Morgunblaðið - 28.10.1949, Page 12
VEÐURUTLIT — FAXAFLOI:
SUÐ-AUSTAN stynningskaidl,
eða allhvasst. Rigning öðru
hverju.
BYGGING bæjarsjúkrahúss
kallandi__nauðsynjamál.___Sjú
grein á blaðsíðu 7.
246. tbl. — Föstudagur 28. október 1949.
Faimenn rn fiskimenn koma Frú Begir® ssmliherra heiðursdoktor [Aðalfbndur Fisk
mmmmmm&mm* , * wmmmmrnamtmm » * ■ ■
saman á þlng hjer í hæ í dag
Fullfrúðr á 2. þús. sjómanna ræða hagsmunamál sír
ÞING landssamtaka farmanna og fiskimanna, sem telur innar:
vjebanda sinna hátt á annað þús. meðlima, kemur saman til
xundar hjer í ReyRjavík í dag: — Þetta er 13. þingið, serr
haldið hefur vcrið. Liggja fyrir því allmörg mál er af eðiilegum
ástæðum varða allflest hagsmuni sjómannastjettarinnar.
Ný stjórn. <*>-
Það liggur og fyrir þessu 13.
þingi Farmanna- og fiskimanna
sambandsins, að kjósa nýjar.
forseta og stjórn þess. Ásgeir
Sigurðsson skipstjóri á strand-
ferðaskipinu Hekla ,er nú for-
seti þess, en kjörtímabili hans
og stjórnarinnar lýkur nú.
Þingið mun verða haldið í
Tjarnarcafé, en það sækja milli
30 og 40 fulltrúar 16 sambands-
fjelaga innan vjebanda Far-
manna- og fiskimannasam-
bands íslands.
Helstu
málefni þingsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Farmanna- og fiski-
mannasambandsins þá eru eft-
irtalin mál er lögð verða fyrir
þingið, talin þau helstu og
merkustu: Öryggismál sjó-
manna. Hafnarmál Reykjavík-
ur. Skattamálin. Dýrtíðar- og
atvinnumálin. ÁstandiS í versl-
unarmálunum. — Síldveiðarn-
ar og síldariðnaður. — Þá kom^
landhelgismálin, fiskveiðar við
Grænland, staðsetning Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna og
skipulagið kringúm Sjómanna-
skólann og loks mun þingið
taka til umræðu yfirstjórn vita
og hafnarmálanna.
Eiitn fjallvepr
er fepptur
SAMKVÆMT þeim fregnum
cr vegamálaskrifstofunni höfðu
borist í gær, þá mun enn sem
komið er, aðeins einn fjallveg-
ur vera orðinn ófær yfirferðar
vegna snjóþyngsla.
Þessi vegur er Austurlands-
vegur og það eru mikil snjóa-
lög á Möðrudalsöræfum, sem
lokað hafa þessari leið. — Þó
einkennilegt megi virðast, þá
er Siglufjarðarskarð víst enn
fært bílum.
tífich von Mansfein
„man ekki"
HAMBORG, 27. okt. — Erich
von Manstein marskálkur
skýrði í dag frá því fyrir breska
herrjettinum, sem nú f jallar um
stríðsglæpamál hans, að hann
hefði ekkert gert til þess að
koma af stað ófriði. Hann tók
fram, að hann gæti ekki mun-
að, hvort hann hefði útvegað
150 pólska einkennisbúninga
handa þýskum stormsveitar-
mönnum, sem látnir voru ráðast
á útvarpsstöðina í Gleiwitz —
(Árásin á útvarpsstöðina, semi
kennd var Pólverjum, var ein
af afsökunum Hitlers fyrir a?
í.tgja Póllandi stríð á hendur).
DJÚPAVÍK, fimmtudag: Það
hörmuléga slys vildi til hjer í
gærdag, að lítill drengur
drukknaði hjer við bryggju.
Drengurinn hjet Guðbjartur
og var aðeins þriggja ára. —
Guðbjartur litli var einn að
leik er hann sffst síðast. — Það
Var faðir drengsins, er kom
auga á hann, þar sem hann
flaut skammt frá bryggjunni.
Drengnum var þegar bjarg-
að og í fimm klst. látlaust voru
gerðar á honum lífgunartil-
raunir, en þær báru ekki ár-
angur.
Guðbjartur var sonur hjón-
anna Guðrúnar Guðbjarnad.ótt
ur og Jóhanns Guðbjartssonar,
verkstjóra hjá h.f. Djúpavík.
Reglulegar flugferð-
ir
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag
lenti Douglas flugvjel í fyrsta
skipti á hinum nýja flugvelli
við Sauðárkrók. Var þetta flug
vjel frá Flugfjelagi íslands, en
áður höfðu smærri flugvjelar
lent á vellinum. Ein flugbraut
hefur nú verið lögð þarna á
melum við þorpið, en ráðgert
er að koma annari upp eins
fljótt og auðið er og lengja
sömuleiðis þá braut, sem nú hef
ur verið tekin í notkun.
Flugfjelag íslands mun á
morgun hefja reglubundnar
flugferðir til Sauðárkróks, og
verður flogið þangað á mið-
vikudögum og laugardögum.
Douglas flugvjelar verða not-
aðar til þessara ferða, og
fljúga Jþær um Blönduós til
Sauðárkróks. Umboðsmaðyr F.
í. á Sauðárkróki verður Val-
garð Blöndal, kaupmaður.
Ferðir þessar verða mikil
samgöngubót fyrir íbúa Sauð-
árkróks og nærliggjandi sveita,
einkum þó á vetrum, þegar
snjóar tálma samgöngur á
landi og erfiða mjög alla að-
flutninga.
