Morgunblaðið - 01.10.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.10.1947, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvjkudagur 1. okt. 1947 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.l Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsspn Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsmgar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlanda. kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Verkeíni Alþingis í DAG kemur reglulegt Alþingi ársins 1947 saman til fundar. Fyrsta verkefni þess, eins og annara reglulegra þinga er samning fjárlaga fyrir komand,i ár. Að þessu sinni verður setning fjárlaga vandasamari en oftast áður. Ástandið í fjármálum íslendinga er þess eðlis nú, að veruleg stefnubreyting í ráðstöfun almannafjár er nauð- synleg. Það verður ekki hjá því komist, að hverfa til aukinnar varúðar í fjármálum ríkisins. Að sjálfsögðu verður að reyna að halda áfram nauðsynlegustu verk- legum framkvæmdum í þágu framleiðslunnar til sjávar og sveita. Að öðru leyti verður óumflýjanlegc, að draga úr útgjöldum ríkissjóðs svo sem framast má verða. Á þeirri leið eru að vísu margvíslegir örðugleikar. Löggjaf- inn hefur á undanförnum árum sett margvíslega löggjöf, sem bindur ríkissjóði þunga bagga. Verulegur hluti þess- arar löggjafar hefur að vísu miðað til framfara og eflingar nauðsynlegum umbótum. En allt of stór þáttur hennar hefur samt stefnt að því að yfirbyggja ríkisbáknið, fjölga greinum opinberrar sýslu og auka kostnaðinn við rekstur þjóðarbúsins langt fram yfir fjárhagslega getu lands- manna. Þessi saga hefur ekki aðeins verið að gerast síðustu árin. Hún á rætur sínar allt aftur til ársins 1927. Fyrst eftir fullveldisviðurkenninguna 1918 ríkti á því greini- legur skilningur hjá fjárveitingavaldinu, að nauðsyn bæri til þess að leggja á það allt kapp að treysta grundvöll hins fjárhagslega fullveldis. Að því marki var unnið af kappi af hyggnum fjármálamönnum fyrsta áratug full- veldisins. Jafnhliða var hafist handa um ýmsar aðkall- andi framkvæmdir. En síðustu tvo áratugina hefur því miður ekki alltaf verið jafn varlega haldið á fjármálum ríkisins. Fram hjá þeirri staðreynd verður ekki komist. Þess vegna verður aukin festa og hófsemi því nauðsynlegri nú. En það eru ekki aðeins fjármál ríkisins, sem koma til kasta þess Alþingis, sem í dag hefur fundi sína. Atvinnu- vegir þjóðarinnar standa á fremstu nöf. Verðbólgan ógnar afkomu fólksins ef ekki verður aðgert. Það má þessvegna segja að meginverkefni þessa þings verði að fjnna leiðir út úr ógöngunum í þeim efnum. Mörgum, sem ræða dýrtíðarvandamál okkar nú hættir til þess að gera þau mál miklu flóknari en þau í raun og veru eru. Aðalatriði dýrtíðarvandamálsins er það, að framleiðslukostnaður þeirra vara, sem þjóðin framleiðir til útflutnings er orðinn alltof hár. Þess vegna seljast ís- lenskar afurðir treglega og sú hætta vofir yfir, að er- lendir keppinautar vinni íslenska markaði. Þess vegna liggur nú meginhlutinn af fiskiskipaflota þjóðarinnar bundinn í höfn og full vissa er fyrir því, að hann hlýtur að gera það í allan vetur, einnig yfir hávertíðina, ef ekki verður að gert. Það er ekki hægt að leysa vandamál eins og þetta nema með raunhæfum aðgerðum. Engum óbrjáluðum manni kemur til hugar að skipaflotanum verði í vetur komið úr höfn með.ríkisábyrgðum eða voninni í framleiðslu síldar- lýsis næsta sumar. Sú von brást hrapalega í sumar. Þau spor hræða. Dýrtíðinni verður heldur ekki haldið niðri lengur með niðurgreiðslum á verði innlendra neysluvara. En hvaða leiðir eru þá eítir? Það er ekki nema ein leið til. lækkun framleiðslukostn- aðar, beint eða óbeint og takmörkun hverskonar eyðslu. Þetta