Morgunblaðið - 17.08.1950, Qupperneq 12
12
MORGUTSBLAÐIÐ
Fimtudagur 17. ágúst 1950.
Bandoríski herinn á Þýskalandi Frjettabrjef frá Borgarnesí
Eftir Jock Henry,
frjettaritara Reuters.
FRANKFURT. — Stríðið í Kor-
eu kann að neyða bandaríska
hershöfðingja í Þýskalandi til
að leggja áherslu á að fjölga
mönnum í þeim herdeildum
Bandaríkjamanna, sem eiga að
hafa það meginhlutverk að
berjast, ef til árásar kemur. —
Þetta kann svo að leiða til þess,
að fjölskyldur bandarískra her-
manna í Þýskalandi verði send-
ar heim.
MINNI HÆTTA?
Til þessa hafa atburðirnir í
Koreu ekki slegið neinu felmstri
á hershöfðingja hjer. — Eng-
inn þeirra virðist vera þeirrar
skoðunar, að búast megi við
skjótri rússneskri árás á Þýska-
land. Sumum finnst jafnvel lík-
legast, að viðbragð Bandaríkja-
manna í sambandi við Koreu-
árás kommúnista kunni að hafa
dregið úr hættunni hvað Þýska
landi viðvíkur.
Flestir eru þeir þó sammála
John J. McCloy, bandaríska
landstjóranum, sem heldur því
fram, að fjölga þurfi herfylkj-
unum, sem nú eru til varnar
Vestur-Evrópu. McCloy sagði
nýlega: „Við höfum hvergi
nógu mörg herfylki í Vestur-
Evrópu. Það er nauðsynlegt að
fjölga þeim“. Hann bætti því
við, að slíkt hefði stórkostlega
pólitíska þýðingu.
Sjerfræðingar hjer í Frank-
furt líta svo á, að hinn greini-
legi skortur á bandarískum fót-
gönguliðum í Asíu hafi dregið
athyglina að jafnvel alvarlegri
veilum á hernaðarkerfi Banda-
ríkjamanna í Þýskalandi.
FLEIRI í JAPAN
í opinberum skýrslum er tala
bandarískra hermanna í Japan
gefin sem 125,000. I Þýskalandi
eru hinsvegar aðeins 90,000
hermenn í tveimur herfylkjum.
En þetta þýðir það, að aðeins
um 50,000 af hinum 90,000 her-
mönnum í Þýskalandi yrðu til-
tækilegar til vopnaburðar, ef
stríð yrði í Evrópu. Afgangur-
inn yrði að gegna „heimilis-
störfum“, það er að segja að
ala önn fyrir hermannafjöl-
skyldunum, sem nú eru i Þýska
landi, sjá um hergagha og
vistaflutninga o. s. frv.
Nú eru í Þýskalandi um 17,
000 bandarískar hermannafjöl-
skyldur. Þessar fjölskyldur búa
í ágætu húsnæði og hafa þýskt
þjónustufólk. Þær kaupa nauð-
synjar sínar í fyrstaflokks
bandarískum verslunum,
skemmta sjer í þægilegum
„klúbbum" og senda börn sín í
bandaríska skóla.
Hernaðaryfirvöld hvers svæð
is siá svo um hermannaversl-
anirnar, útvega nýkomnum fjöl
skyldum húsnæði og húsgögn,
sjá um viðhald bústaða þeirra,
leggja til lögreglulið og slökkvi
lið, stjórna skólum, sjá um
sorpsöfnun, standa fyrir stræt-
isvögnum, hafa í fáum orðum
sagt umsjón með öllu því, sem
þarf til þess að hermennirnir
og aðstandendur þeirra geti bú-
ið við sem best kjör.
4
HÓTELSTJÓRAR
Enda þótt þúsundir Þjóð-
verja hafi af þessu vinnu, verð-
ur talsverður hluti bandarísku
hermannanna engu að síður að
gefa sig að mestu leyti að eftir-
lits- og stjórnarstörfum, ó-
skyldum hermensku í þrengstu
merkingu þess orðs.
Höfuðsmaður hefur til dæmis
það embætti að stjórna hvíld-
arheimili, liðsforingjar stjórna
hótelum og maður, sem gengur
næst hershöfðingja að tign,
stjórnar skemmtistöðum Banda
ríkjamanna í Garmisch í Bav-
aríu.
í Bremerhaven hefur herinn
miklar framkvæmdir í sam-
bandi við hermannafjölskyld-
ur, sem koma til Þýskalands eða
fara þaðan. Þarna er hótel,
vöggustofa fyrir börn og geymsl
ur fyrir kjölturakka.
