Morgunblaðið - 01.10.1947, Page 6

Morgunblaðið - 01.10.1947, Page 6
6 MORGUNBL4ÐIÐ Miðvikudagur í. okt. 1947 LÁTIÐ ÚR HÖFN Josephine Baker giftir sig enn ALLT tekur enda og svo fór einnig um hina löngu bið eTtir skipi í Antwerpen í sumar. En þegar skipið loksins kom, var landvistarleyfið mitt að verða útrunnið og jeg varð þessvegna .að flytja um borð tveimur dög- um áður en skipið fór, því væri jeg farþegi um borð á erlendu skipi, þurfti jeg ekki á landvist- arleyfi að halda. Jeg ók þess^ vegna niður að höfninni með allt mitt dót á vörubíl og hneykslaði Belgi, sem álitu það ósæmilegt að damá aki í vöru- bíl -— ekki veit jeg Vegnu hvers. Svo kom jeg mjer fyrir í bestu káetunni á ,,Lub'.in“ og varp- aði öndinni af feginleik yfir að vera nú loksins komin um borð í hið langþráða skip. Á ánni Schelde. _ • Við lágum á ánni Schelde, en hún liggur í sveig i tan um borg ina og er hið besta skipalægi. Ailsstaðar voru skip og bátar og alisstaðar var unnið og bjástr- að. Það var veri i að skipa út í ,,Lublin“. §tórir kassar með áletruninni ,,Reykjavík“ stóðu á hafnarbakkanum og biðu eftir að röðin kæmi að þeim. Það var auðsjeð að þetta voru bif- reiðar. Jeg stóð uppi á efsta þilfarinu og horfði é ,,kranann“, sem lyfti þessum þungu kössum eins og ekkert væri, og hlust- aði á hróp mannanna, sem stýrðu honum og hinna, sem tóku á móti niðri í lestinni. Þessi sömu hróp og kÖil hjeldu áfram allan daginn og yfir- gnæfðu marrið í ,,krananum“. Ekki veit jeg á hvaða máli þau voru, því jeg gat aldrei greint orðaskil, en einbvernveginn skildu mennirnir þó hver ann- annr þó að þeir sem í lestinni voru væru Pólverjar en hafn- arverkamennirnir fiestir Flæm- ingjar, svo ef til vill hafa þeir talað eitthvert alþjóðlegt sjó- mannamál. Það var óþarfi að láta sjer leiðast þennan dag. Það var svo margt að sjá og heyra. Höfn in var nýr heimur, ólíkur öll- um öðrum höfnum, sem jeg hafði sjeð. Þessi lygna á, sem er lífæð Belgíu, rann að ósi svo hægt að varla var gerlegt að sjá hreyfingu vatnsins. Jeg hafði reyndar sjeð ána fyrr einn sunnudag í steikjandi hita, en þá var allt kyrrt og rólegt við höfnina, enda var þá verkfall. Fiskimennirnir, sem sátu á bakkanum með veiðistengurnar sínar, þögulir og þolinmóðir; þurrkuðu af sjer svitann með skyrtuerminni sinni og spýttu út í vatnið'annars hugar. Gömul Kongóför lágu fyrir akkerum og biðu. Svört andlit gægðust yfir borðstokkana og litu for- vitnislega á hvítu mennina og húsin þeirra og vagnana. Ein- hversstaðar var verið að spila á harmóniku og öðru hvoru heyrðust skærar drengjaraddir hrópa, að fiskur nefði bitið á. Þá gekk jeg í hægðum mínum í sólarhitanum og hugsaði um Kiþling, Kaptein Marryat og Mark Tvain, eins og hver ann- ar bókaormur. En nú átti jeg heima á höfninni á hinu góða skipi ,,Lublin“ undir pólskum fána með krýndum erni hins forna konungsríkis. I horni 1*3 Eftir Guðrúnu Jónsdóttur frá Prestsbakka borðsalsins var mynd heilagrar Guðsmóður frá Czestochow og pólski örninn breiddi úr vængj- um sínum yfir ^geiinu mínu við borðið, svo það var ekki von til annars en að mjer liði ,vel. Farið í land. Þjónninn var gðmall vinur minn, því hann hafði verið á „Lech“ þegar jeg fór með bví frá íslandi til Frakklands og hafði setið við að kenna mjer pólsku þegar hann átti ein- hverja stund aflögu. Nú sýndj hann rnjer það vmarbragð að útvega mjer leiðsögumann, svo jeg gæti farið