Morgunblaðið - 21.03.1948, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 21. mars 1948
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
• .Framkv.stj,: Sigfús Jónssom .
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áslcriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Á-'í
Fjárlagaafgreiðslan
ÞRIÐJU umræðu fjárlaganna er lokið að öðru ieyti en þv'
að útvarspumræður eru eftir um frumvarpið og loka at-
kvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla um breytingartillögur fjár-
veitinganefndar, ráðherra og einstakra þingmanna hefui
farið fram.
Enda þótt ekki liggi ennþá fyrir yfirlit um niðurstöðutölui
þessa fjárlagafrumvarps eftir lokameðferð þess á Alþing;
eru þær þó nokkurn veginn ljósar.
Tekjur á rekstraryfirliti eru áætlaðar rúmlega 221 millj
kr. og svipuð upphæð til útgjalda. Verða fjárlögin þannig
afgreidd tekjuhallalaus.
Á sjóðsyfirliti verða innborganir hinsvegar rúmlega 223
millj. kr., en útborganir um það bil 248 millj. kr. Greiðslu
halli er þannig áætlaður um 25 millj. kr.
Það, sem skapað hefur mesta örðugleika við setningu f jár-
iaga fyrir þetta ár eru hinar háu upphæðir, sem nauðsyn
bar til að ætla á þeim til beinna og óbeinna dýrtíðarráðstaf-
ana. Fjárveitingar til þeirra nema samtals 55 millj. kr., 35
millj. kr. til niðurgreiðslna á verðlagi innanlands og 20 millj.
kr. til þess að fullnægja lagaákvæðum um ábyrgð ríkissjóðs
á útfluttum fiski og kjöti.
Þessar háu upphæðir til dýrtíðarráðstafana eru þyngsti
bagginn á ríkissjóði á þessum fjáiiögum. Er ekki hægt að
sniðganga þá staðreynd að raunverulega er dýrtíðin í land-
inu gjörsamlega að sliga gjaldgetu ríkissjóðs.
Það er áreiðanlega rjett, sem fjármálaráðherra, Jóhann
Þ. Jósefsson, hefur þrásinnis bent á við umræðurnar um
fjárlagafrumvarpið á Alþingi, að með hinum háu útgjöldum
þess er teflt á mjög tæft vað í fjármálum ríkisins.
En hvers vegna eru þá útgjöldin ekki skorin niður, kann
margur að spyrja?
1 því sambandi má benda á það, sem fjármálaráðherra
einnig hefur tekið fram, að mjög verulegur hluti fjárlaga-
útgjaldanna er bundinn með sjerstökum lögum. Slík útgjöld
er þess vegna ekki hægt að fella niður nema með því að
breyta viðkomandi lögum. Af þessum orsökum er verulegur
niðurskurður útgjalda ómögulegur í einu vetfangi. Að því
hlýtur hinsvegar að verða stefnt að losa ríkissjóð við ýmsar
þær byrðar, sem á hann hafa verið lagðar með iögum. Það
er óhjákvæmileg nauðsyn.
★
Ríkisstjómin hefur í þessum f járlögum heimild til þess að
iækka þær greiðslur þeirra, sem ekki eru lögbundnar, um
allt að 35 af hundraði. Að sjálfsögðu verður sú heimild ekki
notuð nema að brýna nauðsyn beri til. En það var óhjá-
kvæmilegt fyrir ríkisstjómina að fá slíka heimild. Svo mikil
óvissa ríkir nú í efnahagsmálurrt landsins og fjármála- og
viðskiptalífi heimsins yfirleitt.
Á það má einnig benda, að hin róttæka takmörkun inn-
flutningsins til landsins hlýtur að draga mjög úr tollatekj-
um ríkissjóðs. Það, sem af er árinu hefur afkoma atvinnu-
veganna heldur engan veginn verið góð, enda þótt vetrar-
síldveiðin hafi gefið nokkurn arð. — Vetrarvertíðin hefur
brugðist að verulegu leyti i flestum verstöðvum landsins
vegna óvenjulegra ógæfta. Hlýtur það einnig að hafa mikil
áhrif á fjárhagsafkomu ríkissjóðs.
★
Á þessu stigi málsins er þess vegna ekki ástæða til mikillar
bjartsýni á afkomu ríkisins á árinu, enda þótt vel megi svo
fara að hún verði sæmileg.
En sú ályktun, sem óhjákvæmilega verður að draga af
afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins fyrir þetta ár, er sú, að
engar líkur eru til að gjaldþol ríkisins geti framvegis borið
hin háu útgjöld til dýrtíðarráðstafana. 1 þeim málum verður
að fara aðrar og beinari leiðir í framtíðinni, en að borga 55
millj. kr. úr ríkissjóði til uppbóta á aðalframleiðsluvörur
þjóðarinnar og niðurgreiðslna á verðlaginu innanlands. —
Þeim bagga verður að verulegu leyti að ljetta af ríkinu, ef
unnt á að vera að forða því frá fjárþroti.
rt
vlJÍ. „
FINU
Óvenju rætin lyga-
saga.
