Morgunblaðið - 09.10.1948, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 9. okt. 1948.
Minningarorð
um Guðríði Jóhannsdóttur
frá Ólafsvöllum.
ÞANN 30. ágúst s.l. andaðist
frá Guðríður Jóhannsdóttir,
kona Jóns Brynjólíssonar.
Hvarf þar úr tölu lifenda ein
þessara ágætu kvenna íslenskra
er gjörðu garð sinn ágætan og
unnu æfistarf í kyrrð innan vje
banda heimilis síns.
Mjer er það skyldast allra
vandalausra að minnast Guð-
ríðar og þakka henni-
Um 15 ára skeið kom jeg á
h'iimili þeirra hjóna þriðja
hvern dag, helgan og fjekk þar
enar ágætustu viðtökur, góðan
beina og vináttu í hverju orði
oj handtaki. Marga för eiga
þeir, prestarnir íslensku, á út-
kirkjur sinar.
Margsstaðar er ■við þeim tek
ið með ágætum, en vart má
það betra, en á Ólafsvöllum í
tíð þeirra Guðrúnar og Jóns.
Og nú er Guðríður gengin
atlrar veraldar veg. Jeg þakka
henni stundirnar heima á Ólafs
völlum.
Frú Guðríður Jóhannsdóttir
var fædd að Borgarhöfn i Aust
u --Skaftafellssýslu 27. júní
1880.
Hún var dóttir þeirra mætu
hjóna Jóhanns bónda Magnús
sonar og konu hans, Bjargar
Björnsdóttur. Var Björg komin
af traustum bændaættum þar
eystra, en Jóhann var sonur
Magnúsar prests í Eyvmdar-
hólum, Torfasonar prófasts á
Bieiðabólsstað í Fljótshlíð, Jóns
scnar prests í Hruna Finnsson
ar biskups í Skálholti Jónssonar
Er margt merkra og mætra
manna af ætt þessari komnir,
ba;ði hjer og erlendis.
Þegar á ungum aldri var hún
kona gjörvileg og væn álitum.
Mannaðist vel bæði í kvenna-
skóla og við dvöl á höfðings-
hoimilum, sem í þá daga voru
best til frama og menningar
ungum húsmæðraefnum.
Hinn 17. okt. 1903 giftist frú
Guðríður eftirlifandi manni
sínum Jóni, syni síra Brynjólfs
á Ólafsvöllum. Hófu þau þegar
búskap þar á prestsetrinu, og
bjuggu þar góðu búi í 45 ár,
eða þar til þau brugðu búi ó
s.}. vori og fluttust til Reykja
yikur.
Sex barna var þeim auðið-
Tvö dóu ung. Elstu dóttur sina
misstu þau fyrir ári síðan, ein
mitt þegar lifið virtist brosa feg
urst við henni. Þrjú eru á lífi,
Guðríður Jóhannsdóttir.
öll manndóms fólk og dreng-
skapar.
Aldrei verður saga neins
manns rakin svo, að henni sje
full skil gjör. Naumast verður
hún nema hálfsögð þá er best
lætur. Ljósmyndir sýna aldrei
svípbrigði manna nje innri
g- rð.
Eigi heldur orð annara eða
lýsing.
Þegar jeg segi lesöndum mín
um frá gestrisni Guðriðar,
trygglyndi hennar og óhvikulli
vináttu, verður það naumast
meirá en hljómandi orð.
Örlög manna i þessum heimi
eru þau, að geymast aðeins í
vitund vina og vandamanna.
En þá spyrjum victr:
Hverja umgerð fáum vjer
minningu vina vorum og unn
enda?
Vjer, sem kunnugir erum,
vitum, að nú hefur Jón á Ólafs
völlum misst sinn styrkasta
förunaut og öruggasta athvarf.
Vjer viljum gjarna vinir þínir
Jón, vera þjer hvortveggja, svo
sem vera má.
