Morgunblaðið - 09.12.1947, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 9. des. 1947
MORGUNBL4ÐIÐ
5
Joe Louis og Jersey Joe Waicotí
Þessar myndir voru teknar af Joe Louis og Walcott eftir bardagann s.l. föstudag. Louis hefur ekki
iiðru sinni fengið öllu verri útreið, enda sjest á myndinni að vinstra auga hans er nærri sokkið og ekki
fxafa varirnar þynst.
JERSEY JOE WALCOTT fær ekki breytt úrskurði dómaranna
tim sigur Joe Louis í einvígi þeirra s.l. föstudag. En Waicott og
jumboðsmaður hans, Joe Webster, áfrýjuðu dómnum til íþrótta-
idómstólsins í New York. Hefur hann kveðið upp þann úrskurð að
Louis beri sigurinn.
En þótt Louis ynni, er hann^
langt frá því ánægður með þá
útreið, sem hann fjekk hjá
Walcott. Hann hafði ákveðið að
yfirgefa hringinn eftir þennan
leik, en nú hefir hann breytt
þeirri ákvörðun og heldur á-
fram keppni.
Louis hefur varið titilinn
24 sinnum
Síðan Louis vann James
Braddock með rothöggi í 8. lotu
1937, hefir hann verið ósigr-
iandi, og varið titil 'sinn 24 sinn-
um, en svo oft hfefir engum öðr-
um tekist að standast þá eld-
raun.
Louis hefir unnið 20 sinnum
íneð rothöggi, þrisvar á stigum
og einu sinni vegna þess að and
stæðingur hans gerðist brotleg-
ur í keppninni.
Walcott er gamalreyndur
hnefaleikari
Jersey Joe Walcott er held-
ur enginn viðvaningur í hringn
um. Hann hefir verið í röð
fremstu hnefaleikara síðan 1937
og er 34 ára gamall. Á þessum
11 árum hefir hann barist 37
sinnum. 28 keppnir hefir hann
unnið, en tápað 9, og er þá
síðasta keppni hans við Louis
ekki talin með.
= |
I MÁLFLUTNINGS- I
1 SKRIFSTOFA
| Einar B. Guðmundsson. f
| Guðlaugur Þorláksson
Austurstræti 7.
Símar 3202, 2002
Skrifstofutími
kl. 10—12 og 1—5.
I
wiaiiimiiuuinniPiumiMiuBWMMiiiMwimmnniw
Frjálsíþróflakeppni
M Dani og sund-
keppni við Norð-
menn?
UMRÆÐUR hafa nú hafist
um milliríkjakeppni við Dani
í frjálsum íþróttum n. k. sum-
ar, segir í frjettum frá ÍSÍ. —
Frjálsíþróttasamband Danmerk
ur hefir skrifað íþróttasam-
bandi íslands brjef varðandi
þessa keppni, sem gert er ráð
fyrir að fari fram 12. og 13.
ágúsf n. k. í Kaupmannahöfn.
ÍSÍ og Frjálsíþróttasamband
íslands eru nú að athuga mögu-
leika á þessari keppni.
Einnig er í ráði að bjóða hing
að norskum sundmönnum næsta
sumar. íþróttasamband' íslands
hefir skrifað Sundsambandi
Noregs og farið þess á leit, að
efnt verði til milliríkjakeppni
í sundi næsta sumar. Ekki er
enn víst hvort af þessair keppni
getur orðið.
íjiróiiasfntagin í Há-
logalandi mh-
EseppnaSist
íÞRÓTTASÝNING sú, sem hús-
stjórn íþróttabandalags Reykja-
víkur gekkst fyrir í fyrrakvöld
að Hálogalandi, varð mörgum, er
hana sóttu, til hinna mestu von-
brigða. Má þetta að sumu leyti
kenna röngum frjettaflutningí
sumra dagblaðárma, er t. d.
skýrðu svo frá að þarna ætti að
fara fram hnefaleikakeppni í öll-
um þyngdarflokkum miili Ame-
ríkana annarsvegar og íslenskra
hnefaleikara hinsvegar, en slíkar
keppnir stóðu aldrei til að færu
fram í sambandi við sýningarnar.
