Morgunblaðið - 28.12.1951, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.12.1951, Qupperneq 7
| Föstudagur 28. des. 1951 MORGZJ'NBLAÐIÐ Jóhann JÓIIANN EYJÓLFSSON frá | Sveinatungu er til moldar hnig- jnn. Hann verður til grafar bor- jnn í dag. Þar hefir merkismaður sitt athafnaríka æviskeið á enda jrunnið. Jóhann heitinn var fæddur að Sveinatungu 13. janúar 1862 og Vantaði því rúmar þrjár vikur á níræðisaldur, er hann andaðist |)ann 21. des. Foreidrar hans voru Eyjólfur Jóhannesson frá Hvammi og Helga Guðmundsdóttir frá Sáms- stöðum. Hún var af Háafells- a^tt. Voru þau hjón systkinabörn. Efni þeirra hjóna voru af skorn um skammti, einkum á meðan fcarnahópurinn var í ómegð. Gest- Jkvæmt var á heimili þeirra og glaðværð í Jiófi. Bæði voru þau íróðleiksfús og héldu í heiðri þjóð legum fræðum. Úr þeim brunni bergði í æsku S;~mundur guð- fræðikandidat, bróðir Jóhanns. Varð sú fræðaiðkun honum hug- Btæð alla ævi. . Gangvegur var ávallt að bæ Eyjólfs og fóru gestir þaðan hress ari í huga, er þungt var í skapi, þegar þá bar að garði. En glettni Eyjóifs í kveðskap gramdist þeim Stundum, er fvrir urðu. Jóhann heitinn var snemma otull til starfa og ósérhlífinn. Vann hann foreldrum sínum allt sem hann mátti við heimilisstörf- in. Nema á vertíðum, en þá sótti hann sjóróðra, þegar hann hafði jþroska til. Menntunar naut hann af skornum skammti í æsku, þó öllu frekari en þá var títt um a!- þýðufó'k. Lærði hann bæði skrift ©g höfuðreglur í reikningi. Bók- hneigður var hann og bókavinur. Lærði ungur bókband oe eignað- ist á síðari árum allmikið bóka- Safn. Snemma beindist hugur hans að fjáröflun, og varð þegar nokk Urð ágegnt í þeim efnum, er hann keyDti iörð af Ameríkufara og soldi aftur með nokkrum hagn- aði. Harðindi voru mikil á 9. tug Siðustu aldar. Hættu þá margir búskap og hurfu af landi burt, einkum frá harðbýlum fjalla- sveitum. Árið 1889 keypti Jóhann Sveina tungu ásamt búfé og byrjaði bú- skap um vorið. Hann keypti og Gestsstaði og byggði þá jörð næsta ár, og hófst handa með mikinn búskap. Sveinatunga var mjög túnlítil, varla tveggja kúa töðufa]], en út- heyskapur var afar langsóttur, tipp í fjallafióa. Varð Jóhann því oft 'að fá slægjur handan yfir Norðurá. Var skammt þess að bíða, að hann byrjaði á túnbótum í stórum stíl. Braut hann land til ræktunar, sléttaði gamla túnið og kom upp girðinguum. En mjög var öll ræktun í Sveinatungu erf- ið með þeim verkfærum, er þá þekktust. Árið 1895 reisíi hann mikið steinsteypuhús og vandaði vel þá smíði, eítir því, sem þá var um að gera. Var þetta fyrsta steinsteypuhús, er byggt var hér á landi og hið mesta stórvirki, eins og þá hágaði til um þekkingu ó shkri húsagerð. Varð að flytja allt hið erlenda og innlenda byggingareíni á klökkum, sement og timbur, 14 klst. lestaferð, úr Borgarnesi og steypusandinn óra- leið. Er sú húsagerð öll. efni í sögu fyrir sig. Annars húsaði hann jörðina prýðilega, reisti öll peningshús og auk þess stærðar geymsluhús. Eftir 26 ára umfangsmikinn bú- skap í Sveinatungu krypti Jó- hann Brautarholt á Kjalarnesi. Bjó hann þar