Börnin og fósturbörnin tvö
sakna nú raddarinnar, sem fór
með versin þeirra ásamt þeim
fram á fullorðins ár þeirra.
Vjer vinir hennar, söknum
góðrar konu, sem ávalt veitti
þ ið besta og reyndist best þeg
ar mest þurfti við.
Fari hún í friði.
Gunnar Jóhannesson.
illlllllllllMIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIfllllllllllll
BERGUR JÓNSSON
| Málflutningsskrifstofa |
i Laugavegi 65 Sími 5833 |
Heimasími 9234 í
MIIMIMMIIMMMMIMMMMIMIMIIIIMMMIIMIMMMMMIMMMIII
—• Þú ættir annars að jeta | — Kannski jeg ætti að borða
eitthvað, Towne, því að við eig- eitthvað, Markús.
um langa ferð fyrir höndum. i
Önnur bridgekeppni
austur- og vesturbœjar
í lmust
Veslurbærinn vann þá fyrri með
yfjrburðum.
HIN ÁRLEGA bridge-keppni milli Austur- og Vestur-bæjar
fór fram í s.l. mánuði og unnu Vesturbæingar með miklum
yfirburðum, eða á fjórum borðum af fimm. Austurbæingar hafa
aftur á móti fullan hug á að rjetta hlut sinn, og samkvæmt ósk
þeirra fer fram önnur bridge-keppni á milli bæjarhlutanna n. k
sunnudag. Spilað verður í Breiðfirðingabúð.
Keppt verður á fimm borðum®'
eins og i fyrra skiftið
Austurbær.
Lið Austurbæjar verður sem
hjer segir:
I. borð: Stefán Stefánsson,
Einar Þorfinnsson, Guðlaugur
Guðmundsson og Kristinn Berg
þórsson.
II. borð: Gunngeir Pjeturs
son, Skarphjeðinn Pjetursson,
Gunnar Pálsson og Einar
Ágústsson.
III. borð: Ragríar Jóhanns-
son, Þorsteinn Þorsteinsson,
Eggert Benónýsson og Kristján
Kristjánsson.
IV. borð: Halldór P. Dungal,
Pjetur Halldórsson, Svavar Jó-
hannsson og Ingólfur Isebarn.
V. borð: Robert Sigmundsson,
Guðm. Pálsson, Konráð Árna-
son og Steinþór Ásgeirsson.
Vesturbær:
Fyrir Vesturbæinn spila
þessir:
I. borð: Árni Matth. Jónsson,
Lárus Karlsson, Sigurhjörtur
Pjetursson og Örn Guðmunds-
son.
II. borð: Hörður Þórðarson,
Torfi Jóhannsson, Guðmundur
Guðmundsson og Gunnar Guð-
mundsson.
son, Sveinn Ingvarsson, Helgi
Eiríksson og Tómas Jónsson.
IV. borð: Ágúst Bjarnason,
Guðmundur Ólafsson, Einar
Bjarnason og Helgi Þórarins-
son.
V. borð: Jóhann Jóhannsson,
Zophonías Pjetursson, Lárus
Fjeldsted og Brynjólfur Stef-
ánsson.
Aðalfundur Bridgefjelagsins.
Aðalfundur Bridgefjelags
Reykjavíkur var haldinn ný-
lega. Starfsemi fjelagsins hefir
aldrei verið meiri en s. 1. starfs-
ár. Fjelagið hefir aldrei haldið
fleiri mót og þau verið fjöl-
mennari. Auk þess hafði fje-
lagið forgöngu um stofnun
Bridgesambands íslands og stóð
fyrir þátttöku íslendinga í Ev-
rópumeistaramótinu í bridge.
Zophonías Pjetursson var
endurkosinn formaður fjelags-
ins. Gjaldkeri var kosinn Ragn-
ar Jóhannsson og ritari Gunn-
geir Pjetursson.
