Morgunblaðið - 17.07.1948, Side 10
ÍO
MORGUNBLAÐIÐ
Laugárdagur 17. júlí 1948-
íþróttamöt Borgfirð-
inga á Ferjukots-
bökkum
HJERAÐSMÓT Ungmennasam-
bands Borgarf jarðar fór fram á
Ferjukotsbökkum í Mýrasýslu
laugardag og sunnudag 3. og 4.
þ. m. Aðalmótið fór fram á
sunnud. og hóíst kl. 14,30 með
því að „Öskubuskur“, fimm
stúlkur úr Reykjavík sungu
nokkur lög, þá flutti síra Jakob
Jónsson ræðu, tn að henni lok-
inni söng karlakórinn Þrestir
frá Hafnarfirði. Næst hófst
frjálsíþróttakeppni og sendu
þessi fjelög menn til þátttöku:
íþróttafjelag Hvanneyrar, —
skammstafað Hv., UMF Björn
Hítdælakappi skammstafað Bh.
UMF Brúin skammstafaö Br.
UMF Dagrenning, skst. D.,
UMF Egill Skallagrimsson,
skst. E. Sk., UMF Haukar, skst.
H;, UMF íslendingur, skst. fsl.,
UMF Reykdæla, skst. R., UMF
Skallagrímur, skst. Sk. UMF
Stafholtstúna, skst. St.
Helstu úrslit urðu þessi:
100 m. hlaup: — 1. Magnus Ing
ólfsson, ísl., 11 fi sek., 2. Sveinn
Þórðarson, R, 11,7 sek., 3. Kári
Sólmundsson Sk 11,9 sek.
80 m. hlaup kvenna: — 1. Vig-
dís Sigvaldadóttir ísl. 11,8 sek.,
2 Sigríður Böðvarsdóttir D 11 8
sek., 3. Ingibjörg Bergþórsdóttir
Br 13,1 sek.
400 m. hlaup: — 1. Sveinn Þórð
arson R 58,6 sek., 2. Magnús Ing-
ólfsson ísl 60,9 sek., 3. Kari Sól-
mundarson Sk 63,6 sek.
3000 m. hlaup: — 1. Erlmgur
Jóhannesson Br 11:07,0 mín., 2.
Jón Eyjólfsson H 11:15,8 mín. 3.
Ásmundur Ásmundss. Bh 11:16.4
mín.
Kúluvarp: — 1. Kári Sólmund-
arson Sk 12,16 m., 2. Kristófer
Helgason ísl. 11,75 m., 3. Björn
Jóhannesson R 11,20 m.
Þrístökk: — 1 Kári Sólmund-
arson Sk 12,54 m.. 2. Sveinn Þórð-
arson R 11,95 ni., 3. Heigi Daní-
elsson ísl. 11,41 m.
Hástökk: — 1. Jón Þórisson R
1,73 m. Borgfirskt met., 2. Bjarni
Helgason Hv 1,65 m. 3. Guðbr.
Skarphjeðinsson D 1,60 m.
Langstökk: — 1. Kári Sól-
mundarson, Sk 6,43 m., 2. Sveinn
Þórðarson R. 6,43 m., 3. Sigurð-
ui Kr. Jónsson Sk 5,87 m.
Spjótkast: — 1. Sigurður Kr.
Jónsson Sk 41,56 m., 2. Rafn Sig-
urðsson, Sk 39,18 m., 3. Sigurð-
ur Eyjólfsson H 38,73 m.
Kringlukast: — 1. Pje'.ur Jóns-
son, R 34,56 m., 2. Sigurður Guð-
niundsson ísl. 33,99 m., 3. Einar
Eggertsson Sk 31,75.
Að samanlögðum stigum fyrir
þetta mót og sundmót sem áður
var háð í Hreppslaug, vann UMF
Reykdæla með 41 stig. Armað
varð UMF íslendingur með 35 st.
og þriðja UMF Skallagrímur með
17 st.
Sörhu daga fór fram keppni
fyrir drengi og urðu þar þessi
úrslit:
80 m. hlaup: — 1. Magnús Ing-
ólfsson Isl. 9,5 sek., 2. Rafn Sig-
urðsson Sk 9,8 sek., 3. Ólafur Ás-
geirsson Sk 9,9 sek.
1500 m. hlaup: — 1. Guðmund-
ur Sigujðsson Br. 5:04,2 mín. 2.
Einar Jónsson ísl. 5:05,6 mín.,
3 Jón Eyjólfsson H 5:06,4 mín.
Spjótkast: — 1. Sigurður Kr.
