Morgunblaðið - 19.11.1949, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.11.1949, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 19. nóv. 1949 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar' Árni Garðar Kristinsson. 'Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla* Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 71 arura meQ LeibóB., Hinar „sögulegu þúíur“ EINN SÁ eiginleiki, sem þeim mönnum er nauðsynlegastur, er til forystu eru kjörnir, er glöggur skilningur á þörfum samtíðar sinnar. Þeir verða að fylgjast með þróuninni, skynja þær hræringar, sem gerast í andlegu og efnalegu lífi þjóða sinna. Ef að þeir ekki gera það, hafa þeir Ijeleg skilyrði til þess að stjórna málum þeirra af víðsýni og þekkingu á þörfum þeirra. Þeir menn, sem valdir hafa verið til þess að stjórna bæj- armálefnum, verða þannig að þekkja þarfir bæjarfjeiags síns og fylgjast með þróun þess, atvinnulífs þess, menri- ingarmála, umferðamála, skipulagsmála o. s. frv. Skilningur þeirra á þörfum borgaranna á sviði þessara mála er grund- völlur skynsamlegra framkvæmda, umbóta og framfaia Á þessu er vakin athygli hjer að þessu sinni, vegna at- burðar er gerðist á síðasta bæjarstjórnarfundi hjer í Reykja- vík. Þar var rætt um þá miklu skipulagsbót og fegurðar- auka, sem er að hinni nýju Lækjargötu. Bæjarfulltrúar fögnuðu þessari breytingu almennt og töldu hana glæsilegan áfanga í baráttu bæjarins fyrir bættu skipulagi, hættuminni og greiðari umferð og síðast en ekki síst fyrir fegrun deg- legs umhverfis bæjarbúa. Þetta var hin almenna skoðun bæjarstjórnar Reykjavík- ur á þýðingu þessarar myndarlegu framkvæmdar fyrir al- menning í bænum. En frá þenni var ein undantekning. Fuil- trúi eins flokks bæjarstjórnarinnnar, Framsóknarflokksins, hafði allt annað álit á henni. „Jeg skil ekki nauðsyn svo breiðrar götu“, sagði Fram- sóknarfulltrúinn. Og hann hjelt áfram máli sínu: „Breikk- un Lækjargötu er grófleg árás á Menntaskólann“, „þúfurn- ar í túninu eru sögustaðir“, — „bæjarstjórnin hefur sýnt fúlmennsku“ með þessari framkvæmd!! Allt þetta eru óbreytt orð bæjarfulltrúa Framsóknar- flokksins. Hvað segir almenningur í þessum bæ um þessa fram- komu eins bæjarfulltrúa síns? Finnst þeim ekki að þau beri vott skilningi á þörfum þeirra, skilningi á kröfum tímans, skilningi á þeirri miklu breytingu, sem orðið hefur á hög- um Reykjavíkur frá því lækurinn rann opinn um Lækjar- götu? Nei, slík framkoma og málafylgja ber ekki vott skilningi á þörfum samtíðarinnar. Hún ber vott römmu afturhaldi og íhaldi, eins og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri benti á í ræðu sinni. Með breikkun Lækjargötu er ekki verið að þröngva kosti Menntaskólans. Framtíðarmöguleikar hans byggjast á allt öðru en mjórri og ljelegri Lækjargötu. Hvarf hinna „sögulegu þúfna“ skerðir í engu minjagildi hins gamla og merka skólahúss. En þessi ummæli sýna, hversu Framsóknarflokkurinn og fulltrúi hans er gjörsam- lega laus úr tengslum við samtíð sína. Hann skilur hvorki þörf hennar nje framtíðarinnar. Um það getur engum nú blandast hugur. Hvernig má það ske TÍMINN HELDUR áfram í gær að neita samningum Fram- sóknarmanna við kommúnista um forsetakjörið. Ut af því er ástæða til að spyrja: Hvernig stendur á því, að margir Sjálfstæðismenn vissu iim þessa samninga kvöldið áður en kosið var? Getur það verið, að Sjálfstæðismenn fái að vita um samninga Fram- sóknarmanna á undan Framsóknarmönnum sjálfum? Ef nokkur hæfa er í afneitun Tímans á þessum samning- r;m, þá yrði hún að byggjast á því, að forystumenn flokks- ins hafa haldið því leyndu fyrir einhverjum þingmönnum sínum, að þeir væru búnir að semja við kommúnista um íorsetakjörið. En hver