Morgunblaðið - 27.07.1948, Side 2
2
MORGUNBLAÐI&
Þriðjudagur 27. júlí 1948. J
Framboð SjáSfsfæðisflokkslns í Snæfellsnessýslu:
Sigurður Ágústsson útgerðurmuð-
ur vulinn frumbjóðundi. Gunnur
Thoroddsen óskuði uð verðu
þur ekki 1 kjöri
LAUGARDAGINN 24. júlí hjelt
hjeraðsnefnd Sjálfstæðisflokks-
ins í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu fund að Görðum í
Staðarsveit. Mættir voru full-
trúar úr öllum hreppum sýsl-
unnar, alls 48, en fyrir hönd
miðstjórnar mættu þeir Ólafur
Thors formaður Sjálfstæðis-
flokksins og Gunnar Thorodd-
sen aiþingismaður.
Ákvörðun um framboð
Fundurinn vay boðaður í til-
efni af því, að Gunnar Thor-
oddsen hafði tilkynt miðstjórn
flokksins, að hann hefði tekið
um það endanlega ákvörðun, að
verða ekki í kjöri 'i Snæfellsnes-
sýslu við næstu aiþingiskosning-
ar, vegna þess að hann teldi sjer
ekki auðið til lengdar að vera í
senn borgarstjóri í Reykjavík og
þingmaður kjördæmis úti á
iandi. Fyrir hjeraðsnefndar-
fundinum lá því að taka ákvörð-
un um frambjóðanda fyrir kjör-
dæmið við næstu alþingiskosn-
ingar. Fundarstjóri var kosinn
sjera Þorgrímur Sigurðsson á
Staðarstað.
í upphafi fundarins skýrði
Gunnar Thoroddsen frá þessari
ákvörðun sinni, en Ólafur
Thors gerði grein fyrir því,
hversvegna miðstjórn flokksins
hefði talið óumflýjanlega nauð-
syn að leggja að Gunnari Thor-
oddsen um að taka að sjer borg-
arstjórastöðuna, þegar fyrver-
andi borgarstjóri, 'Bjarni Bene-
diktsson, tók að sjer embætti
utanríkisráðherra ,enda þótt það
hefði þá þegar verið Gunnari
Thoroddsen og miðstjórn flokks-
ins Ijóst, að afleiðing þessa yrði
sú að Gunnar Thoroddsen mundi
ekki sjá sjer fært að gegna til
frambúðar þingmennsku fyrir
Snæfellinga.
Mfltlar umræður
Hófust nú langar umræður,
og tóku þátt í þeim, auk um-
boðsmanna miðstjómar, milli
tuttugu og þrjátíu fundar-
manna. Hörmuðu þeir allir, að
svo hefði til tekist, að nú væri
að öðru sinni með samþykki mið
stjórnar af þeim tekinn þing-
maðurinn. Mættu Snæfellingar
að sönnu miklast af því, að þeir
hefðu borið gæfu til að velja
þingmenn, er þættu bera svo af
öðrum, að þeir væru valdir til
hinna þýðingarmestu starfa í
þjóðfjelaginu og yrði að viður-
kenna, að Sjálfstæðismenn í
hjeraði hefðu ekki rjettmæta á-
stæðu til að kvarta yfir því, þó
að þeirra sjerstaka fulltrúa væri
í enn ríkara mæli falið að þjóna
helldinni. Viðurkenndu ræðu-
ihénn almennt þau rök, sem
umlx)ð.smenn miðstjórnar /hefðu
fært fyrir því, að Gunnar Thor-
oddsea ljeti af þingmennsku
fyrir Snæfellinga að loknu þessu
Frá fundi hjeraðsnefndar Sjáifstæðis-
flokksins.
Sigurður Ágústsson.
kjörtímabili og sögðust nú
mundu enn sýna bæði flokknum
og alþjóð manna, að þeir bæru
gæfu til að velja sjer fulltrúa,
sem mundi sóma sjer vel á vett-
vangi stjórnmálanna.
Einhugur um
Sigurð Ágústsson
Sá hjeraðsnefndarmanna, sem
fyrstur tók til máls, ljet í ljós
þá skoðun, að úr því að menn
þyrftu nú að sjá á bak Gunnari
Tnoroddsen sem þingmanni,
væri mjög æskilegt að valinn
yrði maður innan kjördæmisins
til þess að taka við af honum
og skýrði jafnframt frá því sem
sinni skoðun, að þá mundi far-
sælast að fara þess á leit við
Sigurð Ágústsson og útgerðar-
mann í Stykkishólmi, og
að hann gæfi kost á sjer til þing
mennsku við næstu kosningar.