ÓVENJULEGA RÆTIN lyga
saga hefir verið í umferð í
bænum undanfarna daga. Sag-
an er á þá leið, að Sigmundur
Karlsson bifreiðarstjóri, sem
fann flakið af Anson-flugvjel-
inni, sem fórst í Skálafelli, hafi
komið óheiðarlega fram í sam-
bandi við fund vjelarinnar.
Hann á að hafa stolið fjemæti,
áður en hann tilkynti fund
sinn, segir lygasagan.
Það er vitanlega enginn fót-
ur fyrir þessari rætnu lyga-
sögu. Sveinn Sæmundsson yfir
lögregluþjónn sagði mjer í gær
morgun, að ekkert hefði verið
hreyft hjá flugvjelaflakinu er
menn komu þar að og alt fund-
ist, sem þar átti að vera, pen-
ingar, úr og annað, sem menn-
irnir í flugvjelinni voru með.
•
Andstyggi'leg iðja.
ÞAÐ ER EKKI HÆGT að
fordæma með nógu sterkum
orðum þá menn, sem búa til
lygasögur eins og þessa og hin-
ir eru einnig sakir, sem breiða
bær út. Þetta er andstyggileg
iðja
Ef rjett væri ætti að hefja
rannsókn í þessu máli og hafa
upp á þeim manni, sem kom
söguni á kreik og láta hann
sæta ábyrgð fyrir lygar sínar.
Það kemur oft fyrir, að slúð-
ursögur komast á kreik manna
á milli ,en þessi lygasaga er
með þeim rætnustu og ógeðsleg
ustu, sem heyrst hefir um
’engi.
Pörupiltar.
UNDANFARNA DAGA hafa
borist nokkur brjef um fram-
ferði pörupilta hjer í bænum.
Munu þessi brjef standa í sam-
bandi við blaðaskrif um ljótt
framferði unglinga, sem lýst
var í blaði hjer á dögunum.
Það mætti æra óstöðugan, að
hafa alt það eftir, sem sagt er
um óknyttastráka, en hitt er
rjett, að í skemtistöðum, eink-
um kvikmyndahúsunum eru
skrílslæti stráka oft óþolandi.
I einu brjefinu er sagt frá strák
um, sem Ijeku það, að hrista
upp í gosdrykkjaflöskum þar
til kolsýruþrýstingur myndað-
ist og sprauta síðan innihaldinu
á kvikmyndahúsgesti.
Fallegur leikur það, eða hitt
þó heldur!
Það er hverju orði sannara,
að skrílslæti unglinga eru
næsta óþolandi, en oft eru þessi
grey espuð upp með því, að full
orðna fólkið hlær að þeim og
þykir gaman að óknyttunum.
Verkefni fyrir barna-
verndarnefndina.
EINS OG ER tel jeg ekki lík-
legt, að blaðaskrif hafi mikil
áhrif á að bæta framkomu
pörupilta. En hinsvegar er hjer
ærið verkefni fyrir barnavernd
arnefndina, kennara og for-
eldra.
Fulltrúar úr barnaverndar-
nefndinni ættu að koma í
skemtistaði bæjarins, sem sótt-
ir eru af unglingum og horfa á
framferði þeirra. Kynna sjer
hverjir það eru, sem forystuna
hafa og reyna að hafa áhrif til
hins betra með samtölum og
fortölum.
Það er til lítillra bóta að
skamma ærslabelgina, eða fara
að þeim eins og þetta sjeu
glæpamenn með því að senda
þá í sveit, eða á hæli fyrir
vandræðabörn. Það getur verið
og er oftast ágæt mannsefni í
þessum strákum, ef þeir fá
rjett uppeldi og rjett er farið að
þeim.
Ekki hrifinn af
veitíngahúsunum.
FYRIR NOKKRUM dögum
var að því vikið, að spor væri
stigið í rjetta átt með stofnun
nokkurra nýrra veitingahúsa
hjer í bænum, þar sem hrein-
lætis væri gætt og annar að-
búnaður í lagi.
Við þetta vill Friðsteinn Jóns
son gera þá athugasemd, að enn
sje svo ástatt í flestum veitinga
húsum í bænum, að þar sjeu
ekki til samstæð bollapör leng-
ur, bað vanti almennustu hrein
lætistæki og jafnvel glös,
hnífapör og annað, sem siðaðir
menn nota er þeir matast. Inn-
flutningsleyfi hafi ekki feng-
ist fyrir þessum nauðsynlegu
áhöldum um langan tíma.
Þá víkur brjefritari að „sjopp
unum“, sem hann rjettilega tel
ur vera til mikils álitshnekkis
fyr,ir þær veitingastofur, sem
reyna eftir megni að búa sæmi
lega að viðskiftavinum sínum.
I
MEÐAL ANNARA ORÐA
—>—Eftir G. J. Á. J—«*—>"—■—»•—»>—.—•»—>.—»—■«—»,'—»•—■»-
I
I
-4»
Ræða Trumsni var opinská og einarðleg
Landamæri lýðræðisins
liggja við rússneska
járntjaldið.