í lánd um kveldið og sjeð Antwerpen að kveld- lagi. Þegar kveldið k;emur, smá- hljóðnar skarkálinri við höfn- ina. Þó er haldið áfram að vinna langt fram á nótt við einstöku skip. Leiðsögumaður minn var 17 ára gamall dreng- ur frá Gdynia, sem kunni dá- lítið í ensku og þýsku, svo við töluðum einhverr\ hrærígraut úr þremur málurn okkur til mikiilar skemmtunar. Annars er ekki ráðlegt að tala þýsku í Belgíu, því þá ólíta Belgir að maður sje nasisti og vilja ekki ansa ef á þá er yrt á því máli. Við gengum yfir brú eina, háa og fagra og komum yfir að skógarlundum og þorpi með hvítum húsum. Þar beið strætis vagninn, sem við ætluðum með upp til borgarinnar. Það var tekið að rökkva og öll götuljós loguðu inni í borgmni. Allsstað- ar voru bíóauglýsingar uppljóm aðar með ljósum og skrauti. Hvergi hefi jeg sieð eins mörg kvikmyndahús og í Antwerpen. Þau liggja þrjú og þrjú í hverri götu 1 kring um aðalbrautar- stöðina. Veitingahúsin voru söm við sig — öll full af íólki. Harmo- nikuspil hafnarkrónna smá dó út eftir því sem við nálguðumst miðbæinn. Járnbrautarstöðin var uppljómuð og full af fólki, sem kom og fór. Ljósaauglýs- ingarnar leiftruð'i á hverju götuhorni og einhversstaðar heyrðist hljómsveit spila lag, sem hljómaði angurblítt og töfrandi. En drengurinn vildi fara í bíó, svo við keyptum okkur að- göngumiða að amerískri gaman mynd og sáum haiia fyrst frá miðju og afturúr og síðan frá byrjun til enda, því þetta var „Non-stop“ bíó, þar sem maður getur setið allt kveldið,' ef mað- ur vill. Við skemmtum okkur vel, þó ekkert vit væri í mynd- inni, og það var orðið áliðið þeg ar við loksins fórum út aftur. Ilmandi appelsíniir. Veður var kyrt og hlýtt. Lauf ið á trjánum við „Les avenues“ bærðist vai'la. Öðru hvoru mætt um við fólki, sem talaði flæmsku, eða við 'ueyrðum hlát ur og tilsvör á frönsku einhvers staðar frá. En við náðum okkur í bíl og ókum niður að s'kipi eins og góð börn og þökkuðum hvort öðru fyrir skemmtunina. Næsta dag hjelt jeg kyrru fyrir á skipinu. Snemma morg- uns fór jeg upp á þilfar til þess að skoða mig um. E Ijótsbátarn- ir lágu fyrir akkerum allt í kring um okkur og fólkið var að þrífa þá og ræsta. Koná í ljósum kjól þvoði þilfarið á bátnum sínum vei og vandlega. Hún hefir að öllum líkindum átt heima á bátnum. „Kranarn- ir“ ískruðu og vældu í sífellu. og lestin á ,,Lublin“'smáfyllt- ist. Hfnandi appelsínu kössum var hlaðið í afturrúmið og apþel sínuilmurinn yfirgnæfði snöggv ast allar aðrar tegundir af ilmi og lykt, sem rugla skilningar- vit þess sem er óvanur höfn- inni. Sólin skein é ána og á ótal blaktandi bána frsmandi þjóða — bláa, rauða, græna, gula, hvíta og svarta — en ís- lenski fáninn var ekki á meðal þeirra. Hundarnir loftskeyta- mannsins á „Lu'blin" ærsluðust og ólmuðust um þilfarið og svartur köttur, sem einn kynd- arinn átti, lá í sólskininu og naut lífsins. Svona leið dagur- inn í önnum fyrir suma og iðju- leysi fyrir okkur hin, og að kveldi áttum við að skifta um legu. Þá var aftur orðið d.immt. Himininn var þakinn stjörnum, sem spegluðust í vatninu og ljósadýrðin á skipunum stafaði löngum r'ákum yfir ána. Látið úr höfn. Jeg stóð uppi á þilfari og horfði og hlustaöi. Við liðum áfram milli skipa og báta. „Kranarnir“ báru við himinn, kolsvartir og bögulir og mintu á vindmillurnar hans Don Qui- jotes. Lágt skvamp í vatninu og dimmt hljóð í skipsskrúfunni var eins