Morgunblaðið - 21.03.1948, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 21. mars 1948
IjérlagaframyarpÍS
ATKVÆÐAGREIÐSL.A um
ibreytingartillögur við frjárlaga
ifrumvarpið við þriðju umræðu
fór fram í gær, en endanlegri
atkvæðagreiðslu um frumvarp-
ið sjálft verður frestað þar til
eftir eldhúsumræður.
Þótt þetta sjeu þau hæstu fjár
lög sem Alþingi hefur nokkurn
tíma samþykkt, þá ber að leggja
áherslu á að þau voru afgreidd
tekjuhallalaus.
Lágu þó fyrir bæöi við aðra
og þriðju umræðu fjölmargar
hækkunartillögur frá einstökum
þir.gmönnum og frá kommúnist
um einum upp á 18 milj. kr.
En fulltrúar stjórnarflokkanna
voru samtaka um að bera á-
byrgð á fjárlögunum og feldu
allar yfirboðstiHögur kommún-
ista og flestar tillögur einstakra
Fjelag bifreiðasmiða hefir
yfirbyggt 1035 bíia
á 20 árum
10 ára afmali fjeiagsins
FJELAG bifreiðasmiða minntist tíu ára afmælis síns með
hófi að Hótel Ritz í gærkvöldi. 1 tilefni afmælisins átti fje-
iagið stutt viðtal við frjettamenn og skýrði þeim í aðalatrið-
' um frá starfsemi bifreiðasmiða, þau ár, sem sú iðn hefur
einna helst vcrið stunduð hjer á landi. Kemur í ljós, að þótt
' fjelagið sje ckki mannmargt — í því eru nú alls 34 fjelagar
j— hafa bifreiðasmiðir afkastað óhemju miklu bæði við
smíði og viðgerðir bifreiða.
þingmanna
Eins og við var að búast
greiddu kommúnistar óskiptir
atkvæði með ö!lum hækkunar-
tillögum bæði frá sjer og öðr-
um.
Þingmannatillögur
samþykktar.
Hjer skal getið um þær breyt
ingartillögur frá cinstökum þing
mönnum, sem samþykktar
voru:
Tillaga frá Gunnari Thorodd
sen um að greiða Pjetri Á. Jóns-
syni, ópersöngvara, 3600 kr. ár-
leg listamannalaun.
Tillaga frá Jdrundi Brynjólfs
syni, Þorsteini Þorsteinssyni,
Sigurði Guðnasyni og Steingr.
Steinþórssyni að greiða 10 þús.
kr. til útgáfustarfsemi rímna-
fjelagsins.
Tillaga frá Gylfa Þ. Gísla-
syni, Gunnari Thoroddsen, Jör-
undi Brynjólfssyni, Einari Ol-
geirssyni og Guðm. í. Guð-
mundssyni, um að greiða Gunn
laugi Blöndal og Gunnlaugi
Scheving, listmálurum 15 þús.
kr. byggingarstyrk hvorum.
Tillaga frá Sigurði Bjarna-
syni og Hannibal Valdimars-
• syni um að greiða Tryggingar-
sjóði sjómanna í Bolungavík
12.577.09 kr.
Tillaga frá Sigurði Bjarnasyni
• og Hannibal Valdimarssyni um
að greiða Jóni Magdal, bónda í
Engidal í Skutulsfirði, 12 þús.
• kr. skaðabætur vegna atvinnu-
tjóns af völdum 12 ára sóttkvíar.
Tillaga frá menntamálaráð-
herra að kaupa íbúð handa
, rektor Menntaskólans í Reykja-
vík.
Tillaga frá atvinnumálaráð-
herra ufn að ábyrgjast Siglu-
fjarðarkaupstað allt að 2 millj.
kr. vegr.a Fijótavirkjunarinnar.
Tiilaga frá landbúnaðarráð-
herra um að kaupa jarðirnar
Gesthús og Bakkakot á Álfta-
, nesi handa jarðakaupasjóði, ef
samkomulag næst um greiðslu-
skilmála, enda greiði sjóðurinn
andvirði jarðanna .
Loks var tillaga fjármálaráð-
herra, er sagt var frá í blaðinu
í gær, um hækkun á tekjuáætl-
uninni, um 5 millj. kr., sam-
þykkt og sömuleiðis tillaga frá
sama ráðherra um að fjölgun
starfsmanna ríkis- og ríkisstofn
ana skuli vera háð samþykki
fjármálaráðherra, þar til sett
verða lög um ráðstafanir til að
draga úr kostnaði við opinberan
■ rekstur.
★
í fjárveitingarnefnd þingsins
voru aí hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins: Gísli Jónsson (form.), Pjet
ur Ottesen, Ingólfur Jónsson og
Sigurður Kristjánsson, af hálfu
Alþýðuflokksins: Sigurjón Á.
