Morgunblaðið - 07.08.1949, Side 1
12 síður og Lesbók
Landhelgi[Dræta lögð
íyrir Alþjóðadómstól
BORGIN
RYNUR
RMBATO í EQUADOR
í STÚR-JATÐSKJÁLFTA
Einkaskeyti til Mbl. frá Reu*er.
LUNDÚNUM, 3. júlí. — Togstreitan milli Norðmanna og Breta
\egna norskrar landhelgi hefur nú þokast inn á nýjar brautir
með því, að Bretar hafa lagt málið fyrir Alþjóðadómstólinn í
Haag.
Styrinn
uni landhelgina
Löngum hefur staðið nokkur
styr milli Breta og Norðmanna
vegna þess, að Bretar vilja ekki
viðurkenna þá landhelgi, sem
Norðmenn halda fram, að þeim
beri. Á hinn bóginn segja Bret-
ar, að Norðmenn hafi fært út
landhelgina að undanförnu. Nú
um sinn hafa þjóðirnar staðið í
samningum um þetta mál. Hef-
ur það og rekið á eftir, að Norð-
menn hafa tekið bi'esk skip fyrir
veiði í landhelgi utan þeirra
takmarka, sem Bretar vilja við-
urkenna, að norska landhelgin
nái. —• Samningaumleitanirnar
hafa ekki borið neinn árangur.
Lagt fyrir
alþjóðadómstólinn
Þoldi Bretinn því ekki ler.gur
mátið, heldur hefur hann nú
skotið málinu fyrir alþjóðadóm-
stólinn í Haag í Hollandi, enda
þótt Norðmenn væri því mót-
fallnir. Virðist ekki fjarstæða
að láta sjer fljúga í hug, að
þeim standi um of í fersku
minni úrskurður dómsins í deilu
Dana og Norðmanna um Græn-
land hjer á árunum, en Norð-
menn áttu bágt með að sætta sig
við hann.
Tilkynnt hefur verið, að samn
ingaumleitanir milli þjóðanna
haldi áfram, enda þótt málrnu
hafi verið skotið til dómstóls-
ins. 1— Reuter.
Taylor verður her-
námssljóri í Berlín
BERLÍN, 6. ágúst. Það var
skýrt frá því í dag', að Frank
Howley, hernámsstjóri Banda-
ríkjanna í Berlín myndi innan
skamms láta af störfum. Við
starfinu mun taka Maxwell
Davenport Taylor hershöfðingi.
Taylor er varaforseti banda-
ríska herráðsins í Þýskalandi.
Hann verður persónulegúr ráðu
nautur McClay hernámsstjóra
í Þýskalandi. — Reuter.
Tyrkir sifja fund
Evrépuráésins
ISTANBUL, 6. ágúst. — Nech-
meddin Sadak utanríkisráð-
herra Tyrklands lagði í dag af
stað til Strassburg, þar sem
hann ætlar að sitja fundi Ev-
rópúráðsins, sem kemur saman
á mánudaginn kemur. Auk þess
fer tyrknesk þingmannanefnd
til Strassburg. — Reuter.
Orískir uppreisfar-
menn fá vopn fré
Ungverjalandi
AÞENA, 6. ágúst. — Tals-
maður gríska utanríkisráðu-
neytisins, sagði í dag, að gríska
stjórnin hefði fengið fregnir af
því, að skipulögð hefði verið
loftbrú milli Ungverjaiands og
Albaníu.
Hlutverk loftbrúar þessarar,
er að flytja vopn handa al-
banska forsætisráðherranum,
Hodza, og grískum uppreistar-
mönnum.
í fregninni segir, að ung-
verskur hershöfðingi, Salay, að
nafni, hafi farið til Tirana, höf-
uðborgar Albaníu, til að leggj«
á ráðin um fyrirkomulag loft-
flutninga þessara.
—Reuter.
Undralæknirinn, sem
keðjureykir
DÚSSELDORF, 6. ágúst — Að
undanförnu hafa dr. Rudolf
Amelunxen, öryggismálaráðh. í
N.-Rinarvestfalen, borist brjef,
þar sem honum er hótað því,
að honum skuli kálað — úr
fjarlægð.
Nýlega fordæmdi Amelunx-
en nefnilega hinn svo nefnda
,,undralækni“ Bruno Gröning,
og bannað honum frekari að-
gerðir. Hafa því fylgjendui'
Grönings ógnað öryggismála-
ráðherranum með því. að hon-
um skuli styttur aldur, enda
verði þá beitt sömu firðáhrif-
um og Göning hefur notað við
lækningar sinar.
Göning er sagður hafa lækn-
að hundruð manna með krafta-
verkum. Er hann þó sagður
najsta ólíkur þeirri hugmynd',
sem menn gera sjer venjulega
um sjóla af hans tegund Hann
tekur ekki út úr sjer vindling-
inn allan liðlangan daginn,
reykir enda þetta 60 stykki á
dag, drekkur fyrnasterkt kaffi,
já, og það mikið af því, og jetur
sætindi hvenær, sem hann
kemst höndum undir.
BandaríUjamenn munu ekki
búast um á Cýprus.
NICCOSlA, Cyprus. — I blöðurr.
hjer hafði verið gefið í s,,yn. að
Bandaríkin ætluðu að senda 2000
flugvjelar og mikið af tækrufróðum
mönnum til eyjarinnar. Fregnum
þessum hefir nú verið vísað á bug
opinberlega.
SOOmanns láta lífið
en 3000 slasast illa
%
Einkaskeyti til Mbl. frá Retíter.