Taldi ræðumaður, að Sigurður
væri allra manna vinsælastur í
hjeraði sakir atgjörvis og mann-
kosta og mundi engum manni
þýða að fara á móti honum.
Allir hinir mörgu ræðumenn, er
á eftir töluðu, tóku mjög í sama
streng.
Að loknum hinum löngu um-
ræðum ljet fundarstjóri fara
fram atkvæðagreiðslu um það,
hvern menn teldu heppilegast
að hafa í kjöri af hendi flokks-
ins, Hlaut Sigurður Ágústsson
45 atkvæði, en 2 seðlar voru
auðir. Að lokinni þessari át-
kvæðagreiðslu skoraði formað-
ur flokksins á Sigurð Ágústs-
son að verða við áskorun fund-
armanna. Sigurður Ágústsson
tók nú til máls og skýröi frá
þvi, að enda þótt hann vegna
umíangsmikils atvinnureksturs
og margvíslegra opinberra
starfa teldi sig þegar hafa færst
svo mikið í fang, að ekki væri
á það aukandi, sæi hann sjer
þó ekki fært annað en að verða
við jafn eindreginni áskorun
fundarmanna og miðstjórnar
flokksins, enda þótt af því
mundi leiða, að hann yrði að
gera sjerstakar ráðstafanir
vegna forstöðu fyrirtækja sinna
ef hann hlyti kosningu til al-
þingis.
Var Sigurði ákaft fagnað af
öllum fundarmönnum, enda hef-
ur það lengi verið kunnugt, að
hann hefur oft átt þess kost að
verða í kjöri fyrir Snæfellinga,
en jafnan verið ófáanlegur til
þess, þótt hann nú hafi orðið
viö brýnni þörf flokksins.
Kosið í stjórn
hjeraðsnefndarinnar
Voru nú enn fluttar margar
ræður og umboðsmönnum mið-
stiórnar þakkað fyrir komuna.
Ljetu menn jafnframt í ljós
mikla ánægju yfir þeim einhug,
sem ríkt hefði á fundinum, sem
yfir hinu, að Sigurður Ágústs-
son hefði nú gefið fyrirheit um
að taka að sjer framboð fyrir
flokkinn. — Var á mönnum að
heyra, að enginn mundi láta sitt
eftir liggja til að tryggja kosn-
ingu þessa ágætismanns.
Sjálfstæðismenn um land allt
munu fagna því, að jafn ágætur
maður sem Sigurður Ágústsson
he.fur nú gerst virkur þátttak-
andi í forustuliði Sjálfstæðis-
flokksins og mun mörgum þykja
betur hafa úr rætst, en á horfð-
ist fyrir Snæfellinga, úr því að
nauður rak til að sviíta þá hin-
um ágæta þingmanni, sem þeir
hafa haft á undanförnum árum.
Að lokum var kosin stjórn
hjeraðsnefndar og hlutu kosn-
ingu Kristján Gunnarsson skóla
stjóri og oddviti á Sandi, for-
maður, Kristján Steingrímsson
sýslumaður, Stykkishólmi, Þrá-
inn Bjarnason bóndi, Böðvars-
holti, Staðarsveit, sjera Þor-
steinn L. Jónsson, Söðylsholti,
Eyjahreppi, og Böðvar Bjarna-
son smiður, Ólafsvík.
— Veslur-Þýskaland
Framh. af bls. 1
trúana og mun hvert ríki fá
fulltrúa í tiltölu við fólksfjölda.
Fyrir 1. september.
Þingin í smáríkjunum munu
eins fljótt og kostur er kjósa
sína fulltrúa, en vonast er til,
að stjórnlagaþingið geti komið
saman fyrir 1. sept.
Vilja sameiningu við
A.-Þýskaland.
Á fundinum lögðu forsætis-
ráðherrarnii' allir mikla á-
herslu á það, að þeir óskuðu að
Austur-Þýskaland sameinaðist
Vestur-Þýskalandi.
Bretar og Bandaríkja-
menn ráðgast um
Þýskalandsmálin
----- i
Önnur móiinæíaorðsending í vændunt
London í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter,
BRESK-BANDARlSK ráðstefna var haldin í dag í utanríkis-
málaráðuneytinu breska og snerist hún um Þýskalandsmálin,
Stjórnmálafrjettaritarar telja liklegt, að rætt hafi verið um
hina væntanlegu ítrekun Vesturveldanna á mótmælaorðsendinga
til Rússa, vegna samgöngubannsins við Berlín. Sú mótmælaorð-
sending mun verða byggð á ályktunum þeim, sem gerðar voru a
fimmveldaráðstefnunni í Haag í síðustu viku.