Olafsson, og af hálfu Fram-
séknarflokksins: Helgi Jónasson
■og Halldór Ásgrímsson.
Stofnaö 1938
Fjelag bifreiðasmiða var stofn
að 7. mars 1938. Voru stofnend-
ur 22, en fyrstu stjórn fjelags-
ins skipuðu þeir Tryggvi Árna-
son, sem var formaður, Þórir
Kristinsson, ritari, og Guðjón
Guðmundsson, gjaldkeri. Síðan
fjelagið tók til starfa hafa 12
nýir menn tekið próf, en 12 til
viðbótar eru nú starfandi lær-
lingar. Auk lærlinganna og fje-
lagsbundinna manna, starfa nú
alls 55 hjálparmenn á bifreiða-
verkstæðum.
1035 bílar
Núverandi formaður bifreiða-
smiðafjelagsins, Gísli Jónsson,
skýrði frá því í gær, að eftir
því, sem næst yrði komist, hefðu
bifreiðasmiðir byggt yfir 1035
bíla frá því 1927. Er hjer um
að ræða byggingar á allt frá
tveggja manna vörubílshúsum
til 60 manna strætisvagna. Auk
þess hafa auðvitað verið fram-
kvæmdar geysimargar og um-
fangsmiklar viðgerðir og breyt-
ingar á bílum á þessu sama
tímabili. Gerir fjelagið ráð fyr-
ir, að sú vinna nemi um helm-
ingi afkasta bifreiðasmiða.
Traust smíöi
í sambandi við afmæli bif-
reiðasmiðanna, sagði Egill Vil-
hjálmsson, stórkaupmaður, frá
því í gær, að enginn vafi sje á
því, að yfirbyggingar, smíðaðar
á bifreiðar innanlands, stand-
ist algerlega samkeppni við
erlenda smíði. Telur Egill inn-
lendar yfirbyggingar sjerlega
traustar og öruggar, enda hafi
það vart átt sjer stað, að slys
hafi orðið á mönnum, sökum
þess að innlenda framleiðslan
hafi bilað. Þess sjeu jafnvel
dæmi, að stórir Jangferðabílar
hafi farið margar veltur, án
þess að yfirbyggingin hafi gefiö
sig.
Núverandi stjórn bifreiða-
smiðafjelagsins skipa þeir Gísli
Jónsson, Tryggvi Pjetursson,
sem er ritari, og Guðjón Einars-
son, gjaldkeri.
Nýff úfflufningsmef
Brela
London í gærkvöldi.
FRÁ því stríðinu lauk, hefur út
flutningur Breta aldrei verið
meiri en í febrúarmánuði. Voru
að meðaltali á hverjum starfs-
degi fluttar út vörur fyrir um
sjö milljónir sterlingspunda.
Kolaútflutningur hefur aukist
til muna undanfarna mánuði, en
breski bifreiðaútflutningurinn
hefur aldrei verið meiri en í
febrúar. Voru þá fluttir út 14,
704 bílar. — Reuter.
Guðm. Apsisson
vann í I ,-SSokk í
landsflokkaglím-
unni
LANDSFLOKKSGLÍMAN fór
fram í íþróttahúsinu við Há-
logaland á föstudagskvöld. —
Guðmundur Ágústsson bar sig-
ur úr býtum í I.-flokki, Steinn
Guðmundsson í Il.flokki, Sigurð
ur Hallbjörnsson í Ill.-flokki og
Ármann Lárusson í drengjafl.
Úrslit urðu a.nnars þessi:
I. flokkur: — 1. Guðm. Ágústs-
son, Á, 6 v., 2. Gunnl. Ingason, Á,
4 -f 1 v., 3. Sigurður Sigurjóns-
son, KR, 4 v., 4. Einar Ingimund-
arson, Á, 3 v., 5.—6. Guðm. Þor-
valdsson, Á, og Sigurjón Guð-
mundsson, Vöku, 2 v., og 7. Magn
ús Óskarsson, KR, 0 v.
II. -flokkur: — 1. Steinn Guð-
mundsson, Á, 4 v., 2. Sigurður
Brynjólfsson, UMFK, 3 v., Sig-
fús Ingimundarson, Á, 2 v., 4.
Friðrik Jónsson, HSÞ, 1 v. og 5.
Unnar Sigurtryggvas., UMFR 0 v.
III. -flokkur: — 1. Sigurður
Hallbjörnsson, Á, 5 v., 2. Ingólfur
Guðnason, Á, 4 +2 v., 3. Ólafur
Jónsson, KR, 4 -f 1 v, 4. Aðal-
steinn Eiríksson, KR, 4 v., 5.
