Morgunblaðið - 17.07.1948, Síða 16

Morgunblaðið - 17.07.1948, Síða 16
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflóí. Suð-austan eða austan goia. — Skýjað með köflum en úr- komuíaust. GLUB PASHA lýsir skoð- unum sínum á Pa'lestínuvanda- ---- ■* málinu. — Sjá grein á bls. 9. 167. tbl. — Laugardagur 17. júlí 1948. Vonir til að Norður- landssíÍdin sje að koma á miðin I ----------- ’ Siglufirði, föstudag. i Frá frjettaritara Morgunblaðsins. SJÖMENN eru nú vongóðir um, að norðanlandssíldin, sem beðið hefir verið eftir með óþreyju — sje nú loksins að koma á miðin. I fyrrinótt sá síldarleitarflugrjelin margar síldartorfur út af og við Langanes, en það er skoðun margra, að einmitt þar'komi norðansíldin fyrst upp að landinu og þar hefir síld ekki sjest fyr en nú á þessu sumri. Náð í Oiympíueldinn fil Olympfu. Nýr ijekkneskur HINN NÝJI SENÐIHERRA iTjekkósIóvakíu, dr. Theodor Kuska, sem jafnframt er sendi- herra í Oslo og búsettur þar, kom hingað til Islands í gær og tók skrifstofustjóri utanrík- isráðuneytisins, Agnar K1 ‘Jónsson, á móti honum. Sendi herrannn mun afhenda forset anum embættisskilríki sín ein- hverja næstu daga. Dr. Kuska er maður á sex- tugs aldri og hefir lengi verið í utanríkisþjónustu lands síns. Hanxi varð doktor árið 1918 og menntaskólakennari næstu ár, en hefir síðan 1921 verið starfs maður utanríkisráðuneytisins tjekkneska- Árið 1922—-24 var hann sendiráðsritari í Kaup- mannahöfu, síðan um tíma ræðismaður í Cleveland í Bandaríkjunum og 1936—39 ,við sendiráðið i Róm. Ettir stríðið liefir hann verið í uj'p- lýsingaráðuneytinu í Prag og nú síðast forstjóri þess. (Frjett frá utanríkisráðuneytinu). Þjéðláfíðin í Eyjwn Vestmannaeyjum, föstud. Frá frjettaritara vorum. ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyja, hefir verið ákveðið að halda 6. —7. ágúst næstkomandi. Fyrirkomulag hátíðarinnar verður með svipuðu sniði og undanfarin ár Iþróttafjelagið Þór, sjer að þessu sinni um und irbúning og framkvæmd hátíð- arinnar. ^SíIdin stygg og torfur þunnar. Þegar síldarfregnirnar bár- ust frá Langanesi, hjelt síld- veiðiflotinn, sem var dreifður fyrir Norðurlandi, strax austur á bóginn. Eru allmörg skip þeg ar í dag kominn austur og hafa sjómenn verið í bátum beggja vegna nessins í dag. Ekki hefir þó borist nein frjett um góð- an árangur hjá síldveiðimönn- um. Síldin hefir reynst stygg og erfið viðureignar og torfurn ar frekar þunnar. Vitað er um eitt skip, Sleipni frá Norðfirði, er fengið hafði 600 mála kast, ,sem bætti við sig 200 málum við Langanes og var hann á leið til Raufarhafnar með afla sinn í dag. Gott veður. Ágætis veður var á miðun- um fyrir Norðurlandi og slcygni gott. en blíðuveður við Langa- nes. Fáein skip eru eftir á Skagagrunni, en flotinn að mestu á austurleið. — Guðjón. ÓLYIY1PÍUELDUR1NN er tendraður í Ólymíu í Grikklandi og fluttur þaðan til London, Hjer sjest leiðin, sem farin verður rneð hann. Frá Curfu til Bari á ítalíu verður hann fluttur á breskum tundurspilli, en þaðan verour blaupið með hann yfir Italíu, Sviss, Frakkland, Luxemljurg og Belgíu til Calais. Yfir sundir til Dover verður hann fluttuií með tundurspilli, en síðan hlaupið með hann til Wembley, þar sem hann verður tendr* aður kl. 3,45 29. júlí. Þegar kappsgilingarnar hefjast í Torquay verður einnig hlaupiði með hann þangað. (slendingar befri knattspymomenn en Slór málleysingja- Washington í gær. í WICHITA í Kansas er verið að reisa stærsta málleysingjaskóla í Bandaríkjunum. Skóli þessi er gerður sem hei’.t hverfi, 41 bygg ing á 40 ekrum lands. Búist er við, að byggingarnar' verði til um mitt ár 1349. Skóli þessi mun á hverju ári taka til kennslu um 400 margskonar málhölt og’ hljóðvilt börn. — Þarna verða gerðar fullkomnar rannsóknir og tilraunir, sem geta oroið til mikils gagns við að lækna einhverja af þeim fjór um miljónum í Bandaríkjunum, sem eru að einhverju málhaltir. Kaupmannahöfn í gær. FARARSTJÓRI sænska knatt- spyrnufjelagsins „Djurgárden“, Sandberg, segir í samtali við Dagens Nyheter eftir heim- komuna, að íslensku knatt- spyrnumennirnir hafi verið hættulegri mótstöðumenn en þeir Amerísku. Þeir