Morgunblaðið - 21.03.1948, Síða 1
16 síður og Lesbók
35. árgangur
71. tbl.
Sunnudasur 21. mars 1948.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Stungið upp á alþjóða
rekstri íslensku flug-
vallanna
í NEW YORK TIMES frá 15. þ. m. er skýrt frá því, að ráð
alþjóða flugmálasambandsins (ICA), hafi lagt til, að flug-
vellirnir á Islandi, sem sjeu nauðsynlegir fyrir almennt flug,
verði reknir á alþjóðakostnað. Er frá þvi skýrt um leið, að
íslensk stjórnarvöld myndu ekki hafa neitt á móti slíku.
Vilja skila ftölum Trieste
Hýr yfirmaður breska
flcfans.
Kostar 3,9 miljónir kr.
Tillaga þessi byggist á at-
hugunum þeirra H. R. Adam
og J. R. Dean, sjerfræðingum
alþj óðaf lugmálasambandsins,
sem komu hingað til lands í
desember s.l.
Gert er ráð fyrir, að þær
þjóðir, sem halda uppi flugi
milli heimsálfa taki þátt í
kostnaði , sem af þessu fyrir
komulagi leiddi, en hann er á-
ætlaður 600,000 dollarar ár-
lega, eða 3,9 milj. ísl. krónur.
Gert er ráð fyrir að komið
yrði upp loftskeytastöðvum til
sendinga og móttöku, flug-
stjórnarmiðstöð og veður-
stöðvakerfi, þar sem yrði ein
sjálfvirk og fimm mannaðar
veðurstöðvar hjer á landi.
Kyntu sjer flugskilyrði hjer.
Sjerfræðingarnir, sem minst
er á í frjettinni, Adam og Dean
voru hjer á landi í vetur og
kyntu sjer veðurfregnakerfi
okkar og flugskilyrði. Ræddu
þeir þessi mál við ísl. embættis-
menn og kynntu sjer að-
stæður á Kefiavíkurflugvelli
og í Reykjavík.
Gyðinpr óánægðir
Jerúsalem í gærkveldi.
ÆÐSTARÁÐ Gyðinga í Pal-
estínu hefur birt yfirlýsingu í
sambandi við þá tillögu Banda-
ríkjamanna, að fallið verði frá
ákvörðuninni um skiptingu
lar.dsins. Segir ráðið meðal ann-
ars um tillöguna, að þetta sje
spor í áttina að rjettlæti í þessu
máli, og bætir því við, að Arab-
ar geti ekki fallist á neina lausn
aðra en sjálfstæði Palestínu ó-
skiptrar.
Hjer í Jerúsalem er á hinn
bóginn svo að sjá, sem tillaga
Bandaríkjanna hafi komið eins
og reiðarslag yfir Gyðinga. Þeir
hafa orðið fyrir feykilega mikl-
um vonbrigðum, enda aðeins
tveir mánuðir þar til fram-
kvæmd skiptingarinnar átti að
hefjast. — Reuter.
Ms. Goðafoss kemur
MS. GOÐAFOSS er væntan
legur til Reykjavíkur á þriðju
daginn.
í fyrrad'ag fór skjpíið frá
Leith, en þar tók það vörur.
Óvíst var í gær um hvert leyti
skipið myndi koma inn á ytri
höfnina.
íerlin
Berlín í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá
Reuter.
FULLTRÚAR Rússa, með Sokol
ovski marskálk í broddi fylking
ar, ruku af fundi eftirlitsráðs
stórveldanna í Berlín í dag. —
Marskálkurinn lýsti því yfir,
,,að tilganslaust væri að halda
þessum fundi áfram“.
Skömmu áður en Sokolovski
marskálkur og menn hans
gengu af fundi, sagði hann, „að
Vesturveldin hefðu með fram-
komu sinni sannað, að þau
hefðu rofið samkomulagið um
stjórn Þýskalands og þar með
væri grundvöllurinn fyrir á-
framhaldandi starfi fjórvelda-
ráðsins ekki fyrir hendi Iengur“.