trúir því? Hvernig mætti að ske? far: \JíLuerji óLrifa ÚR DAGLEGA LÍFINU Nýungar MÁLTÆKIÐ segir, að ekkert njRt sje til undir sólinni. Ekki munu þeir, sem á einkaleyfis- skrifstofum vinna viðurkenna, sannleiksgildi þessa máltækis, því með stærri þjóðum fá einka leyfisskrifstofurnar daglega nýjar uppfindingar. Kennir að sjálfsögðu margar grasa meðal þeirra nýunga, alt frá tækjum til gullgerðar 'og eilífðarvjel- um í nýjar gerðir öryggisnála. Maðurinn er sífelt í leit að ein- hverju nýju til að gera lifið Ijettara, eða í hagnaðarvon fyrir sjálfan sig. • Aukin þægindi FYRIR skömmu rakst jeg á amerísk blað, þar sem verið er að segja frá ýmsum nýungum, sem fundnar hafa verið upp fyrir skömmu og þótt engin þeirra muni vaida byltingu í daglegu lífi manna, er gaman að heyra, hvers er að vænta á markaðinn á næstunni til auk- inna þæginda. • Spiladósin í pelanum FORELDRAR og barnfóstrur munu t.d. hafa áhuga fyrir mjólkurpelanum nýja, sem ein hver sniðugur náungi fann upp. Hann er úr plastefni og er þannig gerður, að þegar barnið drekkur úr pelanum fer spiladós, sem komið er fyrir í honum, af stað og leikur vöggu ljóð. En þegar barnið hættir að sjúga stöðvast spiladósin. Heppilegt fyrir raddlitlar barnfóstrur, eða laglausar! • Nýtt undralím SAGT er frá uridralími, sem límir alt, brotin leir og gler og málma. Lím þetta er í ræmu, sem brotin eru skeytt saman með. Síðan er borin eldspíta að ræm unni, sem bráðnar við hitann í brotsárin og heldur brotun- um saman fullt eins vel og nýtt væri. Mun slíkt lím þykja hand- hægt að hafa við hendina og bæta mörg brot. • Flísalagning í frístundum FURÐULEGUSTU hlutir eru framleiddir úr hinu tiltölulega nýja plastefni. . Hjer á landi hefur verið sett upp plast-verk smiðja, sem þegar er farin að framleiða margskonar hluti, svo sem borðlampa, baðkör og jafnvel næturgögn, sem hörgull kvað hafa verið á undanfarið. Má sjá nokkur sýnishorn þess- arar nýju íslensku framleiðslu á Reykjavíkursýningunni. Fleiri nýungar eru væntan- legar úr plasti. Þarámeðal eru flísar i baðherbergi, eldhús o. s. frv., sem eru þannig gerðar, að ekki þarf fagmann til að leggja þær, heldur getur t.d. húsmóðurin, eða bóndinn flisa- lagt í frístundum sínum, því lím er á hverri flís. • Háspcnna lífshætta NORÐURLANDABLÖÐIN segja frá því, að á dögunum fórst ungur læknir í Stokk- hólmi af rafstraumi. Læknir þessi, Stíg Thomasson snerti rafleiðslu frá borðlampa, en um leið studdi hann sig við miðstöðvarofn með annari hend inni. Þetta varð hans bani. Hjer á landi hafa orðið nokk ur dauðaslys vegna þess að fólk hefur farið óvarlega með rafmagn. Astæða er til þess að minna enn einu sinni á hættuna, sem getur verið, ef ekki er fylgt fyrirskipuðum varúðarreglum í meðferð'raftækja. • „Innfæddir“ á íslandi VIÐ íslendingar erum næmir fyrir því, sem um okkur er sagt í erlendum blöðum. — Jeg minnist þess að fyrir nokkrum árum birtist grein í íslensku dagblaði, þar sem höfundurinn var fullur vandlætingar útaf því, að við höfðum verið kall- aðir „innfæddir" (natives) í erlendri blaðagrein. Þetta hefur valdið hneyksli bæði fyr og síðar. Nýlega birt- ir enskt blað athugasemd frá íslenskri konu, sem af þjóð- hollustu mótmælir því, að blað ið hafði kallað íslendinga „inn fædda“. — Konan er nefnd Gira Sigríður Laurence til heimilis við Eastbourne-road, Feltham. • Tvennskonar skilningur BRESKA blaðið gerir athuga- semd við þessa athugasemd konunnar og bendir á, að orðið „native“ á ensku megi skilja á tvennskonar hátt og segir eftir farandi sögu því til sönnunar: „Kona nokkur var í heim- sókn í Sandhurst-herskólanum fræga. Þar hitti hún liðsfor- ingjaefni af indverskum ætt- um og spurði hann: „Hvað eru margir „innfædd ir“ nemendur í skólanum núna?