Morgunblaðið - 22.12.1951, Blaðsíða 1
16 síðuar
38. árgangtur.
298. tbl. — Laugardagur 22. desember 1951.
PrentsmiSJa MargnnblaSslna, |
Samþykkt fjárhagsáætlun S.þ.
Bandaríkin greiSa 36.9% Rússar 9.85%
SKIPT&R SKOÐANIR UM ÁRAKSUR STARFSIMS
Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter-NTB.
PARÍS, 21. des. — Fyrsta áfanganum er nú lokið í fundahöldum
Allsherjarþings sameinuðu þjóðanna að þessu sinni. Forseti þings-
ins sagði við fréttamenn í því tilefni, að þróun málanna hefði
miðað í friðarátt milli austurs og vesturs. Almennt mætti segja,
að árangur af starfi S. Þ. undanfarnar vikur væri jákvæður.
EKIvI JAFN BJARTSÝNIR ^
Þrátt fyrir ummæii forsetans er
talið, að yfirleitt gæti ekki sömu
bjartsýni meðal stjómmálamanna
á Allsherjarþinginu og séu marg-
ir þeirrar skoðunar, að bókstaf-
lega ekkert hafi áunnizt þá 45
daga, sem þingið hefur starfað.
Árangur af starfi nefnda haíi
orðið sáralítill hvað snertir ósam-
komulag austurs og vesturs og
stjórnmálaleg vandamál séu jafn
óleyst sem áður. Ásakanir og gagn
ásakanir hafi verið sízt minni nú,
en á fyrri samkomum S. Þ. og
af því mætti marka árangurinn.
GÆZLUVERNDARRÁÐIÐ
Á það er bent m. a., að Frakk-
land og Suður-Afríka hafi kallað
fulltrúa sína úr Gæzluverndarráð-
inu vegna þeirra mála, sem þar
hafi verið tekin til meðferðar. Hins
vegar hafi sá árangur náðst, að
ný afvopnunarnefnd hafi verið
ekipuð en óvíst sé hverju hún fái
framgengt.
FJÁRHAGSÁÆTLUNIN
Fulltrúar hafa nú fengið jóla-
leyfi og var samþykkt fjárhags-
áætlunar fyrir árið 1952 síðasta
málið, sem tekið var fyrir. Fjár-
hagsáætlunin var samþykkt með
47 atkvæðum gegn 5. Kommún-
istaríkin voru á móti. Áætlunin
hljóðar um 48.096.780 dali. Einnig
var samþykkt hvernig framlög
um skuli skipt milli þjóðanna
með 40 atkvæðum gegn 5 atkv.,
en Bandaríkin, Israel og Etíópía
greiddu ekki atkvæði. Gert er ráð
fyrir, að Bandaríkin greiði 86.9%
af heildarupphæðinni, en banda-
ríski fulltrúinn benti á í því sam-
bandi að ekki væri sanngjarnt, að
eitt ríki greiddi meira en þriðj-
ung kostnaðar. Bretar gixiða rúm
10%, og Sovétríkin 9.85%, Frakk-
land og kínverskir þjóðernissinn-
ar 5.75% og önnur ríki minna.
Að lokum færði forseti þings-
ins fulltrúum jólaóskir og hvatti
nefndir til að hraða störfum
þannig að unt yrði að ljúka fund-
um hinn 26. janúar eins og áætl-
að hefði verið.
Er hann forseiaefni?
i..' j
Verða dæmdir
BUDAPEST, 21. des. — Ung
verska ríkisstjórnin hefur
tiikynnt bandaríska sendi-
ráðinu í Budapest, að áhöfn
flugvélarinnar, sem skotin
var niður af rússneskum;
orrustuflugvelum 19. nóv. s.
1., verði leidd fyrir ungversk-
an dómstól. — I tilkynning-
unni segir, að flugmennirn-
ir verði ákærðir fyrir að
hafa farið inn á ungverskt
yfirráðasvæði í glæpsamleg- 1
um tilgangi —Reuter-NTB. i
Fangalistinn rangur
RAUÐI KROSSINH ATHUGI FANGABÚÐIR
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
TÓKÍÓ 21. des. — Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna í Panmunjom
hafa tilkynnt, að á fangalista Norður-Kóreumanna, er þeir afhentu
í þessari viku, vanti nöfn yfir 1000 hermanna, sem áður hafi verið
lesin í útvarp kommúnista. Ennfremur segja fulltrúarnir, að listinn
sé ekki í samræmi við þær upplýsingar, sem fengizt hafi eftic
öðrum leiðum. (
--------------------®RAUÐI KROSSINN 1
| Ridgway hershöfðingi hefur S
AS hausti verða forsetakosningar
í Bandaríkjunum. Innan skamms
fara fram kosningar í Kaliforníu
í tilraunaskyni til að fá úr því
skorið, hverjir séu vinsælastir þar
úr flokki demókrata. Þessi heitir
Estes Kefauver, og er öldunga-
deildarþingmaður fyrir demó-
krata.