Ráðið ekki uppleyst.
Eftir að Sokolovski hafði
gengið af fundinum tók fulltrúi
Bandaríkjanna, Lucius D. Clay
hershöfðingi við fundarstjórn
og hjeldu fulltrúar Breta, Banda
ríkjamanna og Frakka fundin-
um áfram.
Þeir ákváðu að fresta skyldi
að ákveða næsta fund ráðsins.
Fulltrúi bresku stjórnarinnar
tilkynnti blaðamönnum, að eng-
in ástæða væri að líta svo á, að
ráðið hjeldi ekki fleiri fundi.
Atvinnuleysi hjá
vörubílstjórum
Á FUNDI bæjarráðs, er haldinn
var s.l. föstudag, var lagt fram
brjef frá vörubílstjórafjelaginu
Þrótti, varðandi atvinnuleysi
með vörubílstjórum í bænum.
í brjefinu segir m.a., að starf-
andi vörublístjórar við stöðina
sjeu 350, en árið 1939 voru þeir
115.
Að undanförnu hefur lítil
vinna verið fyrir vörubíla og
hún stopul. Hafa þessa vinnu
stundað 150 til 170 vörubílstjór-
ar.
í brjefinu er lagt til, að bær-
inn hefji þegar þær framkvæmd
ir, er útheimta vinnu fyrir vöru-
bílana.
’
B. A. Fra'íer lávarður, sem hefir
tekið viS yfirstjórn breska
"lotans.
borisi 2,5 milj. kr.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Barna
hjálpar Sameinuðu þjóðanna,
skýrði Mbl. frá því í gærkvöldi,
að fjársöfnunin væri nú komin
upp í 2,5 millj. kr.
1 Reykjavík einni hefur um 1
milljón safnast. Skrifstofunni
| berst stöðugt mikið af fatnaðar
gjöfum og lætur nærri að verð-
í mæti þeirra sjeu á annað hundr-
að þúsund krónur. Loks hefur
j svo 41 lýsisfat borist.
; Utan af landi vantar enn
j heildartölur um söfnunina frá
I 10 stöðum. Skipshafnir togar-
; anna munu á næstunni senda
framlög sín til Barnahjálpar-
innar. Þegar hafa 6 skipshafnir
gefið.
Fjársöfnuninni á að ljúka nú
um mánaðarmótin.
Oxford vann (am-
bridge í hínni árlegu
fpróitakeppni
London í gærkvöldi.
HIN árlega íþróttakeppni milli
háskólanna Oxford og Cam-
bridge fór fram á White City í
dag. Bar Oxford sigur úr býtum
með 83 stigum gegn 43.
Sigursælasti maður keppn-
innar var danski stúdentinn
Ivar Vind, sem nú stundar nám
í Cambridge. Vann hann í þrem-
ur greinum, hástökki, stangar-
stökki og kringlukasti. — 1 há-
stökki setti Vind nýtt háskóla-
met, stökk 1,90 m. og ,,sló“ þar
með hið 72 ára gamla met M. J.
Brooks, sem var 1,89 m. Vind
stökk 3,20 í stangarstökki og
kastaði kringlu 40,14 m.
Wilkinson, sem er ein aðal
von Breta í spretthlaupum
kvenna á Olympíuleikunum,
vann 100 og 220 yarda hlaup, á
10,1 og 22,5 sek. :— Reuter.
Tillaga frá Bandaríkja-
mönnum, Bretum
og Frökkum
um
r r
S
hafa revmtóleysaniegar
París í gærkvöldi
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BIDAULT, utanríkisráðherra Frakklands, tilkynnti í Turin í
dag, að Frakkar, Bandaríkjamenn og Bretar hefðu komið
sjer saman um, að bera fram tillögu urn það, að Trieste, sem
samkvæmt ítölsku friðarsamningunum varð fríríki, verði
skilað aftur til Italíu. Sendiherrum ttala og Júgóslava í
London var nær samtímis tilkynnt þessi ákvörðun, en
hún mun eiga rót sína að rekja til þeirrar staöreyndar, að
vonlaust má nú telja að samkomulag náist við Rússa um
stjórn friríkisins. Þríveldin eru ásátt um, að eins og útlitið
er núna, sje málið óleysanlegt á annan hátt, en að afhenda
ttölum landssvæðið á ný.
um
færeyskan iogara
UNDANFARNA daga hefur
sé orðrómur gengið í Færeyj-
um, að togarinn Toftaregin frá
Vaag hafi farirt í Meðallands-
buktinni.