Rússar vilja fa ítölsk herskip.
MOSKVA — Molotov utanríkisráð
herra Rússa kallaði sendiherra Itala
í Moskva á sinn fund og lagði þar
fram kröfu um að Italir afhentu Rúss
um 33 herskip, samkvæmt ákvæðum
III. borð: Einar B. Guðmunds friðarsamningsins við Itali.
Til sölu
sem ný „Pilco“ rafmagnseldavjel, 4 hellur. Verðtilboð
leggist inn á afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld merkt:
„Pilco — 975“.
piiiiiiiiiMMnimni
■Mnwnanmin nrnnnt *S
-*»t? |
Eftir Ed Dodd I
£
MIIMICI.MIMIMMMMIMIIIIMMMMMIMIlÁ
- „Sfeyssur" Þjóð-
viljans
(Framh. af bls. 2)
hefðu gert allt sem hægt yar
í því efni. En gerðardómurinn
taldi að uppsögnin hefði ekki
komið í hendur forráðamanna
tryggingarfjelagsins fyrr en 2.
júlí, þar eð þeir voru fjarver-
andi úr bænum kvöldið 1. júlí.
Borgarstjóri gerði alt sem hon-
um bar að gera.
Það þarf því meira en með-
al-illkvittni til þess að kenna
borgarstjóra um það, að upp-
sögnin var ekki metin gild.
Hann hafði sjálfur ráðið frá
uppsögn, en gert bæjarfulltrú-
um aðvart um málið með næg-
um fyrirvara.
Hitt er svo allt annað mál,
hvaða þóknun gerðardómsmenn
hafa áskilið sjer. Á því getur
borgarstjóri enga ábyrgð borið.
Það er föst venja í gerðardóms-
málum ,a ðdómendur ákveða
sjálfir þóknun til sín.
Það undrar engan, þótt
kommúnistar spinni upp árás-
arsögur um forráðamenn bæjar
ins. Hitt gegnir meiri furðu,
að jafn-grandvar maður til
orðs og æðis og Helgi Olympíu-
fari Sæmundss. sverjist í fóst-
bræðralag með bolsjevikkum
og taki undir hinn ódrengilega
þvætting þeirra. Hvort er nú
farið að fyrnast yfir aðalboð-
orð Olympíuleikanna: dreng-
skapinn?
III lllll I ■llllllllllllll IIIII11II MIIM II llllllllll IIIIIIII1111111111«
| Fermingarkjóll |
I til sölu á stóra stúlku, |
i miðalaus — Öldugötu 9, í
| efstu hæð.
IMMMMMIIMIMMMMMMMMMM.MMMMMMMMMMMMIMI
IIIIIMIIIIIIIIIIIIMIMMMMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIIMIMMMMIi
= £
| Er kaupandi að
i Boehm System
B-klarinett
| trje eða málmur. Þeir, sem |
| vildu sinna þessu leggi til- |
I boð merkt: „Klarinett — f
i 983“ á afgr. Morgunbl. fyr- §
f ir þriðjudagskvöld.
tllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIMIMIIII.IMIMMI
IMIIIIMMIMMMMIIIMMIMMMIMIMMMMMIIMMMIIMMMMIMI
| Hondbókj
i fræðitöflur og myndir =
i selst meðan birgðir endast f
i á kr. 2,50.
Bókabúðin KRON
i Alþýðuhúsinu við Hverfisg. f
MIIIIMMIIIMIIIIIIIMIIMIIIMMIIIIÉIIIIIIMIMIIMIIIIIIIMIIIIII
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIIMMMMMMMMII
I Skólaiðft (
i jakkaföt, einhneppt og tví- |
f hneppt. — Einnig ódýr f
1 tvílit föt.
f DRENGJAFATASTOFAN |
Grettisgötu 6.
MMMMMMMtMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM 11111111111
BEST AÐ AUGVÍSA
1 MORGUNBLAÐWU