“. Indverjinn svaraði: „Það munu vera um 300 inn fæddir nemendur, frú, — en auk þess eru fjórir Indverjar". | MEÐAL ANNARA ORÐA .... ] Ú MMMIIIMMIMMMMMIIMMMimilMMMIMMMIMIMIMMMIMIMIMMIMMMIIMMIIMIMIMMIIIMMMMMMMIIIIMMMIIMMMIIIMIIIlíg I Ungverjalandi slendur slyr um krislindómsfræðslu í skólum Eftir Peter Fursf, frjettaritara Reuters. BÚDAPEST. — Nú, níu mán- uðum eftir að rjettarhöldunum yfir Mindszenty kardinála lauk, þá eru horfur á, að gjósi upp að nýju flokkadrættir með forvígismönnum kaþólsku kirkjunnar og ungversku stjórnarinnar. — Meginástæða þessarar nýju deilna mun vera skoðanágreiningur um trúar- bragðafræðslu skólabarna. Til skamst tíma var trúar- bragðafræðsla skyldugrein í öllum ríkisskólum, 2 stundir á viku. Með hinu nýja skólaári verður fræðsla þessi valfrjáls í samræmi við ákvæði stjórn- arskrárinnar nýju um „fullan aðskilnað ríkis og kirkju“. • • SKRIÐUNNI HLEYPT AF STAÐ NEISTINN, sem kveikti bálið að þessu sinni mun hafa verið hirðisbrjef kaþólska biskupa- ráðsins, en það var lesið upp í öllum kaþólskum kirkjum landsins í september. í brjefi þessu var skorað á alla trúaða að „skoða það skyldu sína“ að láta börn sín sækja kristin- dómsfræðsluna. Mörg önnur brjef fylgdu á eftir. Eitt þess- ara hirðisbrjefa gaf Virag biskup út. í því ógnaði hann kaþólsku fólki með, að því yrði ekki veitt klerkleg þjón- usta nema það veitti kirkjunni einhvern fjárstyrk. Þau rök voru færð, að fjárveiting rík- isins hrykki skamt. • • GAGNRÁÐSTAFANIR RÍKISVALDSINS ÞESSUM brjefum og öðrum ámóta aðgerðum klerkanna svaraði stjórnin með gagnsókn einkum í blöðum og stjórn- málastofnunum ýmsum. Ung- versku blöðin hófu frásagnir af ,,trúarbragðaofsóknum“ sem fullyrt var, að prestar og krist indómsfræðarar beittu börn þeirra fjölskyldna, sem ekki ljetu skrá börn sín til trúar- bragðanáms. Sagt var frá því að í einu hverfi Búdapest hefði presturinn bannað foreldrum, sem svo var ástatt um, og börn um þeirra að hlýða messu. Því var haldið fram, að sams konar atburðir kæmi daglega fyrir, einkum í sveitum lands- ins. • • SAKARGIFTIR STJÓRNARINNAR UPP til hópa var áburður stjórnarinnar á þá leið, að prestar, nunnur og aðrir hefði verið hvattir til að „gera að engu öryggi það, sem stjórnar- skráin veitir um frjálsræði og trúarbragðafrelsi“. Kirkjuvöld in áttu að standa að því að skera upp herör í þessu skyni. B.ent var á það í þessu sam- bandi, að stjórnarskráin trygði ekki aðeins rjettinn til að dýrka en líka rjettinn til að dýrka ekki, færi það alt eftir óskum einstaklingsins hverju sinni. Bent var á það, að það væri brot á stjórnarskránni að brennimerkja börnin „guð- leysingja og afspring djöfuls- ins“, eins og stjórnin fullyrti, að sumir prestar hefði gert blátt áfram af því að foreldrar þeirra eða þau sjálf höfðu neytt rjettar síns eftir stjórnar- skránni. EKKI í FYRSTA SINN í RAUN og sannleika er sund- urþykkjan ekki eins mikil og lítur út fyrir. Kemst Ungverja land ekki í hálfkvisti við Tjekkóslóvakíu að þessu leyti. Ekki er þetta í fyrsta skipti, sem kristindómsfræðslan hef- ur verið tilefni deilna milli ríkis og kirkju. Vorið 1948 varð hún ástæða átaka milli Mind- szenty kardinála og stjórnar- innar. Var það í þann tíð, er styrinn stóð um aðskilnað kirkju og skóla, en til þess tíma höfðu þeir flestir verið undir stjórn ýmissa kirkna. • • MÁLAMIÐLUN ÞÁ í ÞAÐ skipti fjelst stjórnin á málamiðlun, þar sem gert var ráð fyrir 2 stundum vikulega í kristindómsfræðslu jafnvel eftir aðskilnaðinri. Mindszenty hjclt því fram, að þetta væri eklíi riógur timi því að með honum fengist ekki náegilegt andvSegi gegn hinni tímafreku „efnishyggjufræðslu“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.