Franco kominn heim
MADRID, 27. okt. — Franco
einræðishorra er nú kominn
heim úr fimm daga heimsókn
sinni til Portúgal.
Þetta er í fyrsta skipti frá því
spönsku borgarastyrjöldinni lauk
fyrir 10 árum, sem einræðisherr
ann fer til útlgnda. — Reuter.
I
FRÚ RODIL BEGTRUP, sendiherra Dana á íslandi, var nýlega
sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Smith CoIIege í Massachusetts j
fylki í Bandaríkjunum ásamt frú Elanor Roosevelt og nokkrum !
öðrum konum, sem getið hafa sjer orð fyrir mannúðarstörf. Á j
myndinni sjást þær frú Roosevelt og frú Begtrup við athöínina
í skólanum.
iiosningalalningin lagði
of mikið á hitaveituna
AÐFARANÓTT þriðjudagsins notuðu bæjarbúar það mikið hita-
veituvatn, að vatnsbirgðirnar í geymunum á Eskihlíð þraut
rnjög. Þessa nótt fór heitavatnsnotkunin upp í á þriðja hundrað
lítra á sekúndu og vjð það bættist að næsta morgun var komið
hörkufrost. í gær hafði ekki tekist að safna fyrir á ný eðlilegum
vatnsbirgðum í geymunum. Var ekki nema 5 metra vatnsborð
í þeim, en þarf að vera 7.20 svo vel sjc.
Minna vatn frá Reykjum.
Ekki hefur það heldur bætt
úr erfiðleikum hitaveitunnar
undanfarna daga, að minna
vatn hefur fengist frá Reykjum
nú en áður. Mun það stafa af
auknu vatnsmagni í Re.vkja-
hlíð. Hægt er sem kunnugt er,
að auka vatnsmagnið með loft-
dælingu, en ekki er gripið til
þess ráðs, nema nauðsynlegt sje
vegna þess að vatpið kólnar við
dælinguna. Eitthvað hefur vara
stöðin við Elliðaárnar verið not-
uð til að snerpa á vatninu. en
það er mjög dýrt og heldur ekki
notað, nema í neyð.
Fyrsta kuldakastið
erfiðast.
Annars er það reynsla und-
anfarinna ára, að fyrsta kulda-
kastið á haustin er ávalt hita-
veitunni erfiðast. Þá verður
notkunin tiitölulega mest. Enn
einu sinni er fólk minnt á, að
láta ekki renna heitt vatn að
nauðsynjalausu og eins að loka
fyrir á nóttunni.
Vatn tekið af hverfum.
Búast má við, að vatn verði
,nú á næstunni tekið af þeim
j hverfum í bænum, sem aðeins
hafa hitaveitu á sumrin, en þau
eru nokkur, sem kunnugt er.
Mun það mál koma fyrir bæj-
arráð innan skamms.
í sumum hverfum fær fólk
þó væntanlega kranavatn, þótt
ekki verði hægt að láta það fá
vatn á miðstöðvarofnana.
Sundhöllin mun
verða opnuð um
miðjan nóv.
HORFUR eru á, að Sundhöllin
verði opnuð á ný. kringum
miðjan nóvember, en sem
kunnugt er, hefur farið fram
viðgerð á húsinu og það allt
málað.
Aðalviðgerðin fór fram á
þaki hússins, er farið var að
leka svo, að miklar skemmdir
höfðu af því hlotist. í ráði var
að setja koparplötur á þakið,
en fjárfestingarleyfi fyrir plöt
unum fjekkst ekki. Varð því
að fara fram bráðabirgðavið-
gerð, sem ekki mun endast öllu
lengur en fram á vor, en þá
verður nauðsynlegt að setja
kopar á þakið.
Þegar komið er inn í Sund-
höllina nú, er engu líkara en
hún sje alveg nýtt mannvirki.
— Allt nýmálað í hólf og gólf.
Vestmannaeyja
Sföðin losaði sig viS
Hsloa Benedikfsson
og Ó(af Kristjánsson
i
AÐALFUNDUR Fiskvinnslu-
.stöðvar Vestmannaey.ia var
haldinn þar í fyrradag. Tekur
stöðin til því nær 87 % af báta-
flotanum í Eyjum og er verk-
efni hennar að veita fiskinum
móttöku úr bátunum, salta og
frysta og selja til útflutnings,
eftir því sem þörf er á á hverj-
um tíma.
J Þetta er umsvifamesta fyrir-
. tæki Eyjamanna sem ptendur.
og er nær öll útgerðin bátt,-
takandi.
| í stjórn fiskiðjuversins voru
þar til á nýafstöðnum aðal-
fundi: Jóhannes Sigfússon út-
gerðarmaður (formaður), Sig-
hvatur Bjarnason skipstjóri,
Ársæll Sveinsson útgerðarmað-
ur, Helgi Benediktsson lcaup-
maður og Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri.
Samkvæmt lögum fjelagsins,
átti í þetta sinn að draga tvo
stjórnendur út með hlutkesti og
kjósa tvo að nýju, en í fundar-
byrjun var borin upp tillaga um
breytingar á fjelagslögunum,
þannig, að öll fjelagsstjórnin
skyldi kosin að nýju á fundin-
um.
Sú tillaga var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða.
Því næst fór stjórnarkosning
fram fyrir í hönd farandi ár, og
voru þessir kosnir: Jóhannes
Sigfússon formaður, Sighvatur
Bjarnason, Ársæll Sveinsson,
Jónas Jónsson útgerðarmaður
og Guðmundur Vigfússon skip-
stjóri.
Þeir Helgi Benediktsson og
Ólafur Kristjánsson náðu þvi
ekki kosningu í stjórnina aftur.
©C59 •
.MTchiD-