rausnarbúi í 8 ár, en árið 1923 flutti hann alfarinn til Reykjavíkur og setti þar upp stærðar fornsölu, er hann rak um hríð. Síðustu árin vann hann heima hjá sér að bókbandi. Jóhann kvæntist árið 1891 Ingi- björgu Sigurðardóttur, ættaðri af Akransi. Ingibjörg var ágætis kona, reyndist manni sínum fram úrskarandi lífsförunautur. Hún andaðist árið 1934. Eítir það dvaldi Jóhann hjá Láru dóttur sinni og Gunnari manni hennar við bezta atlæti og aðhlynningn. Börn þeirra hjóna voru: Guð- • rún skáldkona, gift Bergsveini Jónssyni umsjónarmanni, Guð- mundur heitinn kaupmaður og bæjarfulltrúi, Eyjólfur fram- kvæmdastjóri, Helga, gift Elísi O. Guðmundssyni skömmtunar- stjóra, Sigurður bókhaldari, Vagn iðnrekandi, Lára gift Jóhanni G. Stefánssyni fulltrúa og Skúli kaupmaður, ennfremur áttu þau hjónin þrjár dætur er dóu í æsku. Auk þess tóku þau hjón í fóstur Jóhann Jónsson, bróðurson Jó- hanns heitins. Jóhann hafði á hendi mörg trúnaðarstörf fyrir hérað sitt. Hann var m. a. alþingismaður Mýramanna eitt kjörtímabil og sýslunefndarmaður og hrepps- nefndarmaður um langt skeið. Auk þess á,tti hann sæti í ýmsum nefndum, er fjölluðu^ um fram- faramál héraðsbúa. í mörg ár hafði hann á hendi íjárkaup um Borgarfjörð á haustin fyrir Nordalsíshús, ]eiddi þannig mikið fjármagn í héraðið. Urðu þau viðskipti holl og affarasæl mörg- um bændum, enda sóttust þeir mjög eftir viðskiptum við Jó- hann. Jóhann var fjársýslumaður aU mikill. Keypti hann á vorum sauð fé og hesta. Sveinatunga er af- bragðs sauðjörð og fé, er þar geng ur reynist ágætlega til frálags. Hafði hann því hagnað góðan af þeim kaupum, ef engin óhöpp urðu. Hestana notaði hann við þjóðvegavinnu á sumrin, því hann var um mörg ár vegavinnu- verkstjóri, en seldi þá aftur á haustin. Fékk hann oft fé að láni um nokkurn tíma til þess að greiða með verð skepnanna. Þá var lítið um lánsfé og menn fast- heldnir á aura sína. Jóhanni varð allra manna bezt til peningalána, jafnvel þó hann virtist hafa þröngt um hendur, því að svo var skilvísi hans mikil, að jafnan innti hann greiðsluna af höndum iyrir eða á hinum lofaða gjald- daga. Þetta vissu neningamenn og möttu líka að verðleikum. Það traust, sagði Jóhann að hefði flevtt sér bezt yfir brotsjói við- skiptalífsins. Jóhann var maður mjög vel greindur, skáldmæltur og skiót- ur til svars, hreinlyndur og hik- laus í framgöngu, einarður og höfðingjadjarfur og lét ógjarna hlut sinn við hvern sem skevtt var. ..Engi var hann kreddukinn" en virti hinar fornu venjur og dygsðir. Hann hikaði ekki við að fá lög og reglur afnumdar, er hann taldi þau úrelt, eins og tí- undarlögin meira en átta alda gömul er hann fékk úr löéum numin meðan hann sat á Albinei. Hann var hugkvæmur og bjart- sýnn og lét ekki sitia við orðin ein, er hann hnr frnmfaramál fyrir briósti. Sótti fast fram og linnti ekki á fyrr en hafizt var handa. Hann var upphafs- og aðalfram kvæmdamaður þess, að Þverár- réttir voru fluttar í byggð niður og steinsteyptar, sem þótti mikið mannvirki í þann tíð. Voru þær fyrstu steinsteyptar fjárréttir hér á landi. Hann