Morgunblaðið - 27.07.1948, Qupperneq 8
8
MORGUWBLAÐIÐ
íWðjudagur 27. júlí 1948.
Bræðslusíldaraflinn er
nú orðinn rúml. 100 þús.
hl. — 22 skip hafa fengið
1000 mál
FISKIFJELAG Islands birti í gærkvöldi þriðju síldveiðiskýrslu
gína á vertiðinni. Samkvæmt henni var bræðslusíldaraflinn kl.
32 á miðnætti aðfaranótt sunnudags, orðinn 127.403 hektólítrar.
Á sama tíma í fyrra var bræðslusíldaraflinn rúmlega fimm sinn-
um meiri, eða 640,505 hektól. Auk þess sem þá var búið að salta
síld í 12452 tunnUr. — í vikunni sem leið bárust á land alls 35.887
hl. í skýrslunni eru birt nöfn 62 skipa, sem fengið hafa 500 mál og
har yfir. t
Skipin 62
Af þeim 62 skipum, sem birt
eru í skýrslunni, hafa 22 þeirra
fengið 1000 mál og þar yfir. Með
mestan afla er m.s. Helga frá
Reykjavík, 1916 mál. Næstur
kernur Narfi frá Hrísey og þá
Andvari frá Reykjavík.
Samkv. skýrslunni taka f jórir
togarar þátt í síldveiðunum, en
enginn þeirra hefur enn fengið
1000 mál.
Afli skipanna
Hjer á eftir fer skýrsla yfir
af’a þeirra 62 skipa, sem skýrsl-
an nær yfir og er bræðslusíldar
afli þeirra miðaður við mál.
Botnvörpuskip:
Sindri, Akranesi 806 mál og
tunnur
Sa var, Vestmannaeyjum 608
Trvggvi gamli, Reykjavík 659
Ónnur gufuskip:
Jökull, Hafnarfirði 903
Óiafur Bjarnason, Akranesi 620
Móforskip:
Álsey, Vestmannaeyjum 769
Andvari, Reykjavík 1612
Arnarnes, ísafirði 1450
Ásgeir, Reykjavík 1066
Áamundur, Akranesi 560
Ásþór, Seyðisfirði 614
Auður, Akureyri 594
Bjarmi, Dalvik 623
Björgvin, Keflavík 1119
Björn, Keflavík 554
Björn Jónsson, Reykjavík 1490
Böðvar, Akranesi 1122
Dagný, Siglufirði 1192
Dagur, Reykjavík 1419
Einar Þveræingur, Ólafsf. 605
Eldey, Hrísey 721
Erlingur II, Vestmannaey. 649
Fagriklettur, Hafnarfirði 1390
Finnbjörn, ísafirði 806
Flosi, Bolungarvík 847
Fram, Akranesi 658
Freyfaxi, Neskaupstað 879
Garðar, Rauðuvík 1306
Guðm. Þorlákur, Reykjavik 718
Gylfi, Rauðuvík 1355
Hafdís, ísafirði 582
Helga, Reykjavík 1916
Holgi Helgason, Vestm. 1575
Ingólfur, Keflavík (GK 125) 596
Jón Finnsson, Garði 564
Jór Magnússon, Hafnarf. 897
Jón Valgeir, SúðaVík 808
Keflvíkingur, Keflavík 713
Narfi, Hrísey 1749
Njörður, Akureyri 589
Olafur Magnússon, Keflavík 534
Pjetur Jónsson, Húsavík 512
Pólstjarnan, Dalvík 1037
Rifsn.es, .Reykjavík 1333
; 5iglup.es, Siglufirði 1604
í jleipnir, Neskaupstað 1006
15næfell, Akureyri 1431
Stígandi, Ólafsfirði 711
Stjarnan, Reykjavík 849
STraumey, Akureyri 571
Súlan, Akureyri 1195
Svanur, Réykjavík 548
Sveinn Guðmundss., Akran. 700
Sædís, Akureyri 675
Sæhrímnir, Þingeyri 939
Sævaldur, Ólafsfirði 556
Valþór, Seyðisfirði 675
Viðir, Akranesi 1418
Víðir, Eskifirði 1266
Vörður, Grenivík 582
Þorsteinn, Dalvík 556
Óðinn, Týr og Ægir, Grinda-
vík 771.
Þing sambands ísl.
sveifarfjeiaga sett
á Akureyri
SEXTÍU fulltrúar taka þátt
í störfum þriðja landsþings
Sambands íslenskra sveitarfje-
laga, sem sett var hjer á Akur-
eyri á sunnudagsmorgun.
Jónas Guðmundsson skrif-
stofustjóri, setti þingið og var
hann kosinn fyrsti forseti þess.
Annar var kjörinn Þorsteinn
M. Jónsson forseti bæjarstjórn
ar Akureyrar. Ritarar þings-
ins eru Karl Kristjánsson odd-
viti, Húsavík og Eiríkur Páls-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Erlendir gestir.