QUITO, 6. ágúst. — Óskaplegir jarðskjálftar urðu í gær í
borginni Ambato um 150 km. fyrir sunnan höfuðborg Equador*
Quito. Ambato er að mestu í rústum og einnig miklar skemmdir
í nálægum þorpum. Mikið öngþveiti ríkir í borginni eins og
eðlilegt er. Er nú verið að senda hjálparsveitir, lækna, hjúkr-
unarkonur og ýmis tæki til borgarinnar. Forseti Equador Galo
Plaza Lasso og ráðherrar komu til borgfarinnar í dag tií að sjá,
með eigin augum, hvernig ástandið er.
-------------------«>
Rlkissljóri Pakistan
Sir Khawaja Nazimuddin heit-
ir ríkisstjóri Pakistan. Nýlega
náðist samkoniulag milli Pak-
istan og Indlands um vopna-
hlje í Kasmír.
Fjöldi Þjóðverja
deyr í fangabúðum
Rússa
BERLÍN, 6. ágúst: — Þýska
frjettastofan í Vestur Berlín
skýrði frá því í dag, að á fyrra
árshemlingi þessa árs hefðu
530 Þjóðverjar, í nauðungar-
vinnu við uraníumnámur
Rússa í Erzfjöllum, dáið. Ný-
lega fórust 24 verkamenn í
slysi. Þetta telur frjettastofan
koma af því að engar hinar
sjálfsögðustu varúðarráðstafan
ir hafa verið geiðar í námun-
um. — Reuter.
Ekkert banatilræði
Talsmaðurinn sagði, að Fran-
co lifði nú friðsömu lífi á
sumardvalarstað sínum í San
Sebastian á norðurströnd Spán-
ar. Hann fór nýlega í skemrati-
ferð með skipi að Ferrada höfða
en talsmaðurinn sagði, að ekk-
ert slys hefði orðið í þeirri ferð
nje nokkurntíma í dvöl einræð-
isherrans á Norður-Spáni.
Skersl í odda með kom-
múnislum og lögreglu
BOMBAY, 6. ágúst: — Lög-
reglan í Assam tilkynti í dag,
að hún hefði handtekið 500
kommúnista í sambandi við á-
rekstur þeirra við lögregluna
á járnbrautarmótunum við Di-
brugarh hinn 17. júlí s. 1.
í gær gerði lögreglan húsleit
í 300 húsa, og tók til handar-
gagns mikið af kommúnistarit
um á þessum slóðum. Reuter.
Leila fyrir sjer um lán lil
Berlínar
BERLÍN, 6. ágúst. — Frank
Howley hershöfðingi, hernáms-
stjóri Bandaríkjanna í Berlín
staðfesti í dag orðróm um að
verið væri að ganga frá 455
milljón marka láni til Vestur-
Berlínar. Fjenu verður varið til
endurreisnar iðngreinum borg-
arinnara. — Reuter.
Franco var nýlega á skemmti
snekkju sinni við túnfiskaveið-
ar skammt undan San Sebast-
ian. Þegar hann kom í land um
kvöldið var eins og venjulega
stór hópur manna við höfnina,
sem fagnaði honum ákaflega
og ekki minnkuðu fagnaðarlæt-
in, þegar einræðisherrann sýndi
að hann hefði veitt sex tún-
fiska, sem allir voru yfir 60 kg.!
Mikið öngþveiti.
Þegar þeir komu var allt V
borginni í öngþveiti. íbúam-
ir voru lostnir ókaflegn skelf-
ingu. Þúsundir manm hlupu
fram og aftur milli rústanna
og vissi ekkert hvað þeir áttu
að gera.
300 tlánir, 3000 slasaðir.
Talið er að minnsta kosti 300
manns í Ambato hafi látið lif-
ið og allmargir í þorpunum í
kring. 80 lík höfðu verið gra f -
in út síðast þegar til fciettist.
3000 manns hafa slasast hættu
lega.
Borgin er í rústum.
Jarðskjálftinn kom seint í
fyrrakvöld og Ambato liggur
bókstaflega öll í rústum. þar á
meðal kirkjan umbreytt i rústa
hrúgu. Borgin er vatns- og raf-
magnslaus. Hafa nú verið
sendir flokkar hermanna til að
halda uppi röð og reglu þarna,
Auk þess eru sendar miklar
sveitir hjálparfólks og lækna.
Flóð í áin Equador.
Jarðhræringar hafa undan*
farið verið víða i Andesfjöll-
um Suður Ameríku, en þessar
hafa verið hinar mestu. Flóð
hefur hlaupið i ár Equador við
þetta og ógna flóðin borgum,
sem standa fjær f jallgarðinum.
Járnbraularslys
í Lundúnum
LONDON, 6. ágúst. — í dag
meiddust 33 menn á Euston-
brautarstöðinni í Lundúnum.
Tóm lest, sem renndi inn á
stöðina til að taka farþega frá
Liverpool rakst á aðra lest,
fulla af fólki, sem var að leggja
af stað til Manchester. Enginn
meiddist hættulega.
13,300 smálesta farþegaskip,
sem fara skyldi frá Manchester,
síðdegis í dag til New York,
hefur frestað brottför sinni. Var
skýrt frá því, að skipið mundi
bíða farþeganna, sem í lestinni
voru og ætluðu vestur um haf.
—Reuter.
Franco skemmtir sjer
við túniiskveiðar
Ekkerl banalilræði nýlega við einræðisherrann
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
MADRID, 6. ágúst. — Talsmaður spanska utanríkisráðuneytis-
ins kallaði erlenda frjettamenn í dag á fund sinn og skýrði
þeim frá, að lausafregnix um að Franco einræðisherra hefði verið
sýnt banatilræði væru alrangar. Heldur ekki væru rjettar
sögusagnir um að hana hefði slasast nýlega á sjóferð.