ÞEGAR Truman forseti, flutti
ræðu sína síðaslliðinn miðviku-
dag, þóttust menn vita, að hann
mundi taka opinbera afstöðu til
atburðanna, sem orðið hafa í
Evrópu allt frá því að styrjöld-
inni í álfunni lauk fyrir tæpum
þremur árum síðan. Enginn ef-
aðist heldur um það, að hann
mundi aðallega beina orðum sín
um til rússnesku stjórnarherr-
anna, höíuðpauranna í þeim
stjórnmálaátökum, sem átt hafa
sjer stað fyrst og fremst í lönd-
unum austan járntjaldsins, en
þó einnig að nokkru leyti í
Vestur-Evrópu, þar sem lýð-
ræðið þó enn heldur velli.
STRIÐSYFIRLYSING.
ALLFLESTIR munu hafa
gert sjer ljóst, að ræða forset-
ans yrði ákveðin og opinská.
Svo til enginn mun þó hafa
búist við því, að orð Trumans
yrðu jafn óvjefengjanleg yfir-
lýsing og raun varð á um and-
stöðu Bandaríkjanna við stefnu
Rússa. Ræðan var í sjálfu sjer
stríðsyfirlýsing á hendur út-
þenslustefnu Rússa í Evrópu.
Megininnihald ræðu forset-
ans má setja fram í fjórum
orðum: Hingað og ekki lengra.
Hann fór ekki dult með skoð-
anir sínar, sem raunar eru skoð-
anir allra sanma lýðræðisþjóða.
Um einræðisstefnuna sagði Tru-
man meðal annars:
MISKIJNARLEYSI
EINRÆÐISINS.
ÞAÐ er miskunnarleysi ein-
ræðisins og augljós viðleitni til
þess að koma því á með þeim
þjóðum Evrópu, sem enn eru
frjálsar, er hefui orsakað hið
alvarlega ástar.d, sem ríkir í
álfunni nú í dag..
Um Rússland og friðinn sagði
forsetinn:
... En ástandið í heiminum
í dag er ekki fyrst og fremst
árangurinn af þeim erfiðleik-
um, sem ætíð fylgja í kjölfar
mikilla stvrjalda. Það á fyrst
og fremst rætur sínar að rekja
til þess, að ein þjóð hefur ekki
einungis neitað að taka þátt í
því að ganga frá varanlegum
og rjettlátum friði, heldur hef-
ur hún vísvitandi reynt að
koma í veg fyrir, að slíkur frið-
ur kæmist á.
MISNOTKUN NEIT-
UNARVALDSINS
Um Sameinuðu þjóðirnar:
EIN þjóð heíur hindrað störf
^ S Þ. með sífelldri misnotkun
j neitunarvaldsins Þessi þjóð hef
' ur notað neitunarvald sitt til
þess að fella tuttugu og eina
tillögu á rúmlega tveimur árum.
Endurreisn Evrópu:
Rússlandi og þjóðum þeim,
sem Rússar hafa umráð yfir,
var boðin þátttaka í áætluninni
um endurreisn Evrópu. (En) á-
ætlunin er þrándur í göíu þeirra
til þess að undiroka þær þjóð-
ir Evrópu, sem enn eru frjáls-
ar. Rússar vilja ekbi að Banda-
ríkin hjálpi Evrópu. — Þeir
vilja ekki einu sinni að
þjóðirnar sextán fái tæki-
færi til þess að hjálpa sjer sjálf-
ar.
• •
STAÐREYNDIR.
í RÆÐU Trumans forseta,
var þannig ekkert dregið und-
an. Hann setti fram skoðun sína
og Bandaríkjamanna skýrum
orðum. Hann dró fram í dags-
ljósið þær staðreyndir, sem jafn
vel forhertustu Rússavinir
treysta sjer ekki til að neita.
J Hann fór á engan hátt dult með
afstöðu Bandaríkjanna. Hann
undirstrikaði þá ógæfu einræðis
I herranna, að þeir fá með engu
, móti skilið jafnvel einföldustu
j grundvallaratriði lýðræðishug-
sjónarinnar. Hann sagði út-
j þenslustefnu Stalins stríð á
hendur.
AHRIFIN.
HVAÐA áhrif getur þá þessi
ræða Trumans Bandaríkjafor-
seta haft?
Frjett sú, sem Morgunblaðið
birti í gær um hinar fyrirhug-
uðu rússnesk-finnsku samninga
viðræður, ætti að varpa nokkru
ljósi á málið. Augljóst er, segja
stjórnmálaritararnir í Helsing-
fors, að ræðan hefur stappað
stálinu í Finna Svo kann að
fara, að finnska þingið reynist
tregt til að samþykkja banda-
lagssamning þsnn, sem Rússar
hafa heimtað að Finnland geri
við sig.
• •
LANDAMÆRI
LÝDRÆÐISINS.
FINNSKA þjóðin finnur það
Framh. á bls. 8