Morgunblaðið - 17.04.1948, Side 12
12
MORGUNBLAÐIfí
Laugardagur 17. apríl 1848.
minning frú
Rannveigar Linnet
ÁKVEÐIÐ er að á mánudag-
inn 19. þ. m. verði jarðsett að
Villingaholti frú Rannveig Linn
et frá Syðx-i-Gróf í Villinga-
hor.:lr::.??i. Hún var dóttir
Hans D. Linnets kaupm. í Hafn
arfirði og Kristínar Jónsdóttur
frá Setbergi við Hafnarfjörð.
Systur á húri tvær á lífi, sem
báðar heita Hansína, og bræður
tvo, þá Hafstein Linnet í Hafn-
arfirði og Kristján Linnet fyrv.
sýslumann í Vestmannaeyjum.
Hún ólst upp í Nesi í Selvogi og
þaðan giftist hún 1908, Jóni Sig-
urðssyni í Syðrigróf. Bjuggu
þau allan sinn búskap þar, Jón
var valin kunnur sæmdarmað-
ur. Er hann látinn fyrir þrem-
ur árum. Eftir það bjó Rann-
veig með dóttur sinni og upp-
eldissyni, sem hefur reynst
henni sem góður sonur. Þau
hjón eignuðust 5 börn. Tvær dæt-
ur dóú ungar, en eftir lifa tvær
dætur og einn sonur. Öll eru
þau ágætis fólk, svo sem þau
eiga kyn til. Auk sinna eigin
bai’na ól hún að nokkru leyti
upp bróðurdóttur manns síns og
reyndist henni sem besta móðir.
Jeg var smátelpa, er jeg man
fyrst eftir Rannveigu, er hún
kom að Syðiágróf. Síðan hef
jeg þekt hana og átt hana að
vini. Er mjer því ljúft að minn-
ast hennar, þótt örlítið brot
verði hjer skráð af öllu því
góða, er hún ljet a fsjer leiða.
Að ytri sýn var hún gjörfuleg
og bar á sjer íyrirmannlegan
blæ og festulegar. svip, svo að
maður bar virðingu fyrir henni.
En hjer kom og til greina hin
nánari kynni, sem staðfestu að
hjer var um mannkdsta konu
að ræða með höfðinglega lund
og stórbrotna. Viljaþrekið var
mikið, sem best má marka af
því, að hún var sívinnandi, þótt
hún lifði við vanheilsu í fjölda
mörg ár. Handbragð hennar var
afbragðs gott og vinnusfköstin
svo frábær, að jeg bekki fáar!
konur hennar líka í dugnaði.!
Frá Syðrigróf fór mörg falleg
flíkin til fátækra barna, nær
og fjær. Þar náði Rannveig til
furðu margra, þótt hún væri
að eðlisfari fáskiftih og heima-
kær. Vildi helst altaf vera
heima.
Mjer er það minnisstætt, er
jeg var kennari í þessari sveit
og til heimilis í Syðrigróf í tvo j
vetur, þegar Rannveig sá skóla ■
böi'nin fátæklega til fara. Þá;
var hennar hjálpfúsa hönd fljót j
til starfa til þess að veita þeim '
liðsinni, er í skugganum stóðu.
Mörg voru þau börnin, sem
dvöldu á sumrin í Syðrigróf.
Húsmóðirin gaf þeim oftast al-
klæðnaði og skildi þannig við
þau, að sannur sómi var að,
enda hef jeg heyrt mæður þess-
ara barna þakka hennar höfð-
ingslund, svo sem vera ber. —
Yndi Rannveigar var að gefa
og fórna þar með kröftum sín-
um fyrir aðra. Sá, sem gefur
þannig af sjálfum sjer, leggur
skerf í veginn íil farsældar.
Þessi eiginleiki er einn af
mannkostum, sem jeg veit ekki
hvort er metinn að verðleikum,
af því sjón manna nær ekki
altaf til insta kjarnans. Þegar
talað er um húsmæður yfirleitt,
er margur, sem viðurkennir að
þeirra starf sje þarft, en nær
liggur það mannkyninu
að skrá nöfn þeirra, er styrj-
aldir heyja, en hinna er að líf-
•inu og frumgróandanum
hlynna. Rannveig hlynti að líf-
inu og taldi ekki eftir sjer vinnu
— starfið var henni svo mikils
virði, að án þess hefði hún ekki
getað unað. Hún var áreiðan-
lega alin upp við rjettmæti
þess, eins og margir þeirra tíma
unglingar voru. Launin voru
oft ekki annað en vinnugleði.