HJOTA EKKISÍUÐNSNGS
PARÍS 21. des. — De Gaulle
sagði á blaðamannafundi í París
í dag, að Evrópuherinn og Schu-
man-áætlunin væru algerlega ó-
fullnægjandi úrræði til samein-
ingar Evrópu og þar sem þessi
áform nytu ekki stuðnings þjóð-
anna mundu þau fremur Spilla
einingarhugmyndinni en styrkja
hana. Taldi hann það ekki heppi-
legt fyrir afdrif málsins, hversu
Bandaríkin fylgja því fast eftir.
NTB-Reuter.
202 daga
LUNDÚNUM - Joseph Colbridge
6 ára að aldri frá Manchester hef-
ur nú verið meðvitundarlaus í
samfleytt 202 daga, eða síðan
gerður var á honum heilaskurð-
yr.
Síommúnista-
óeirðir í Höfn
FYRIR nokkrum dögum stofn-!
uðu kommúnistar til óspekta á'
aðalumferðargötum Kaupmanna-
hafnar til þess að mótmæla 18
mánaða herskyldutíma. Hengdu
þeir upp áróðursspjöld á hús-
veggi og myndastyttur þar sem
jólaskrauti hafði verið komið
fyrir.
Kalla varð lögreglumenn og
brunalið á vettvang til að nema
burt áróðursspjöldin og gerðu
kommúnistar tilraun til að
hindra framkvæmd verksins, og
stofnuðu lífi brunaliðsmanna
í hættu, þar sem þeir voru við
skyldustörf.
Hvöttu þeir friðsama borgara,
sem voru á ferli við jólakaup, tilj
að veitast að lögreglumönnum \
með ofbeldi og hindra verkj
þeirra.
Nokkrir kommúniskir vind-
belgir voru handsamaðir, meðal
þeirra tvær ungar stúlkur.
Bandaríkin svara
WASHINGTON 21. des. — Banda
ríkjamenn hafa sent rúmensku
stjórninni orðsendingu, þar sem
þeir vísa algerlega á bug stað-
hæfingu Rúmena, að hinn 18.
okt. s.l. hafi tveir bandarískir
njósnarar verið fluttir flugleiðis
inn yfir rúmenskt land og látnir
svífa til jarðar í fallhlífum. Segja
Bandaríkjamenn að staðhæfingin
sé hlægileg og fram komin ein-
ungis í áróðursskyni.
NTB-Reuter.
íþróltamenn flýja
ÞRÍR kunnir austur-þýzkir knatt
spyrnumenn Werner Oberlánd-
er, Winfried Herz og Heinz Woz-
inakowsky, sem hafa leikið í
landsliði Austur-Þýzkalands m.a.
gegn rússneska liðinu Dynamo,
hafa flúið til Vestur-Þýzkalands.
Blöð í Austur-Þýzkalandi höfðu
valið Oberlánder bezta íþrótta-
mann ársins 1951.
öruggur
BELGRAD, 21. des.: — Tító
marskálkur lýsti því yfir í dag í
ræðu, að her Júgóslava væri nú
svo öflugur, að hann gæti hrund-
ið hvers konar árásum. Jafnframt
varaði hann þjóðina við flugu-
mönnum, sem væru að reyna, að
koma á fót fimmtu herdeild í
landinu að undirlagi Komin-
form. Sagði hann, að úr þeirri
einu átt væri öryggi landsins
hætta búin. — NTB-Reuter.
Spelðvirkjar
athafnassmir
PARÍS 21. des. — Bretar hafa
sett nýjar öryggisreglur um um-
ferð á Súez-eiði, þar sem öllum
farartækjum er meinuð umferð
um veginn milli Port-Said og
Fayid öðrum en þeim sem flytja
mikilvægan varning.
Tilkynnt hefur verið að
hér sé um að ræða öryggisráð-
stafanir vegna þess hve spell-
virki hafa farið í vöxt að undan-
förnu. Aðfararnótt fimmtudags
skutu brezkir hermenn 5 egypzka
skemmdarverkamenn til bana
þar sem þeir voru að gera tilraun
til að rjúfa vatnsleiðslu Breta.
ný hreyft því máli, að Alþjóða:
rauða krossinum verði- leyft að
athuga fangabúðir í N.-Kóreu.
Þessa málaleitan höfðu fulltrúar;
S. Þ. áður lagt fram en tekiðl
aftur. Hershöfðingjar kommún-<
ista hafa ekki svarað Ridgway]
ennþá.
TILBOÐ 1
Samninganefnd S. Þ. bauð
kommúnistum í dag, að fluttur
yrði brott her Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefst við á eyjum norð-
an 38. breiddarbaugsins. Fóru þeir
ekki fram á að neitt kæmi í stað-
inn. ;
3 ATRIÐI SAMÞYKKT
Málum er nú svo komið, að
samkomulag hefur náðst um 3;
atriði í vopnahléssamningunum, eni
ágreiningur er enn um ýmis grund
vallaratriði svo sem vígbúnað og
liðssamdrátt að baki markalín-
unnar og endurbyggingu flug-
valla.
