Morgunblaðið - 07.11.1951, Blaðsíða 1
33. árgangur.
255. tbl. — Miðvikudagur 7. nóvember 1951.
Prentsmiðja Morgunblaðsins. |
Farnir til
E ússlizfzds
Ei'ikaskeyti iil Mtl.
írá Reuter-N l'D.
KAIRO, 6. név. — Egyptskir
þjóðernissinnar rjeóost i
kvöld á breska herbíla á veg-
inum milíi Ismaiiia og Suez.
Ilópar þeirra, 5—8 aienn í
ÍvVói’jum, Köfðú TalíS sig á
, noíckruKi stöttiwia irn MT,; tit veg
i! inum og skutu á i’ifreiðamar
i ec þeer fóru iraÍKbjá, ea liovfu
síöan út í myrkriS.
Erskine yfii maður brcsku sveit
ánna ljet svo um mælt í útvarps-
í^æðu er hann tlutti til manna
sinna að egyptsku stjórnarvöld-
in heíðu gert sig sek um g^æp-
samiegt athæfi með því að vekja
ofhræðslu meðal þjóðarinnar án
þess að hafa nokkra stjórn á at-
burðarásinni. Hann sagði að
Egyptum væri hótað dauða ef
þeir ekki legðu niður vinnu hjá
Bretum.
Síðustu fregnir frá Kairo
hermi’u að nefnd háttsettra
egyptskra embættismanna
væri farin til iiússlands með
, leynilegan samning sem hefði
mjög mikla þýðingu fyrir
Egyptaland.
EÍEIS
tisfscur f
á Bdrníioim
Frakklandsforseti hvet-
ur til fjórveldafundar
PARÍS 6. nóvember. — Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kom
saman til fundar í París í dag og ávarpaði Vincent Auriol, Frakk-
landsforseti fulltrúana. Hvatti hann menn til að verða við þeim
óskum mannkynsins að deiiumálin yrðu jöfnuð með friðsamlegum
hætti. Á fundinum var fulltrúi Mexico dr. Luis Padilla Nei'va kjör-
inn forseti allsherjarþingsins.
Frá Panmunjom
Kommúnistar vilja
sama þéflð áfram
• TOKIO, 6. nóv. — Undirnefnd
ir aðila að vopnahljesviðræð-
unum komu saman til árang-
urslauss fundar í Panmun-
jom í dag.
• Kommúnistar snerust gegn
þeirri tiilögu fulltrúa S. Þ.,
að vopnahljesnefndirnar tækju
upp viðræður á ný þó undir-
1 nefndirnar hefðu ekki kom-
ist að samkomulagi um marka
línu hins hlutlausa svæðis.
• I dag hófu kínverskar sveitir
gagnárásir á V-vígstöðvunum
í skjóli rigningar og þoku.
■i Náðu þeir 3 hæðum á sitt vald
- en yfirgáfu 2 þeirra litlu síðar
- án nokkurra bardaga.
• Nokkru austar hófu sveitir S.
Þ. áhlaup en árangurslaust,
. því Kínverjar tefldu í flýti
- þar fram 2 óþreyttum her-
• sveitum sem nýkomnar eru
; til vígstöðvanna.
Einhverjar fegurstu fornminjar úr gulli sem komið hafa á þjóð-
minjasafnið danska fundust nýlega við Svaneke á Bornholm. Eru
gripir þessir frá þjóðflutningatímabilicu. Það var dr. phil. Ole
Klindt-Jensen sem fann munina, en hann hefur starfað í hálft
annað ár á Bornholm í þágu þjóðminjasaínsins. — Minjar þessar
voru brjóstnæla úr gulli um 15 cm á lengd ásamt 2 hringjum,
sem hvor um sig vega um 100 grömm.
Breska þingið var sett í gærdag
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
LONDON, 6. nóv. — Churchill forsætisráðherra gerði það að til-
lögu sinni í r.eðri málstofu breska þingsins í dag að deildin kæmi
saman til leynilegs fundar, svo hægt væri að ræða landvarnamálin
á viðeigandi hátt. í sömu ræðu sinni upplýsti Churchill að greiðslu-
halli Breta í utanríkisverslun yrði einhvers staðar milli 500—600
milljónir punda á næsta ári.
