Morgunblaðið - 28.09.1949, Qupperneq 16
VEÐURÚTLIT — FAXAFLÓI:
S-Vr cða V-kaldi, skúrir
FRÁ norrænu garðyrkjusýn-
ingunni. — Sjá grein á bls. 5.
íosem
221. t!)l. — Miðvikudagur 28. september 1949*
Sjálfstæðisfjelögin hefja
kosningasókn með
iegum fundi í gærkve
700 manns á fundinum
FUNDIJR Sjálfstæðisfjelaganna í gærkvöldi í Sjálfstæðis-
búsinu við Austurvöll var fjölmennur og hinn ánægjulegasti
«em vænta mátti. Húsið var troðfullt fram að dyrum. Þar
voru um 700 manns.
Ragnar Lárusson var fundarstjóri. Hann lýsti því yfir í
Jundarbyrjun, að með þessum fundi væri hafin kosninga-
Larátta Sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík. Ræðumenn voru
aðeins þrír á þessum fundi, en hann stóð yfir til kl. 11.
Stefnuskráin. '
Fyrstur talaði Ólafur Thors
formaður Sjálfstæðisflokksins
og talaði í rúma klst., en fund-
armenn hlýddu á hina fjörlegu
og þróttmiklu ræðu' hans með
óskiptri athygli.
Hann lýsti afskiptum and-
stöðuflokkanna þriggja til þjóð-
rnálanna almennt og hvernig
það leiddi til fullkomins ófarn-
aðar, ef eigi yrði í verulegum
atriðum breytt til um stefnu.
Hann undirstrikaði þau meg-
inatriði í stefnuskrá Sjálfstæð-
isflokksins, er koma fram í
ávarpi flokksins til þjóðarinn-
ar, sem birtast á öðrum stað í
blaðinu í dag. Að atvinnurekst-
urinn geti komist af styrkja-
laus, höftin verði afnumin og
fólkið geti fengið aukið at-
hafnafrelsi. m
Auður lands vors er mikill
sagði hann, en til þess að hag-
nýta sjer hann, þarf framtak og
manndóm, en nú er högum
þannig háttað í landinu, að þeir
sem hafa vilja og dug til þess
að hagnýta sjer náttúrugæði
landsins, þurfa fyrst að leita
leyfa til allskonar nefnda og
ráða.
Slík stefna horfir til niður-
dreps. Við erum á rangri leið.
Við óskum eftir fylgi við
stefnu okkar svo við með sterk
um átökum getum bjargað
þjóðinni út úr ógöngunum.
Fundarmenn tóku undir mál
Ólafs Thors með dynjandi lófa
taki, enda auðheyrt og fundið
á allri framkomu þeirra að
þessi 700 karla og kvenna, scm
þarna voru saman komin, eru
einhuga í því, að vinna af alúð
og dugnaði að sigri Sjálfstæðis
flokksins í höfuðstaðnum.
Kristín Sigurðardóttir.
Næst tók til máls frú Kristín
L. Sigurðardóttir.
í upphafi máls síns kvaðst
hún hafa orðið þess- vör, að
ýmsir flokksmenn hefðu lítinn
kunnleik á störfum hennar í
fjelagsmálum og stjórnmála-
lífi bæjarins.
Hún kvaðst að vísu fyrst og
fremst vera húsmóðir á alþýðu-
heimili, en hefði þó á síðari ár
um haft tækifæri til að starfa
í ýmsum fjelögum og nefndum
er hún gerði grein fyrir.
Síðan lýst bún því m.a. hvers
vegna húsmæður bæjarins ósk
uðu eftir þvi, að^ fá fulltrúa á
þing. Það væri ekki vegna þess
að þær byggjust við að fá mikil
áhrif í stjórnmálum landsins.
En hlutverk þess fulltrúa, sem
húsmæðurnar ættu á þingi væri
m.a. að minna á ýms þau á-
huga- og nauðsynjamál heim-
ilanna, sem oft vilja gleymast
þegar karlmenn einir ráða ráð
um sínum.
Síðan lýsti hún afstöðu sinni
til áhugamála kvenna, hvatti
flokksmenn, konur og karla,
til að standa einhuga og sam-
stillt í kosningabaráttunni, og
kvaðst vona það fastlega, fyrir
hönd kvenna, að Sjálfstæðis-
flokkurinn ynni glæsilegan sig
ur við þessar kosningar, því
að sigur Sjálfstæðisflokksins
væri sigur frelsis og mann-
rjettinda.