Jónsson Sk 41,69 m., 2. Bragi
Guðráðsson R 38,00 m., 3. And-
rjes Jóhannesson R 37,89 m
Kringlukast: — 1. Sigurður
Helgason ísl. 38,32m ., 2. Einar
Eggertsson Sk. 36,73 m., 3. Sig-
urður Guðmundsson ísl. 35,87 m.
Kúluvarp: — 1. Einar Eggerts-
son Sk 13,68 m., 2. Sigurður
Helgason Isl. 13,31 m., 3. Jón
Eyjólfsson H 12,45 m.
Hástökk: — 1 Sigurður Guð-
mundsson ísl 1,60 m., 2. Bragi
Guðmundsson R 1,60 m., 3. Dan-
íel Ingvarsson Isl. 1,55 m.
Langstökk: — 1. Sigurður Kr.
Jónsson Sk 5,64 m., 2. Rafn Sig-
urðsson Sk 5,5° m., 3. Magnús
Ingólfsson ísl. 5,47 m.
Þrístökk: — 1. Ásgeir Guð-
mundsson ísl. 11,99 m., 2. Olafur
Á. Ásgeirsson Sk 11,79 m., 3. Jón
B. Ásmundsson Sk 11,75 m.
Drengjakeppnina vann UMF
Skallagrímur með 25 stiguin. —
UMF íslendingur hlaut 22 st. og
UMF Reykdæla 8 stig.
íjjrófiamé! á Loff-
sfaðaflöfuRi
SUNNUDAGINN 11. júlí s.l.
var hið árlega íþróttamót ung-
mennafjelaganna „Samhygð“
í Gaulverjabæjarhreppi og
„Vöku“ í Víkingsholtshreppi,
háð á Loftstaðaflötum. Fór
þar fram íþróttakeppni milli
fjelaganna og urðu úrslit í ein-
stökum greinum sem hjer’ seg-
ir:
100 metra hlaup:
1. Jóhannes Guðmundsson
(S) 12.8 sek.
80 m. hlaup kvenna:
1. Margrjet Sighvatsdóttir
(S) 12.0 sek.
Langstökk:
1. Jóhannes Guðmundsson
(S) 6.00 m.
Þrístökk:
1 Jóhannes Guðmundsson
(S) 12.75 m.
Hástökk:
1. Gísli Guðmundsson (V)
I. 65 m.
Kúluvarp:
1. Rúnar Guðmundsson (V)
II. 18 m.
Kringlukast:
1. Rúnar Guðmundsson (V)
30.88 m.
Spjótkast:
1 Brynjólfur Guðmundsson
(V) 34.35 m.
800 m. hlaup:
1 Stéfán Jasonarson (S)
2.22,5 mín.
Boðhlaup kvenna:
Sveit „Samhygð“ 2.20,8 mín.
Sveit „Vöku“ 2.30,5 mín.
ísVnsk glíma (keppendur 5):
Rúnar Guðmundsson (V)
4 minningar.
Ungmennafjel. „Samhygð“
bar sigur úr bítum á mótinu,
hlaut 37 stig. U.m.f. Vaka hlaut
32 stig. Flest einstaklingsstig
hlutu þeir Jóhannes Guðmunds
son úr Samhygð 12 stig og
Rúnar Guðmundsson úr Vöku
12 stig.
Flokkur stúlkna af Eyrar-
bakka sýndi vikivaka undir
stjórn Sigríðar Guðjónsdóttur,
íþróttakennara. Ennfremur var
pokahlaup milli stjórna fjelag-
anna, sem að mótinu stóðu, og
vakti það óskipta athygli á-
horfenda.
Mótið var fjölsótt og fór f
alla stað hið besta fram, enda
var veður hið ákjósanlegasta.
G. S.
ÞAR eð jeg hafði sjeð finnska
knattspyrnu fyr, en aldrei ís-
lenska, var jeg mjög vantrúaður
á sigur íslenska landsliðsins á
móti hinu finska liði. Jeg var
því mjög undrandi, er Islend-
ingum fjell sigurinn í skaut.
Betri boltameðferð.
Auðvitað hafði hin langa ferð
ásamt malarvelli sín áhrif á
leik Finnanna. En sigur íslend-
inga var að þakka góðri bolta-
meðferð og góðu úthaldi. I síð-
John O. Nilsson
ari leikjum sást það greinilega,
að sigurinn var ekki bending
ein, heldur að sameinuðu fje-
lögin höfðu ágæta leikni. — Á
sænskan knaítspyrnumæli-
kvarða mætti líkja styrkleika
fjelaganna, sem spiluðu saman
gegn Finnum, við bestu fjelög
í annari ,,division“ og landslið
íslendinga ofarlega í fyrstu
„division".
