Morgunblaðið - 17.06.1948, Page 12
12
nm
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. júní 1948.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8.
Hversu fullkomin, sem stjórn
landsins kann að virðast og
hversu vel sem stjórnmála-
flokkunum kann að vera stjórn
að, bá er ekki hægt að koma
á fót lýðræði í landinu fyrr
en fólkið, sem í hlut á, skil-
ur og metur lýðræðishugsjón-
ina, gerir sjer grein fyrir þeim
rjettindum og þeirri ábyrgð,
sem lýðræðisskipulaginu fylgja.
Margir bandarískir og bresk
ir sierfræðingar vinna nú að
því að hjálpa þýsku yfirvöld-
unum í þessu augnamiði. Fyr-
irlestrar eru haldnir, opinber-
ir fundir og ráðstefnur.
,,Ef ekki reynist kleift að
kenna Þjóðverjum þetta“, segir
dr. Landin, „þá geta þeir
aldrei orðið lýðræðisþjóð. •—
Verkefni okkar er að vinna
að bví, að þýska þjóðin skilji
og noti rjettindi sín sem frjáls
þjóð í frjálsu landi“.
MÁLFTJTNINGS-
SKRIFSTOFA
Einar B. Guðmundsson
Guðlaugur Þorláksson
Austurstræti 7.
Símar 3202, 2002.
Skrifstofutími
kl. 10—'*' og 1—5.
BERGUR JONSSON
Málflutningsskrifstofa
Laugaveg 65. Sími 5833.
Heimasími 9234.
VONDUÐ PRENTUN A
TRJE, GLER, MÁLMA,
PLAST, VEFNAÐ OG
PAPPÍR
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiMimiiiifitmuiimvn
Vjeismiðjair!
Ungur reglusamur maður,
baulvanur logsuðu (á þykt
og þunt), rörlögnum og
IB allskonar viðgerðum á
vjelum og bílum, óskar
Ieftir vinnu úti á landi í
sumar. Aðeins löng vinna
kemur til greina. — Þeir,
I sem vildu sinna þessu, j
I leggi nöfn sín inn á afgr. í
Iblaðsins fyrir föstudags- [
kvöld merkt: „Úti á landi '■
— 884“. 1
fiiiiiiiiiiiiiMiiaiiMiiiiniiiif'ficMriuiiiiiiiiiiiiiiinimmfi
- Grein Gísla
Halldórssonar
Framh. af bls. 11.
kenningu á þessu skynjaði jeg
— eins og þegar horft er á
brum á trjám — ákveðið tákn
þess að farið væri að vora á ný
í landi þessarar stórmerku þjóð-
ar.
Og í hinum djörfu og vígreifu
hugsjónum gamla Churehills um
bandalag Vestur-Evrópu með
Bretland í broddi fylkingar,
hyllir undir nýrri og betri tíma,
ekki aðeins fyrir Bretland sem
stórveldi, heldur einnig fyrir
allan hinn vestræna heim, fram-
taks og frjálsræðis.
Hin snjalla ræða Smuts hers-
höfðingja um þetta efni, er
hann hjelt ekki alls fyrir löngu,
hefði þurft að birtast í íslensk-
um blöðum.
Jeg hef það á tilfinningunni
að þessar hugmyndir um banda
lag Vestur-Evrópuríkjanna eigi
eftir að fá vaxandi byr og verða
að veruleika.
En eigum við hjer á íslandi
þá, að verða vestasta ríkið í
Evrópu-bandalaginu eða aust-
asta ríkið í Ameríku-bandalag-
inu? Þetta er þýðingarmikil
raunsæ spurning, sem einhvern-
tíma verður að svara.
Reykjavík, 14. júní 1948.
Gísli Hc.Udórsson,
verkfræðingur.
Lax fer í ferðalag
SIGBJÖRN ÁRMANN kaup-
maður hjer í bæ sendi nýlega
flugleiðis til kunningja síns í
Philadelphia í Bandaríkjunum,
lax sem hann hafði veitt hjer
á Islandi. Ferðasaga laxins er
skemmtileg saga um á hve
skömmum tíma er hægj að
senda íslensk matvæli um hálf-
an hnöttinn.
Klukkan hálf fimm e. h. 7.
júní er laxinn sendur með flug-
vjel til Keflavíkur og frá Kefla
vík leggur hann af stað kl. 10
um kvöldið með flugvjel AOA
til New York. Þaðan fer hann
líka flugleiðis til Philadelphia
og kl. 20 mín. yfir tvö daginn
eftir er laxinn soðinn og etinn
þar 1 borginni Þeir sem borðuðu
þennan frækna „flug“-lax segja
að hann hafi verið alveg eins
og glænýr herramannsmatur.
ara
Framh. af bls. 6.
blessunar mannkyninu. Þá og þá
fyrst öðlast einstaklingar og
þjóðir hið sanna frelsi.
