Morgunblaðið - 31.10.1950, Qupperneq 12
12
MORGUISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. okt. 1950.
— Ferðaf jeiagið
Framh. af bl3. 2.
metra hæð. Skálabyggingar
þessar eru miklum erfiðleikum
bundnar, því bera verður
hverja fjöl og hvern sements-
poka á bakinu upp á jökulinn.
Er dugnaður og þrautseigja
Fjallamanna við skálabygging-
ar þessa mjög til fyrirmynd-
ar.
BYGGJA N.73ST GÖNGUBRÚ
Á MARKARFLJÓT
Fjallamenn hafa nú mikinn
hug á að reisa göngubrú yfir
Markarfljót á Þórsmörk. Með
því hyggjast þeir að koma á
greiðfærari leið milli skála
sinng á jökhinum. Verður þá
fyrst farið í skálanna á Fimm-
vörðuhálsi, en síðan gengiö
norður á við niður á Þórsmörk
og upp Tindfjallajökul. Síðan
haldið þaðan og í Múlakot og
ekið í bæinn. Þessi fjallaleið
er einhver sú fegursta og sjer-
kennilegasta, sem hægt er að
finna um öræfi og óbyggðir
landsins, og Guðmundur frá
Miðdal efast ekki um að þetta
verði fjölfarinn leið í framtíð-
inni, en hún mun taka 3—7
daga eftir því hversu víða er
numið staðar.
í fyrstu voru Fjallamenn
mjög fáir, en sóknarhugurinn
þeim mun meiid. Ungir og fram
sæknir menn hafa sóttst eftir
að komast í þeirra hóp og taka
þátt í ferðum þeirra. Fjalla-
menn hafa einnig unnið að því
að fá unga menn í lið með sjer.
í þeim tilgangi hafa þeir með-
al annars haldið námskeið, þar
sem nýliðum er kennt allt það
sem jökulfara er nauðsynlegt
að kunna, svo sem byggingu
snjóhúsa o. fl. Fjallafnenn eru
nú um hundrað talsins.
UM LIF OG DAUÐA
AÐ TEFLA
Ferðir jökulfara eru oft erf-
iðar og reyna á þrek þeirra og
þol. Þar getur verið um líf og
dauða að tefla í baráttunni við
hin óblíðu veðurskilyrði.
En sá, sem sigrast hefir á
þessum raunum Fjallamanns-
ins og lifað hefir góðviðrisdag
á öræfum ’ands síns, hann
skilur upp frá því örninn, sem
„flýgur fugla hæst í forsal
vinda“, og hann mun verða
nýtari Islendingur eftir þá
raun en fyrir.
A. St.
— Tiilögui Rússa feldar
Frh. af bls. 8.
ist á orðum Rússa og gerðum.
Hann gat þeirrar kúgunar-
stefnu, sem Rússar fylgdu fram
gegn Júgóslavíu, bæði í efna-
hagsmálum og stjórnmálum. —
Þetta sagði hann, að væri glöggt
dæmi um, "hver „samvinna“
þjóðanna yrði, ef hún styddist
við stefnu og aðferðir rússnesku
stjórnvaldanna.
FÓLKIÐ ER ÓTTASLEGIÐ
Pearson, utanrikisráðherra
Kanada, tók og til máls. Hann
sagði, að stefna Rússa fyllti all-
ar andkommúnistaþjóðir heims
ótta. Ef einhverju fengist óork-
að í þá átt a3 firra fólkið þess-
um ótta, þá væri þungu fargi
af því ljett.
- Afmæli
Framh. af bls. 11.
ir.langa og góða samfylgd, og ósKft
að hún megi vera sem lengst enn.
Jeg óska honum innilega til ham-
ihgiu með óförnu árin eða áratugina
og veit að jeg mæli þar fy-rir munn
anjög margra ar.nara, bæði þeirra sem
sjerstaklega ha;'e beðið mig um það,
©g ekki síður fjölda annara.
A. G.
Frá bir.ai 6.S.
á sunnudag
Á ÞINGI Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja á sunnu-
daginn flutti Ólafur Jóhannes-
son, prófessor, erindi um rjett-
indi og skyldur opinberra starfs
manna og svaraði fyrirspurn-
um.