I setningarræðu sinni gat
Jónas Guðmundsson þess, að
fulltrúar frá Noregi, Dan-
mörku og Svíþjóð hefðu sýnt
sambandinu þann heiður að
sitja þingið sem gestir. Frá
Danmörku eru þessir fulltrú-
ar: C. E. Christiansen lands-
þingsmaður, en hann er fulltrúi
kauostaðasambandsins danska
og er hann formaður þess. Full
trúi danskra hreppsfjelaga á
þineinu er M. Edelberg full-
trúi í innanríkisráðuneyti Dana.
Frá Svíþjóð er mættur Martin
Anderson framkvæmdastjóri,
en hann er formaður í sam-
bandi sænskra hreppsfjelaga
og er hann jafnframt á þingi
þessu fulltrúi kaupstaðasam-
bands Svíþjóðar. Norski full-
trúinn er Rudolf Hedemann
oddviti og formaður í sambandi
norskra hreppsfjelaga. Hann
er og fulltrúi kaupstaðarsam-
bandsins norska. Hinir er-
lendu gestir fluttu allir kveðj-
ur við þingsetningu.
Á sunnudaginn var kosið í
fastanefndir þingsins. Það mun
ijúka störfum á þriðiudaginn.
— H. Vald.
AUGLÝSllSG
ER GULLS IGILDI
Egill Jónsson, bóndi,
Slokkalæk, sjðlugur
Göfugt starf — að gróðri hlúa,
gera um móa töðuvöll.
Kunnátta að kunna að búa,
klakklaust sigra ölduföll.
Erfiðleika alla kljúfa,
árvekni og hugsun snjöll.
Sælt að vera sjálf síns maður,
sjálfráður um tíma og starf,
engum háður, hjartaglaður,
höldurinn á slíkan arf.
Bærinn hans er bestur staður,
besta vje, er landið þarf.
Egill Jónsson — öðlíngsmaður,
allra besti granni — vin,
vinsæll, öllum velviljaður,
vel á búskap hefir skyn,
prúður, hreinn í geði, glaður,
gestrisinn og traustur hlyn.
Öllum sínum árum slítur,
Egill hjer og stundar bú.
Ávaxtanna af iðju nýtur,
ásamt hinni dyggu frú.
Sjötugur með sæmd hann lítur
sína vegferð yfir nú.
Við þig hefur lífið leikið,
lánið fylgt þjer árla og síð.
Ungur fekstu ágætt vífið,
er það lífshamingja blíð.
Ljúf er æfi, laus við kífið.
Lifðu bannig alla tíð.
G. Sk.
Sr. Eiríkur Brynjólfs-
son kominn heim
Keflavík, mánudag.
Frá frjettaritara vorum.
SJERA Eiríkur Brynjólfsson
prestur að Útskálum, kona hans
og tveir synir, komu loftleiðis
til Keflavikur snemma á sunnu-
dagsmorgun.
Svo sem kunnugt er hefur sr.
Eiríkur dvalið í Ameríku í rúmt
ár og þjónað þar fyrsta Luth-
erska söfnuðinum 'i Winnipeg, í
skiptum við sr. Valdimar Ey-
lands, sem þjónaði Útskála-
prestakalli ,en sr. Valdimar er
farinn vestur fyrir nokkrum
dögum.
Safnaðarfulltr. úr öllum sókn-
um Útskála, tóku á móti sr.
Eiríki á flugvellinum og fylgdu
honum heim til Útskála. Að
heimili sr. Eiríks biðu konur úr
Útskálasöfnuði með góðar veit-
ingar og höfðu þær skreytt heim
ili prestshjónanna með blómum.
Þar var sr. Eiríki og fjölskyldu
hans fagnað og boðin velkomin
heim. — Helgi.
Ung amerísk hjón
óska effir íbúð
í til 2ja mánaða, frá 1.
I áeúst. Tilboð sendist Cap-
| tain Petee, c/o Flugfjelag
| Islands, Lækjargötu 4. —
| Sími 6608.
BiII
Vil kaupa bíl. Mætti vera
ógangfær. Tilboð er greini
ásigkomulag, aldur og
verð, sendist Mbl. fyrir
miðvikudagskvöld, merkt:
„20 — 354“.
Minningarorð:
Stefanía Arnórsdóttir
sýslumannsfrú
í DAG er til grafar borin frá
Sauðárkrókskirkju Stefanía
Guðríður Arnórsdóttir, sýslu-
mannsfrú á Sauðárkróki.
Hún andaðist 14. þ. m. í
sjúkrahúsi í Danmörku og er
nú komin heim í fjörðinn sinn,
til að hvíla þar.
S.l. ár átti frú Stefanía við
mikla vanheilsu að stríða, von-
irnar um bata voru veikar, þó
hefur farið svo, sem jafnan fyr,
að „dáin, horfin“ er sú stað-
reynd, sem flestum reynist erf-
itt að sætta sig við og skilja
til fulls. Vinum hennar flutti
andlátsfregnin skugga sorgar-
innar og þegar við kveðjum
hana í dag viljum við jafnframt
þakka, að hún hefir gefið okk-
ur minningarnar um mikilhæfa
drengskaparkonu, er var traust
ur vinur vina sinna.