Grjetar Sigurðsson, Á, 3 v., 6.
Einar Markússon, KR, 1 v., og 7.
Helgi Jónsson, 0 v.
Drengjaflokkur: —■ 1. Ármann
J. Lárusson, UMFR, 9 v., 2. Har-
aldur Sveinbjarnarson, KR, 8 v.,
Gunnar Ólafsson, UMFR, 6 v., 4.
Bragi Cuðnason, UMFR, og Sig-
urður Magnússon, UMFR, 5 v.,
6. Geir Guðjónsson, UMFR, Hiim
ar Bjarnason, UMFR, og Sigurður
Jörgenson, Á, 3 v., 9. Valdimar
Eiríksson, KR, 2 v., og 10. Ingvi
Guðmundsson, Á, 1 v.
Fyrsli íyrlrlesfarÍBn
um myndlisl í Ausl-
urbæjarbíó í dag
UNGFRÚ Selma Jónsdóttir,
listfræðingur flytur í dag
fyrsta erindi sitt um myndlist.
Verður hann fluttur í Austur-
bæjarbíó og hefst kl. 1,30.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá er þetta fyrsta er-
indið af þremur, sem Fjelag
frístundamálara hefur fengið
ungfrúna til þess að flytja.
Með fyrirlestrinum, sem
mun fjalla um sögu myndlist-
arinnar og einstök listaverk
málara, verða sýndar skýringa-
myndir. Mun marga fýsa að
kynna sjer þau efni, sem þess-
ir fyrirlestrar fjalla um.
Leopoid Jéhannes-
son, fimtugur
w
, FIMMTUGUR er í dag, 22. mars,
Leópold Jóhannesson, Hringbraut
188.
Leópold er fæddur að Dúnk í
Hörðudal, Dalasýslu. Foreldrar
hans voru hin góðkunnu bænda-
hjón Anna Guðmundsdóttir og
Jóhannes Einarsson, sem látinn
er fyrir mörgum árum. Anna móð
ir hans er enn á lífi, háöldruð
kona og á heima á sínu gamla
setri, Dúnk, hjá syni sínum, Ein-
ari. —•
Leópold er einn af þeim mönn-
um, sem hlotið hefur það í vöggu
gjöf, að vera fjölhæfur og verk
■hans bera þess líka merki. Hann
hefur unnið til sjós og lands, að
iðnaðar- og verslunarstörfum. —
Leópold er með hægari mönnum,
. sem jeg hefi kynnst.
Um tvítugs aldur fluttist Leó-
! pold frá föðurhúsum hingað til
Reykjavíkur og vann hann þá
fyrst við verslunarstörf. Eftir
eins árs starf breytti hann um
og rjeði sig til sjóróðra suður með
sjó. Reri hann þar tvær vertíðir.
Að seinni vertíðinni lokinni hafði
hann aflað sjer þeirrar reynslu
að sjóverkin bægði honum ekk-
ert frá þeirri vinnu og rjeði hann
sig þá á togara, sem kyndari.
I þá mund var togaraflotinn í
örum vexti, en stórvöntun þá á
vjellærðum mönnum. Kom það
því stundum fyrir að ekki var til
nema einn vjellærður maður um
■ borð í skipinu til að gæta vjel-
arinnar. Reyndist þá oft erfiðlega
að finna mann til aðstoðar, við
jafn vandasamt starf. Leópold
mun ekki hafa verið búinn að
vera lengi um borð við starfa
sinn á togaranum, sem mig minn-
ir að væri „Aria“, þegar fjelagar
hans komu auga á fjölhæfni
hans. Eftir nokkra mánaða starf
var óhætt að trúa honum fyrir
gæslu vjelarinnar og af 6 árum,
sem hann stundaði togarastörf
var hann 4 ár II. vjelstjóri.
Eftir þessa 6 ára dvöl á sjónum
sneri hann sjer aftur að land-
vinnustörfum. — Vann hann þá
fleiri ár við húsabyggingar og
önnur störf, er til fellu. Að því
fráskildu gjörðist hann starfs-
maður við Verkamannabústað-
ina. Hafði hann umsjá á kynd-
ingu o. fl. í samfleytt 8 ár.
Leópold er gæddur þeim kost-
um að vinna hylli þeirra manna,
sem honum kynnast. Hann er
skemmtin í kynningu, prúður í
allri framkomu, trygglyndur og
traustur í raun.
Árið 1926, 17. júlí, kvæntist
Leópold Þuríði Ágústu Jónas-
dóttur. Dugnaðarkonu og eiga
þau 5 mannvænleg börn.
í dag, við þessi rnerku tíma-
mót í æfi hans, veit jeg að marg-
ur góðkunninginn, fjær og nær,
sendir honum hlýjar kveðjur og
árnar honum allra heilla í kom-
andi framtíð. G. G.
