Morgunblaðið - 22.07.1947, Side 16
VEDURÚTLITIÐ: Faxaflói:
HÆGVIÐRI — Ljettskýjað.
0tQlttí
162. tl)l. — Þriðjuclagur 22. júlí 1947
ÁVARP Davíðs Stefánssona?
frá Fagraskógi á Snorrahátíð->
inni. — Bls. 9.
Leikmaður ræðst
á dómara
ÞRIÐJI og f jórðí leikur fyrsta
ftokks mótsins fór fram í gær-
kvöld. milli K.R. og Fram og
fóru leikar svo, að K.R. vann
rneð 4 gegn 1. Síðar keptu Fram
og Valur og sigraði Fram þann
leik með 1 gegn 0.
í leik milli Vals og Fram varð
dömarinn Guðbjörn Jónsson að
víkja einum leikmanna Vals,
Antoni Erlendssyni, út af vell-
inum fyrir ósæmilega hegðun
gagnvart dómaranum. Skal saga
þessi ekki rakin hjer nánar. En
þetta gerðist í fyrri hálíleik.
Árás á dómarann.
Er leik Fram og Vals var lok-
ið og leikmenn og dómari á leið
til búnir.gsklefanna, gerðist sá
atburður á vellinum, sem ekki
hefur átt sjer stað hjer fyrr.
Anton Erlendsson, er var vik-
ið út af vellinum, gekk til móts
við Guðbjörn Jónsson dómara,
og rjeðist á hann fyrirvaralaust.
Veitti hann Guðbirni sVo mikið
höfuðhögg, að hann f jell við. —
Guðbjörn bjóst til varnar, en að-
komumenn tóku þá Anton og
hjeldu honum.
Búast má við, að þetta mál
fari fyrir knattspyrnuráðið, en
það mun líta alvarlega á svona
hegðun manna.
Biskup íslands
kominn fíeím
MEÐAL farþega með m.s
Dronning Alexandrie, var bisk
upinnn yfir íslandi, dr. Sigur
þeir Sigurðson. Hann kom af
alþjóðafundi Evangeliks-lúth-
ersku-kirkjunnar, er haldinn
var i Lundi.
Á fundi þessum mættu og
Ásmundur Guðmundsson prof.
er var fulltrúi þjóðkirkjunnar
og sr. Árni Sigurðsson sem
fulltrúi fríkirkjusafnaðarins.
Enn voru sem gestir á fundi
þessrnn kona biskups og sr.
Árna Sigurðssonar og sr. Sig-
urður Pálsson að Hraungerði.
Alls satu þing þetta fulltrú
ar 23 þjóða. þ. á m. voru milli
50 og 60 fulltrúar frá Vestur
heimi.
Mikill samstarfshugur og ein
ingarvilji kom fram á fundi
þessum og sagði biskup í stuttu
viðíali við Morgunblaðið að
hann myndi verða til mikils
gagns og blessunar fyrir starf
semi hinnar lútherskukirkju.
Kaupa Ivö flugvjela-
móðurskip
i Sidney.
ÁSTRALÍA hefur pantað í
Bretlandi tvö stór flugvjelamóð-
urskip, sem eiga að vera megin-
Skipin í flota Ástralíumanna
Hæstu árin. Skipin eiga að vera
tilbúin til afhendingar eftir 18
mánuði. Bretar munu leggja til
háttsetta flotaforingja til að
sigla þeim til Ástralíu.
— Kemsley.
Snorrahálíðin í Reykholti
Mannfjöldinní Reykholti á sunnudag við Snorralaug. Ekki sjest nema lítill hluti þess mikla
mannfjölda er Snorrahátíðina sótti. -— (Ljósm. Vignir).
Þrjú skip strönduðu í fyrrinott
Eáff þeirra komsf á llot í gærkvöldi
í SVARTA ÞOKU aðfaranótt mánudags, strönduðu þrjú
skip hjer við land. Tvö þeirra voru íslensk síldveiðiskip, en
hið þriðja norskt vöruflutningaskip. Veður var stilt og gott
og hafa skipverjar á hinum strönduðu skipum látið fyrir-
berast um borð í skipunum.