stofnaði félag er gera skyldi Hvítá genga flatbotna iælbátum allt, upp að Kljáfossi. Fluttu bátar félagsins þungavör- ur udp eftir Hvitá og Norðurá héraðsmönnum til hagræðis. Sjálf rr hafði hann ýmsar nýjungar með höndum, þótt ekki heppn- uðust allar. Yfirleitt var Jóhann mikill bamkvæmda- og framfaramaður. \hugamaður var hann mikill um landsmál til síðustu stundar og 'ylgdist vel með þeim og lagði tlutlausa dóma á þing og stjórn. Honum voru dægurmálin færari til umræðu en fortíðin gagnstætt bví sem algengt er um gamal- menni, enda lítið farinn að sljógv ist andlega. Heilsuhraustur var Jóhann alla ævi og kvaðst aldrei hafa fundið til gigtar. Sætti hann þó oft vosbúð á ferðum sínum og hirti hann lítt um þótt vökn- aði í ám eða veðrum sem oft var í fjárkaupaferðum á haustin. Hann var iafnan hinn röskasti ferðamaður, kappgjarn og ógeig- ur að hverju sem hann gekk. Hélt hann sér vel til æviloka, nema sjón var orðin mjög sljó. Hann andaðist eftir 4 daga legu á spítala Jóhann var gleðimaður og framúrskarandi gestrisinnn. Með an hann bjó í Sveinatur.gu mátti feiimtiiii heita að hann byggði um þjóð- braut þvera. Voru þau hjónin samhent um að veita gestum sem mest og bezt. Það var ekki ein- göngu von um veitingargóða, sem laðaði gest að garði. Húsbóndinn var jafnan glaðvær og vænta mátti fróðlegra og skemmtilégra viðræðna. Það var aldrei ]ogn- molla þar sem Jóhann fór. Hann var siálfur iða^di af fiöri og kom öðrum í gott skap. Allt hugarvíl og barlómur hvarf. Bjartsýni hans smaug í brjóst hinna og s.jálfstraustið vaknaði. Jóhann gat með réttu tekið sér í munn heil’-æði Hávamála: „Glaðr og reifr skyli gumra hverr unz sinn. bíð’- bana.. . “ Gott bótti Jóharni að h-essa sig á ölföngum með virum sírum en enginn var hann drykkjumað- ur. Hann var hjálpsamur, veitull og vinsæll og ómælt er það. er b»u hión páfu fátækum. on ekki vildu þau láta þess að neinu getið. Vinirnir hans hurfu einn og einn, en menn á hans aldri hirða lítið um að fvl]a í þau skörð. Tek- ur því sú fvlking óðum að þvnn- ast en öllum þeim hefur hann sýnt órofatrvgeð. Þakka beir hon um fvlgdina hérna msgin og cska honum góðrar heinfe’-Car og vænta þess to þar vt’.ði ho’-ur.i falið að ..starfa nt.'-a "u£s í geim“. bví virr.uglsð'i rt- hafnaþ-áin ”?>• 'v—s v"—u";"f. Þorriei’in íorsteÍHsson. Jón Gíslason oddviti ara Á ÞESSU HAUSTI, hinn 5. okt. s. 1., átti Jón Gíslason hrepps- nefndaroddviti í Ey í Vestur- Landeyjum áttræðisafmæli. Fædd- ur er hann í Sigluvík í Landeyj- um. Foreldrar hans voru merkis- hjónin Gísli Eyjólfsson og Guðrún Ótafsdóttir ljósmóðir. Börn þeirra hjóna, er upp komust, voru 4 synir og 1 dóttir. Eru þrír þeirra bi-æðra látnir fyrir nokkrum ár- um, en á lífi er einn, Jón í Ey. Systir þeirra, Kristín fyrrverandi húsfreyja í Hvammi í ölfusi er nýlega látin í Reykjavík. Var hún fyrir löngu þrotin að heilsu og kröftum, eftir dugmikið ævistarf. Jón giftist 5. okt. 1895, Þór- unni Jónsdóttur frá Álfhólum, hinni mestu dugaðar og myndar- konu, sem nokkrum árum síðar varð ljósmóðir sveitarinnar, og hefur nú gengt því starfi yfir 50 ára skeið. Tóku þau þá til ábúðar jörðina Sleif, scm var lítið og fremur rýrt býli. Þar bjúggu þau til ársins 1924, þá fluttu þau það- an, fór þá jörð sú í eyði og lagðist undir Álfhóla. 