Morgunblaðið - 06.09.1950, Page 8
8
MORGUTSBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. sept. 1950
Útg.: H.f. Árvakur Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Áskriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbób.
Úraníumíramleiðsla
og „friðarsökn“
KOMMÚNISTAR HAFA nýlega skýrt frá því, að 17 miljónir
manna í Austur-Þýskalandi hafi undirskrifað hið svokallaða
Stokkhólmsávarp þeirra. Segja þeir að þetta sýni andstöðu
l'ólks á þessu landsvæði gegn atomsprengjum.
í þessu sambandi er ekki ófróðlegt að vita það, að á sama
tima, sem skellinöðrur kommúnista vaða um í Austur-
Þýskalandi og krefjast þess að fólk undrriti mótmæli gegn
kjarnorkuframleiðslu og notkun kjarnorkuvopna, þá hafa
Rússar haíið stórvinslu á uraníum í þessu Iandi. En uranium
ér, eins og kunnugt er, eitt aðal hráefnið, sem notað er við
íramleiðsiu atomsprengja.
Framleiðsla uraníum í Austur-Þýskalandi er að öllu leyti
stjórnað af rússnesku stórfyrirtæki, sem ber nafnið Wis-
mut A. G., sem hefur heimilisfang sitt í Moskvu. Þetta fyr-
irtæki hefur nú um 300 þús. Þjóðverja í vinnu, karlmenn
á aldrinum 17—50 ára og konur á aldrinum 18—55 ára. —
Samkvæmt upplýsingum, sem hernámsstjórn Breta í Ber-
lín hefur fengið vinnur margt þetta fólk við hin ömurleg-
ustu skilyrði og er mjög illa launað.
Allt það svæði, sem uraníumvinnslan fer fram á, er alger-
iega lokað og þess stranglega gætt að fyllsta leynd ríki um
það, sem þar fer fram. Hernámsstjórn Breta í Þýskalandí
telur að Rússar hafi undanfarið lagt ofurkapp á að auka
uraníumframleiðslu sína í Austur-Þýskalandi. Verkamönn-
um við vinnsluna hefur stöðugt verið fjölgað og er öll önn-
ur starfsemi látin sitja á hakanum fyrir þessum iðnaði.
Aukin framleiðsla á þessu hráefni til smíða á kjarnorku-
vopnum hefur verið stærsta áhugamál hernámsstjórnar
Rússa í Þýskalandi.
Það, sem að þarna er að gerast, er það, að á sama tíma,
sem flugumenn Kominform og Rússa hlaupa borg úr borg
og hús úr húsi með mótmælaskjöl gegn framleiðslu kjarn-
orkuvopna og krefjast þess af Þjóðverjum, að þeir skrifi
undir þau, þá er þýskt fólk látið vinna dag og nótt í úraníum-
íiámum í sínu eigin landi. Þetta þýska úraníum nota Rúss-
ar síðan til þess að framleiða með kjarnorkusprengjur.
Lýsir þetta ekki vel þeirri „friðarsókn“, sem kommúnist-
ar hafa haldið uppi undanfarna mánuði? Er nokkuð að
furða þó að íslenskt skáld í Gljúfrasteini lýsi þá menn
„fulltrúa satans“, sem vara við slíkum stuðningi við heims-
íriðinn og öryggi mannkynsins?!!
Sautján milljónir manna í Austur-Þýskalandi hafa skrif-
að undir Stokkhólmsávarpið, segja kommúnistar. En hvern-
ig stendur á því, að íslenska kommúnistablaðið vill aldrei
verða við ítrekuðum kröfum um að skýrt verði frá tölu
þeirra, sem hafa ritað undir það á íslandi? Það eru kannske
svona fáir, sem hafa viljað leggja nafn sitt við það?
Hvað eru þeir margir? — Svar óskast.
Upplýsingarnar um úraníumframleiðslu Rússa í Þýska-
landi og hið mikla kapp, sem þeir leggja á hana, gera meira
en afhjúpa þá eindæma hræsni, sem liggur í ,,friðarsókn“
kommúnista um víða veröld. Þær sýna einnig eins greini-
lega og frekast er unnt, hvað fyrir þeim vakir. Rússar eru
ennþá á eftir í framleiðslu kjarnorkuvopna. Á meðan að þeir
eru það, láta þeir leiguþý sín um öll lönd Ijúga því að frið-
elskandi fólki, að þeir sjeu á móti allri kjarnorkufram-
leiðslu.
Hinn mikli breski stjórnmáiamaður, Winston Churchill,
hefur þrásinnis látið þá skoðun í ljós, að ekkert annað en
cttinn við kjarnorkuvopn hinna vestrænu lýðræðisþjóða hafi
hindrað Rússa í að gera áform Karls Marx um rússneska
sókn vestur meginland Evrópu að raunveruleika.
Allt bendir til þess að þessi skoðun hafi við fyllstu rök
að styðjast. En hvenær hafa Rússar komið kjarnorkufram-
leiðslu sinni nægilega vel á veg til þess að þeir telji sig
færa í flestan sjó?