Dómarar.
Af þeim íslensku dómurum,
sem jeg sá, tel jeg Guðjón Ein-
arsson vera íslenskum fjelögum
og knattspyrnuíþróttinni í heild
mikinn feng. I samanburði við
sænska dómara, álít jeg Svía
vera strangari hvað snertir að
spyrna með skósólanum og að
bera fæturna of hátt við spyrnu.
Línverðirnir í Iandsliðskapp-
leiknum voru mjög góðir og var
samvinna við þá hin ákjósan-
legasta og skiluðu þeir hlut-
verki sínu vel af hendi.
Fyrsta heimsókn mín til Is-
iands, sem við Svíar köllum
Sögueyjuna, hefir orðið mjer til
mikillar ánægju. Gestrisni er
íslendingum ár- efa í blóð borin,
slíkar hafa móttökurnar verið.
Um leið og ieg yfirgef ísland,
vil jeg biðja Morgunblaðið að
flytja þakkir mínar til Knatt-
spyrnusambandsins, hinnar á-
gætu móttökunefndar, leik-
manna og minna góðu fjelaga,
knattspyrnudómaranna.
Að síðustu óska jeg hinni ís-
lensku knattspyrnuíþrótt fram-
gangs á komandi tímum.
John O. Nilsson.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson
Oddfellowhúsið. — Sími 1171
hæstarjettarlögmenn
Allskonar lögfiæðistörf.
Bolungarvík.
Frá frjtíttaritara vorum.
ÞANN 8. JtJNl hófst hjer
námskeið í knattspyrnu og
handknattleik. Kennari var Ax
el Andrjesson, sendikennari í
S. 1. Alls voru þátttakendur 133
78 þiltar og 55 stúlkur. Voru
þátttakendur úr U.M.FB. tæp
ur helmingur, hinir voru yngri
en 15 ára Fjuir forgöngu Axels
var unglingadeild stofnuð. I
deildinni tíru allir þeir, sem á
námskeiðinu voru yngri en 15
ára, en þeir voru 70 að tölu
Deildin er innan U-M.F.B.
Markmið deildarinnar er að
iðka íþróttir. Jafnóðum og fje
lagar deildarinnar verða 15
ára, öðlast þeir full rjettindi í
U.M.F.B. 1 stjórn unglingadeild
arinnar voru kosnir: Guðmund
ur P. Einarsson, form., Gunn
ar Guðmundsson, gjaldkeri og
Lilja Ketilsdóttir, ritari. '
17. júní var haldinn hátíðleg
ur að venju- Vegna yfirstand-
andi námskeiðs hefur aldrei
verið fjölbreyttari íþróttasýn
ingar þennan dag. Kl. 2 gengu
76 íþróttamenn og stúlkur í
skrúðgöngu inn á handknatt-
leiksvöllinn. Formaður U.M.F.
B., Guðmundur Jakobsson hjelt
ræðu og skýrði dagskrárliðina,
en þeir voru þessir: 1) Boð-
hlaup á milli skáta og U M.F.B.
7 manna sveit. 2) Naglahlaup,
7 manna sveit B-lið stúlkna 3)
Leikfimisýning karla. Þessum
liðum stjórnaði Guðjón Bjarna
son. Því næst voru Axelskerfin
sýnd undir stjórn höfundarins.
Fyrst sýndu drengir 10—13
ára A og B-lið 8 manna sveit.
knattspyrnukerfið. Síðan sýndu
telpur 10—13 ára A og B-lið 7
manna sveit, handknattleiks-
kerfið og að lokum drengir 7—
9 ára A og B-lið 8 manna sve'it
knattspyrnukerfið. Síðasti liður
íþróttanna var handknattleiks-
kappleikur karla á milli skáta
og U M.F.B. Leikar fóru svo, að
jafntefli varð 8:8.
27. júní komu piltar úr knatt
spyrnufjelaginu Vestar, Isafirði
og þreyttu handknattleikskapp
leik við pilta úr U.M.F.B. Leik
ar fóru svo, að Vestar-menn
unnu með 18:17 eftir mjög
skemmtilegan og jafnan leik.