GAGNRÝNI
Hingað til hafa hernaðaryfir-
völdin færst undan, er á það
hefur verið bent, að hermanna-
fjölskyldurnar í Þýskalandi
sjeu til ama. Þau benda á þá
gagnrýni, sem herinn varð fyr-
ir fyrst eftir styrjöldina, en þá
var meðal annars kvartað yfir
því, hve lengi setuliðshermenn
í Þýskalandi þyrftu að vera
fjarri fjölskyldum sínum- Það
hafði mikil og góð áhrif á her-
mennina, segja hernaðaryfir-
völdin og, er nánustu ástvinir
þeirra fengu að flytjast til
Þýskalands.
Þó finnast liðsforingjar og ó-
breyttir hermenn, sem líta svo
á, að fjölskylduhaldið muni að-
eins valda hermönnunum á-
hyggjum, ef sambúðin við
Rússa á enn eftir að versna.
Liðsforingi í flughernum orð-
aði það þannig: „Jeg hef auð-
vitað fyrst og fremst skyldur að
rækja við herinn, en meðan
kona mín og barn dveljast hjer,
er jeg eins og milli tveggja
elda“.
NÝ STEFNA
Samkvæmt skipunum, sem
borist hafa frá bandaríska her-
málaráðuneytinu, verður nú
lögð megináhersla á að gera sem
flestum hermönnum í Þýska-
landi mögulegt að bera vopn,
þegar og ef þess gerist þörf. —
Margir líta því svo á, að ekki
verði hjá því komist að senda
megnið af óbreyttum bandarísk
um borgurum heim, því með
því fáist fjöldi hermanna laus
frá „heimilisstörfunum", auk
þess sem öryggi allra aðila yrði
þá betur borgið. Kunnugir full-
yrða og, að auk þess sem her-
menn verði nú að vinna að
„heimilisstörfum“, veiki það og
herstyrk Bandaríkjamanna í
Evrópu, að þessir sömu menn
njóti ekki í fullum mæli þeirrar
þjálfunar, sem er svo nauðsyn-
leg í nýtísku hernaði.
Yörumarkaður í Chicago
fjöisóffur
CHICAGO, 15. ágúst — Al-
þjóðavörumarkaðurinn, sem
haldinn er í Chicago er geysi-
lega fjölsóttur. Er nú svo kom-
ið, að hvarvetna í sýningar-
sölum blasa við spjöld, sem á
stendur „uppselt". Sýningar-
stjórn er vegna þessa þegar
farin að gera áætlanir til að
halda annan vörumarkað næsta
ár og eru líkur til, að það geti
orðið stærsti vörumarkaður,
sem nokkurntíma hefur verið
haldinn í heimi. — Reuter.
Aukin gúmmíframleiðsia
LONDON, 15 ágúst — Fram-
leiðsla á náttúrugúmmí hefur
aldrei fyrr verið jafnmikil og
nú í sumar. A fyrstu 6 mánuð-
um nam framleiðslan 822 þús.
smál., eða um 125 þús. smál.
meira en árið þar áður, er það
um það bil 18% aukning. Lík-
ur eru til, að ársframleiðslan
verði meir en 1,7 milljón smál.
—Reuter.
Borgarnesi, sunnudag.
Frá frjettaritara Mbl.
LEIKFLOKKURINN Sumar-
gestir sýndu hjer í gærkvöldi
sjónleikinn „Á leið til Dover“.
Var húsfyllir áhorfenda þrátt
fyrir, að mjög margt fólk var
burtu úr bænum yfir helgina.
Var leiknum ágætlega tekið og
leikendur óspart hyltir. Hefur
leikflokkurinn Sumargestir ferð
ast víðsvegar um landið 1 sum-
ar og sýnt sjónleik þenna og
hvarvetna verið taldir góðir
gestir, Munu þeir nú bráðlega
halda heim til Reykjavíkur og
hvílast um stund þar til leik-
störf hefjast í Þjóðleikhúsinu
að nýju.
Niðurskurður sauðfjár.
Heyskapartíð hefur verið góð
um Borgarfjörð og Mýrar í sum
ar og grasspretta sæmileg. Er
heyfengur bænda því orðinn
allgóður. Niðurskurður á sauð-
fje til útrýmingar mæðiveiki á
að byrja um 8. sept. n.k. Mun
margur mæla, að eigi sje það
vonum fyr þar sem hjerað þetta
hefur þjáðst undir þessari plágu
í 14 ár. Nær niðurskurðurinn
yfir Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslur og nokkra hreppa í Snæ-
fellsnes- og Dalasýslum. Er bú-
ist við að mestur hluti Mýra-
sýslu verði sauðlaus næsta ár
svo og öll Borgarfjarðarsýsla.
Hins vegar mun nokkuð af nýju
fje verða skipt á milli bænda í
Dalasýslu og Snæfellsnessýslu,
þó tæplega því hlutfalli, sem
gert er ráð fyrir í lögum.
Sumarslátrun.
Sumarslátrun dilka er að hefj
'ast hjer í Borgarnesi. Verður
nýtt dilkakjöt og slátur komið
hjeðan á markað í Reykjavík
um miðja viku. Útlit er fyrir
góða kartöfluuppskeru hjer í
haust og eru nýjar kartöflur nú
þegar komnar á borð flestra
heimila hjer.