er eina raunhæfa leiðin til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi og stöðvun þeirra framleiðslutækja, sem þjóðin af mikilli bjartsýni og dugnaði hefur aflað sjer á undanförnum árum. Þetta verður Alþingi, sem nú kemur samsn að gera sjer ljóst. Það getur ekki lengur hikað í því að ge'ra ráð- stafanir sínar. Að hika er sama og tapa. Og þessar ráð- stafanir þola enga bið. Þær eru. óumflýjanlegar. Þeir, sem snúast gegn þeim, geta ekki átt nema eitt takmark, hrun og örbirgð yfir íslensku þjóðina. ÚR DAGLEGA LÍFINU Hver maður sinn skamt. UMRÆÐUEFNI DAGSINS í dag og næstu daga verður án efa hin nýja skömtun, sem sett hefir verið á ýmsar nauðsynj- ar. Menn bollaleggja um það fram og aftur, hvort skamtur- inn sem hverjum og einum er ætlaður muni hrökkva til. Hús- mæðurnar hugsa um hreinlæt- isvörur, matvæli og vefnaðar- vöru og bílstjórar og bílaeigend ur um bensínskamtinn. Margir verða vafalaust óá- nægðir til að byrja með. en er frá liða stundir komast þeir að því, að það er óþarfi að æðrast og að það er hægt að komast af með miklu minna af þessu og hinu, ef menn bara vilja. Við Islendingar höfum haft það allra þjóða best frá því að styrjöldin hófst og frá því henni lauk. Það er sennilega engin þjóð í heimi, nema Bandaríkjamenn, sem hafa bú- ið við aðrar eins alsnægtir og við. • Olin hert um stund. OKKUR ÆTTI ÞVÍ sannar- lega að vera vorkunarlaust að herða ólina um stund á meðan við eigum í erfiðleikum. Það er ekki að vita hvað það verð- ur lengi, en best er að vera bjartsýnn og vona hið besta. Annars er þessi skömtun ekki mikil nje hörð þegar hugsað er til hvað aðrir verða að neita sjer um. Við höfum nógan fisk og kjöt, kartöflur, smjör o. fl. En í sjálfu kjötlandinu Dan- mörku er kjötmeti skamtað. Það væri álíka og hjer yrði farið að skamta fisk. • Misjafnlega tekið. ÞANNIG MÆTTI lengi telja upp þjóðir, nágrannaþjóðir okkar, sem leggja að sjer til þess að flýta fyrir endurreisn- inni og dettur ekki í hug að kvarta. Annars er það misjafnt, hvernig einstaklingar og þjóðir taka mótlæti og/ erfiðleikum. Sumir eru sívælandi, en aðrir1 gera sjer það, að góðu sem að höndum ber. 1 Kunningi minn, sem var í Noregi um daginn sagði mjer, að Norðmenn hreint og beint móðguðust, ef aðkcmumenn vorkendu þeim fyrir að hart væri í ári og að það vantaði ýmsar nauðsynjar. Venjulega svarið væri: ,,Þetta er ágætt. Við vitum að það gæti verið svo nikið verra, að það væri synd að kvarta“. Þannig á að taka hlutunum. — Ekki til þess að vera :iein hetja, heldur til þess að mönn- um líði betur. • „Alt skrifað . . .“. MARGIR KANNAST við sög una um kunnan Reykvíking, sem dvaldi um hríð á Austr fjörðum. Er hann kom suður aftur 'spurðu kunningjarnir hverníg hann hefði kunnað við sig fyrir austan. „Alveg ágætlega“, svaraði Reykvíkingurinn. ,,Og það besta við það alt er að bað kost ar ekki neitt að vera til þarna austur frá“. Það þótti kunningjunum skrýtið. ..Það er sko alt skrifað“. út- skýrði sá sem verið hafði á Austfjörðum. • Alt út í hönd. EN HAFI einhverjir notað hina austfirsku aðferð til að lifa ódýrt með því að láta skrifa hjá sjer, þá er sú dýrð úti með deginum í dag. Kaupmenn hafa auglýst að nú skuli alt greitt út í hönd. Það er margt sem dynur yfir í dag, skömtun og afnám láns- viðskifta. • Saga um ábyrgðar- brjef. MAÐUR NOKKUR kom til mín í fyrradag með ábyrgðar- brjef. sem hann hafði fengið í flugpósti frá Noregi. Sam- kvæmt stimplunum á brjefinu var það sett í póst í Tönsberg þann 18. september. Það kom hingað miðvikudaginn 24. sept ember og var stimplað hjer kl. 18 þann dag. En það var fyrst á mánudag, þann 29., sem *wðtakandi brjefs ins fjekk tilkynningu um það írá póststcfunni, að hann ætti