LOFTARASIR
Orrustuflugvélar S. Þ. höfðrt
sig í frammi í dag og töldu flug-
mennirnir sig hafa rofið mikil-
vægar samgönguleiðir í Norður-
Kóreu. Ekki kom til neinna veru-
legra átaka á vígstöðvunum síðasti
liðinn sólarhring.
ÞEGAR Nóbelsverðlaunin voru
afhent í Stokkhólmi í þessum
mánuði, var erlendum sendi-
mönnum boðið að vera viðstödd-
um. Þekktust þeir allir boðið
nema sendiherrar Rússa, Pól-
verja og kínverskra kommúnista.
Stríðsæsingamaðarinn
Andrés önd!
ÞAÐ bar til tíðinda á þingfundi
í fulltrúadeild ítalska þingsins í
þessum mánuði, að þeir Mikki (
mús og Andrés önd urðu fyrir
árásum af hendi eins af kven-
fulltrúum kommúnista, sem
brigzlaði þeim um stríðsæsingar.
Sagði frúin, að
teiknimyndir af
þeim félögum'
væru „liður í
kerfisbundnum J
stríðsundirbún!
ingiBandaríkj-
anna“. Einkum
var henni þyrn
ir í augum
teiknimynd ein
þar sem And-
rés kom fram
sem stríðsmað-
ur grár fyrir járnum og fór með
umsvifum og háreysti að her-
mannasið.
Þessar uggvænlegu upplýsing-
ar frúarinnar um þá félaga, hafa
fengið góðar undirtektir hjá mál-
gagni kommúnista, blaðinu Unita
í Rómaborg, sem tók ennþá dýpra
í árinni og fullyrti að „Kjarn-
orkumaðurinn" og aðrar slíkar
hetjur í amerískum teiknimynda-
flokkum væru augljósir fasistar!
Þeir Andrés og músin hafa sem
kunnugt er átt mjög innangengt
hjá Þjóðviljanum og fengið mynd
ir sínar á þrykk í því blaði öðr-
um fremur. Verður það að telj-
ast með nokkrum ólíkindum að
það skuli líðast að blaðið birti
jöfnum höndum myndir af þess-
um geigvæniegu stríðsæsinga-
mönnum og sjálfri friðardúfunni.
Hafðu gát á línunni, Þjóðvilji!
Tillaga Rússa var felld
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter.
PARÍS, 21. desember: — Stjórnmálanefnd Sameinuðu þjóðanna
hafnaði í dag ásökunum Rússa um, að Bandaríkjamenn ynnu að því
að koma á fót fimmtu herdeildum í Kominform-löndunum.
39:5 &
Tillaga Rússa um að fordæma
viðbótarákvæðin í lögunum um
gagnkvæma aðstoð til eflingar
öryggi, þar sem gert er ráð fyrir
hjálp til handa flóttamönnum
frá Austur-Evrópu, var felld
með 39 atkvæðum gegn 5 í
Stjórnmálanefndinni. 11 fulltrú-
ar greiddu ekki atkvæði, en það
voru fulltrúar Araba- og Asíu-
ríkjanna.
I ákvæðinu er m.a. gert ráð
fyrir, að flóttamenn geti gengið
í Atlantshafsherinn, er þátttöku-
ríkin samþykkja það. Truman
forseta er heimilt að verja 100
^milljón dölum í þessu skyni.
VÍSHINSKY
Áður en atkvæðagreiðslan fór
fram lýsti Vishinsky því yfir, að
fulltrúarnir í nefndinni hefðu
keppst um að rægja* Sovétríkin
og æsa til haturs gegn þeim. —
Sagði hann að áætlunin um gagn
kvæma hjálp væri skref í áttina
til nýrrar styrjaldar.
Brýr endurbyggðar
BONN — í stríðinu voru eyði
lagðar 8000 brýr í Vestur-Þýzka
landi. Helmingur þeirra hefur nú
verið endurbyggður.
Churchill seinkar 1
LUNDÚNUM 21. des. — Föf
Churchills til Bandaríkjanna hef-
ur seinkað um einn dag, þannig
að hann leggur af stað 30. desem-
ber í stað 29. Stormur hefur geis-
að á Atlantshafi og tafið risa-
skipið Queen Mary á ferð sinni
yfir hafið. — NTB-Reuter.
Kasmírdeilan
PARlS, 21. des. — SendimaðujJ
Kasmír hjá S. Þ. tilkynnci í dag,
að Indlandi og Pakistan hefði
ekki tekizt, að koma sér satnan urrt
afvopnun í Kasmír. Hugmyirdin
var, að afvopnunin yrði undan-
fari • almennra kosninga, undir
handleiðslu S. Þ., um framtíð
landsins. — Reuter-NTB. ,
Sendiráð í Argentínu
TVEIR fulltrúar úr utanríkis-
ráðuneytinu í Bonn eru nýkomn-
ir til Buenos Aires, þar sem þeir
vinna að undirbúningi að opnun
sendiráðs Vestur-Þjóðverja. —>
Hefur það verið lokað síðan 1944,
Höfnuðu boðinu
1