Ljeleg Iaxveiði.
Laxveiði hefur verið með
allra lakasta móti í sumar. —
Virðist lax tæplega hafa gengið
í nokkrar ár, sem venjulega
mega þó teljast sæmilegar veiði
ár. — Hefur margur slyngur
stangaveiðimaður orðið fyrir
sárum vonbrigðum í Borgar-
fjarðaránum í sumar og þá ekki
síður flestir þeir bændur, er
netaveiði stunda í Hvítá og
munu margir þeirra tæplega
hafa veitt fyrir beinum tilkostn
aði.
Byggingarefnisskortur.
Nokkuð er um byggingar hjer
í Borgarnesi og út um hjeraðið,
en skortur á byggingarefni hef-
ur þó stórkostlega dregið úr
framkvæmdum, því margar þær
byggingar, sem byrjað hefur
verið á, hafa margstöðvast, sjer
staklega vegna skorts á sementi
og steypustyrktarjárni.
— iarðskjálffinn
Frh. af bls. 1
arh, verslunarborg í Assam. —
Tuttugu menn þar í borg munu
hafa slasast, er hús hrundi of-
an á það.
Borg þessi er um 160 km. frá
landamærum Indlands og
Burma.
Jarðfræðingar í Oslo segja,
að hjer sje um að ræða inesta
jarðskjálftann, sem nokkurn
tíma hafi verið mældur með
jarðskjálftamælum borgar-
innar. Nálin fjell raunar af
einum mælinum.
Jarðskjálftans varð vart á
jarðskjálftamælum í Evrópu,
Ástralíu, Bandaríkjunum og
Suður-Ameríku.
„Ægilegur kippur“
í tilkvnningu frá Washing-.
ton-háskóla í Seattle segir, að
hjer hafi verið um „ægilegan
kipp“ að ræða, „þann mesta,
sem enn hefur verið mældur á
tæki okkar“.
Jarðskjálftamælar í Bombay
skemmdust.
Sjerfræðingar í Tokyo fall-
ast á, að jarðskjálftinn hafi að
líkindum átj upptök sín í Tibet,
og segja, að hann kunni að vera
sá mesti í sögunni.
Fregnir um jarðskjálftann
bárust fyrst frá Calcutta, þar
sem hans varð mjög vart í rúm-
lega mínútu.____________
Rekstrarhallinn minnkar.
DUBLIN. — Rekstrarhalli írska
flugfjelagsins Air Lingus var á
s.l. ári 16 þús. sterlingspund, en
var órið þar áður 160 þús. ster-
lingspund.
LOFTLEIDIS - REYKJAVÍK - AKIJREYRI1
FKÁ REYKJAVÍK KL. 15,30 FRÁ AKUREYRI KL. 17,30
Lottleiðir, Lækjargötu 2 sími 81440
HEIL HERDEILD
Sjerstök „þjónustu-herdeild“,
undir forystu hershöfðingja,
hefur það eitt með höndum að
sjá um verslanirnar bandarísku,
kvikmyndahúsin og skemmtan-
ir ýmiskonar. Þessar fram-
kvæmdir hafa að vísu orðið til
þess að afstýra leiðindum með-
al hermannanna og fjölskyldna
þeirra fjarri ættlandinu, en
þær hafa svo aftur þann ókost,
að útheimta vinnu fjölda
manna, sem annars gætu gegnt
öðrum og mikilvægari störfum,
frá hernaðarlegu sjónarmiði
sjeð.
Bandaríska hernámssvæðinu
er t.d. skipt niður í 13 hernað-
arsvæði. Hvert svæði lýtur yf-
irráðum hershöfðingja eða höf-
uðsmanns, sem svo stjórna
hundruðum liðsforingja og þús-
undum óbreyttra hermanna.
Markús
& & &
Eftir Ed Dodd
«tiniiniiiiiitiiiiiitiiiiiiiiiiiifiittii(iiiiiiitttiiiiiiitiitiiiiitiiiiitiittiM
•<iMiimiiiiiiiimtM»<(iiiiiiiiMiiiiiiiiuiiiiMiiiiiiiiiimiUNa ,i |
1) — Nú er hundakeppnin
loksins hafin í skóglendinu
skammt frá gömlu, auðu terpen
tínugerðinni.
2) — Jseja, Trítill. Þá er röð-
in komin að Trygg.
3) En þennan sama dag hef-
ur Hjeðinn búist að heiman og
hann hefur tekið byssuna með
sjer. Grimmdarlegur og ein-
beittur þrammar hann upp að
gömlu terpentínugerðinni.
4) Niðri í bænum í vöru-
skemmu terpentínufjelagsins.
— Terpentínubirgðirnar eru
að verða búnar hjá okkur
hjerna. Við verðum að sækja
terpentínutunnurnar, sem við
geymum úti í gömlu verk-
smiðju. ,