I-íún er líka eitt hið mesta hnoss,
það felst ekkert smátt í því,
þegar hægt er að segja það um
einhvern, að hann sje vinnu-
glaður, kappsamur og það, sem
kallað er samviskusamur. Um
samviskusemi tala sumir sem
eitthvert smáatriði í fari fólks.
Er það ljelegur skilningur, því
hún er hið rjettmæta stolt við
sjálfan sig, um að gera þannig
hvern hlut að betur sje ekki
hægt og ávirðing verði ekki af.
Syðrigróíarheimilið var eitt
með fremstu heimilum sveitar-
innar. Þegar jeg minnist á það,
get jeg ekki annað en minst
hins aðilans, er átti sinn sterka
þátt í að skapa það og gera
garðinn frægan. En það var
hinn ágæti eiginmaður hennar.
Hann var greindur vel og
gegndi trúnaðarstörfum í sveit
sinni. Heimilisfaðir var hann
hinn ágætasti. svo að fólk hefði
margt getað af honum lært. —
Fáa átti hann sína líka að skap-
stillingu. Oft mun gott skap
verða auðnugjafi, og satt er hið
foimkveðna, að „sá, sem stillir
skap sitt, er meiri en sá, sem
vinnur borgir". Þessi kostur
hans gerði hann góðan stjórn-
anda. Á mannmörgum heimil-
um þarf á festu að halda, ráð-
snild og skilningi, þsr sem á-
hugamálin eru oft gerólík, og
nokkurs konar tengil þai’f til
þess að gera heimilið að heild.
Þau hjón unnu að heill heimilis
síns þótt þau væru altaf boðin
og búin til þess að rjetta öðrum
hjálp, á einn og annen hátt.
Efnalega sjálfstæð veru þau,
eigi ao síður.
Rannveig lagði ckki leið rína
út um bæina til bess að spjalla
um fánýta hluti, eða til bess að
skifta sjer af högum- nágrann-
anna til ónýtis. Þann hugsunar
hátt átti hún ekki til. Hitt var
henni líkara, að byggja upp í
kyi-þei heima. Góð móoir var
hún börnum sínum. Hafa þau
margs góðs að minnast og
margt að þakka; svo sem við öll
er þektum hana, voi’um með
henni og ntum trúfastrar vin-
áttu hennar, því sannur vinur
var hún og trygglynd.
Mjer finst næsta tómlegt, að
eiga aldrei eftir að sjá þig, fram
ar Rannveig mín. Vel get jeg
þó unnað þjer þess, að vera
laus við þjáningar þessa lífs og
vera á bjartarj braut, eftir vel
unnið lífsstarf, og mikla lífs-
reynslu. Kveð jeg þig. svo með
þökk fvrir samveruna, vina
mín kær.
Áslaug Gunnlaugsdóttir.
— SVEINASAMBANDIÐ
Framh. af bls. 9
tjeðu frumvarpi fullnægir ekki
þeim kröfum, sem gerðar eru
til inðnáms samkvæmt núgild-
andi lögum og telur að megi í
engu rýra.Fyrir því skorar þing
ið á Alþingi að fella frumvarpið
eða vísa því frá.
12. þing Sveinasambands bygg
ingamanna skorar eindregið á
ríkisstjórnina að sjá um að
bygging sementsverksmiðjunn-
ar og innlend sementsvinnsla
verði hafin svo fljótt sem nokk-
ur tök eru á.
12. þing Sveinasambands bygg
ingamanna skorar eindregið á
Fjárhagsráð að það geíi nú þeg-
ar leyfi fyrir áframhaldandi
framkvæmdum varðandi bygg-
ingu hins nýja Iðnskóla í Reykja
vík, með tilliti til þess að Iðn-
skólinn býr nú við algjörlega ó-
viðunandi húsnæði.
12. þing Sveinasambands bygg
ingamanna lítur svo á að þær
ráðstafanir, sem Fjárhagsráð
hefur gert varðandi byggingar-
framkvæmdir sjeu mjög vafa-
samar með tilliti til hins mikla
og margumrædda húsnæðis-
vandamáls og ískyggilegar að því
er snertir atvinnu byggingar-
iðnaðarmenn.
Nú þegar ríkir hin mesta aft-
urför varðandi byggingaiðnað-
inn. Þingið skorar því á Fjár-
hagsráð að endurskoða áætlanir
sínar um framlag efnis til bygg-
ingarframkvæmda.