Fundarmönnum geðjabist
einkar vel að ræðu frú Krist-
ínar, er flutti mál sitt með al-
vöru og festu og er ekki að efa,
að þær konur, sem þarna voru
og hafa hingað til haft af henni
lítil kynni hafa sannfærst um,
að kvenþjóðin fái góðan fulltrúa
á þingi þar sem hún er.
Úr ófarnaði haftanna.
Næstur tó ktil máls Bjarni
Benediktsson utanríkismálaráð-
herra. Hann minntist þess, að
liðin væru nál. 16 ár síðan Sjálf
stæðisflokkurinn kaus hann í
bæjarstjórn. Á þessum 16 ár-
um hafi flokkurinn sýnt hon-
um mikið traust og trúnað, en
andstæðingarnir skammað hann
meir en nokkurn annan. Hann
þakkaði traustið og sagði, að
skammirnar hefðu orðið sjer til
uppörvunar, enda hefði hann
hlotið þær fyrir það eitt að
fylgja fram stefnu Sjálfstæð-
isflokksins.
Hann benti á hve nauðsynlegt
það er Sjálfstæðisflokknum,
ekki síst nú, þar sem mikil verk
efni væru fyrir höndum að hver
einstakur flokksmaður ynni af
alhug fyrir flokk sinn og ljeti
ekki neinn misskilning eða per-
sónukrit hafa áhrif á sig. Þó
ýmislegt mætti að núverandi
ríkisstjórn finna. Eitt hefði hún
þó sannað, að sú kenning er
röng, er kommúnistar hjeldu
fram, að ekki væri hægt að
stjórna landinu án þeirra, en
kommúnistar hefðu þvert á móti
sannað, að það væri ekki hægt
að stjórna landinu með þeim.
Síðan lýsti hann haftafargan-
inu og verðbólgunni, sem sam-
verkandi orsökum að vaxandi
erfiðleikum. Hver ófarnaður af
því stafar, þegar tilkostnaður
vex umfram burðarmagn at-
vinnuveganna uppbætur greidd
ar til þess að halda framleiðsl-
unni gangandi, en fje tekið með
sköttum, er síþyngja efnahag
og atvinnu landsmanna. Margt
fleira sagði ráðherrann varð-
ndi fjármál og atvinnulíf þjóð-
arinnar, sem eru daglegir við-
burðir en urðu þó fundarmönn-
um ljósari í eðli sínu eftir skýr-
ingar ræðumanns. Hann bar að
endingu fram þá hvöt til flokks
manna yngri og eldri, kvenna
og karla að nota tímann vel i
haust til þess að gera íslensku
þjóðinni það skiljanlegt, að
frelsi hennar og velferð er kom
in undir úrslitum kosninganna
í haust.
Fundarmenn Ijetu í ljósi
ánægju sína yfir ræðu utan-
ríkismálaráðherrans með dynj-
andi lófaklappi.
Fyrirlesfur um
byggingarlisf
í DAG lýkur málverkasýningu
Harðar Ágústssonar í sýningar
skála listamanna. Hafa milli
1200 og 1300 gestir komið á
sýninguna.
I fyrrakvöld hjelt listmálar-
inn fyrirlestur og var hann vel
sóttur. Fyrirlesturinn fjallaði
um nútíma málaralist.
I kvöld, er sýningunni lýk-
ur, ætlar Hörður Ágústsson að
flytja síðairi fyrirlestur sinn.
Hann fjallar um byggingarlist.
Mun fyrirlesarinn miða við
íslenska staðhætti í máli sínu.
Í¥@ir pílfar sem valdir voru
fVEIR piltar, sem valdir voru að stórhættulegum dynamit-
prengingum hjer i bænum, hafa verið dæmdir í aukarjetti
'eykjavíkur. — Hlaut annar piltanna þriggja mánaða varð-
hald, en hinn tveggja mánaða.
Samband náttúru-
lækningafjelap
sfofnað
í SUMAR hefur stjórn Náttúru-
lækningafjelags íslands, unnið
að stofnun sambands náttúru-
lækningafjelaga á landinu, en
þau eru nú sex að tölu og á
næstunni munu fleiri bætast
við. |
Á framhaldsfundi Náttúru-
lækningafjelagsins, er haldinn
verður í kvöld, verður þetta
mál tekið til umræðu. Fjelög-
unum úti á landi verður síðar
gefinn kostur á að ræða málið
og senda fulltrúa á væntanlegt
stofnþing.