1 Sleif eignuðust þau tólf börn, eru tíu þeirra á lífi, sex synir og fjórar dætur, sem öll eru að heiman farin til búskapar. Jón var kosinn í hreppsnefnd Vestur-Landeyjahrepps 1902 og hefur átt sæti í henni síðan, sem oddviti yfir 40 ár. Sýslunefndar- maður var hann í nærfellt 20 ár og í skattanefnd, síðan skatta- lögin voru sett. Mörgum íleiri trúnaðarstörfum hefur hann gengt, fyrir sveit sína og hérað. Hann mun eins og aðrir þeir, sem við opinber störf fást, ekki hafa að öllu leyti losnað við ómilda dóma einstakra manna, en slíkt hefur hann látið sér í léttu rúmi liggja og jafnan unnið störf sín með skyldurækni og reglusemi. Hann fékk í vöggugjöf góða hæfi- leika, en Htillar menntunar mun hann hafa notið í æsku, enda minna um skóla þá, en nú á tím- um. En löng lífsreynsla hefur ver- ið honum, sem öðrum alþýðumönn- um, góður skóli. Jón ber aldurinn vel, er við góða heilsu, jafnan hress og skemmti- legur heim að sækja. „Þú fögur sál er ávallt ung, undir silfur- hærum“. Heimili þeii'ra hjóna hefur ætíð staðið opið með góðum veitingum og vingjarnlegum móttökum, öll- um þeim, sem að garði hafa borið. Á áttræðisafmælinu bárust hon- um hlýjar kveðjur víðsvegar að, og .samstarfsmenn hans í hrepps- nefnd færðu honum frá hrepps- búum, peningagjöf, ásamt skraut- rituðu ávarpi, vel gerðu. Jón Gíslason heí'ur verið gæfu- maður, átt ágætt heimili, mjög traustan lifsförunaut og börnin mörgu, mannvænlegu og dug- mikiu. Hann hefur alla tíð unnað kirkju og kristindómi, verið trú- maður, og treyst æðri máttarvöld- um. Því er bjart framundan hjá honum, þegar sól ævidagsins síg- ur til viðár. Megi hann enn lengi liía, við liðan góða, og verða aö lokum hinsta kvöldið umvafið fegurð og íriði. Sveitunyi. nsfca knaffspyman L Á LAUGARDAG urðu þessi úr- slit í l.-deild: Arsenal 2 — Wolverhampton 2 Blackpool 3 — Huddersfield 1 Bolton 1 — Stoke 1 Charlton 0 — Portsmouth 2 Derby 1 — Aston Villa 1 Fu.lham 1 — Burnléy 2 Liverpool 1 — Chelsea 1 Manch. City 3 — Sunderland 1 Middlesbro 2 — Preston 5 Newcastle 2 — Manch. Utd 2 W. Bromwich 3 — Tottenham I I West Bromwich byrjaði Tottenham vel og skoraði innan nokkurra mínútna, en þá tók heimaliðið að sækja sig og náði algjörri yfirhönd og hafði 2:1 í hléi en bætti siðan við því þriðja- í síðari hálfleik. Wolves náði strax yfirhönd gegn Arsenal og hafði fyrr" en varði 2 mörk yfir, en Arsenal tókst eftir harða baráttu í siðari hájfleik að jafna. í 2.