI