Morgunblaðið - 28.10.1949, Blaðsíða 5
Föstudágur 28. okt. 1949.
Ólafur ÁrnasQn frá M
Minningarorð
*
NtJ ER 6. ágúst, síðasti Móa-
bræðranna fallinn í valinn, Ól-
afur Árnason, fæddur í Víðnesi
á Kjalarnesi 2 apríl 1889 og var
því rúmlega sextugur að aldri.
Hann verður jarðaður í dag frá
kapellunni við Fossvogskirkju-
garð.
Þegar við sveitungar hans,
jafnaldrar og vinir, lítum til baka
yfir hinn glæsilega og þróttmikla
bræðrahóp í Móum, finst okkur
það næsta ótrúlegt að þeir skulu
allir vera horfnir. En í Móum
er skamt til sjávar, ungu bræð-
urnir voru framsæknir og dug-
iegir, kyntust sjónum strax í
æsku og á þeim tíma, eins og
að vísu á öllum tímum, var það
glæsilegasta fjáraflabrautin að
fara á sjó, á þilskipum, sem þá
var mesta aflavonin, síðan á tog-
arana þegar þeir komu til sög-
unnar. En þótt sjórinn gefi mik-
ið, tekur hann stundum stórum
mikið aftur. Þrír bræðúrnir frá
Móum fórust í einu á sama skip-
inu í mannskaðaveðrinu mikla
7. febrúar 1925. Þeir hjetu
Bjarni, Björn og Sigurður. Tveir
af þeim lærðir skipstiórar. Nokkr
um árum síðar andaðist Erlend-
ur, og svo Jón nú fyrir nokkrum
árum, var hann siómaður og
skipstjóri um eitt skeið.
Foreldrar Ólafs voru Sigríður
Jónsdóttur í báðar ættir úr
Skaftafellssýslu, og Árni Björns
son; hann var dóttursonur Þor-
steins í Úthlíð í Biskupstungum,
en Björn faðir hans var úr Eyja
firði. Árni og Sigríðor bjuggu
allan sinn búskap á Kjalarnesi.
Víðinesi og Móum. Þau voru
frábær myndar- og dugnaðar-
hjón; þau eignuðust 11 börn, öll
fædd í Víðinesi. Tíu komust til
fullorðins ára. En auk bræðranna
6, sem getið er um hjer að fram-
an, er ein af 4 systrunum dáin.
Sigríður, húsfrú á Tindstöðum
hjer í sveit, hún andaðist á besta
aldri frá stórum barnahóp. Hún
var glæsileg kona, eins og þau
systkinin öll. — Eftir eru nú að-
eins 3 systurnar, Guðrún, húsfrú
ó Ási við Hafnarfjörð, Oddný
Ijósmóðir og húsfrú á Esjubergi
og Sigrún ekkja í Reyltjavík.
Veturinn 1909 drukknaði Árni
Björnsson í Móum ásamt ná-
granna sínum Guðm.' Kolbeins-
syni hreppstjóra á Eájubergi og
fl., mátti heita upp við land-
steina í Móum, voru þeir á heim
leið frá Reykjavík
stór sár fyrir þessi heimili og
mikill skaði fyrir sveitina. —
Sigríður bjó i Móum eftir lát
snanns síns, með börnum sínum,
sem ekki voru þá gift og farin,
til vorsins 1925, en þá hætti hún
búskap og flutti til Reykiavík-
ur með Ólafi syni sínum. Hjeldu
þau heimili saman þar til Sig-
ríður dó 1936.
Eftir að systkinin í Móum kom
ust upp, var glæsileg afkoma á
heimilinu, eftir því sem þá gerð-
ist, var þar mikið unnið og afl-
nð. Sýndi það sig í ýmsum um-
bótum og framförum, m. a.
byggt eitt hið best gerða íbúðar
hús úr steinsteypu, sem þá þekkt
ist í sveit, ásamt jarðabótum og
o. fl. Ölafur átti ekki hvað minst
an þáttinn í þessum framförum
og öllu starfi þar í Móum, því að
a þeim árum var hann einna
mest heima af þeim brseðrum,
hann var vinnumaður mikill, trú-
virkur og heimakær, og svo góð-
ur heyskaparmaður, að orð fór
af. Þá áttu bændur meira undir
styrkum höndum, vilja og áhuga,
ekki hvað síst um heyannatím-
ann, þegar alt var unnið með |
handverkfærum, heldpr en nú, |
m O RGU NBL A fíIÐ
í úthverfi bæjarins til leigu nú þegar. — Tilboð merkt ;
„363“, sendist afgr. Mbl. fyrir 1. nóv. *
þegar setjast má á vjelarnar og
vinna þyngstu verkin með marg
földum afköstum.
Eftir að Ólafur fór frá Móum,
stundaði hann að mestu leyti sjó
mennsku á togurum, og var þar
sem annarsstaðar eftirsóttur
vegna dugnaðar síns, trúmensku
og kunnáttu í öllum verkum.