í öðru lagi varð það til að
angra skap manna að Amerík-
anarnir fjölmentu eigi eins og
þeir höfðu ætlað, til sýningarinn-
ar, svo þeim reyndist um megn
að standa við þau loforð, er þeír
höfðu gefið hússtjórninni, t. d.
mættu' þeir aðeins með tvo menn
til að annast Badmintonsýning-
una í stað þess að þeir höfðu
gert ráð fyrir að n.æta með minst
fjóra. Til hnefaleikasýningarinn-
ar mættu aðeins tveir menn í
þungavigt, í stað þess að gert
hafði verið ráð fyrir að hnefa-
leikasýningin færi fram í þrem
til fjórum þyngdarflokkum. En
mestum vor.brigðum urðu sýning
argestirnir fyrir, er það kom í ljós
að fjölbragðaglíman varð að falla
niður vegna þess að sýningav-
mennirnir mættu ekki.
Undirbúningur allur virtist
mjög í lausu lofti og er slíkt mjög
varhugavert fyrii hússtjórnina,
ef hún ætlast til að sýningar þær
verði sóttar, sem haldnar verða í
Hálogalandi í framtíðinni. Ekki
hvað sýst er þess er gætt að sýn-
ingin var haldin til ágóða fyrir
íþróttahúsið.
Það eina sem goít var við sýn-
ingu þessa var körfuhandknatt-
leikurinn.- En hann vakti óskerta
hrifningu áhorfenda. Liðin er
komu fram til keppninnar voru
svo jöfn að varla mátti milli sjá,
hvort þeirra bæri sigur úr bít-
um. Og lauk leik þeirra með
tveggja stiga mun. Sýningarmenn
þeir er komu frani í leik þessum
eiga þakkir skilið fyrir góðan leik
og það að haga leik sínum þann-
ig að flest atriði um það hvernig
leika á leikinn, kæmu fram í leik
þeirra. Einnig sýndu dómarar
leiksins sig alla í því að gera á-
horfendum sem skiljanlegast
hvernig leikurinn gengi fyrir sig.
— Á. Á.
Vorræna fjelagið mun gefa
út úrval norrænna nútíma-
bókmennta
' — ■ r
0g fejóða hingað árlega vtsinda- eSa
iisiamönnum
NORRÆNA fjelagið hefur ákveðið að hefja útgáfu norrænna
bóka i íslenskri þýðingu. Fyrsti bókaflokkurinn mun heita ,,ÚrvaI
norrænna nútímabókmenta“. Fyrsta bókin, sem kemur út í þess-
um flokki, verða smásögur eftir Arnulf Överíand, en síðar munu
koma út bækur eftir Jóhannes V. Jensen, Hjalmar Bergman, Joh.
Falkberget, Joh. Linnankoski, Sigfrid Siwertz og fleiri merka
nútímahöfunda.
Guðlaugur Rosinkrans, ritari^
Norræna fjelagsins, skýrði blað
inu frá þessu í gær, er það átti
tal við hann.
Mun bjóða hingað norrænum
listamönnum árlega.
— Um önnur verkefni fjelags
ins, sagði Guðlaugur, má geta
þess að það hefic boðið hingað
norska skáldinu Arnulf Över-
land til þess að halda hjer fyr-
irlestra og lesa upp úr kvæð-
um sínum. Hefir skáldið þeg-
ið boðið og keraur hingað með
vorinu. Þá hefir fjelagið í
hyggju að bjóða til landsins ár-
lega að minsta kosti einum
Norðurlandabúa, sem skarar
fram úr á sviði lista eða vís-
inda, til þess að halda hjer fyr-
irlestra og lesa upp úr verkum
sínum.
Luciuhátíð.
Norræna fjelagið gengst fyr-
ir Luciuhátíð í ár eins og í
fyrra, en það er þjóðarsiður á
Norðurlöndum, einkum í Sví-
þjóð og í Finnlandi, að halda
upp á Luciudaginn, sem er þann
13. des. Luciuhátíðin verður
haldin um kvöldið þann 12. des.
í Sjálfstæðishúsinu, og verður
með svipuðu sniði og undan-
farið. Hinn nýkomni sendiherra
Svía, S. H. Pousette, heldur
ræðu, sjö stúlkur, skrýddar hvít
um kyrtlum og n*eð krans al-
settan logandi kertaljösum á
höfðinu svngja Luciusönginn,
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
norræn lög og loks verður dans-
að.