Frú Stefanía Arnórsdóttir
fæddist að Felli í Kollafirði 15.
apríl 1889. Var hún dóttir hjón-
anna sjera Arnórs Árnasonar
frá Höfnum, síðast prests í
Hvammi í Laxárdal og fyrri
konu hans Stefaníu Sigríðar
Stefánsdóttur. Var frú Stefanía
Arnórsdóttir komin af góðum
ættum og verður það ekki rak-
ið hjer.
I bernsku misti hún móður
sína og ólst eftir það upp með
föður sínum og seinni konu hans
Ragnheiði Eggertsdóttur, sem
mun hafa reynst henni ágæt
stjúpmóðir.
Jeg hefi hevrt um það rætt,
að hin unga prestsdóttir hafi
vakið á sjer athygli fyrir fríð-
leik og atgerfi. Fór hún til
náms í Kvennskóla Reykjavík-
ur einn vetur, en stundaði að
því námi loknu kennslu og
verslunarstörf.
Árið 1915 giftist hún eftir-
iifandi manni sínum, Sigurði
Sigurðssyni frá Vigur og var
heimili þeirra fyrstu búskapar-
árin á Isafirði, í Reykjavík og
Vestmannaeyium, en 1924
fluttu þau til Sauðárkróks, er
Sigurður var skipaður sýslu-
maður í Skagafjarðarsýslu og
hefir heimili þeirra verið þar
síðan.
Þau hjónin eignuðust 9 börn,
þrjár dætur og sex syni, sem
öll eru á lífi og mannvænleg.
Eru tveir yngstu synirnir nem-
endur í Mentaskólanum á Ak-
ureyri og fjögur systkinanna
eru gift. Naut frú Stefanía
þannig þeirrar igleðl, að 'sjá
börn sín öll uppkomin og fá
að veita barnabörnum sínum
ástúð og umhyggju, ekki síst
litlu Stefaníu Arnórsdóttur, er
lengst barnabarnanna var með
ömmu og afa.
Frú Stefanía var atorku kona
og hafði margt að vinna, en á
s.l. sumri, er hún gekk að dag-
legu starfi sínu á heimilinu, var
hún snögglega gripin þeim sjúk
dómi, sem nú hefir dregið hana
til dauða. Eftir það var hún
sjúklingur, ýmist í heimahúsum
eða sjúkrahúsi og för hennar í
vor til Danmerkur var farin í
von um það, að þar kynni hún
að fá bót meina sinna. Fyrir
nokkru fór Sigurður sýslumað-
ur einnig til Danmerkur og
ætlaði að eyða þar sumarleyfi
sínu. Dvölin þar varð styttri en
ætlað var, hann er nú kominn
heim aftur með brúði sína ör-
enda.
Verkahring húsfreyjunnar
fylgja oftast nær áhyggjur og
erfiði, samfara gleðinni sem
fæst við það að veita ástvin-
unum skjól og hamingju og
gestum beina, með þeirri rausn
og alúð, sem hæfir íslenskri
höfðingslund.
Verkahringur frú Stefaníu
hefir oft verið erfiður.
Húsmóðurstaðan á hinu stóra
og gestrisna sýslumanns heim-
ili og erfiði móðurinnar við
uppeldi níu barna, er mikið
starf og veglegt. Þessu dags-
verki hefir frú Stefanía lokið
með sæmd.
Jeg veit að ástvinir hennar
bakka benni æfistarfið, hvern
dae sem hún vann fyrir velferð
þeirra og hamingju.
Við. sem nutum þess, að vera
lengi nágrannar hennar, þökk-
um henni vináttu og gæðin við
börnin okkar, því hjá henni
mættu þau æfinlega sama hlý-
hug.
Skagfirðingar þakka húsfreyj
unni á sýslumannsheimilinu fyr
ir störf hennar þar og fyrir það,
að hún gaf sjer einnig tíma til
að sinna fjeiagsmálum, sjer-
st.aklega fjelagsmálum kvenna.
Vinir frú Stefaníu í Skagafirði
og annarsstaðar kveðja hana
með virðingu og þökkum. Saga
hennar er óskráð, en hún er
geymd í minningum þeirra, er
kyntust hæfileikum hennar og
mannkostum, þar fær hún gott
eftirmæli.
P. Hannesson.
| Sá sem getur útvegað mjer f
Silfurbúinn staf
I situr fyrir herbergi í mið- |
i bænum. Tilboð merkt: f
i ..Göngustafur — 347“ f
j sendist afgr. Mbl.
!
| BERGUR JÓNSSON
Málflutningsskrifstofa
! Laugaveg 65. Súnl 5833,
Heimasími 9234.