Síðan hjeldu áfram umræður
um skýrslu stjórnarinnar. Pró-
fessor Ólafur Björnsson, for-
maður BSRB, svaraði þar þeim
ádeilum, sem þeint hafði verið
að honum og varaformanni
BSRB. Sagði hann að sjer hefði
komið árás Guðjóns B. Bald-
vinssonar á samstarfsmenn sína
■í stjórn bandalagsins mjög á ó-
vart, þar sem hann hefði aldrei
gert neinn ágreining i banda-
lagsstjórninni. Þá minntist Ól-
afur á vantraust það á hann og
varaformann, sem borist hefur
frá útvarpsstarfsmönnum. Sagði
hann að margt af því fólki væri
sjer að góðu kunnugt, og að
hann ætti erfitt með að trúa
að það hefði lánað nöfn sín und-
ir slíkt plagg, ef málin hefðu
verið túlkað rjett fyrir því. —
Lýsti hann eftir nöfnunum.
Þá ræddi prófessor Ólafur
um dýrtíðarmálin. Pjetur Pjet-
ursson, útvarpsþulur, hafði bor-
ið Ólafi það á brýn, að hann
hefði hjálpað ríkisstjórninni til
þess að smíða vopn á launþeg-
ana. Sagði Ólafur að bak við
slík kjarnyrði hlyti að vera
vitneskja um, hvernig þau mál
ætti að leysa. Óskaði hann eftir
að fá að heyra það. Pjetri vafð-
ist samt tunga um tönn, er hann
tók síðar til máls á fundinum.
Þingið á enn til góða tillögur
hans í þeim efnum.
Þegar umræður um skýrslu
cí jórnarinnar var lokið, var lýst
tillögum frá dýrtíðarnefnd.
— Frímann Ólafsson
Framh. af bls. 4.
gefst, að hafa unnið vel og sam-
viskusamlega.
Frímann er að eðlisfari a-l-
vörumaður. Hefir fengið mikið
af uppeldi sínu og lífsskoðun
sína mótaða í fjelagsskap
KFUM og fylgir fram þeirri
stefnu af óbifanlegri sannfær-
ingu, ekki aðeins í orði, heldur
í fyllsta máta í verki.
Hann hefir verið gæfumað-
ur, á framúrskarandi konu og
efnileg börn og ágætt heimili.
Hann hefir til þess unnið, að
gæfan fylgi honum um öll hans
ókomin æviár.
V. St.
Húsgögn Nelsons til sýnis.
LUNDÚNUM — í Portsmouth
hafa munir úr eigu Nelsons verið
til sýnis. Matborð hans, skrif-
borð og vínglös.
Afmælisskák-
móiinu lokið
AFMÆLISMÓTI Taflfjelags
Reykjavíkur í meistaraflokki
er lokið. Síðustu skákir voru
tefldar nú um helgina. — í
meistaraflokki varð hlutskarp-
astur Björn Jóhannesson. Hann
hlaut 8 vinninga og jafnframt
titilinn Skákmeistari Taflfje-
lags Reykjavíkur. Birni tókst
í síðustu umferð að sigra Þórð
Þórðarson, en Þórir Ólafsson,
sem var jafn Birni að vinning-
um, tapaði þá fyrir HaUK
Sveinssyni.
Úrslit í meistaraflokki urðv
sem hjer segir:
1. Björn Jóhannesson, 8 v.
2. Þórir Ólafsson, 7 v. 3.—4.
Sveinn Kristinsson og Þórður
Jörundsson 6 v. 5. Sigurgeir
Gíslason 5V2 v. 6. Birgir Sig-
urðsson 5 v. 7. Þórður Þórðar-
son 4% v. 8. Steingrímur Guð-
mundsson 4 v. 9. Kristján Syl-
veríusson 3V2 v. 1Ö. Haukur
Sveinsson 3 v. 11. Pjetur Guð-
mundsson 2 v. 11. Pjetur Guð-
mundsson 2 v.
Björn Jóhannesson, sem var
skákmeistari Taflfjelags Rvík-
ur er nemandi í 6. bekk Mennta
skólans. Eins eru þeir Þórir og
Sveinn báðir nemendur í
Menntaskólanum.
2. flokkur:
í öðrum flokki kepptu 24
og var keppendum skipt í tvo
riðla A og B-riðil. í A-riðli
urðu úrslitin þau að fyrstur
varð: Gísli Marinósson með
9V2 vinning. 2.—3. Guðmund-
ur Ársælsson og Petur Þor-
valdsson.
í B-riðli var hlutskarpastur
Ingi R. Jóhannsson með 9 vinn
inga. Þessir skákmenn allir
flytjast nú upp í fyrsta flokk.
