Morgunblaðið - 28.12.1951, Side 1

Morgunblaðið - 28.12.1951, Side 1
16 síðuar 38. árgangur. 300. tbl. — Föstudagur 28. desember 1951 Prentsmiðja Morgunblaðsins. | Jólasveinn í Veslurborg. Á aðfangadagskvöld kom jólasveinn í heimsókn að barnaheim- ilinu í Vesturborg, með gjafir handa tveim einstæðings börnum, sem þar eiga heima. — Bíl handa drengnum, sem heitir Hrafn og stóra brúðu handa telpunni, en hún heitir Anna Elísabet. Það var Knattspyrnufél. Valur, sem gaf börnunum þessar jólagjafir, en þær drógust ekki út í leikfangahappdrætti því, er félagið efndi til. — Á myndinni, auk jólasveinsins og Önnu litlu, er forstöðu- kona Vesturborgar, Ingibjörg Jónsdóttir og Jóhann Eyjólfsson, formaður Vals. (Ljósm. Mbl.: Öl. K. M.) Filllranf S.Þ. íúslr til ni framlengjo irestinn Málinu hefur þé ekki verið hreyfi eonþá. ÁrangisrsSausar viðræður um fangaskipfi í Kéreu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB TÓKÍÓ, 27. des. — Hinn 27. nóvember s. 1. sömdu styrjaldaraðilar í Kóreu svo um, að markalínan við hugsanlegt vopnahlé skyldi miðast við vígstöðu herjanna þá, ef samningar hefðu tekizt innan 30 daga um önnur atriði vopnahlésins, ella yrði að semja um markalínuna að nýju. Ferstur þessi er nú liðinn én sanmingsaðilar hafa þó ekki minnzt einu orði á málið. Rætt var um fangaskipti í Panmunjom í dag. <S---------------------------------- VILJI FVRIR HENDI Ridgway hershöfðingja hefur verið veitt heimild til að fram- lengja þennan frest f. h. Sam- einuðu þjóðanna um skemmri tíma, ef þurfa þykir. Fregnir frá bækistöðvum S. Þ. í Kóreu herma, að þar sé fyrir hendi vilji til að framlengja frestinn og talið er að kommún- istar séu þess einnig fýsandi, enda þótt hvorugur aðila hafi enn hreyft því máli. FANGASKKIPTI Fulltrúar kommúnista í Pan- munjom lýstu því yfir í fanga- skiptanefndinni í dag, að lofts- lag og sjúkdómar hefðu orðið mörgum bandarískum stríðsföng- um, sem nú er saknað, að fjör- tjóni í Norður-Kóreu. Hér er 'um að ræða m. a. um 1000 banda- ríska stríðsfanga, sem ekki var getið á fangalista þeim, er lagð- ur var fram fyrir jólin. Libby sjóliðsforingi, einn af fulltrúum S. Þ. sagði eftir fund- inn í dag, að ef til vill hefðu kommúnistar með þessu gefið í Framh. á bls. 12. Taft, Warren og Stassen FILADELFÍU 27. des. — Banda- ríski stjórnmálamaðurinn Har- old Stassen tilkynnti í dag, að hann mundi vinna að því, að verða tilnefndur, sem forsetaefni flokks repúblikana við forseta- kosningarnar á næsta ári. Áður höfðu þeir Robert Taft, öldungadeildarþingmaður og Earl Warren ríkisstjóri í Kali- forníu gefið sams konar yfirlýs- ingar. Stassen er nýkominn úr ferða- lagi frá Evrópu, þar sem hann ræddi m. a. við Eisenhower hers- höfðingja. Stassen hefur til skamms tíma verið talinn stuðn- ingsmaður hershöfðingjans. Har.n er aðeins 44 ára að aldri og er nú forseti Pennsylvaniu-Háskólans í Fíladelfíu. — Reuter—NTB. Lögregla berst vlð stúd- enta á götum Kaíróborgar FÁRVÍÐRI VIÐ ENGLANDSSTRÖKD LUNDÚNUM, 27. des. — Stór- viðri geisaði í dag meðfram