Morgunblaðið - 30.04.1949, Qupperneq 1
fíMJJtlÍJ
16 síður
36. árgangur.
95. tbl. — Laugardagur 30. apríl 1949.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Alþingi synjar málshöfð-
unarheiðni Jm fólksins
rr
Gylfi einangraður með Framsókn
Sjö Sjálfsfæðismenn og Jörundur greiddu afkv.
með beiðninni vegna þrábeiðni Ólafs Thors
NEÐRI DEILD Alþingis Synjaði í gær beiðni 5-menninganna
u m málshöfðun gegn Ólafi Thors með 16 atkvæðum gegn 15.
Einn þingmaður greiddi ekki atkvæði og þrír voru fjarver-
andi. Rökstudda dagskráin frá Gunnari Thoroddsen og Finni
Jónssyni um að vísa beiðninni frá, var tekin aftur af flutn-
ingsmönnum samkvæmt eindreginni ósk Ólafs Thors.
¥on á undirbúningsfundi undir
fjórvelda ráðstefnu eftir heigina
Þeir, sem voru með
málshöfðunarbeiðninni.
Með beiðninni greiddu atkv.
7 Sjálfstæðismenn, 7 Framsókn
ar.menn og 1 Alþýðuflokksmað-
ur..
Það voru þessir þingmenn:
Olafur Thors, Pjetur Ottesen,
Sigurður Bjarnason, Stefán
Stefánsson, Hallgrímur Bene-
diktsson, Jóhann Hafstein, Jón
Sigurðsson, Eysteinn Jónsson,
Helgi Jónasson, Jón Gíslason,
Jörundur Brynjólfsson, Páll
Þorsteinsson, Skúli Guðmunds-
son, Steingrímur Steinþórsson
og Gylfi Þ. Gíslason.
Sjálfstæðismennirnir kváðust
eingöngu greiða atkvæði með
þessari fáránlegu beiðni, vegna
eihdreginna óska formanns
flokksins Ólafs Thors.
Brda og ísrael
LONDON, 29. apríl — Versl-
unarnefnd frá Israel var vænt-
anleg til London í kvöld og
mun hún hefja viðræður við
fulltrúa Breta á mánudag.
SitÍQÍð, sem brofnaði í tvenf
WASHINGTON — Lagt hefur
verið fram frumvarp á Banda-
ríkjaþingi um að leyfa 25.000
munaðarleysingjum úr stríðinu
að flytjast til Bandaríkjanna.
Þetta er hafskipið „Magdalena", sem strandaði á skeri skammt
frá Rio de Janeria fyrir nokkrum dögum. Skipið brotnaði í tvent
er það hafði náðst af skerinu og verið var að draga það til hafnar.
Magdalena var 18000 smálesta skip og var í fyrstu ferð sinni. Það
var vátryggt hjá Lloyds fyrir rúmlega 40 miljónir króna.
Þeir sem voru á móti.
A móti máishöfðunarbeiðn-
inni greiddu atkvæði 5 Sjálf-
stæðismenn, 1 Framsóknarmað-
ur, 5 Alþýðuflokksmenn og 5
Kommúnistar.
Þeir voru: Gunnar Thorodd-
sen, Ingólfur Jónsson. Jón
Pálmason, Sigurður E. Hlíðar,
Sig'urður Kristjánsson, Jónas
Jónsson, Barði Guðmundsson,
Ásgeir Ásgeirsson, Emil Jóns-
son, Finnur Jónsson, Stefán
Jóhann Stefánsson, Einar Ol-
geirsson, Katrín Thoroddsen,
Lúðvík Jósefsson, Sigfús Sigur-
hjartarson og Sigurður Guðna-
son.
Áki Jakobsson greiddi ekki
atkvæði og Bjarni Ásgeirsson,
Ilalldór Ásgrímsson og Her-
mann Guðmundsson voru fjar-
verandi.
Greinargerð þingmanna.
Allmargir þingmenn gerðu
g'rein fyrir atkvæði sínu og skal
hjer getið fyrirvara nokkurra
þejrra.
Jörundur Brynjólfsson sagði
að þar sem Ólafur Thors hefði
endurtekið ummæli sín utan
þinghelginnar og 5-menning-
arnir hefðu kært í brjefi sínu
yfir ummælunum, sem birtust
í Mbl. þá teldi hann þessa
beiðni óþarfa. En vegna óska
Ólafs Thors um að leyfa hana,
segði hann já.
Frh. á bls. 12.
manna nefnd athugar
stofnun varðliðs S. Þ.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FLUSHING MEADOW 29. apríl. — Allsherjarþing S.Þ. sam-
þykkti í dag með 47 atkvæðum gegn sex, en einn fulltrúi sat hjá,
að skipuð skyldi 14 manna nefnd til þess að sjá um, að komið
yrði á fót varðliði S.Þ. —- Fulltrúar Rússa og annarra Austur-
Evrópuþjóða greiddu atkvæði gegn tillögunni.
BERLIN, 29. apríl: — Þýskir
lögreglumenn frá rússneska
hernámssvæðinu í Þýskalandi,
rændu í kvöld bóndabæ einn á
breska hernámssvæðinu, s|amt
frá takmarkalínunni. — Tóku
þeir allan búpening bónda, og
ráku hann inn á rússneska her-
námssvæðið. — Reuter.
Tillaga Lie. <**-
Það var Trygve Lie, aðalrit-
ari S. Þ., sem bar tillögu þessa
fram og í greinargerð gat hann
þess, að varðliðið myndi notað
fyrst og fremst til þess að að-
stoða sendinefndir S. Þ. í hin-
um ýmsu löndum og vernda
þær þar sem þess gerðist þörf.