Nýff hafskip
London — Elder Dempster
skipafjelagið er nú að senda
nýjasta skip sitt í reynsluferð.
Skip þetta er ætlað til farþega-
flutninga og er 10,700 tonn.
Austurbæjarbíó:
Loðnl apinn
MYND sú sem Austurbæjar*
bíó sýnir um þessar mundir,
Loðni Apinn (The hairy ape) er
byggð á leikriti Eugene O’-
Meils. Myndin skýrir frá ungum
cyndara sem huldinn er brjálæðis
senndri ást á starfi sínu. Skipið
æm hann er á er að leggja af
dað til New York frá Lissabon
ig fara með því nokkrir flótta-
menn og meðai þeirra Mildred,
-ík, nautnasjúk, kærulaus
;túlka, sem farið hefur til Lissa-
bon til þess að hjálpa flóttamönn
um þar, en eytt tímanum í dans-
sölum borgarinnar. Með henni ef
vinkona hennar. Helen, sem unn-
ið hefur við hjálparskrifstofu
flóttamanna. Mildred leiðist um
borð í skipinu og þegar hún
kemst að því að vinkona hennar
er ástfangin í 2. vjelstjóra, þá
gerir hún sitt besta til að kom-
ast upp á milli þeirra og það tekst
henni.
Henni tekst einnig að fá 2.
vjelstjóra til að fara með sig nið-
ur til kyndaranna og þar kemur
hún augliti til auglitis við Hank
kyndara. Verður þeim svo mikið
um að hvorugt er mönnum sinn-
andi. Ekki er auðvelt að skilja
hverskonar áhrifum þau verða
fyrir enda gerir myndin litla til-
raun til þess að skýra það. Virð-
ist einna helst að hún fyllist
hræðslu, losta og um leið fyrir-
litningu á þessu loðna, sveitta
dýri, en hann einkennilegri þrá
til þess að sýna þessari veik-
bygðu stúlku líkamlega yfirburðí
sína.
Þetta mun vera í f.yrsta sinn
sem William Bendix (Hank) er
trúað fyrir hlutverki, þar sem
verulega leikarahæfileika þarf til
þess að inna vel af hendi. Er
leikur hans festulegur, skemmti-
legur og tilfinningaríkur. Er banr*
einkar vel fallinn til þess að fara
með hlutverk bessa tröllaukna,
heimska manns
Mildred, nautnasjúka stúlkara
og heimsborgarinn, er leikin af
Susan Haywarl Þarf ekki að
fjölyrða um leik hennar því húra
er kvikmyndahúsgestum vel.
kunn frá fyrri myndum. Johra
Loder leikur 2. vjelstjóra, Lazar
að nafni. Loder hefur aldrei ver-
ið mikill leikari og passar illa f.
hlutverk sitt sem sjómaður. Eru
sum atriði í myndinni næsta
hlægileg cins og þegar hann
sparkar kyndaranum niður stíg-
ann og seinna ætlar að stilla lii
friðar, þegar tveir kyndaranna
hafa lertt í slagsmálum. Þegar
Mildred segist ekki elska hann,
segir hann: „Jæja, þá það“, þýt-
ur síðan á næsta bar og drekkur
sig 1 ovit. Vinkonu Mildreds,
Helenu, leikur Dorothy Comin-
gore. Er leikur hennar sjerstak-
lcga tilkomulaus og óeðlilegur og
einna líkast að hún lesi hlutverk
sitt af blöðum en láti leikinn sitja
á hakanum. Furðar engan að
Lazar skuli heldur verða ástfang-
inn af Mildred en þessu dauðýfli..
Meðleikendur eru allir ágætir og'
bera þeir Roman Bohnen og Torra
Fadden (Paddy og Long) af, endai
báðir þekktir og vinsælir leik-
arar. Þrátt fyrir þessa galla mynd
arinnar er hún þó þess mjög vel
verð að kvikmyndahúsgestir sjál
hana.
Jeg get þó ekki að því gertí
að benda þeim sem þýtt hefur
„prógram" myndarinnar á það að
Lazar er ekki undirkyndari held-
ur 2 vjelstjóri, að Mildred fór*
ekki með skipinu til þess að kynra
ast flóttatolkinu, heldur vegnai
þess að ekki var um annað far-
artæki að ræða. Gerir hún ítrek-
aðar tilraunir til þess að komast
með flugvjel. MacDougald er
ckki yíirvjclstjóri heldur skip-
stjóri. Hann missir ekki af fjelög-
um sinum i mannþrönginni, því
að um enga mannþröng er að
ræða, heldur bara „stingur þá
af“.
A. B. j