Churchill drap einnig á viðræðufund milli Vesturveldanna og
Ráðstjórnarríkjanna, en varaði ýið of mikilli bjartsýni.
Eisenhöwer og Tru-
man hafa rsðsf við
WASHINGTON, 6. nóv. — Eisen-
hoiver yfirhershöfðingi Ijet í dag
svo um mælt að það hefði ekki
verið auðunnið verk nje uppörf-
andi að byggja upp varnif V,-
Evrópu. Hershöíðinginn kvaðst
þó bjartsýnn um að þeim tak-
pnörkum sem sett hefðu verið
yrði náð og jafnvel fyr en búist
hafði verið við í upphafi.
Eisenhower hefur lokið viðræð
«m sínum við Truman forseta og
er þegar lagður af stað til París-
ar aftur. ■■—Reuter-NTB.
□-
-□
AÐ gefnu tilefni þykir rjett
að geta þess hjer, að auglýs-
ingaverð blaðsins hefir ekki
hækkað frá því 1. desember
1950.
□-
-□
ATTLEE HARÐORBUR
Áður en Churchill tók til máls
hafði Attlee ,sem forystumaður
stjórnarandstöðunnar fengið orð-
ið til að svara konungsræðunni,
sem lesin var upp við hátíðlega
setningu breslca þingsins í dag.
Attlee kvað konungsræðu ekki
hafa neitt nýtt til að bera. Hann
kvað menn nú standa andspænis
þeirri staðreynd að stjórn Churc-
hills ætlaði að rífa niður það sem
fráfarandi stjórn hefði byggt
upp. Hann sagði að í ræðunni
væri ekki rætt um lausn þeirra
mála sem erfiðust væru nú, verð-
lagsmálin og hráefnaskorturinn.
UPPSPUNI FRÁ liÓTUM
Churchill minntist á það í- upp
hafi ræðu sinnar að hinn naumi
nieirihluti íhaldsflokksins væri
einungis um að kenna þeirri
| ákæru Verkamannaflokksins, að
(hann væri stríðsæsingamaður.
! Nú gæti stjórn hans hinsvegar
afsannað þessa fárániegu ákæru
ekki aðeins með orðum heldur
og í verki.
Churchill varaði menn við
of mikilli hjartsýni um við-
ræðufund Vesturveldanna og
Rússa, en kvað nauðsyn
krefja að bæta samkomulagið
í heimsmálunum.
ALVARLEGT ÁSTAND
Þá sneri hann sjer að efna-
hagsmálunum og kvað ástand-
ið sjaldan hafa verið alvar-
legra á því sviði. Á hálfu ári
væri hallinn svo mikill að það
svaraði til 700 milljón punda
reksturshalla yfir árið.
Hann sagði að lokum að
stjórnin myndi Ieggja fram
frumvarp um afnám þjóðnýt-
ingar stáliðnaðarins og hún
myndi beita sjer fyrir því að
samkeppni ríkti milli einka-
fyrirtækja og ríkisfyrirtækja.
Mossadeq flýgur
heim í vikulokin
WASHINGTON, 6. nóv. — Dr.
Mossadaq forsætisráðherra Persíu
vonast til þess að geta haldið
heim á leið í vikulokin, að því
er aðstoðar forsætisráðherrann,
Fatemi tilkynnti í dag.
Samtímis tilkynnti utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna að við-
ræðum milli fulltrúa Persa og
Bandaríkjamanna um olíudeil-
una væri haldið áfram. Hlutverk
Bandaríkjamanna hefur verið að
reyna að koma á aftur samninga-
viðræðum milli Breta og Persa.
—Reuter-NTB.
LONDON — British European
Áirways hefur fyrir skömmu
hafið farþegaflutning með heli-
coptervjelum milli London og
Birmingham. Ferðir eru daglega.
FJÓRVELDAFUNDUR?