Um það verður ekki sagt. Hitt er vitað, að þeir vinna nú
að framleiðslu kjarnorkuvopna af trylltum ofsa og spara
þar til hvorki fje nje mannafla.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
HVAÐ FÆST FYRIR
EINSEYRING?
DANSKT blað hefur verið að velta því fyrir
sjer og lesendum sínum undanfarið, hvað feng-
ist fyrir einseyring nú orðið. Tilefnið var frjett
um, að Frakkar ætluðu að leggja niður minstu
mynteiningu sína, „sou“-inn, þar sem ekki væri
lengur hæ^t að fá neitt keypt fyrir svo lítinn
pening.
Dahska blaðið kemst að þeirri niðurstöðu, að
nú sje það orðið heldur fátt, sem hægt sje að
fá fyrir einseyring í Danmörku og sje því jafn-
gott að leggja þenna smápening niður með öllu
og spara rikinu sláttu hans.
«
HVAB MÆTTUM VIÐ GERA?
EF AÐ Danir télja sig ekki hafa þörf fyrir
einseyring, hvað ætli við mættum þá leggja nið-
ur af okkar smámynt? Að minsta kosti tvegg-
eyringinn og álitamál yrði um fimmeyringinn.
Fyrir einn eyrir fæst nú bókstaflega ekki
neitt keypt hjer á landi. Einseyringsstykkin eru
löngu komin upp í 10 aura og fimm aura kök-
urnar kosta víst orðið á aðra krónu.
Það er heldur ekki mikil not fyrir tveggeyr-
inga, en hinsvegar væri sennilega hvorki hægt
að losna við þá, eða fimm eyringana með öllu
vegna peningaskifta.
«
LÍTA EKKI VIÐ SKIFTIMYNT
ANNARS er það svo, að það er eins og fólk
kæri sig ekki um smámynt, þótt það eigi rjett
á að fá til baka. Ef komið er í verslun og gefa
á 10—20 aura til baka þykir ekki taka því að
hafa fyrir því að tína upp svo lítið fje. Algengt
er að heyra hina kurteisari afgreiðslumenn
segja: ,,Þjer gerið svo vel að eiga hjá mjer 15
aura, eða hvað það nú er undir krónu í það og
það skiftið, ef skortur er á smápeningum í pen-
ingaskúffunni. En gjalddagi þess láns lætur víst
bíða eftir sjer.
•
VIRÐINGARLEYSI FYRIR
FJÁRMUNUM
VARLA eru margir svo ,,vitlausir“, að þeir
beygi sig eftír koparpening, sem liggur í göt--
uni. Jafnvel silfrið fær að liggja fyrir hunda og
manna fótum á förnum vegi, því það er tæpast
að börnin nenni að ,,finna“ svo litlar upphæðir,
sem 10 eyringar og 25 eyringar eru.
Þetta verðleysi smámyntarinnar er ein ástæð-
an fyrir því virðingarleysi, sem nú ríkir með
okkar þjóð fyrir fjármunum.
Rjett á að vera rjett og meðan við afnemum
ekki smámyntina með öllu og hættum að reikna
í aurum, þannig að krónan verði lægsta mynt-
eining okkar, verðum við að gefa rjett til baka
og reikna rjett.
®
ÁHRIF FRÁ STEFI
FLESTUM kvikmyndahúsgestum er blóðilla við
hljein og hefur hvað eftir annað verið farið
fram"á að fá þau afnumin og að myndir yrðu
í þess stað sýndar í einni lotu. En það hefur
ekki fengist og öll kvikmyndahúsin verið sam-
mála um að hafa hljein áfram.
Þá það. — En nú er búið að taka af mönnum
þá einu litlu skemtun, sem hljein veittu, en það
voru fjörugar hijómplötur, sem leiknar voru
í hljeunum og áður en sýningar byrjuðu og
jafnvel á meðgn fólkið var að ganga út eftir
sýningu, eins og farið var að tíðka í nokkrum
kvikmyndahúsum.
Nú hefur öll slík hljómlist verið lögð niður
vegna áhrifa frá STEFI.
©
\ GENGIÐ FULL LANGT
ÖLLUM er ljóst að STEF hefur gengið fulilangt
í kröfum sínum og yerið látið komast upp með
ýmsan skramba, sem ekki nær neinni átt, að
leyfa.
Yfirvöldin þurfa að endurskoða starfsemi
þessa rukkarafjelags gaumgæfilega og setja
reglur og lög um, hve langt samtök eins og
STEF eða aðrir geta gengið í að heimta tolla af
almenningi.
•
GULLÆÐIÐ
GULLÆÐIÐ er orðið svo mikið, að það getur
enginn maður snúið sjer við án þess, að hann
borgi fyrir það til þessa eða hins. Alt kostar
peninga og enginn maður fæst orðið til að
hreyfa sig um set, eða taka hversu lítið hand-
tak, sem er öðrum til hjálpar, án þess, að það
kosti peninga.