12. þing Sveinasambands bygg
• ingamanna skorar á stjórn
! verkamannaf jel. „Dagsbrún“ og
„Alþýðusambands íslands“, að
nema burtu hinn svokallaða
gerfi- og hjálparmanna kaup-
taxta og ákvæði þau, sem um
þennan kauptaxta eru, þar sem
þingið lítur svo á, að tjeður
kauptaxti sje jafn ólögmætur og
vinna gerfimanna í hinum
ýmsu iðngreinum.
Með tilliti til þáverandi at-
vinnu byggingaiðnaðarmanna
skorar 12. þing Sveinasam-
bands byggingamanna á stjórn
Alþýðusambands íslands, að
hún aðstoði sveinafjelögin við
útilokun óiðnlærðra manna í
þessum iðngreinum.
Ennfremur gaf þingið stjórn
sambandsins heimild til þess að
leggja kr. 10,000,09 — tiu þús.
I krónur — úr sambandssjóði til
kaupa á hlutabrjefum í Húsfje-
lagi iðnaðarmanna í Reykjavík.
Stjórn Sveinasambands bygg-
ingamanna skipa nú eftirtaldir
menn: r'
Forseti: Steingrímur Sigurðs-
son, málari; ritarí: Jón G. S.
Jónsson, múrári; fjehirðir: Ás-
: kell Norðdahl, pípulagninga-
maður. Aðrir meðstjórnendur
eru frá múrurum: Guðni Hall-
dórsson, Aage Petersen, frá mál
urum: Valgeir Hannesson, Guð-
mundur Einarsson, frá pípulagn-
ingamönnum: Haukur Jónsson,
Zophonías Sigurðsson.
ÁHræður
Sigurður Guðmundsson
C7
Enn sem fyrri glaður, góður,
gamanyrtur, dæmafróður,
þulur mesti á þjóðar sögur,
þúsund líka kann hann bögur,
líf og athöfn lýða forðum
leiðir fram í skýrum orðum.
SIGURÐUR er fæddur á Gamla-
Hrauni í Stokkseyrarhreppi,
hinum forna, 17. apríl 1868 og
er þvi áttræður í dag. Hann er
sonur Guðmundar á Gamla-
Hrauni Þorkelssonar og Þóru
Símonardóttur á Gamla-Hrauni
Þorkelssonar skipasmiðs, er þar
bjó einnig, Jónssonar, og einn
hinna svonefndu Gamla-Hrauns
bræðra, sem margir austanmenn
kannast við. En bræður Sigurð-
ar voru þeir Jón á Gamla-
Hrauni, er var um langt skeið
formaður í Þorlákshöfn og á
Stokkseyri, Þorkell á Gamla-
Hrauni, Guðmundur formaður
í Þorlákshöfn og síðar í Ólafs-
vík, og Jóhann á Litlu-Háeyri,
nú í Reykjavík, formaður í
Þorlákshöfn um marga áratugi.
Sigurður ólst upp með for-
eldi’um sínum og vandist ungur
við öll störf, er þá tíðkuðust,
einkum þó sjávarverk alls kon-
ar. Hann var bæði sterkur að
afli og lagvirkur og var því
| hinn besti liðsmaour á landi og
sjó. Hann var góð skytta og
laginn veiðimaður.
Afl og
— Meða! annara orða
Frh. af bls. 8.
en hjelt höndunum yfir líkama
, bróður síns, eins og til þess að
• gera enn eina tilraun til að
bjarga lífi hans. Sverðshöggin
dundu á þeim.
| ••
LOKAÞÁTTIJBINN
SVO rakst múgurinn á systkini
þeirra tvö, 12 ára pilt og unga
síúlku, móðir þeirra og afa. —
Þau reyndu öll að komast undan.
Börnin komust út á miðja götu,
móðirin og afinn fjellu fyrir
framan húsdyrnar. Morðingjarn
ir hjuggu eins og óðir menn. En
þegar þeir hjeldu burtu, voru
litlu drengirnir tveir enn á lífi,
enda þótt líkamar þeirra væru
allir flakandi í sárum. Og þeir
ljetust skömmu seinna".
; þroska fekk hann snemma við
! heilbrigt og hollt uppeldi og
hið einkennilega og nána sam-
' býli landvætta og sjávarvætta á
| æskustöðvum hans. Á yngri ár-
jum var Sigurður nokkur ár á
skútum víða fyrir landi og kynt-
ist þá mörgu í háttum manna
annars staðar á landinu. En út-
róðrarnir í Þorlákshöfn og á
Stokkseyri voru hans besti sjó-
mannaskóli. Á Gamla-Hrauni
átti Sigurður heima og bjó þar,
' uns hann fluttist til Reykjavík-
ur um 1930, og hjer hefur hann
átt heima síðan.