vest- urströnd Englands og hefur vind- hraðinn komizt upp í 160 km. á klukkustund. Hefur fárviðrið valdið gífur- legum spjöllum, m. a. rifið þök af húsum og kippt upp stærðar trjám. Símalínur hafa rofnað og ekki verið unnt að hefja við- gerðir sökum veðurs. Sæsíma- kaplar landa á milli hafa einnig rofnað. Skip, sem stödd eru við suður- og vesturströnd Englands voru mörg hætt komin í dag og risaskipinu Queen Mary seinkar um tvo daga af þessum sökum á leið sinni til Southampton, þar sem Churchill forsætisráðherra fer um borð í skipið á sunnudag á leið sinni til fundar við Tru- man forseta. Þykjast sjómenn er voru stadd ir á þessum slóðum ekki hafa séð annan eins stórsjó og þar var. Reuter.-NTB. G. 0. Sars í viðgerð BERGEN og Álasundi 27. des. — Norðmenn hafa ákveðið, að snekkjan Andenes hefji síldarleit og hafrannsóknir strax eftir ára- rnótin í stað rannsóknarskipsins G. O. Sars, sem laskaðist nýlega er það kenndi grunns. G. O. Sars verður nú tekið til viðgerð- ar og er búizt við að henni ljúki, þannig að skipið verði sjófært á ný, um 10. janúar n.k. Andenes hefur oft verið við norðurströnd íslands á sumrum við eftirlitsstörf. — NTB. SKÓLUM LOKAD 0G NEYÐARÁSTANDII LÝST YFIRIKAIRÓ OG ALEXANDRÍU j Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB. KAIRÓ, 27. des. — Egypzk yfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í tveim stærstu borgum landsins vegna alvarlegra átaka, sem urðu í dag milli lögregluliðs og stúdenta, er fóru hópgöngur um göt- urnar og unnu spellvirki. Æð óákveðinn tíma. Flugmennirnir lálnir lausir ★ BUDAPEST, Wínarborg og New York 27. des. — Banda- rísku flugmennirnir sem neyddir voru til að lenda í Ungverjalandi á dögunum hafa nú verið dæmdir í 30.000 dala sekt hver og til vara 3 mánaða fangelsi. ic Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur boðizt til að greiða fé þetta, samtals 120.000 dali gegn því að fulgmennirnir verði tafarlaust látnir lausir. it I fréttum frá Budapest herm- ir að flugmennirnir verði af- hentir bandaríska sendiráð- inu þar í borg á föstudag og verði þeir þá þegar fluttir í bifreið til austurrísku landa- mæranna. Ákvörðun Bandaríkjastjórn- ar að greiða féð, hefur feng- ið mjög misjafnar undirtekt- ir blaða þar í landi og tala sum þeirra um mannrán og lausnarpeninga í þessu sam- bandi. — Reuter—NTB. skólum hefur verið lokað unx 2 STUNDA BARDAGI Stúdentar í Kairó fóru i dag hópgöngu til hallar Far- úks konungs undir vígorðinu „Enga málamiðlun við Eng- lendinga". Lögreglulið gerði tilraun til að stöðva hópgöng- una og sló í bardaga, sem stóð í 2 klukkustundir. Hófu stúd- entarnir ákafa grjóthríð að lögreglumönnunum, en þeir svöruðu með táragassperngj- um og skothríð til lofts. Tókst stúdentum að hrjóta mótspyrnuna á bak aftur og héldu inn á aðalumferðargötur borgarinnar, þar sem þeir veltu vöruflutningabifreið um koll o@ kveiktu í. Ennfremur brutu þeir ljósastaura og gluggarúður. Tóku þeir tvo lögregluþjóna höndum og höfðu þá með sér sem gísla. j MÓTMÆLI GEGN RAÐU- NAUTUM KONUNGS