Það verður að láta glammra í gullinu til að
nokkur maður fáist til að líta upp.
Það er ekki verið að lá neinum einstökum —
þetta er tíska. — En hvort hún er þjóðinni holl,
það er annað mál.
Brjef: Erfiðleikar námsmanna í Anteríku
UMRÆÐUR ÞÆR og blaðaskrif
sem óumflýjanlega áttu sjer
stað um ísl. námsfólk erlendis,
með hliðsjón af lækkun ísl.
krónunnar, hafa nú um hríð leg
ið í þagnargildi. Því miður ekki
af þeirri ástæðu að málið hafi
fengið viðunandi lausn, síður en
svo.
Mergur þessa máls er sá, að
við gengislækkun ísl. krónunn-
ar skeði það, að 40 þúsund ísl.
krónur þarf til þess að halda
lífi í íslending í Ameríku, svo
dæmi sje tekið. Mörgum að-
standendum námsmanna hefir
löngum orðið þungt fyrir fæti
á erfiðum leiðum, margra náms
ára. Segja má að hjer kasti þó
fyrst tólfunum.
Naumast fer milli mála, að
alþingi og stjórnarvöld lands-
ins hafi hlotið nokkurt ámæli
sakir þess að engar ráðstafanir
skyldu gerðar, sem tryggðu ísl.
námsmönnum það, að þeir
gætu lokið námi því, serm með
eðlilegum hætti er stofnað til
með fullu samþykki og að til-
stuðlan stjórnarvalda landsins.
í mörgum tilfellum er fyrir
hendi sú staðreynd, að t. d. af
5 ára námstíma sje eftir 1 til
2 ár, en aðstandendum með
öllu ofraun að standa straum af
þó ekki sje nema einu ári, því
síðasta, snara út 40 þúsund
krónum.
Afleiðing þessa kuldalega af-
skifta- og úrræðaleysis stjórn-
arvaldanna eru líka að koma í
ljós. Einn þessara námsmanna
í Ameríku kemst nýlega þannig
að orði í brjefi: '
„Prófin hafa gengið vel,
að rúmu ári liðnu ætti jeg
að geta lokið námi enda tími
til kominn eftir 44 Vz ár. En
hvernig má það verða. Eru
nokkrar líkur til að hægt sje
að útvega lán í svo stórum
stíl. Til þess get jeg ekki ætl
ast af ykkur til viðbótar öllu
hinu, að útvega allt þetta f je.
Mjer er því ekki glatt í geði
nú. Öll þessi ár hef jeg glað-
ur hugsað til þeirrar stundar
er jeg að afloknu námi hjeldi
heim. Ætli leið mín liggi
ekki í áttina til þeirra ísl.
FRÆÐSLURÁÐ ræddi um dag-
inn um áætlaðan nemenda-
fjölda við barnaskóla bæjarins
á vetri komanda og kennara-
þörfina við skólana.
Nú mun eiga heimili í Rvík
um 5600 börn á barnafræðslu-
stigi. Af þeim má gera ráð fyr-
ir að ca. 4760 börn sæki barna-
skóla Reykjavíkur því að nokk-
ur hluti þeirra — einkum 7 ára
börn — fer í aðra skóla. Einnig
eru mörg börn fjarvistum úr
bænum og önnur geta ekki sótt
skóla vegna sjúkleika eða ann-
ara orsaka.
Kennarar við barnaskólana
eru nú 134, eða fyrir 4555 nem-
endur. Vantar því ca. 5 kenn-
ara til þess að kennaraþörfinni
sje fullnægt.
námsmanna, sem nú þegar
leita fyrir sjer og gera ráð-
stafanir til þess að setjast
hjer að fyrir fullt og allt“.
Of mörg orð hafa hjer
heima fallið um brottflutning
íslendinga vestur um haf, ef
stjórnarvöld landsins gerast nú
um það sek óbeinlínis, að hrekja
burt úr landinu þá, sem við
heimkomuna væru líklegir þess,
að veita mikilsverða liðveislu
um margvíslega viðreisn lands
og þjóðar.
í gærkvöldi
LAKE SUCCESS, 5. sept.: —
Öryggisráðið kom saman til
fundar í kvöld undir forsæti
breska fulltrúans Sir Gladwyn
Jebb. Fjögur erindi lágu fyrir
fundinum:
1. Brjef frá Warren Austin,
fulltrúa Bandaríkjanna.
2. Brjef frá aðalbækistöðv-
um S- Þ. í Koreu.
3. Rússnesk ályktunartillaga
viðvíkjandi flugvjelaárás á
kínverskt landssvæði.
4. Rússnesk ályktunartillaga
um innrásina í Koreu.
Verslunarsamningur.
BONN — Vestur Þýskaland og
Brazilía gerðu nýlega með sjer
verslunarsamning og munu skipt
ast á vörum fyrir 230 milljónir
dollara.
Hrafn Hængsson.
I 1 "
Um 4760 börn í barna, Oryggisráð á fundi
skótum bæjarins