Það var fyrst eftir að Sigurð-
! ur fluttist hingað suður, sem jeg
kyntist honum að ráði og þó
jeinkum síðustu 10 árin. Leiddi
! sú kynning til þess, að mjer
| varð tíðfarnara heim til þessa
' merkilega frænda míns en nokk-
urs annars manns. Þarna hafði
jeg fundið námu, sem mjer virð
ist enn, að sje ótæmandi. Marga
; stynd hef jeg setið og numið
'gull af vörum þessa fróða öld-
ungs, og ekki eru enn komnar
í þurrð sögurnar og vísurnar og
skrítlurnar og gamanyrðin. Alt-
af er af nýju og nógu að taka.
1 Jeg held það sje ckki of mælt,
j að hann kunni allar lausavísur,
sem hann á annað borð hefur
heyrt, úr Stokkseyrarhreppi og
100 árum, ennfremur óteljandi
sögur um menn og atvik, svo
langt sem hann man til, og
margt frá eldri tíma. Auk þess
kann hann utan bókar að mestu
eða öllu leyti heila rímnaflokka,
svo sem Andrarímur, Úlfars-
rímur, Númarímur, Fertrans-
rímur, Hálfdánarrímur gamla,
Jómsvíkingarímur og Svoldar-
rímur fyrir utan mörg einstök
kvæði eftir góðskáld fyrri alda,
svo sem Hallgrím Pjetursson,
Stefán Ólafsson, Guðmund Berg
þórsson og ýmsa fleiri. Má af
þessu marka, að Sigurður hefur
verið með afbrigðum námgjarn
og minnugur. Hann hefðí aldrei
þurft að „berja til bókar“, ef
hann hefði verið settur til menta
í æsku.
Sigurður er maður ljettlynd-
. ur og góðlyndur að eðlisfari og
tekur lífið ekki ýkja miklu há-
tíðlegar en það er vert og er þó
enginn lausungarmaður. Og
þannig er hann í umgengni við
menn, að allir fara ánægðari en
áður voru af fundi hans.
Sigurður hefur búið nær 50
ára skeið Tneð Kristrúnu Jó-
hannesdóttur frá Ivlúla i Bisk-
upstungum, sem verið hefur hon
um trúr og samhentur föru-
nautur. Þau eiga tvo syni, Skúla
símaverkstjóra á Vatnsstig 8 og
Jóhannes starfsmann landssím-
ans. Eina dóttur á Sigurður, er
Sigrún heitir og er búsett x Hafn
arfirði.
Til hamingju með afmælið,
frændi.
Guöni Jónsson.
— MiiuilngarorS
Frh. af bls. 11.
lynd og vissi hvað hún vildi, dul
var hún og fáskiptin við henni
lítt þekkt fólk, en einlægur og
bjargíastur vinur allra þeirra,
sem hennar leituðu í erfiðleik-
úm. Þá átti hennar hljóðláta fói’n
fýsi sjer ekki takmörk og nutu
þess einnig lægstu smælingjarn-
ir, dýrin. Guðríður var afburða
starfskona, kunni að nota tímann
og átti haga hönd og sýndu þar
verkin merkin.
Nú er hljótt í ranni á heimili
hennar, en kærleikur ástvinanna
og örugg von um endurfundi,
varðar veginn og byggir brú yfir
djúp dauðans. Þakklæti fyrir
fórnfúsa móður og göfuga syst-
ur er vermandi geisli í rökkri
sorgar.
íslensk skáldkona segir svo:
Senda auð jeg veröld vil
sem veltur snauð á kili,
enginn dauði að sje til,
en aðeins nauð ‘ bili.
G.
Symerbýstaðyr
til sölu, tvö herbergi og :
eldhús í Lögbergslandi. — i
Strætisvagnaferðir á 2ja i
tíma frfesti yfir sumar-
mánuðina, verð 10.000.00.
Uppl. í dag, frá kl. 1—4 í i
síma 6038.
Nautak jöl
Kálfakjöt
Saltkjöt
Hangikjöt
Kindabjúga
og trippakjöt í buff. —
j KJOTVERSLUN
| HJALTA LÝÐSSONAR f
| Grettisg. 64 og Hofsvalla- |
| götu 16. —