Dómur í máli piltanna
tveggja og þeim er voru í vit-
„r«i m„« öðrum Þeirra, var Afbeitdbia SkÖmfflf-
kveðinn upp í gærmorgun. I »
Sprengingin við
Alþingishúsið
Fólk rekur vafalaust minni
til þess enn, að síðastliðið gaml
árskvöld, varð ægileg spreng-
ing við Alþingishúsið. Umferð-
arskilti, á horninu við Templ-
arasund og Kirkjustræti, tætt-^
ist í sundur við sprenginguna, j
en sprengiefninu hafði verið
komið fyrir í rörpípu þeirri,
sem merkið sjálft er skrúfað á. I
Kona er var á gangi við Al-
þingishúsið, rjett um leið og
sprengingin varð, fjekk járn-
flís úr umferðarskiltinu í bak- I
ið og slasaðist. — Þá varð bill,
er ekið var fram hjá umferðar
merkinu um leið og það sprakk, ,
fyrir nokkrum skemmdum.
Dómurinn yfir piltinum
Pilturinn, sem valdur var að
þessari sprengingu, er 17 ára j
gamall. — Hann hafði sett 2
dynþmit-tubur í rörið og 1
kveikti svo í. Fyrir þennan I
verknað, var hann dæmdur í
þriggja mánaða varðhald, skil-;
orðsbundið. — Auk þess var'
honum gert að greiða í skaða- ^
bætur til konunnar er slasað-
ist og bíleigandans, kr. 4,955 (
alls. Loks ber honum að greiða
allan málskostnað fyrir auka-
rjetti.
Tveir piltar er voru í vitorði
með honum við sprenginguna, j
hlutu áminningu í aukarjetti.
Tvær sprengingar
við Austurvöll ,
Að kvöldi 30. mars síðastl.,
daginn, sem kommúnistar rjeð
ust með grjótkasti á Alþingis-
húsið, urðu tvær sprengingar
við Austurvöll, hver annari
meiri. Síðari sprengingin varð
á svölum Sjálfstæðishússins,
en þangað hafði sprengjunni
verið kastað. — Við þá gífur-
legu sprengingu, brotnuðu
nokkrar rúður í Sjálfstæðis-
húsinu- Við rannsókn kom í
ljós, að í báðum tilfellum var
um dynamitsprengjur að ræða.
Að sprengingunum báðum var
16 ára piltur valdur.
í aukarjetti var þessi ungl-
ingur dæmdur í tveggja mán-
aða varðhald, skilorðbundið,
og honum gert að greiða kostn-
að sakarinnar fyrir aukarjetti.
Slæmt að lenda í kasti
við vespur.
LONDON — Nýlega varð maður
■einn í Yorkshire fyrir því slysi
að vespur rjeðust á hann, stungu
þær hann svo illa, að hann missti
meðvitund. Fannst hann skömmu
seinna og var fluttur á sjúkra-
hús.
unarseðla befst í dan
ÚTHLUTUN skömmtunarseðra
fyrir næsta skömmtunartíma-
bil hefst í dag, miðvikudag, í
Góðtemplarahúsinu, uppi og
heldur áfram á mcrgun, fimmtu
daginn 29. og föstudaginn 30.
þ. m., kl. 10 f. h. til 5 síðd. dag-
lega. — Mjólkurskömmtunar-
seðlum verður úthlutað um
leið.
Skömmtunarseðlarnir verða
aðeins afhentir gegn stofnum af
núgildandi seðlum, greinilega á-
rituðum.
Athygli skal vakin á bví, að
allir vefnaðarvörureitir frá
þessu ári gilda áfram til ára-
móta, sömuleiðis allir skó og
sokkamiðar, en aukaskammtar
af sykri (skammtar 8—11)
falla úr gildi nú um mánaða-
mótin.
Fólk er áminnt um, að geyma
skammtana 12—17 ef ske kynni
að þeim yrði gefið gildi síðar.
íæplega 100 þús. tn.
m saliaðar
FRJETTARITARI Mbl. á Siglu
firði símaði í fyrrakvöld, að
söltun Norðurlandssíldarinnar
næmi rúmlega 86,000 tunnum.
Þar af hafa verið saltaðar á
Siglufirði rúmlega 50,000 tn.
Fiskifjelagið skýrði blaðinu
frá því í gær, að söltunin við
Faxaflóa næmi nú rösklega
10,000 tunnum. — Mest hefur
verið saltað í Sandgerði.