Síldveiðiskipin.
Síldveiðiskipin, sem strönd-
uðu eru Hvítá frá Borgarnesi og
Hagbarður frá Húsavík, strönd-
uðu á Melrakkasljettu.
Heimafólk að Leirhöfn vakn-
aði við það í fyrrinótt, að tveir
menn kváðu til dyra. Menn þess-
ir skýrðu svo frá, að skip þeirra,
Hagbarður frá Húsavík, hefði
strandað þar skamt frá. Sögð-
ust þeir ekki vita hvar þeir væru
staddir. Var þá svo svört þoka,
að varla sá út úr augunum. —
Skipsfjelaga sína sögðu þeir
vera í skipinu, því sjór væri lá-
dauður og því engin hætta á
ferðum.
Um morguninn er þokunni
t.ók að Ijetta, sáu heimamenn að
Leirhöfn, að skamt frá þar sem
Hagbarður hafði strandað, hafði
skipi verið siglt á land. Maður
nokkur brá sjer að skipinu á
jeppa. Kom þá í ljós að þetta
var Hvítá frá Borgarnesi. Ekk-
ert varð að hjá skipverjum og
töldu þeir ekki ástæðu til að yf-
irgefa skipið.
Klukkan 6 í gærkvöldi, var
enn þoka á strandstað. Enginn
leki var kominn að skipunum
og skipverjar allir um borð i
bátunum. Búist var við að Ægir
myndi koma þeim til hjálpar í
nótt og gera tilraun til að bjarga
þeim rneð morgninum. Skipin
voru á leið á síldarmiðin við
Langanes, er þetta óhapp vildi
til.
Norska skipið.
Noklcru fyrir miðnætti að-
faranótt mánudogsins strand- mcnn. — Reuter.
aði norska vöruflutningaskipið
Slcogholt frá Haugasundi, rjett
norðan við Látrabjarg, við svo
nefndan Brunnanúp. Svarta
þoka var. Áhöfn skipsins 19
menn Ijetu fyrir berast í skip
inu því sjór var ládauður. Skip
ið er 1500 smálestir.
Eimskipafjelag Islands hefir
tekið það á leigu og var það að
koma hingað í sinni fyrstu ferð
Til Siglufjarðar flutti það 11,
000 tunnur og var á leið það
an til Reykjadkur, er það
strandaði. 1 lestum þess eru
alskonar vörur, 200 smál.
Daníel Eggertsson Látfum
skýrði svo frá í gærdag um kl.
5, að er hann hefði átt tal við
skipstjórann um hádegi í gær
hafi skipið verið ólekt og staðið
kjölrjett.
f gærkvöldi bárust þær fregn
ir hingað til bæjarins, að Skog
holt hefði komist á flot af eigin
ramleik milli kl. 8 og 9 og
væri á leið til Reykjavíkur.
sið Vopnaljörð
SEINT í gærkvöldi bárust
þær frjettir hingað til bæj-
arins, að m.s. Bris frá Akur-
eyri hefði strandað við svo-
nefndan Kolbeinstanga við
Vopnafjörð. Þoka var er þetta
gerðist.
Þar eð talstöð skipsins var
ekki í lagi, þá tókst ekki að
hafa samband við skipið í
gærkvöldi áður en blaðið fór
í pressuno.
Á tæpum sólarhring hafa
því fjögur skip strandað vegna
þoku.
Fræðimenn lala í ;
hátíðasal Háskólans
fyrir hina norsku ;
gesti.
Kl. í gær var hátíðleg
móttaka fyrir hina norsku
gesti í Háskólanum. Þar várt
Olav krónprins viðstaddur,
sendiherra Norðmanna og ýms
ir helstu menn þjóðarinnar,
háskólakennarar og aðrir.