hefðu veitt ,,Djurgárden“ mikið meira við- nám. Hann sagði ennfremur, að ís- lendingar myndu áreiðanlega vinna ameríska knattspyrnulið- ið, sem keppir á Ólympíuleik- unum. — Páll. ‘yrstu i arsms slenskar afurðir fyrir 200 miljónir króna ALDREI fyr hefur útflutningsverslun íslendinga verið stórkost- legri, en fyrstu sex mánuði þessa árs — sagði Halldór Jónasson hiá Hagstofunni í viðtali við Mbl. í gær. — Frá áramótum til júníloka, nemur verðmæti útfluttrar vöru 200 miljónum króna, en inníiuttrar 200,8 miljónum króna. Fánabók gefin ú) Lake Success í gær. FÁNANEFND Sameinuðu Þjóð anna gaf nýlega út bók, sem hefur inni að balda myndir og hlutföll allra alþjóðafána heims ins. Auk þess fylgja góðar og nákvæmar greinar, sem skýra tilkomu og uppruna fánanna. Fyrst og fremst er þarna ná- kvæm skilgreinmg á fána Sam- einuðu Þjóðanna, einnig heið- ursfánanum, sem lítið hefur ver ið notaður hingað til, en ætlun- in er að hafa hann við hún við iill hátíðleg tækifærl. ^ Nýsköpunarskip ' fyrir 43 milj. kr. Þess ber þó að gæta, í sam- bandi við innílutninginn, að í honum eru innifalin allmörg ný skip, á nýsköpunarreikningi og koma ekki til frádráttar á gjald- eyristekjur þessa árs. Á tíma- bilinu janúar—mars, nam verð- mæti nýsköpunarskipa 24 milj. og mánuðina apríl—júní 19 inilj. kr. Þessi skipakaup nema alls 43 milj. kr., og ættu að koma til frádráttar við vöruskiptareikn- inginn, .og þá ætti verðmæti inn- fluttrar vöru, f> rstu sex mánuði þessa árs, því að vera 165 milj. kr. og hinn eiginlegi vöruskipta- jöfnuður að vera hagstæður um 34,5 milj. kr. HeJmingi hærn upphæð Fyrri árshelmíng í fyrra, jan. —júní, nam verðmæti inníluttr- ar vöru 231 milj. kr. Þar er einn- ig innifalin kaup á nýsköpun- arskipum. En verðmæti útfluttr- ar vöru nam aðeins 100 milj. kr. Júní í júnímánuði nemur verðmæti innfluttrar vöru 52,2 milj. kr., en útflutningsins 43,7 milj. kr. Júnímánuður hefur því verið ó- hagstæður um 8,5 milj. kr. Þess skal getið að við útreikning vöruskipta í júní, eru í innflutn- ingnUm nýsköpunarskip fvrir 19 milj. kr, — Stærst þessara skipa er m. s. Tröllafoss, er kpstaði 4,7 miij. kr. Stærstu viðskiptalöndin Eins og fyrr segir nam verð- mæti innfluttrar vöru 43,7 milj. kr. Stærsta viðskiptalandið í júní var Bretland. Þangað fóru afurðir fyrir 19 milj. kr. Næst kemur Þýskaland með 11 milj. kr., þá Holland með 3,6 milj. og Danir keyptu hjer vör- ur fyrir 3,4 mxlj. kr. y’saiE Stærstu liðir útflutningsins í júnímánuði var stærsti lið- ur útflutningsverslunarinnar síldarolía fyrir hvorki meira nje minna, en 17,6 milj. kr. Til Bretlands fór olía fyrir 10 milj. kr., til Hollands fyrir 3 milj. og til Þýskalands fyrir 3,7. Mest af þessari síldarolíu var unnið úr Hvalfjarðarsíldinni. Alls voru síldarafurðir seldar fyrir 21 milj. kr. ísvarinn fiskur var seldur fyrir 9,6 milj. kr. Þar af fór til ÞýskalanJs fyrir 7,7 milj. en til Bretlands fyrir aðeins 1,9 milj. Til Bretlands var seldur freðfiskur fyrir 5,7 milj. Lýsi var selt fyrir 3,4 milj. og fór það hjerumbil allt til Banda- ríkjanna. Danir Keyptu af okkur mikið af síldarmjöli og Tjekkar nokkuð, en síldarmjöl var selt fyrir 3,3 milj. kr. Saltfiskur var fluttur út fyrir 1,3 milj. Fór mest af honum til Biætiands, en einnig nokkuð til Cuba. Á veg- um Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna, var flutt út niður- suðuvara fyrir 1,3 milj. Fóru vörur þessar til Ungverjalands, Austurríkis, Júgóslavíu og Tjekkóslóvakíu. Rússandr fengu ebki að fara í land á Siglufirði Siglufirði í gær. Frá frjettaritara Morgbl, RÚSSNESKT SÍLDVEIÐISKIF — móðurskip — um 3000 smá- lestir að stærð, kom hingað til Siglufjarðar í gærkvöldi, og fór aftur um hádegisbilið í dag. í skipinu voru bæði karlar og konur, en enginn af áhöfn- inni fekk að stíga fæti sínum á land hjer og enginn að fara um borð í skipið frá landi, nema Þeir, sem nauðsynlega þurftu, vegna viðskifta skipsins við ís- lendinga. Skipið mun hafa tek- ið vatnsbirgðir. Allmargt Siglfirðinga fór nið- ur á bryggju tíl að skoða skipið, en ekkert samband var unnt að hafa ’við skipið. —-----

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.