Var þetta fyrsti handknattleiks
kappleikur er Bolvíkingar
þreyta við Isfirðinga-
4. júlí var haldinn í sambandi
við námskeiðið stór iþrótta-
keppni undir stjórn kennarans,
og fór hún fram á handknatt-
leiksvellinum. 1) Kappleikur
drengja 5—10 ára A og B-lið
(knattspyrnukerfið). 2) Kaop-
leikur telpna 4—10 ára A og
B-lið (handknattltíikskerfið) 3)
Kappleikur í handknattleik
milli A og B-liða telpna 10—13
ára. 4) Kappleikur milli A og
B-liða drengja 10—13 ára i
handknattleik. 5) Kappleikur i
handknattlcik milli 2. og 3. fl.
slúlkna-
Eins og sjá má af því, sem á
undan er ritað, hefpr með
komu Axcls vaknað hjer mikið
íþróttalif í Bolungarvík Á æf-
ingum mætti í öllum flokkum
daglega að meðaltali 90—100
manns.
Æska Bolungarvíkur er þakk
lát l.S.l. fyrir að hafa fengið
að njóta kennslu þessa ágæta
kennara, og óskar hún að fá að
njóta krafta hans á næsta ári.
Námskeiðinu lýður 9. þ-m.
með samsæti, sem kennaranum
verður haldið. Axel fer hjeðan
til Isafjarðar 11. júlí, og verður
í för með honum 2 flokkar, 10
piltar og 10 stúlkur, sem keppa
á handknattleiksmóti Vest-
fjarða, sem fram á að fara
þann dag.
Sænska úrfðkumófið
í frjálsíþrótium
Á SÆNSKA úrtökumótinu fyr-
ir Olympíuleikana vann Gösta
Bergkvist 1500 m hlau.pið á
3,48,0 mín. Lennart Strand var
annar á 3,49,8 og Henry Eriks-
son þriðji á 3,50,0. í úrslitunum
var fyrsti hringurinn hlaupinn
á 57,5, en miUitíminn á 800 m
var 2.00,6. Strand hafði þá dreg
ist um 30 m aftur úr, en á síð-
asta hringnum fór hann fram
úr hverjum á fætur öðrum,
nema Bergkvist, sem hann náði
ekki. Strand virtist lítið þreytt-
ur eftir hlaupið.
Rune Larsson vann 400
metrana á 48,0 en Wolf-
brandt frá Orebro varð annar
á 49,2. Þessir tveir, ásamt Kurt
Lundqvist keppa í 400 m fyrir
Svía á Olympiuleikunum. Rune
Larsson vann 400 m grinda-
hlaup á 52,9, en A. Wesaman
var annar á 53,8.
Ingvar Bengtsson vann 800
jm á 1.53,3, en Hasse Liljekvist
varð annar á 1,53,6,’ Lunggren
: 3. á 1.54,2 og Lindén 4. á 1.54.8.
j Evrópumeistarinn Rune Gustafs
1 son komst ekki í úrslitin.
| Bo Ericson vann sleggju-
■kastið með 53,35, en E. Söder-
Jquist var annar með 53,19. —
'Lidman vann 110 m grinda-
hlaupið á 14,6, en Börje Remdin
Var annar með 14,9 og H. Krist-
oífersen 3. með 15.0. — Petter-
Ison vann spjótkast með 69,66,
en Berglund var annar 67,63
m. Lennart Moberg vann þrí-
stökk á 15.03 m. Hallgren varð
I annar með 14,66 og Arne Ah-
man þriðji með 14,42. —. Bo-
j linder vann hástökk á 1,93. G.
Widenfeldt var annar með 1,93
og A. Duregard þriðji með 1,90.
Ahlén vann 5000 m á 14.33,6.
Durkfeldt var annar með
14,38,8 og E. Johannsson 3. með
,14,39,2. — Rune Gustafsson
vann 100 m á 11,1, Bertil Palm
langstökk á 7,11, Erik Fransson
kringlu á 46,26 og Göllbos stang
arstökk á 4,10.
A móti í Gimo s.l. sunnudag
kom Arne Ahman mjög á óvart
með að stökkva 1,95 m í há-
stökki (besti árangur í Svíþjóð
í ár) og tíu mínútum síðar stökk
hann 15,05 m í þrístökki og var
í þremur stölikum yfir 15 m.
— Nilsson kastaði á sama móti
kúlu 15,92 og náði ógildu kasti
yfir 16 metra.
KÁÖP! GULL
hæsta verSi.
SIGURÞÓR. Hafnarstrætí i