Stúdentar stóðu heiðursvörð
á Háskólatröppunum ,er króra
prinsinn kom þangað, og aðrir
gestir, og einst stóðu kvenstúd
entar í tveim fylkingum fyriri
framari dymar að hátíðasaln-i
um,
Atliöfnin hófst með því að
hljómsveit ljek hátíða polonaise
Johans Svendsen. Síðan tók há
skólarektor Ólafur Lárusson
prófessor til máls. Hann bauð
hina virðulegu norsku gestí
velkomna og mintist þess að
aldrei hefði Háskólinn fengiS
svo n.ikla heimsókn sem að
þessu sinni.
Síðan talaði hann um frænd
semi Norðmanna og íslend'-
inga og þá söng Einar Krist-
jánssor.i nokkur lög.
Síðan tók prófessor Francis
Bull til máls. Var ræða hans
hin hlýjasta lcveðja til fslend-
inga flutt af miklum skilningi,
fróðleik og málsnild hins æfða
ræðumanns. Þakkaði há kóla-
relctor ræðuna með nokxrum
orðum.
Síðustu ræðuna þarna flutti
Sigurður Nordal prófessor um
rannsóknir sínar og athuganir
á ritverkum Snorra Sturluson
ar og einkum á Heimskringlu.
Tvö járnbraularslys í
London í gær.
TVÖ járnbrautarslys urðu
hjer í Bretlandi í dag. Vildi ann
að slysið til, er járnbrautir rák-
ust saman á London-Liverpool-
leiðinni, og biðu fjórir menn
bana við það tækifæri, en 20—
30 særðust.
Hitt slysið varð skamt fyrir
utan Glasgow,, og særðust sjö
M síldveiði við Langanes
Flolinn slefnlr nú þangað
ÞÆR FJETTIR bárust í gærdag frá skipum við Langanes
að þar liefði verið mikil síldveiði í fyrrinótt. Nokkur skipannna
fengu allgóð köst. Þegar þessi tíðindi spurðust lagði síldveiði-
flotinn af stað þangað. Á vestur hluta síldveiðisæðisins svo
og nokkrum hluta af austursvæðinu, var í íyrrinótt og í allan
gærdag svarta þoka. Skipin sem stefna nú til Langaness munii
því tefjast vegna þokunnar. Fróðir menn töldu miklar líkur
fyrir góðri veiði við Langanes í nótt, ef veður hjeldist óbreytt.
Skip voru þar í fyrrinótt og^
fengu aUt að 500 málum i kasti
Annaisstaðar á síldveiðimiðun
um fyrir Norðurlandi var
svarta þoka og engar frjettir
þaðan í gær.
Raufarhöfn.
Á sunnudag komu til Rauf
arhafnarverksmiðju aðeins
fjögur skip. 011 með lílilshátt
ar slatta. I gær komu þangað
13 skip með samtals um 6800
hektolitra. Hæstan afla hafði
Björgvin G.K. 482, með 1167
hl.
.Þegat' blaðið átti tal við Rauf
arhöfn biðu þar fjögur skip
löndunar með um 400 hl. síld
ar.
Til Skagastrandar- og Ing-
ólfsfjarðarverksmiðja haföi lít
il síld borist um helgina. Ing-
ólfsfjarðarverlcsmiðja hefur nú
tekið á móti 21 þúsund máli
af síld til bræðslu.
Siglufjörður.
Yfirleitt hefur lítil síld bor
ist til verksmiðjanna um helg
ina. Mest til Raufarhafnar.
Frjettaritari Morgunblaðs-
ins á Raufarhöfn símaði í gær
kvöldi að mjög lítið af 5Íld
hefði borist þangað. Á sunnu-
dag voru saltaðar þar 1067
tunnur síldar. Frejttaritarinn
staðfesti fyrri fregnir er blað
inu höfðu borist frá Ingólfs-
firði, um að flotinn væri nú á
leið til Langaness.
a.