-deild sigruðu öll reðstu liðin, Hu]l sigraði Sheffield Utd, 2:1, Coventry QPR með 1:4 og Blackburn West Ham, 3:1. Shef- field Wedn sigraði Everton, 4:0 og tók forustuna, vegna jafnteflis Rotherham og Brentford, 1:1. Yfir iólahátíðina fóru fram 2 umferðir, samloka umferðir, þar sem það lið, sem lék heima á jóladag, lék á veili andstæðings- ins á 2. jóladag. Úrsluin á jóladag urðu (úrslit síðari umf. i r.vigum): Arsenal 4 —• Portsmouth 1 (1:1) Aston Villa 3 — Wolves 3 (2:1) Bolton 3 — W. Bromwich 2 (2:3) Burnley 0 — Preston 2 (fr.) Charlton 0 — Tottenham 3 (3:2) Chelsea 0 — Maneh. City 3 (1:3) Huddersfld 1 — Derby 1 (1:2) Liverpool 1 — Blackpool 1 (0:2) Manch. Utd 3 — Fulham 2 (3:3) Sunderland 1 — Newcastle 4 (2:2) Middlesbro 3 — Stoke 0 I þessari síðustu 3. umf. hefur Manch. City gengið bezt, unnið alla sína leiki með nokkrum yfir- burðum, en Fulham og Hudders- field hafa ekki bætt aðstöðuna mikið, því að hvort fékk aðeins 1 stig. Boiton og West Bromwich. höfðu 2 lokaæíingar fyrir þriðju umferð bikarkeopninnar, 12. jan., en þeim lendir þá saman. Staðan er nú þessi: — Minoingaröfð Framh. af bls. 6 ur og bjargvættur, þegar örðug- leikarnir hafa steðjað að. Um 33 ára skeið hefur heimili þeirra Elísar og Ingibjargar ver- ið á Njálsgötu 5. Margur hefur* komið á það heimili og notið þar góðra stunda, umvafinn ástúð og hlýju þeirra góðu hjóna og barn- anna þeirra. Margs minnist ég, er ég hugsa þangað heim, sem lioið er og ber með sér birtu og yl í hugskoti mínu svo lengi sem ævin endist. Jeg þakka það ailt, og sendi nú mínum horfna frænda og ástvinum hans kveðju mína. — Blessuð sé minning hans. Guðs blessun og vernd fel ég mína kæru Ingibjörgu og frsendfólkið. Einn af frxndunum. Portsmouth 24 14 4 6 44:35 32 Arsenal 25 13 6 6 50:33 32 Mancn. Utd 25 13 6 6 57:39 32 Newcastles. 24 12 6 6 63:43 30 Bolton 24 12 6 6 41:38 30 Preston 24 12 5 7 49:31 29 Tottenham 25 12 4 9 47:40 28 Aston Villa 25 11 6 8 43:43 28 Liverpool 25 8 11 6 36:33 27 Charlton 26 11 5 10 46:46 27 Blackpool 25 10 6 9 42:40 28 Manch. City 24 10 5 9 38:36 25 Derby 24 10 5 9 42:41 25 Wolves 23 8 7 8 52:41 23 W. Bromw. 24 7 8 9 48:52 22 Burnley 24 7 8 9 28:36 22 Chelsea 24 8 4 12 31:43 20 Sunderland 23 6 6 11 35:42 18 Stoke City 25 7 3 15 30:58 17 Middlesbro 23 6 4 13 36:50 16 Fulham 25 4 6 15 35:50 14 Kuddersfld 25 4 5 16 29:54 13 TOGARASJÓMAMMA LUNDÚNUM 22. des. — Brezka póststofan hefur ráðið í sína þjónustu yfir eitt hundrað þús- und aukastarfsmenn, vegna jóla- anna. Póststofan tilkynnti, að póstur væri aðeins minni að þessu sinni en í fyrra en böggla- póstur, þó venju fremur mikill, einkum matvælasendingar erlend is frá. Póststofan í Hull hefur tilkynnt að hún hafi afgreitt rúmlega 2000 jólaskeyti frá togarasjó- mönnum á norðurslóðum. í 2,-deild urðu úrslit helzt yfir jólanátíðina: Birmingham 4 — Rotherham 0 (2:1) Blackburn 1 — Hull 0 (0:3) Bury 0 — Coventry 2 (0:3) Notts Co 3 — Sheff. Utd 1 (0:1) Sheff. Wedn 1 — Nottm. Forest 1 (1:2) Swansea 1 — Cardiff 1 (0:3) Brentford 1 — Southampton 2 (1:2) Staðan er nú: Cárdiff 24 12 6 6 42:27 30 Sheff. Wedn 25 12 6 7 57:41 30 Birmingham 25 11 8 6 36:30 30 Sheff. Utd 24 12 5 7 60:42 29 Nottm. For. 24 10 9 6 49:40 29 Coventry 24 8 4 12 35:49 20 Hull City 25 6 6 13 34:42 18 Blackburn 24 7 3 14 26:40 17 QPR 24 4 9 11 30:52 17 Mikil uppskera HVEITIUPPSKERA Spánverja á þessu ári nemur 4,150,000 tonn- um og er það næstum hálfri ann- arri milljón umfram það sem var á s.l. ári. Í .B53

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.