— Ráðherraskiíti
Framh. af bls. 11.
ingnum og gjaldeyriskreppa
skelli yfir Breta á ný. Það verð
ur hlutverk þess manns, sem
semur næstu fjárlög Breta, að
leysa þennan vanda, en hvort
sá maður verður Hugh Gaitskell
er óvíst, á meðan líklegt er, að
nýjar kosninear verði haldnar
seinni hluta vetrar
J. N.
Alþingi
Frh. af bls. 2.
varginu segir að frumvarp
þetta sje flutt samkvæmt til-
mælum bæjarstjórnar Akur-
eyrar, og að tilgangurinn með
flutningi þess sje að koma
gleggri skipan á lóða og fast-
eignamál bæjarfjelagsins.
Frv. þetta er að mestu leyti
samið eftir lögum er sett voru
1914 um þetta efni fyrir lög-
sagnarumdæmi Reykjavíkur.
Sigmundur Sigurðsson, skipsfjóri í fi!
efni sexfugsafmælis, 1. júní 1950
Hve margir hafa bundið við sjóinn sína drauma
og sótt á djúpið ungir, og byrjað þar sitt starf.
Það var sem brjóstið geymdi þá hafsins hljóðu strauma,
sem hinir gömlu skyldu, og hlutu í feðraarf.
Og þú ert einn, sem hafið gat heillað töfrum sínum,
þar hlaustu ungur frama, og lof við skyldustörf.
Og því er bjartur svipur yfir sjómannsferli þínum,
og sigrar margir unnir, við heitin stór og djörf.
Þinn vegur hlaut að stækka, þú stýrir Knerri dýrum
og styrk er höndin prúða, með göfgi í formannssvip.
Þú skipar ei með þjósti, en þýðum róm og skýrum,
og þú nærð alltaf landi, í höfn, með menn og skip.
Og því er gott að vita, sinn son með þjer á sænum,
því svált er stundum lífið, og vistin hörð um borð.
Ef skipstjórinn er góður, finnst bróðurþel í blænum,
sem bindur menn og sættir, við gleymd og falin orð.
Þú ferð með vöskum drengjum, sem þjóðin besta þekkir
og þar er hennar vegur, um sævardjúpin köld.
Að lifa fyrir starfið, þeim heiðri enginn hnekkir,
þar hollast er að byggja sjer gæfuríki og völd.
Nú líður senn á daginn, við byrðing aldan brýtur,
og bráðum ferðu að draga þitt góða skip í naust.
Og heilum vagni að aka, frá borði best þú nýtur
með brimhljóð þinnar sálar í hafsins sterku raust.
Og lifðu heill og sæll, með þín sextíu ár að baki
með sigra þína og dáðir á hafsins víðu slóð.
Og ljúfur bylgjuhljómur í hjarta þínu vaki,
Að hinstu stund sje dreymið, og glatt þitt sjómannsblóð.
Kjartan Ólafsson.
IffilJÓM
{ *1 ‘ í r\j»: tb V M |S
mv, Si\\m \y m, :í\(\>,í v
ii 11
'HAXftW • ■■ '< < :■ u <C -
Seldist upp
í íyrra
Hefur nú verið endur-
prentuð í litlu upplagi og
er komin í bókabúðir.
Tilkynning
til húsavátryggjenda utan Rcykjavíkur
frá Brunabótafjelagi Islands.
Brunabótafjelagið hefur ákveðið að heimila húsavá-
tryggjendum að hækka vátryggingarverð húsa sinna um
30% — þrjátíu af hundraði — vegna hækkunar á bygg-
ingarkostnaði, sem stafar af gengisfellíngu krónunnar.
Nánari upplýsingar fást hjá umboðsmönnum fjelags-
ins og aðalskrifstofu.
BRUNABÓTAFJELAG ÍSLANDS
m
f
t
f
■l
f
V
■K.
MarkÚA
Eftir Ed Dodd
m
1) — Þeta er maðurinn, sem
hefur snarað álftina og notað
hana sem ginningartæki. Jeg
virðist þegar hafa komist í tæri
við hættulegan karl.
2) Markús fylgir á eftir
Berki, sem fer á undan honum
fram hjá hörpugildrunni.
M EANWHILE ANDY, OBEVIN&
MARK'S COMMAND, WAiTS N£AR
, _ CACHED CANOg,
3) En Andi bíður kyrr við
bátsuppsátrið, eins og Mfufús
hafði skipað honum. j