Hjer er hið sanna og göfuga
takmark fyrir heimili, skóla,
kirkju, stjórnarvöld, já, hvern
einasta einstakling í þjóðfjelag-
inu að vinna að.
Hinn merki stjórnmála-
maður og mannvinur Roose-
velt forsetí Bandaríkja Norður-
Ameríku sagði eitt sinn í ræðu:
Hver þjóð þarf að gera upp við
sjálfa sig heimafyrir, áður en
hún sendir fulltrúa á alþjóða
ráðstefnu.
Já, við verðum að gera upp
við sjálfa oss hvaða leið við
viljum halda til uppeldis s.jálfra
vor, og að hvaða marki við
stefnum.
Lítil þjóð með göfugt og há-
leitt takmark ætti á alþjóða
þingi að geta átt engu óverðugri
sess en stórþjóð.
Gleðilega nátíð. V. E.
Ríkislögreglan ungverska hefur
mikið að gera.
BUDAPEST — Ungverska lög-
reglan hefur tekið fjölda manns
fastan fyrir þátttöku í mótmæl-
um gegn ungversku stjórninni í
skólamálum landsins.
Kviknar í háskóla-
byggingu
Heidelberg í gærkveldi.
HUNDRUÐ stúdenta söfnuð-
ust í dag saman fyrir framan
eina af (háskólabyggingunum
hjer í Heidelberg, til þess að
krefjast þess, að hersveitir
Bandaríkjanna hefðu sig þaðan
brott og afhentu bygginguna aft
ur til afnota fyrir háskólann.
Skömmu síðar braust út eldur
í byggingunni og eyðilagðist
þakið og efsta hæðin. Tveir
menn biðu bana í eldsvoðanum.
Ekki er vitað til þess, að stúd-
entarnir hafi átt neinn þátt í
eldsvoða þessum. — Reuter.
Undirbúningur undir kosn-
ingabaráttu.
NEW YORK — í prófkosningu,
sem New York Herald Tribune
hefur látið fara fram um hver
sje líklegastur til að verða í fram
boði fyrir republikanaflokkinn
fjekk Dewey flest atkvæði. Ann-
ar varð Vandenberg og þriðji
Stassen og númer fjögur Taft.
Grjef Skúla
Framh. af bls. 9.
þægindum, og skrifstofuher-
bergjum fyrir hvern einstakan
þingmann, nefndarherbergjum
og ótal mörgu fleira.
Hjer verður að láta staðar
numið í þetta sinn. Um tog-
streytuna útaf hervarnasam-
vinnu þriggja norðurlandaþjóð
anna vísast til sjerstakrar grein
ar, þar sem segir frá ræðu Hal-
vard Langes utanríkisráðherra,
er hann hjelt > Malmö jiýlgga.
Skúli Skúlason.
*
Asmundur Gestsson
75 ára
ÁSMUNDUR GESTSSON, Lauga
vegi 2, á 75 ára afmæli í dag. Má
það að visu virðast ótrúlegt þeim,
sem sjá Ásmund á förnum vegi, því
'45 svo beinn er hann í baki og ljett-
ur í spori, að fáir gera betur.
Ásmundur Gestsson er fæddur
Skarðskoti í Leirársveit 17. júní
1873, en fluttist á bamsaldri að Fer
stiklu á Hvalfjarðarströnd og ólst
þar upp hjá föreldrum sínum. Er
hann tengdur böndum kærleiks og
ræktarsemi við bemskustöðvar sin-
ar. Faðir Ásmundar var Gestur bóndi
á Ferstiklu Erlingsson bónda og
hreppstjóra á Geitabergi. En móðir
Ásmundar, og kona Gests á Fer-
stiklu, var Guðrún Guðmundsdóttir
bónda á Súlunesi og Ingibjargar,
systur Jóns bónda Sigurðssonar, er
eitt sinn bjó lengi á Ferstiklu. Er
margt vel gefinna og mætra manna
í ættum Ásmundar, þótt hjer sje
ekki unnt að rekja,
Ásmundur Gestsson stundaði nám
í Flensborgarskóla og siðar kennara-
nám í Danmörku 1912—1912. Um
nokkurn tíma dvaldi hann og á
Englandi. Aflaði hann sjer þannig j
staðgóðrar menntunar, enda gjörhug
ull maður og' ávalt leitandi fróðleiks
og þekkingar. Aðalstarf Ásmundar
var lengi kennsla, og skólastjórn um
nokkurt skeið, og ávalt hefir hann
stundað nokkuð kennslu ásamt öðr-
um störfum. Hygg jeg að kennsla
hafi látið honum vel, því að honum
er það eðlilegt og lagið að skýra það
skilmerkilega og ýtarlega, sem hann
fer með, þá er hann fræSir aðra.