Farúk konungur hefur skipað tvo fyrrverandi sendiherra i Lundúnum, til að gegna störfum sem ráðunautar í utanríkismál- um. Stúdentar telja þetta merki þess, að konungurinn hyggist gera tilraun til að leysa deiluna við Breta með samningum með tilstuðlan hinna nýju ráðunauta, sem taldir eru vinsamlegir i garð Breta. Verður Mossadcq forsætisráð- herra leiddur fyrir landsdóm? Slarísmsnn í Ábadan fá ekki greidd laun sín SKÓLUM LOKAÐ Háskólanum í Kairó hefur ver- ið lokað um óákveðinn tíma, og auk þess flestum öðrum æðri skólum. Síðast þegar til fréttist höfðu óeirðirnar hjaðnað en lög- reglan er stöðugt á ferli um göt- ur borganna og öflugt varalið hefur verið kvatt út. Fjöldi stúdenta særðist í óeirð- unum og hafa þeir verið lagðir í sjúkrahús, en lögreglan hefur einnig tekið marga þeirra í sín- ar vörzlur. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB TEHERAN, 27. des. — Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í persneska þinginu gerðu harða hríð að Mossadeq forsætisráðherra í neðri deild þingsins í dag. Telja þeir, að Mossadeq hafi leitt ógæfu yfir þjóðiná. Skoruðu þeir á forseta þingsins að kalla saman sérstakan fund, þar sem þeir hyggjast leggja fram formlega kröfu um að forsætisráðherrann verði leiddur fyrir landsdóm. Skv. stjórnar- skrá landsins ber forsetanum skylda til að kalla saman sérstakan fund innan 30 daga til að fjalla um slíkar kærur. ---------------------------♦ÁSAKANIRNAR Kosiungshjón í heimsókrc STOKKHÓLMI, 27. des. — Sænsku konungshjónin fara í opinbera heimsókn til Noregs og Danmerkur í marsmánuði næstk. Undirbúningur fararinnar er þeg ar hafinn í Stokkhólmi, en brott- farardagurinn hefur þó ekki ver- ið endanlega ákveðinn. Kon- ungshjónin halda fyrst til Osló- ar en þaðan til Kaupmannahafn- ar. — NTB Stjórnarandstæðingar halda því fram að Mossadeq hafi brctið landslög, rænt þjóðina frelsi sínu, leitt yfir hana efna hagslegt öngþveiti og hrun og ekki sýnt þinginu nægilega virðingu og traust. Harðar umræð.ur urðu um efna hagsmál í persneska þinginu í dag og kom þá fram krafan um að Mossadeq yrði stefnt fyrir lands- dóm. Um jólin gerðu allmargir persneskir starfsmenn í olíu- hreinsunarstöðvunum verkfall sökum þess, að núverandi eigandi Framh. á bls. 12 FELLUR STJÓRNIN? Síðustu atburðir í borgum Egyptalands hafa komið þeim orðrómi á kreik á ný, að stjóm Nahas Pasha sé að falli komin, en staðfesting hefur þó ekki feng- izt á orðrómnum frá ábyrgum aðilum. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Se*nt í kvöld var tilkynnt, að 9 lögreglumenn og 17 stúdentar hefðu verið lagðir í sjúkrahús í Kairó vegna áverka er þeir hlutu í óeirðunum.__________ Fleiri varðskip DÓMURINN í landhelgismáli Norðmanna og Englendinga hef- ir að vonum vakið mikla ánægju í Noregi. Þó hafa sjómenn í Finnmörk í Norður-Noregi kvart- að yfir því, að landhelgisgæzlan sé langt frá því að vera nógu fullkomin, — það þurfi að auka varðskipaflotann vegna ágengni erlendra skipa. __ j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.