Auriol hóf ræðu sína með því
að bjóða fulltrúana velkomna til
fundar í París og lýsti þeirri ósk
sinni, að leiðtogar stórveldanna
ættu með sjer viðræðufund til
þess að reyna að finna lausn a
því alvarlega ástandi, sem nú
ríkir í heiminum. Talið er í
París, að forsetinn hafi hjer átt
við fund þeirra Churchills, Tru-
mans, Stalins og Plevens, forsæt-
isráðherra Frakklands.
Auriöl lýsti því yfir, að það
væri einlæg ósk alls mannkyns-
ins að komið yrði á varanlegu
eftirliti með vígbúnaðirium í
heiminum.
Sagði hann að allra augu beind
ust nú að þeim mönnum, sem
hjer væru samankomnir til þess
að skiptast á skoðunum og gera
tilraun til þess að finna sameig-
Hinn nýi forsefi
Allsherjarþingsins
Dr. L«iis Padilla Ncrva
frá Mexico.
iniega lausn deilumálanna. —
Hvatti hann fulltrúana til þess
að bregðast vel við og gefa mann-
kyninu tækifæri til að gleðjast
yfir árangri friðsamlegra við-
ræðna. i
f
UNDIRTEKTIR
Talið er að tillaga Auriols
um fjórveldafund hafi fengiíl
góðar undirtektir í stjórnar-
skrifstofunum í London, ea
ekkert er vitað um viðbrögði*
í Washington. I París er haf*
eftir góðum heimildum að
Rússar muni vera hlynntir
fjórveldafundi ef eftir fylgir
fimmveldafundur með þátt-
töku Kínverja.
(1
NÝR FORSETI S
ALLSHERJARÞINGSINS
Á fundinum í dag fór fram
kjör forseta allslierjarþingsins.
Fyrir valinu varð fulltrúi Mexíco
dr. Luis Padilla Nerva.
Fyrrverandi forseti Nasrollah
Entezam frá Persíu, flutti ræðu
við setninguna og var hinn bjart-
sýnasti á lausn vandamálanna.
Taldi hann að ástandið í heimin-
um væri ekki eins alvarlegt nú
og það var síðast þegar allsherj-
arþingið sat fundi. Þá taldi hann,
að líkurnar fyrir friði í Kóreu
væru nú miklar og væri ekki of-
mælt að friðarhorfurnar í heim-
inum mundu aukast mjög veru-
lega ef takast mætti að stöðva
hernaðaraðgerðir þar. — NTB.
Stalin bíður
PARÍS, 6. nóv. — Visinsky ut-
anrikisráðherra Ráðstjórnéirríkj-
anna ljet svo um mælt í viðtali
við franska blaðið „France Soir‘‘
að Stalin myndi bíða eftir boði
Vesturveldanna um þátttöku í
ráðstefnu „hinna stóru“ áður en
hann ákvæði nokkuð um það
hvort hann tæki slíku boði eða
ekki. —Reuter-NTB. ,
Hilding Andersson svaraði:
„Jeg er d njósnaierð
fyrir Sovjetríkin"
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
STOKKHÓLMI 6. nóvember. — Rjettarhöldunum í hinu umfangs-
mikla og hættulega njósnamáli sænska sjóliðsforingjans Hilding
Anderssons var haldið áfram í dag fyrir opnum dyrum. Notaði
saksóknarinn mestan hluta i'jettartímans í dag til að spyrja ákærða,
sem hafði svör við öllum hlutum á reiðum höndum. .
ERFÐI STJÓRNMÁLASKOÐ
ANIR SÍNAR
Bekkir áheyrenda voru í dag
þjettskipaðir. Andersson ljet svo
um mælt í dag að hann aðhyllt-
ist sömu stjórnmálaskoðun og
uppeldisfaðir hans.
LJET EKKI SLÁ SIG
ÚT AF LAGINU
í rjettarliöldunum í dag
kcm m. a. fram að komið liafði
verið að Andersson er hann
var á einni njósnaferða sinna
á ey einni náiægt Karlskrona.
Er hann þá var spurður hvað
hann væri á eynni að gera,
svaraði hann stuttlega: „Jeg
er á njósnaferð fyrir Sovjct-
ríkin“. Svar þetta tck sá er í
hlut átti sem gó5a og gilda
vöru, hristi höfuðið og gekk
leiðar sinnar.