Sumarslátrun hefst
ekki strax
SUMARSLÁTRUN dilka, var
leyfð frá og með deginum í gær
að telja og jafnframt ákvað fram
leiðsluráð landbúnaðarins verð
dilkakjötsins, sem er kr. 21,00, í
smásölu.
Slátrun dilka má þó ekki hefj-
ast í þessari viku og sennilega
ekki heldur í þeirri næstu. Bænd-
ur telja dilkana ekkj vera slátr-
unarhæfa og þykir sennilegt að
slátrun þeirra hefjist ekki al-
ment fyr en um miðjan ágúst.
Máhrerkasýning á
Akureyr!
Akureyri, mánudag.
Frá frjettaritara vorum.
LISTAMENNIRNIR Barbara
og Magnús Árnason, opnuðu
hjer málverkasýningu í dag, í
Gagnfræðaskólanum.
Á sýningunni eru 50 málverk
eftir Magnús og 25 vatnslita-
myndir eftir frú Barböru. Vel
helmingur verkanna eru frá
Grímsey, en þar hafa hjónin
dvalið síðan í vor. Aðrar mynd-
ir eru frá ýmsum stöðum á land
inu, svo og hugmyndir og
mannamyndir. — Þetta er
fjórða sýningin, sem þau halda
hjer á Akureyri. Sýningin stend
ur til n.k. sunnudags. — H.Vald.
Bemadotíe fer til Sví-
þjóðar á rauðakross-
fund
Rhodos í gær.
BERNADOTTE greifi sagði
blaðamönnum, að hann ætlaði
ekki á næstunni að kalla full-
trúa Gyðinga eða Araba á sinn
fund til Rhodos. Er það vegna
þess, að greifinn er á förum til
Svíþjóðar, þar sem hann ætlar
að sitja fund alþjóðarauðakross-
ins. — Reuter.
Mesli hiti þessa
sumars í Brellandi
London í gær.
YFIR helginga var mjög gott
veður í Bretlandi og notaði fólk
sjer það til að fara upp í sveit-
irnar og á baðstaðina. Mestur
hiti á þessu sumri var í dag,
í kringum 30 stig á Celsíus.
^Þeir, sem sitja fundinn.
Ráðstefnu þessa sátu fyrir
Bretlands hönd Bevin utanrík-
isráðherra, William Strang sjer
fræðingui; bresku stjórnarinnar
í Þýskalandsmálum og Peter-
son, sendiherra Breta í Moskva.
Fyrir hönd Bandaríkjanna sátu
fundinn Lewis Douglas, sendi-
herra Bandaríkjanna í Lond-
on, Bedell Smith, sendiherra
þeirra í Moskva og Charles
Bohlen, sjerstakur sendimað-
ur bandaríska utanríkisráðu-
neytisins.
Itrekun á mótmælum
til Rússa.
Ræddu þeir um Þýskalands-
málin vegna ítrekunar á mót-
mælaorðsendingu til Rússa,
sem væntanleg er á næstunni.
Er talið, að bæði breski og
bandaríski sendiherrann í
Moskva hafi krafist þess að fá
að vita til fullnustu öll smá-
atriði í sambandi við mótmæl-
in. Ékki er talið, að þau verði
send Rússum fyrr en á mið-
vikudag.
Brelar og Banda-
ríkjamenn hreinsa
Hvalfjörðinn
UNNIÐ HEFUR verið að því
undanfarna mánuði að fá
stjórnarvöld Bandaríkjanna og
Bretlands til þess að hreinsa
burt úr Hvalfirði allt það, sem
sem eftir hefur verið skilið þar
á sjávarbotni af setuliðinu, svo
sem keðjur, akkeri, víra og ann
að sem truflun veldur við veið-
ar í firðinum og skemmdum á
veiðarfærum.
Bretar hafa alveg nýlega lof-
að að senda skip eftir eina til
tvær vikur til þessara starfa og
vonast er eftir jákvæðu svari
frá Bandaríkjunum einhvern
allra næstu daga um hreinsun
af þeirri hálfu. (Samkv. frjetí
frá utanríkisráðuneytinu).
Brelar þakka björg-
un úr sjávarháska
BRESKI sendiherrann í Reykja
vík, Mr. C. W. Baxter, hefur
beðið utanríkisráðherra a'ö
flytja bestu þakkir frá bresku
ríkisstjórninni til skipstjóra og
skipshafnar togarans „Júlí“, er
bjargaði skipshöfn breska tog-
arans „Lord Ross“, 2. apríl s.l,
Hinn breski togari var á leið-
inni til Reykjavíkur með sjúk-
an mann, er hann strandaði og
sökk nálægt mynni Skerja-«
fjarðar.