A síðustu árum æfinnar hætti
Ólafur siómensku og var þá við
ýms störf. Nú síðast var hann
hjá systur sinni og mági á Esju
bergi, þar sá jeg hann síðast 60
ára afmælisdasinn sinn og syst
ur hans Oddnýjar, þar sem hann
var að gleðja vini sína, frændur
og gamla sveitunga.
Oi"fur var greindur maður og
fróður um margt, skemtilegur í
vinahóp, þó hæggerður í um-
gengni, talfár og fór lítið fyrir
honum. Las mikið og hafði mjög
gott minni, svo mann furðaði,
hvað hann var víða heima um
ýmsan fróðleik, um ættir manna
og sögu. Naut hann þó engrar
skólamenntunar, sem kallað er,
umfram það, sem hann lærði af
lífinu og reynslunni. Ólafur var
einn af þeim sem gaf meira, en
hann sjálfur naut af gæðum lífs-
ins; hann gaf landi og bjóð orku
I sína, vilja og trúmensku með
| þvi að vinna við þau lífrænu
störf sem þjóðinni lifir á, og er
þetta síst ofsagt um okkar sjó-
mannastjett, en hana einkennir
oftast æðruleysi, drengskapur og
festa. — Með það í huga kveðj-
um við Ölaf í dag.
Jónas Magnússon
Stúlka, sem unnið hefir við-
versiunar- og skrifstofustörf,
óskar eftir góðri
afvlnnu
um áramót. Tilboð sendist á
afgreiðslu Morgunblaðsins fyr-
ir 10. nóv., merkt „Áhugasöm
— 364“.
L E1K
fyrir börn á aldrinum 4—6 ára
tekur bráðlega til starfa í Steinahlíð við Suðurlandsbraut
á vegum Uppeldisskóla Sumargjafar. Umsóknum veitt
móttaka í síma 3280 alla virka daga kl. 1—3 e. h.
Valborg Sigurðardóttir, skólastjóri.
Ida Ingólfsdótíir, forstöðukona.
1.
I '
* - Kosningarnar
Frh. af bls.
C-listi 331 atkvæði.
D-listi 698 atkvæði.
Auðir seðlar 33 og ógildir 22
Þetta voru , 27-12 kusu af 3133 á kjörskrá
Kosningu hlutu: Bernharð
Stefánson af B-lista og Stefán
Stefánsson af D-lista.
Úrslit kosninganna 1946:
A-listi 213, B-listi 1295, C
listi 366 og D-listi 810. — Þá
voru þingmenn kjördæmisins
Bernharð Stefánsson og Garð
ar Þorsteinsson.
NORÐURMULASYSLA
A-listi 28 atkvæði.
B-Iisti 813 atkvæði.
C-listi 76 atkvæði.
D-listi 367 atkvæði.
Kjörnir voru Páll Zóphónías
son og Ilalldór Ásgrímsson,
báðir af B-listanum.
Úrslit kosninganna 1946: •—
A-listi 18. B-listi 816, Clisti 93
og D-listi 342. Þingmenn voru
þeir sömu og nú.
Eggert Claessen
Gústaf A. Sveinsson |
hæstarjettarlögmenn,
\ Oddfellowhúsið. Sími 1171. \
Allskonar lögfræðistörf. =
F. I. II.
F. I. H.
firðingabúð í kvöld klukkan 9,
L IILJÓMSVEIT BJÖRNS R. EINARSSONAR leikur. I-IAUKUR
MOUTHENS syngur ný lög mcð hljómsveitinni.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri hússins frá kl. 8.
Menn og minjar, 6. heíli
Elnar Andrjesson í Bólu
Einar Andrjesson var fæddur að Bakka í Viðvíkursveit 28. október 1814. Snemma bar
á óvenjulegum gáfum hjá honum. Hann var skygn, smiður mikill á alla málma svo og
trje, listaskrifari og skáld gott.
í kveri þessu eru kvæði eftir Einar og margar sagnir um hann. Inngangsnt Ncntar
Halldóra dóttir hans, sem nú ef búsett í Reykjavík, háödruð kona. Auk þess eru for-
málsorð eftir Finn Sigmundsson landsbóka vörð, sem sá um útgafuna.
Kaupið MENN OG MINJAR. Safnið verður eigulegra með hverju hefti.
H.t. Leiitur
Sími 7554
Muntð eftir hinum hagkvænw ;
afborgunarkjöruEH á
voiwn. |
GEGN 100 króna mánaðarofborgunum getið :
þjer eignast allar bækuv íslendingasagnaút- .
gáfunnar. — Hringið eða komið á skrifstofu •
vora og leitið nánari upplýsinga. ;
ÍSLENDINGASAGNAÚTGÁFAN :
Túngötu 7 — Pósthólf 73 — Sími 7508. — Rvík.