Norræn jól.
,,Norræn jól“ koma út ein-
hvern næstu daga fnlleg og fjöl-
breytt að vanda. I ritið skrifa
meðal annarra að þessu sinni
Stefán Jóh. Stefánsson, forsætis
.ráðherra, formaður fjelagsins,
er skrifar ávarp. Helgi Hjörvar
skrifar langa og góða grein um
hinn fræga norska listamann
Gustav Vigeland og fylgja þeirri
grein fjöldi ágætra mynda af
listaverkunum. Grein er um.
sænsk sveitajól, eftir Jöran
Forslund rithöf. skemmtileg
frásaga eftir -Albert Engström
með teikningum eftir hann,
smásaga er eftir Friðrik Á.
Brekkan o. m. fl. Eggert Guð-
mund.sson listmálari hefur
teiknað forsíðumynd og mynd-
ir með kvæði eftir frú Clatved-
Prahl, er hún flutti á Ásólfs-
stöðum í sumar á Snorrahótíð-
ihhi og vakti milda hrifningu
allra áheyrénda Fjelagsmenn
fá ,,Norræn jól“ ókeypis en auk
þess verða þau seld í bókaversl-
unum.
AUGLYSING
ER GULLS ÍGILDI
Heklubók Fjalla
manna
KOMIN er út bók er nefnist
Heklugosið 1947. Eins og titill
hennar bendir til, fjallar hún.
um Heklugosið.
Bók þessa hafa tekið saman
þeir Guðmundur Kjartansson
jarðfræðingur og Guðmundur
Einarsson frá Miðdal.
Það eru hinir kunnu ferða-
langar, sem nefna sig Fjalla-
menn, sem gefa þessa bók út.
En Guðjón Ó. Guðjónsson bóka-
útgefandi átti hugmyndina að
útgáfu hennar og hefur hann
sjeð um alla prentun bennar.
Sá ágóði er kann að verða af
sölu hennar, skal óskiptur renna
til þeirra er orðið hafa fyrir
mestu tjóni af völdum ösk’u-
falls úr Heklu.
Þessari bók er skipt í týo
kafla. Annar þeirra fjallar um
Heklugosin allt frá upphafi og
hefur Guðmundur Kjartansson
skrifað þennan kafla hennar, en
hann mun að allra dómi vera
fróðastur jarðfræðinga um
Heklugosin og annað þeim við-
komandi, hraunmyndanir og
annað. Guðmundtir frá Miðdal
skrifar almenna f"ásögn af gos-
inu og stvðst hann við þær
ellefu ferðir er hann hefur far-
ið til gosstöðvanna.
Guðmundur frá Miðda] bauð
blaðamönnum til sín í gær og
skýrði þeim frá þessu. Sagði'
hann að þessi bók væri ekki
tæmandi lýsing á gosinu, en það
nær yfir fyrstu 6 mánuði þess.
Mikill fjöldi mynda prýða bók-
ina og eru þær úrval 150 Heklu
mynda er bárust. Pálmi Hannes
son rektor var með í ráðum um
val myndanna.
Aftast í bókinni er yfirlit um
gosið á en?;ku en það hefur
Bjarni Guðmundsson blaðafull-
trúi gert.
Kvikmynd.
Aður en blaðamenn fóru,
sýndi Guðmundur þeim kvik-
mynd er Fjallamenn hafa unn-
ið að síðan gosið hófst 29. mars.
Þeir Osvald Knudsen, Magnús
Þorgeirsson, Friðrik Þorsteins-
son og Guðmundur hafa unnið
að þessum kvikmyndatökum.
Þeir hafa nú myndsð inn á 4000
feta filmu og eru.þær nú í hönd
um sjerfróðra manna bæði í
Svíþjóð og Bandaríkjunum, en
einnig nokkur hluti hennar hjer
heima. Myndin sem Guðmund-
ur sýndi vakti mikla hrifningu
og var það mál manna að vart
myndi betri kvikmynd hafa
sjest. að öðrum ólöstuðum. Þeir
munu síðar í vetur sýna ein-
hverja kafla úr henni á Ferða-
f jelagsfundum.