I gær barst Slysavarnafjelag
inu skeyti frá amtmanninum í
Færeyjum, þar sem óskað var
eftir því, að fjelagið tæki þetta
mál til athugunar.
í hádegisútvarpinu í gær, var
birt tilkynning frá Slysavarna-
fjelaginu og óskað eftir upp-
lýsingum um skipið. Nokkru
eftir að þessi tilkynning hafði
verið birt, sendi skipstjórinn á
Toftaregin skcyti og sagðist
vera á leið til Reykjavíkur.
Hingað kom skipið um kl. 4 í
gær. Hafði togarinn verið á
véiðum fyrir suðurströndinni
og hafði ekkert orðið að.
Lýsa andúð sinni á
kommúnisium
London í gærkveldi.
ALÞJÓÐAFUNDUR sósíal-
ista. sem um þessar mundir er
haldinn í London, samþykkti í
dag að lýsa yfir andúð sinni á
þeim sósíalistafiokkum ein-
stakra landa, rem stutt hefðu
kommúnista. Sagði í samþykkt
fundarins, að sósíalistar hefðu
reynt að halda vinfengi sínu
meðal hinna ýmsu flokka sósíal
ista um öll lönd, en nú sæju
þeir sjer ekki fært að sam-
þykkja gerðir þeirra, sem sýnt
hefðu vinfengi vrið kommúnista.
Fulltrúar Italíu, sem á fundin-
um voru gengu út. Þeir hafa
nýlega sýnt sig mjög hlynta
kommúnistum. — Reuter.
Júgóslavar
Talið er víst að skýsla sú, sem
yfirmaður bresk-bandaríska
setuliðsins í Trieste gaf Öryggis
ráðinu fyrir mánuði síðan, hafi
átt mikinn þátt í hinni nýju til-
lögu vesturveldanna. í skýrsl-
unni gerir hann meðal annars
grein fyrir því, hvernig Júgó-
slavar hafi 15. sept. s.l. ár gert
tilraun til að senda her inn á her
námssvæði Breta og Bandaríkja
manna í fríríkinu. Þá er og
skýrt frá því, að Júgóslavar
hafi á hernámshluta sínum beitt
margskonar þvingunarráðstöfun
um, meðal annars gert upptækar
eigur fjöida manna, en hand-
tekið aðra og afnumið allt stjórn
mála- og fundafrelsi.
Afstaða Rússa
Enginn vafi er talinn á því,
að Júgóslavar taki óstynt upp
tillöguna um að skila ítölum
aftur Trieste. Um afstöðu Rússa
er lítið hægt að segja að svo
komnu máli, en getgátur eru
um það, að þeir muni ekki leggj
ast gegn málinu, að minnsta
kosti ekki fyr en sjeð verða úr-
slit þingkosninganna, sem fram
eiga að fara í ítalíu 18. næsta
mánaðar.
irriia tcliabandalag
Róm í gærkvöldi.
GEORGE BIDAULT, utanríkis-
ráðherra Frakklands, og Sforsa
greifi, utanríkisráðherra ítalíu,
undirituðu í dag tollabandalag
milli landa sinna. Var samning-
urinn aðeins um aðalatriðx
bandalagsins, en búist er við að
algjört bandalag verði komið á
milli landanna 1952. — Einnig
vroru undirritaðir verslunarsamn
ingar milli landanna og eru þeir
um aukin viðskipti, milli þeirra,
— Reuter,