og undirspil við köll mannanna. Kvöldiö var þrungið töfrum, rnjúkum og seiðandi, eins og lag sem vekur klökkva og minnir á löngu liðnar stund- ir. Otal söngvar og sögur, löngu liðin, lesin og dáð, virtust vera tengd þessu kveldi eins og for- tíð er tengd nútíð í huga manns. Kipling, Jack London og Mark Twain, Einar Bene- diktsson, Davíð Stefánsson og Örn Arnar áttu allir sinn þátt í þessu kveldi. Og þegar skipið sigldi undir stjörnunum, byggðu ljósin brú yfir vatnið til strand arinnar, sem var að hverfa. Daginn eftir var siglt af stað niður ána og Belgía kvödd fyrir fullt og allt.’ Við sigldum í gegn um Holland og út í Norð- ursjóinn og stefndum til Eng- lands. Meginlandið lá að baki okkar baðað í sól og skógar þess teygðu limið upp mót bláum himni. Og fuglar fJugu á hvít- um vængjum út til hafs og inn til lands — eins og þeir væru að bera boð og kveðjur með þökk fyrir sumarið. Reykjavík 25. scpt. 1947. Guðrún Jónsdóttir, frá Prestsbakka. 1 JOSEPHIÍNE BAKEK, Iiin kunna franska rcvýu-leikkona tók upp á þvr aö gifta sig á dögumira og vakti það að vonum athygli. A3 þcssu sinni var það Mjómsveitarstjóri. josmy n unaoar s ý n i n g u DÓMNEFND Ljósmyndasýn- ingar Ferðaíjelags Islands hef- ur nú skilað áliti og verðlaún- að þær myndir, sem hún taldi verðlaunahæfar. Alls voru veitt 10 fyrstu verð'laun til 5 ein- staklinga, 18 önnur verðlaun til 11 einsta.klinga og tvenn þriðju verðlaun tiL tveggja ein- staklinga (fyrir ’njeraðalýsing- ar). Loks var xjórum bátttak- | endum veitt flokksverðlaun og 1 sjö myndir hlutu viðurkenn- ingu, án verðlauna. Páll Jónsson hlaut fjögur fyrstu verðlaun og- ein þriðju verðlaun. Þorsteinn Jcsepsson hlaut þrenn fyrstu verðlaun og ein j önnur verðlaun, ei:n þriðju verð 1 laun og ein flokksverðlaun. j Kjartan O. Ejarnason hlaut ein fyrstu verðlaun. þrenn önn- ur verðlaun og ein flokksverð- laun. ! Gísli Gestsson hlaut þrenn önnur verðlaun. j Leifur Kaldal hleut ein fyrstu verðlaun og tvenn önnur verð- 1 laun. Guðbjartur Ásgeirsson hlaut ein fyrstu verðlaun, ein önnur verðlaun og ein flokksverðlaun. Steinar Guðmundsson hlaut tvenn önnur verðlaun. Ólafur Magnússon hlaut tvenn önnur verðlaun. Páll Sigurðsson, Valdimar Jónsson, Herdís Guðmunds- dóttir og Guðbjörg Benedikts- dóttir hlutu ein önnur verð- laun hvert. Sigurður Þorvarðarson hlaut flokksverðlaun. Viðurkenningu án verðlauna’ hlutu Hallgrímur Sigurðsson, Ólafur Magnússon, Sigrún Jóns dóttir, Stefán Nikulásson, Gunn ar Ólafsson, Anna Þói'halls- dóttir og Gunnar Ásgeirsson. Við úthlutun verðlauna á einstakar mýndir tók dóm- neíndin jafnframt tillit til myndaheilda hvers þátttak- anda. Dómnefndina skipuðu þeir Vigfús Sigurgeirsson ljósmynd- ari, Halldór E. Arnórsson Ijós- myndari og Pálim Hannesson rektop. Allar þær myndn', sem verð- laun hlutu, eru auðkenndar á sýningunni. Sýningin verður aðeins opin í dag og. á morgun. öaræSgr um bresk anðarisKa II ams London í gærkvöldi. BRESK sendinefnd mun leggja af stað til Washington n.k. laug- ardag til viðræðna við stjórn- arvöldin þar. Munu umræður þessar snúast um ýms vanda- mál í sambandi við sameiningu hernámssvæða Breta og Banda- ríkjamanna. Þess er vænst, að meðal ann- ars verði rætt um það, á hvern hátt sje hægt að ljetta byrði þá, sem breskir skattgreiðendur nú mega bera vegna hernámskostn- aðarins í Þýskalandi. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.