Malik á móti.
Malik. fulltrúi Rússa, sagði,
að það myndi .brot á stofnskrá
S. Þ.“, ef slíkt varðlið yrði
stofnað. En honum var bennt á,
að í stofnskránni væri einmitt
gert ráð fyrir myndun „al-
þjóðahers“, er notaður yrði til
verndunar starfsemi S. Þ.
„Yfirsjón" aðsegja
satt í Rússlandi
MOSKVA — Velþekktur rúss-
neskur hagfræðingur, Varga að
nafni, skrifaði nýlega bók þar
sem honum varð á að segja, að
kreppa væri ekki yfirvofandi í
hinum „kapitalistisku löndum“.
Kommúnistaflokkurinn bann-
í'ærði þegar bókina og hefir hag
fræðingurinn nú beðist opinber-
lega afsökunar á þessari „yfir-
sjón“ sinni og tilkynnt, að hann
muni endurskrifa bókina.
Kommúnistar nálgast
Hanchow og Shanghai
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
HONGKONG 29. apríl. — Hinir sex milj. íbúar Shanghai-borg
ar bjuggust í dag við því, að kommúnistar myndu hefja árásir
á hina nýju 500 mílna löngu varnarlínu stjórnarhersins fyrir
sunnan borgina. En hahn hefir komið sjer upp öflúgum virkjum
við Wukang, um 120 mílum suðvestur af Shanghai, sem og á
linunni' frá Chekiang strönd til Nanchang, í norður-Kiangsi.
<í>-
25 km. frá Hankow
Ein af framvarðarsveitum
kommúnista var sögð aðeins
um 25 mílur fyrir norðan Hanc
how í kvöld, en önnur sótti
fram á austurströnd Tai
Tai vatnsins, nær Shanghai, og
var sögð aðeins 35 km. frá borg
inni í kvöld.
1000 teknir höndum
Lögreglan í Shanghai tók í
kvöld fasta 1000 menn og kon-
ur, sem unnið hafa í þágu kom
múnista, og verður fólk þetta
flutt á brott úr borginni. — Er
fregnir af hinni nýju sókn kom-
múnista suður af Yangtse bár-
ust hingað til Hongkong, bauð dvelst í ítalíu.
mikill fjöldi sjálfboðaliða sig
fram, til þess að ganga í her-
sveitir stjórnarinnar.
1
BERLIN, 29. apríl — Dr. Malan
forsætisráðherra Suður-Afríku
kom hingað til Berlín í dag.
Mun hann dvelja hjer nokkra
daga og m. a. kynna sjer loft-
brúna. — Reuter.
Margaret á fuudi páfa
LONDON — Margaret prinsessa,
yngri dóttir Bretakonungs, mun
ganga á fund páfa meðan hún
íFrá fundi
Jessup og
ÍVIalik i gær
Einkaskeyti frá Reuter.
NEW YORK, 29. apríl: — Phi-
lip Jessup, fulltrúo Bandaríkj-
anna og Jacob Malik, aðalfull-
trúi Rússlands í Öryggisráðinu,
hjeldu annan fund með sjer í
kvöld, í aðalbækistöðVum rúss
nesku sendisveitarinnar á S.Þ.,
um Berlínarmálið. Ætlað er að
Malik hafi haft meðferðis til-
lögur frá Moskvu um það, hve-
nær samgöngubanninu á Berlín
skyldi afljett, sem og hvenær
ráðstefna utanríkisráðherra
fjórveldanna skyldi haldin. —
Að fundinum loknum ræddi
Jessup við Acheson. utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og síð
an við sir Alexander Cadogan
og Jean Ehauvel, en þeir eru
formenn bresku og frönsku
sendinefndina fyrir S. Þ.
Stóð 1 2 V2 klst.
Fundur þeirra Jessup og Ma-
lik stóð yfir í 2V2 klst. Jessup
neitaði, að segja blaðamönnum
nokkuð um árangur fundarins,
fyrr en hann hefði gefið utan-
ríkisráðuneytinu skýrslu sína,
en frjettaritarar segja, að það
hafi legið mjög vel á honum,
er hann kom af fundinum.
Góðs viti
Það voru Rússar, er áttu
frumkvæðið að þessum fundi
í kvöld og telja menn það góðs
viti, að fyrirskipanir skyldu
berast svo fljótt frá Moskva, en
fyrir tveim dögum fór Jessup
þess á leit við Malik, að hann
fengi staðfestingu á því frá
Moskva, að einu skilyrði Rússa
fyrir því að samgöngubanninu
yrði afljett, væru þau, að V.-
veldin afljettu samgöngubanni
sínu á Au.-Þýskal., og ákvæðu
hvenær ráðstefna utanríkisráð-
herranna skyldi hefjast. .Stjórn-
málafrjettaritarar telja að allar
líkur bendi til þess, að undir-
búningsfundur undir ráðstefnu
utanríkisráðherra fjórveldanna
muni hefjast í New York í
næstu viku, og telja þeir einnig
líklegt að ráðstefnan muni hefj
ast í París kringum þann 20.'
maí n. k.
Acheson ræðir við Franks
Bandaríkin hafa ekki enn á-
kveðið neitt um það, hváða mál
skuli verða á dagskrá ráðstefn
unnar. — Acheson ræddi við
Sir Oliver Franks, sendiherra
Breta í V/ashington, fyrr í dag
Framh. á bls. 12.