En á fleira gott og gagnlegt hefir
hann lagt gjörva hönd, og má þar
m.a. nefna bókfærslu, reikningshald
og endurskoðun, störf, sem einmitt
krefjast þeirrar glöggskygni og vand-
virkni, sem Ásmundi er lagiu. Hafa
margir aðilar trúað honum fyrir slík
um störfum.
Það var annars ekki ætlun min að
segja hjer ævi- eða starfssögu Ás-
mundar Gestssonar, enda brestur
mig margt til þess að geta það. Það
voru einkum störf hans að málum
Fríkirkjusafnaðarins hjer, og langt
og gott samstarf við mig, sem mig
langaði að minnast með þakklæti.
Ásmundur Gestsson gekk í Frí-
kirkjusöfnuðinn á fyrstu árum hans,
en hann var stofnaður árið 1899.
Fyrst sje jeg Ásmundar getið i sögu
safnaðarins 17. des. 1904j þegar sam-
þykkt var að stækka kirkju safnaðar
ins hið fyrra sinni. Var þá Ásmund-
ur kosinn í nefnd þá, er annaðist
þessar framkvæmdir. 1 safnaðarráði
hefir hann nú starfað um 40 ár, síð-
ustu 30 árin sem fyrsti safnaðarráðs-
maður, og hefir jafnframt gegnt
meðhjálparastörfum við helgiathafnir
kirkjunnar með þeim virðuleik, er
það starf prýðir best. Allmörg ár
gegndi hann og gjaldkerastörfum
fyrir söfnuðinn, og var það um það
leyti, sem fjárhagur safnaðarins var
örðugastur vegna almenns árferðis.
Sýndi Ásmundur í þvi starfi sem
öðrum hve annt honum er og hefir
ávallt verið um hag safnaðarins jafnt
andlegan sem efnalegan. Þá hefir
hann og starfað mikið í Bræðrafjelagi
Fríkirkjusafnaðarins.
Ásmundur Gestsson er það reyndur
maður að hann hefir hlotið fulla
vissu um það hvers virði crugg og
bjargföst trúarsannfæring er. Hann
hefir leitað að þeirri perlu, fundið
hana og eignast. Hann er glaðvær
maður og ljettur i lund, samfðra
alvörugefni sinni og ihygli, og einn
hinna skemmtilegustu manna að
hitta eða heimsækja.
Ásmundur Gestsson er umhyggju-
samur heimilisfaðir. Hann kvæntist
tvisvar, hið fyrra, sinni Helgu Helga-
dóttur, en síðara sinni Sigurlaugu
Pálsdóttur bónda Olafssonar frá
Litlu-Heiði í Mýrdal. Eru nú eldri
börn hans gift og heiman farin, en
hin yngri eru mcð föður sínum.
Fríkirkjusöfnuðurinn vill við þessi
tímamót votta Ásmundi Gestssyni
bestu þakkir fyrir safnaðarstarfið.
Og sjerstaka ástæðu hefi jeg til þess
að minnast með þakklæti hins nána,
ljúfa og skemmtilega samstarfs við
Ásmund í rúm 25 ár, frá því er jeg
hóf ungur prestsstörf hjer í bæ. 1
mínu eigin nafni og margra vina
annara sendi jeg Ásmundi kæra af-
mæliskveðju og bömum hans og
fjölskyldu allri heillaóskir.
Á. s.
— Hallveigarstaða-
sýnlngln
Framh. af bls. 10.
sýningar ætti að halda oft. —•
Það er menntandi fyrir alla að
sjá þessa íslensku dýrgripi, sem
því miður að bllu jöfnu aðeins
örfáir eiga kost á að hafa fyrir
augunum.
M.
Ds Gasperi fær frauifs-
yfirfýsingu,
Róm í gærkveldi.
FULLTRÚ ADEILD ítalska
þingsins veitti í dag stjórn de
Gasperis traustsyfirlýsingu með
346 atkvæðum gegn 167.
X-9
A
A
Efflr Roberf Sfornt
i»*J. Imuics j)nJ.taí
Á flugvellinum: X-9: Jæja, hjerna kemur flugvjel- þekkja hann, þegar jeg sæi hann. X-9: Hvað er
in þá. Undarlegt, að þeir sögðu mjer ekki, hvern þetta-----------------? Getur það verið hann? Jeg trúi varla
þeir ætluðu að senda mjer. Sögðu, að jeg myndi mínum eigin augum. Nýi maðurinn: Sæll Phil. En
hvað það er gaman að sjá þig aftur kæri vinur.
X-9: Ja, hver fjandinn. Aldrei datt mjer neitt slíkt
í hug, að þeir myndu senda þig. Jæja það er ágætt.