ábyrgðarbrjef á pósthúsinu. Það þótti honum langt og mu.nu ekki margir lá honum það. Fröken klukka er rjett. ÞAD ER ALVEG óhætt að reiða sig á fröken klukku í ,hm anum (04). Það var minst á þetta hjer á dögunum í sam- bandi við vitlausu klukkurnar í bænum. í gær sá jeg skýrslur, sem Loftskeytastöðin hefir gert um fröken klukku og borið hana saman við tímamerki fré ýmsum stöðum í Evrópu. önn- ur skýrslan nær yfir viku og munar þá einu sinni 1 sekuntu hvað ,,frökenin“ var of sein. Hin skýrslan nær yfir 14 daga og er mesti mismunur 2 sek- untur. Það er gott að vita af því að hægt er að reiða sig á eitthvað í þessu lííi. Minjagripir í Keflavík. ÞAÐ mun ekki vera alveg rjett, að það sje engin minja- gripaverslun á Keflavíkurflug- velli, eins og jeg sagði í gær. Það er eitthvað dundað við þess háttar þar á einu borði. Hitt er rjett að aðfaranótt sunnudagsins, er þrjár vjelar komu þangað, var engin slík verslun opin. Og það er nú einu sinni svo með flugferðir, að það er ekki hægt að haga þeim eft- ir lokunartíma sölubúa í hverju landi, heldur verður að hafa verslanir, sem ætlaðar eru flug farþegum opnar, eftir viðstöðu vjelanna á hverjum stað. MEÐAL ANNARA ORÐA . . 4. —-----— Tébakimarkaður Bandaríkjanna MINKANDI sala á amerísku tóbaki í Evrópu er farin að vekja bandaríska tóbaksrækt- endur til umhugsunar. Talið er, að útflutningur á' tóbaki frá Bandaríkjunum verði 90 mil- jón dollurum minni en á síð- asta ári er hann var 351 miljón. Mun það vera skortur á dollur- um, sem hefir neytt þjóðirnar til að takmarka tóbakskaup sín, og víst er að hlutfall útílutnings tóbaks verður mikið minna en venjulega, eða 20%. Var í hámarki á á síðasta ári. Tóbaksútflutningurinn á síð- asta ári var hámark og tóbaks- ræktunarmennirnir höfðu að vísu búist við nokkurri sölu- minkun. Nú virðist sú minkun ætla að verða mikið alvarlegri en þeir höfðu gert sjer í hug- arlund. Sjer í lagi hefir Bret- land, sem var stærsti kaupand- inn minkað innflutning sinn gífurlega. Mikil innanlandssala. Ahrifanna af þessum sölu- breytingum mun ekki gæta mjög harkalega á tóbaksmark- aði Bandaríkjanna þegar í stað, því að vaxandi innanlands- neysla getur að nokkru bætt hallann. En nú sjá menn fram á það á næsta' ári eða svo, að innanl-gnds salan minki einnig og hvað verður þá um bænd- urna í Suðausturríkjunum, rem lifa eingöngu á tóbaksræktun. Helmingi minni tóbaks kaup Breta. Bretland hefir þegar ákveðið að minka tóbakskaup sín frá fyrra ári um helming og á fyrri helming þessa árs voru ekki flutt nema 100 miljón pund af tóbaki til Englands samanborið við 200 miljón á sama tíma í fyrra. Breska stjórnin heldur reyk- ingum niðri með miklum ínn- flutningstolli, sem var settur á í apríl á þessu ári og veldur því, að þjóðin reykir 30% minna en áður. Auk þess er búíst við enn meiri skerðingú í tóbakskaupum frá Bandaríkj- unum og vonar breska Stjórn- in, að hægt sje að bæta það upp með tóbaki frá nýlendunum. Uppskera Bandaríkjanna á fyrsta flokks tóbaki er áætluð muni nema nærri 1.300.000.000 pundum á þessu ári og er það heldur minna en á síðasta ári. Aukning innanlandsneyslunnar mun nema 50%, en verður samt ekki næg til að bæta upp íull- komlega tap á útflutningi. Verðlækkun. Veldur það þegar nokkurri verðlækkun á tóbaksmarkaðin- um. Nú nýlega fjell verðið á Georgía markaðinum úr 44 dollurum í 33 dollara á 100 p.und. Nokkur lönd kaupa meira en áður. Kaup annara landa munu ekki verða nóg til að bæta upp minkuð kaup Breta. Raunar munu kaup Kinverja og Ástr- alíúmanná mikið aukast og einnig fá Holland, Svíþjóð ;og Danmörk heldur meira en á síðasta ári. En öll þessi lönd (Framhald á bls. 12)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.